Þjóðviljinn - 18.08.1982, Síða 3
Miðvikudagur 18. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Þessir útlendingar voru að mynda afmælisbarnið, Reykjavfkurborg.í g**-, en I dag er borgin 196 ára gömul. Myndin er tekin á Lækjartorgi.
Ljósm. — gel. —
Hafnargarður á Grundarfirði skemmdist í óveðri:
Unnið af krafti
að endurijótum
,,Það fór dálitið úr hafnargarðinum i óveðrinu”,
sagði Ragnar Elbergsson, hreppsnefndarmaður
(AB) á Grundarfirði, en þar er verið að byggja
hafnargarð um þessar mundir, sem varð fyrir
nokkrum skemmdum i veðurlátum nú um helgina.
„Norðangarrinn leiðir hér inn
fjörðinn, og á háflæði á sunnudag-
inn var kominn uggur i menn,
þegar mest gekk á”, sagði Ragn-
ar.
Gert er ráð fyrir þvi aö garður-
inn verði styrktur á þessu hausti,
og hefur verið tryggt f jármagn til
þess verks, en það er framkvæmd
upp á 12 miljónir króna.
Aðspurður kvaðst Ragnar ekki
vita um tryggingamál i svona til-
vikum, ,,en þó geri ég frekar ráð
fyrir þvi að það sé ekki um að
ræða neinar tryggingar. Kostnað-
ur af viðgerð verður bara að tak-
ast af framkvæmdafé.”
En fátt er svo meö öllu illt, að
ekki boði nokkuð gott. Að þvi er
Ragnar sagði, hefur þessi
skemmd haft það i för með sér, að
liklega mun hafnargarðurinn
verða betri fyrirvikið. „Það er
þannig, að það er oft erfitt að
reiknaútrétta fláann á garðinum,
til þess að hann taki sem átaka-
minnst á móti briminu. Þarna
hefur náttúran sjálf séð til þess,
og það er auðvitað ákveðinn kost-
ur, þótt sá sé auövitað talsvert
dýr.
Og hvað sem öðru liður, þá er
unnið af fullum krafti að viðgerð
á garðinum og áframhaldandi
framkvæmdum við hann, fyrir
tilstilli stjórnvalda, hafnarmála-
Ragnar Elbergsson, hreppsnefndarmaður (AB) á Grundarfirði: Það er
stefna nýja meirihlutans að hafa gott samstarf við opinber yfirvöld i
hafnarmálum Grundfirðinga.
stjórnaroghreppsnefndar hér, en
það er á stefnuskrá nýja meiri-
hlutanshér (F & AB) að hafa gott
samstarf viö opinbera aðila i
hafnarmálum staðarins”, sagði
Ragnar Elbergsson á Grundar-
firði að lokum.
— jsj
Lára Rafnsdóttir.
Tónleikar
í Norræna
húsinu
Kl. 20.30 i kvöld halda þær
Anna Júliana Sveinsdóttir messó-
sópran og Lára Rafnsdóttir
pianóleikari tónleika i Norræna
húsinu.
Á efnisskránni verða sönglög
eftir R. Schumann (m.a. ljóða-
flokkurinn Frauen-Liebe und
Leben), Almquist, Rangström,
Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson
og Jón Þórarinsson.
Anna Júliana og Lára hafa
margsinnis komið fram opinber-
lega á tónleikum hérlendis. Þær
eru nú nýkomnar heim úr tón-
leikaferð i Danmörku, þar sem
þær komu m.a. fram á Borgund-
arhólmi og i Kaupmannahöfn.
Anna Júlíana Sveinsdóttir
Auglýsingasíminn
er 8-13-33
HM unglinga í skák:
lóhann um
miðjan hóp
Jóhann Hjartarson er nú um
miðjan hóp keppenda á IIM —
unglinga i skák sem fram fer
þessa dagana i Kaupmannahöfn.
Eftir 5 umferðir hefur Jóhann
hlotið 2 1/2 vinning.
í samtali við Þjóðviijann i gær
sagði Jóhann að mótið i ár væri
mun sterkara en heimsmeistara-
mót unglinga sern haldið var i
Mexikóborg i fyrra. Jóhann
tapaði i 1. umíerð fyrir Ný-
Sjálendingnum Lloyd, vann Vullf
frá Luxemburg i 2. umferð, vann
Hergodd frá Kanada i 3. umferð,
tapaði fyrir Barboleschu frá
Rúmeniu i 4. umferð og i gær
gerði hann jafntefli við Luce frá
Frakklandi.
Efstir á mótinu, sem tekur 13
umferðir, eru Benjamin frá
Bandarikjunum og Sokolov
Sovétrikjunum, báöir með 4 vinn-
inga. Athygli vekur slæleg
frammistaða sigurstranglegasta
keppandans, Short frá Englandi
sem hlotiö heiur 3 vinninga.
— hól
Norræna húsið:
Síðasta
opna
húsið
Nanna Hermannsson borgar-
minjavörður flytur erindi á
dönsku og sýnir litskyggnur um
Reykjavik fyrr og nú i Norræna
húsinu á fimmtudagskvöld nk.
Eftir hlé verður sýnd kvikmynd
Osvaldar Knudsens „Reykjavik
1955” en það er 35 min. kvikmynd
tekin i lit og sýnir þróun borgar-
innar, ýmsar byggingar og ibúa.
Myndin er með islensku tali.
Góð aðsókn hefur verið á Opnu
húsi i sumar og hafa íerðalangar
frá Norðurlöndunum og aðrir
fengið að hlýða á visnasöng, og á
erindi um Flóru íslands, Islensku
handritin, Grænland, Halldór
Laxness og tsland, eldvirkni á Is-
landi, og nú i lokin verður fyrir-
lestur um Reykjavik fyrr og nú.
Kvikmyndir Osvaldar Knudsens
hafa jafnan verið á dagskrá.
1 anddyri hússins er enn sýning
á flóru Islands, i bókasafninu má
skoða bækur um ísland á Norður-
landamálum ásamt norrænum
þýðingum á islenskum bókum.
Utanhúss sýnir John Rud frá
Danmörku granithöggmyndir.
Nýr félagsmálastjóri
í Kópavogi:
Bragi Guð-
brandsson
ráðinn
félagsmálastjóri I Kópavogi.
Bragi Guðbrandsson félags-
fræðingur hefur verið ráðinn
félagsmálastjóri i Kópavogi og
var það ákveöið á fundi bæjar-
ráðs Kópavogs i gærkvöldi.
Bragi Guðbrandsson er fæddur
23. september 1953 og er sem áður
sagði félagsfræðingur að mennt.
Hann hefur undanfarin 5 ár
starfað sem kennari við Mennta
skólann i Hamrahlið og siðustu
árin verið deildarstjóri á félags-
sviði. Þá hefur hann auk þess
stariað i iðnaöarráðunneytinu
sem ritari staðarvalsnefndar
vegna orkufreks iðnaðar. Gert
mun ráð fyrir að Bragi taki til
starfa um næstu mánaðarmót.
• •
Oldruðum
boðið
/
íslandsferð
Allir þátttakendur i orlofsferð-
um aldraðra 1982 fengu i dag boð
frá Samvinnuferðum-Landsýn
um dagsferð um ísland. Lagt var
af stað kl.8.45 i morgun og verður
ekið um söguslóðir suðurlands,
farið á Þingvöll og Laugarvatn,
þar sem boðið er upp á hádegis-
verð.
Efntertil þessarar boðsferðar i
tilefni af ári aldraðra.