Þjóðviljinn - 03.09.1982, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.09.1982, Blaðsíða 7
tekur viö. Brynjólfur frá Minna- núpi samdi eina fegurstu ástar- sögu sem á blað hefur komið með sögunni af Natan Ketilssyni og Rósu, en svo hefur fróður maður sagt mér, að hann hafi verið allur i sannleiksgildi sagna og liklega ekki hvarflað að honum skáld- skapur. Eitt má þó vist telja, að sagn- fræðingur veröi ekki að gagni nema hann hafi ákveöna skoöun á viðfangsefni sinu. Að til séu al- gildar og óhagganlegar staö- reyndir i sögu er gróinn og leiður misskilningur. Við getum ekki svo vel sé, gert okkur grein fyrir staðreyndum i samtið okkar, hvað þá þvi sem er löngu liðið. Ef sagan á að lifa verður hún að vera i sifelldri endurskoöun og endur- mati, og það er trú min að enginn viti þetta betur en Björn Th. Til eru þeir höfundar, sem eins og beina kastljósi að viðfangsefni sinu I von um að öðlast skarp- skyggni. Myndin verður hörð, svart-hvit án blæbrigða, efniö kafnar i skýringum. Ekki er þetta háttur Björns. Hann læðist út úr koluskugga vopnaöur ritstil með skriðbyttu i hendi. Hann bregður upp mynd sem sindrar i húminu, nærfærinn blandar hann litum orðanna uns flöturinn skin i heild sinni og hann getur sett punkt aftan við fallega málsgrein. Skáldið og fræðimaöurinn skylm- ast af mikilli fþrótt og veitir ýms- um betur. Gott er að lesa Björn, en ekki siðra að heyra hann. Hann er einn af seinustu niöjum mikillar ættar sögumanna á fslandi. Allt fer þar saman, leiklist, skáldskapur, lát- bragðslist ásamt ýmsum stil- brögðum öðrum, og er ekki gagn að nema sérhver þulur kunni aö móta sin eigin sérkenni. Allt þetta hefur Björn i hendi sér, það fer ekki framhjá neinum þegar hann gengur i salinn. örtölvuöldin er ekki slíkum mönnum hliðholl. Aö horfa uppá móðurmálið drabbast niöur i munni þursa, með ótrúlegum hraða, veldur þeim nánast lfkam- legum sársauka Skáld, þvi sem næst óskrifandi á fslensku, gefa út bækur og höfundar illa eða ekki talandi flytja efni f fjölmiðla, en enginn skyldi ætla sér þá dul aö blaka við þvi sem menn fjöl- menntaðir en óupplýstir kalla þróun. Og þá er komið að heillaóskum. Við þær vildi ég einungis bæta einlægri ósk minni, að i fyllingu timans hittist þeir fyrir hinum megin vinirnir Björn Th og Skáld-Sveinn og þá skal veröa mikið korrlró og dillidó. Kjartan Guðjónsson Nafn Björns Th. Björnssonar listfræðings er svo rækilega sam- tvinnað islenskri myndlist á þess- ari öld að i raun réttri ætti hann i dag að vera að halda upp á átt- ræðisafmæli sitt, en ekki sex tugi ára. Það er okkar happ að árin skuli ekki vera fleiri og okkar von að á áttræðisaldri verði Björn eins ern og afkastamikill og vel þekktur lærifaðir okkar margra, danska kempan Broby-Johansen. 1 umfjöllun um islenska mynd- list eldri sem nýrri, alþýðu- fræðslu i fjölmiðlum, kennslu i listasögu á nær öllum skóla- stigum, svo og f skipulagningu listsýninga hefur Björn unnið brautryðjandastarf sem ekki verður metið á þessum vettvangi. Það var þvi enginn hægðar- leikur fyrir okkur yngri kollega hans að hefja störf fyrir áratug eða svo, þvi mörgum fannst okkur eflaust sem Björn hefði á sinum langa ferli fjallað um flest það sem máli skipti i islenskum myndlistarfræðum og gert það meö eftirminnilegum glæsibrag. Hann var þvi fremur upp- burðarlitill, hinn ungi og nýbak- aði listfræðingur, sem hér heldur á penna, þegar hann að tilmælum Björns tók við kennslu hans við Myndlista og handiðaskólann haustið 1974, eftir að Björn hafði kennt þar i hartnær aldarfjórð- ung. En það var eins og við manninn mælt — hvenær sem leitað var tii Björns var hann ósinkur á heil- ræði, aðstoö og aðra fyrirgreiðslu og er ég tæpast einn um þann vitnisburð. Alla sina þekkingu reiddi hann af hendi af þeirri kimniblönduöu hógværð, skarp- Föstudagur 3. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA J skyggni og háttvisi sem hann er landsþekktur fyrir, þannig að sérstök ánægja fylgdi þvi að vera þiggjandi hennar. Hefur svo verið æ siðan. Fyrir okkur sem e.t.v. freistuð- umst til að skoða myndlist úr fila- beinsturni, var hollt að hafa að- gangað fræðimanni sem á kjarn- miklu og fögru máli sýndi fram á tengsl myndlistar við þjóðlifið og brýndi fyrir lesendum sinum sem hlustendum að listin stendur ekki ein og sér eins og óaðgengileg skólastik, heldur þiggur ætið frjó- magn sitt frá alþýðunni og er um leið aflvaki hennar. Birni Th og konu hans, Asgerði Ester, sendi ég bestu þakkir og hamingjuóskir. Aðalsteinn Ingólfsson Ég kynntist Birni Th. Björns- syni gegnum útvarpið. Það var löngu áöur en ég kynntist honum i eigin persónu. Hann var að kenna hlustendum að meta góöa ensku. Þá tungu haföi ég ekki heyrt tal- aða á öldum ljósvakans nema i si- bylju út um sjoppugöt og sendi- bflaglugga, af flámæltum eða hol- góma mönnum. Hafi mér þótt enskan ljót breytti Björn þeirri skoðun á tveimur ógleymanlegum sið- kvöldum. Kynning hans á leikriti Wilde, The Importance óf Being Earnest i meðferð valinkunnra leikara, braut isinn. Nokkru siöar heyrði ég þróttmikla al- þýðurödd Dylan Thomas hljóma i þætti Björns og ég fór og keypti kvæðasafn skáldsins og las, þótt ég skildi ekki nema annað hvert orð. Svona reyndist honum auð- velt að vekja áhuga hlustenda á lifandi tungum, meðan þær voru kenndar sem dauður bókstafur i skólum landsins. Þannig er fræöarinn Björn Th. Björnsson. Menning er lifandi og það er inntakið i viöhorfum hans. List er ekki bundin viö gull- rammað skilderí fyrir ofan arin- hillu ellegar höggmynd á stalli i skrúðgarði. Hún getur fullt eins veriö gott handbragð iðnaðar- manns, útsaumur hannyrðakonu eða einhver önnur sköpun hins óbreytta manns. A hvaða vett- vangi sem er, hvort heldur i ræðu eða riti, kemur sú skoðun hans skýrt fram aö milli hámenningar og alþýðumenningar, heimslistar og heimalistar eru engin þekkt landamerki, heldur stöðugt og si- kvikt flæði. Björn bindur sig ekki við troðnar slóðir, heldur ræðst i allar torfærur sem liggja frá breiðum vegi listasögunnar. Þar finnur hann önnur sjónarhorn sem varpa nýju ljósi á áður viðteknar staðreyndir. Gildir þar einu hvort um er að ræða eldri eöa yngri list, innlenda eða erlenda. Hér ætla ég ekki að rekja feril Björns, en bendi á að hann er brautryöjandi á ófáum sviöum listfræði hérlendis. Skrif hans fylla aragrúa bóka. Þar nýtur hann þess hve óvenju snjall penni hann er. I ræðu leggur fólk ósjálf- rátt við hlustirnar, læröir jafnt sem leikir, þegar áheyrileg rödd hans hljómar. Kemur þar til róleg og yfirveguð framsögn Björns ásamt næmri þekkingu hans á is- lensku máli. Og nú er hann kominn á sjö- tugsaldurinn, jafnsprækur sem endranær. Þótt hann eigi langan feril að baki og nægilega litrikan til að kallast megi mikið og gott ævistarf, lætur hann engan bilbug á sér finna. Hann sækir sifellt á brattann af ódrepandi áhuga og lifsþrótti. Að þessum fátæklegu oröum loknum, óska ég þeim hjónum i Karfavogi innilega til hamingju með afmælisbarnið. Halldór B. Runólfsson Ég sé það á bréfspjaldi, sem mér var að berast að við erum teknir að reskjast, nafni, enda er orðið langt siðan við fórum að grafa guil eða geirfuglagrindur á Suðurnesjum og veiddum i land- helgi hjá honum Ottari Ellingsen. Okkur hefur vist láðst að gefa þjóðminjasafninu skýrslu um Suðurnesjaferðina, en mig minnir að við værum staðnir að haug- broti Flanka landnámsmanns, sem reyndist hafa verið með hrosshausog staðið á sauðaleggj- um. Ekki auðguöumst við á geir- fuglagrindum; Suðurnesjamenn brenndu þær vist i eldiviðarleys- inu i gamla daga. Þá fór margt i eldinn eins og gróðurinn á Strandarheiðinni, sem fólk heldur að hafi verið eyðifláki frá upphafi sköpunarverksins. Þar var blóm- legt um að litast i eina tið og ein- hverntima hýrnar þar yfir að nýju. Laugardaginn fyrir pálma 1980 um kl. 11 f.h. var skógræktar- stjórinn okkar leiddur upp á hæð suður af Brundtorfum við Gjásel, en vestur af Skirlifislaut i Straumsheiði. Þegar hann leit þar gróðurdýrðina, varð honum að orði: ,,Ja det er förste klasses skogsmark”. Sigurður Blöndal er skógfræð- ingur frá Noregi og mælir á norsku, þegar honum opnast nýjar viðáttur sköpunarverksins. Þar heitir siðan Sinnaskiptahæð. 1 tslensku teiknibókinni i Arna- safni segir þú fyrir nærri 30 árum að það sé nauðsynlegt aö kynnast fortiðinni frá mörgum sjónarhæð- um. „Skyldu þessa hafa tslend- ingar rækt hvað snertir atburða- sögu, mannfræði og bókmenntir”, en myndlistin lá þá sem útburður i garði islenskra fræða. „Sann- leikurinn er þó sá, að myndlistin mun ekki einungis vera elsta menningargrein tslendinga heldur má rekja þróunarsögu hennar órofa frá landnámstið og fram undir siðustu öld”. Þegar þetta var skrifað tókstu að príla með lesendur þina augn- dapra og gengislitla upp á hól myndlistarinnar, og við urðum nokkru auðugri en áður, auðvitað ekki að myndlist, þvi að hana skapar þú ekki, heldur af viðhorf- um til hlutanna. , Tötralegt krot á snjáð og rifið miðaldabókfell var ekki lengur jafnljótt og umkomu- laust og áður, og stundum, þegar þér tókst best upp, varð það allt að þvi fallegt og heilmikið lista- verk. Almáttugur visifingur þinn benti dag nokkurn á naivistann Isleif Konráðsson, og allir sáu þegar að þar var mikill lista- maður á ferð. Þú ert með skyggn- ustu mönnum sem hafa fæðst, og gæddur hæfileika til þess að segja frá þvi sem þú sérð. Það er svo mikil náðargáfa, að henni verður að fyrirgefast örlitlar ofskynj- anir, því að án þeirra væri hún einskis virði. Þótt fyrsti hluti myndlistarsögunnar allt frá dög- um Ingólfs sé enn i brotum trúi ég ekki öðru en hún verði til ef guð lofar. Þá safnar hann Hörður Agústsson efni i tilvonandi frá- bært rit um torfbæjaarkitektúr. Hér er dálitið tekið að gerast sið- ustu árin, en allt fram undir 1970 rikti mikiö harðlifistimabil hjá fræðimönnum. Þá drógumst við mjög aftur úr nágrönnum okkar i uppgjörinu á fortiðinni. Nýir sjónarhólar sáust fáir, en þú bentir á nýtt land og fagurt. Mörgum hefur verið þakkað fyrir minna. Ég þakka þér kærlega allar bækur þinar, sem eru svo skemmtilega bundnar sjónar- heimi, að lesandanum getur stöku sinnum dottið i hug, að heyrnin hafi ekki veriðmjög skörp.en hún hefur batnað með aldrinum. Ann- ars er ég þér sérstaklega þakk- látur fyrir framlag þitt til sagn- fræðinnar við Háskóla Islands. Við sagnfræðistofnunina sveitast menn ávallt viö heimildarýni, en fyrir þinn dag á þeim bæ höfðu þeir að miklu leyti gleymt þvi að myndlistin er ómetanleg heimild um veröldina sem var, grimmd hennar og fegurð. Löngu, löngu áður en menn drógu til stafs,' tjáðu þeir reyoslu sina i linum og litum og buðu á málverkasýn- ingar i hellum og hreysum og jafnvel á skrokknum á sér. Lik- lega er engin sjónarhæð fróðlegri til þess að kynnast manninum á liðnum öldum en myndlistarhóll- inn þinn, enda eru fyrirlestrar þinir vel sóttir og hafa aflað heimspekideild auðæfa I lista- verkum. Lliklega stendur lista- sagan traustari fótum i veruleik- anum, þegar á allt er litiö, en margar aðrar greinar sagnfræð- innar. Pólitisk saga hefurlöngum verið ambátt hrokans og vald- niðslunnar og er sögð á fárán- legan hátt, nema helst af Bene- dikt Gröndal i Heljarslóðaror- ustu. Við þurfum meiri listasögu i okkar ómannlega, tölvuvædda heim. Ég óska þess að þú eigir eftir að leiða lesendur þina um margar hafnarslóðir og sýna þeim stór aldateikn á alþingi og útnesjum. Þá verður gaman á jólunum. Við Guðrún þökkum ykkur hjónum langa og trygga vináttu og óskum ykkur alls hins besta. Björn Þorsteinsson Blaðberar óskast Þjóðviljann vantar blaðbera strax i eftir- talinhverfi: Flúðasel — Fljótasel — Kambasel —1 Seljabraut Laugarnesveg—Laugalæk Hraunteig — Kirkjuteig — Silfurteig — Otrateig Selvogsgrunn — Kleifarveg — Sporða- grunn Flókagötu DIODVIUINN ' simi 81333 LANfra ^ UFEÝRIS SJOÐUM HVAÐ ÞÝÐA VEXTIR AF VERÐTRYGGÐUM LÁNUM? SVAR: Þegar verölag er stööugt eru vextir sú leiga, sem skuldari greiöir fyrir að hafa peninga að láni. Þessu er ekki til að dreifa í veröbólgu. Peningarnir aukast kannski að krónutölu, en verögildi þeirra rýrnar, eða sú hefur verið reynslan hér á landi síðustu áratugina þrátt fyrir háa vexti. Allt öðru máli gegnir um verðtryggð lán. Þar sér verðtryggingin um að viðhalda verðgildi lánsins og vextirnir fara aftur að vera raunveruleg leiga og hvert prósentubrot í vöxtum skiftir meginmáli, þegar um verðtryggð lán er að ræða. Dæmi: Ef maður fær lánað fyrir nýju húsi með 2% vöxtum og verðtryggt miðað við byggingar- vísitölu og þyrfti ekki að greiða af láninu á láns- tímanum, þá verður hann að borga andvirði tveggja nýrra húsa til baka eftir 35 ár. Ef vextirnir eru 2.5% veröur hann að borga andvirði tveggja nýrra húsa eftir 28 ár, 3% vextir þýða 23.5 ár. 8% ávöxtun eins og auglýst er á frjálsum markaði, þýðir að maður sem fær lánað fyrir nýju húsi í dag, verður að borga andvirði tveggja nýrra húsa til baka eftir 9 ár! Nýlega hækkaði Seðlabankinn vexti af verð- tryggðum lánum lífeyrissjóðanna úr 2.5% í 3% eða um 20%! Fáir virðast gera sér grein fyrir þýðingu þessarar hækkunar og eftirspurn eftir þessum lánum hefur ekki minnkað. SAMBAND ALMENNRA úiilLÍFEYRISSJÓÐA LANDSSAMBANDlX LÍFEYRISSJÓÐAl^

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.