Þjóðviljinn - 03.09.1982, Blaðsíða 12
12 StÐA — bJÓÐVILJINN Föstudagur 3. septembcr 1982
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Frá Þórsmörk. Sigurður Brynjólfsson á innfelldu myndinni.
Suöurnesjamenn athugið!
Þórsmerkurferð3—5. september
Alþýöubandalagsféiag Keflavikur efnir um næstu helgi 3.-—5. septem-
ber til annarrar fjölskylduferöar sumarsins. Leiösögumaður verður
Sigurður Brynjólfsson og mun hann njóta aðstoðar valinkunnra göngu-
manna þegar f Mörkina kemur. Þar gefst mönnum kostur á iengri sem
styttri gönguferöum og berjaferð i Langanes. — Gist verður I skála
Austurleiðar í Ilúsadal.
Lagt verður upp á f östudagskvöld kl. 20.00 frá Sérleyfinu og komið við á
biðstöðum þess. Áætlaður heimkomutimi er kl. 19.00 á sunnudag.
Þessiferðerkjörinfyrirþásemkomustekki með i þá siðustu og einnig
hina er komust meö og hafa beðið i óþreyju eftir næstu ferð.
Hafiðmeðykkur hlifðarfatnað, rúmfatnað, nesti og nýja skó.
Verðkr. 350. Frittfyrir 12ára ogyngri. Skráiðykkur timanlega isima -
1054 (Hulda), -3191 (Alma), -1948 (Sólveig), -2180 (Lóa). — Allir vel-
komnir. — Stjórnin.
Hreppsmálaráð Alþýðubandalags Héraðsmanna
boðar til fundar aö Tjarnariöndum 14 þann 6. september kl. 20.30
Ilagskrá
1) Vetrarstarliö kynnt.
2) Málefnasamningur hreppsnefndar
3) Sagt frá nýafstöönu SSA-þingi
4) önnur mál
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi.
Mjög áriðandi félagsi'undur vcrður haldinn í Kein mánndaginn 6. sept-
ember kl. 20.30.
Fundarefni. Akvörðun um meirihlutasamslarf í bæjarstjórn.
Áríðandi að allir fulltrúar í bæjarmálaráði félagsins inæti.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarinálaráðsfundur
Fundur vercður haklinn í Bæjarmálaráöi Alþýcðubanclalagsins í I lafnarfircii
mánudaginn 6. septemher n.k. í Skálanum, Slrandgdtu 41 og hefst kl
20.30.
Dagskrá:
1) Faric) yfir stöcðu bæjarmáht fyrir fyrsta bæjarstjómarfund eftir sumar-
leyfi.
2) Rætt um starfshætti bæjarmálaráðs og kosin nefnd til að endurskoöii
starfsreglur ráösins.
3) Önnur mál.
-Stjórnin.
ALLIR ÞURFA
AÐ ÞEKKJA
MERKIN /
Gunnlaugur A. Jónsson
Kveðjuorð
í tæp 30 ár hef ég verið félagi í
deildum Teigabúa í Sósíalista-
flokknum og síðar Alþýðubanda-
laginu. Margt hefur breyst á þess-
um árum. Menn hafa komið í
hverfið og deildina, og menn hafa
horfið aftur af ýmsum ástæðum.
Eitt hefur þó ekki breyst fyrren nú.
Gunnlaug á Laugateig 8 hefur
aldrei vantað í hópinn og ávallt viir
hann reiðubúinn til starfa af fullko-
minni óeigingirni ogfórnfýsi. Nú er
hann horfinn og verður til moldar
borinn í dag. Það fylgir undarleg
tilfinning þeirri vitneskju. að við
munum ekki framar sjá Gunnlaug
sístarfandi fyrir Alþýðubandalagiö
og Þjóðviljann. Hann vann ekki
þau störfin sem mest ber á en aftur
á móti hin sem mörgum finnst
þreytandi og hvimleið kvöð, sem sé
að bera út happadrætti hverskonar
og rukka inn andvirði miða, týna
saman félagsgjöld og bera út blöð
og bæklinga.
Kosningadagar voru öðrum dög-
um framar dagar Gunnlaugs. Hann
gat aldrei trúað öðru en að nú hlyti
okkar góði málstaður að sigra og
glaður og reifur vann hann á kosn-
ingaskrifstofunni og úti í hverfinu.
Úrslitin voru víst aðeins einu sinni í
samræmi við hans björtustu vonir,
eii það lét hann ekki á sig fá. Ifann
hélt út í baráttuna á ný í bjargfastri
trú á sósíalismann og sigur hans.
Heilsa Gunnlaugs var ekki góð
síðustu árin. en þó var hann með
fram undir það síðasta. Hann
stjórnaði fyrir okkur félagsvist í
kosningamiðstöðinni í vor. en þar
var rekin ýmiskonar félagsstarf-
semi auk venjulegs kosningastarfs.
Nokkrum dögum fyrir sumar-
ferð Alþýðubandalagsins í júlílok
urðum við Gunnlaugur samferða
heim af fundi. Hann hafði hugá að
taka þátt í ferðinni, en eitt var til
fyrirstöðu. Ferðin var farin á
laugardegi og Gunnlaugur þurfti
að bera út blöð. Fólki líkar ekki að
blöðin komi of seint sagði hann. og
þar sem ekki var auðvelt að fá ein-
hvern til að hlaupa í skarðið á rétt-
um tíma sleppti Gunnlaugur ferð-
inni, og fólkið þurfti ekki að bíða
eftir blöðunum frarn á sunnudag.
Þannig var samviskusemi hans.
Ég vil með þessum orðum þakka
Gunnlaugi öll störfin og vinarþelið
á liðnum árum, og ég veit að fé-
lagar okkar í Laugarnesdeildinni
taka undir kveðjuna.
Adda Bára Sigiusdóttir
Svar við lesendabréfi um
sýninguna HEIMILIÐ ’82
„Einn sem ekki lætur glepjast”
er í gær, alveg gáttaöur á þeirri
ósvifniaðlála fólk borga sig inn á
sýninguna Heimiliö og fjölskyld-
an'82 vegna þess að hún sé fyrst
og fremst auglýsing.
Ilann tclur sýninguna senni-
lega, þá einu i heiminum sem
þarf að borga sig inn á. Hann sér
ákveðnar málsbætur i þvi aö
þarna skuli vera Tivoli, en finnsl
mikið að borga 30 krónur fyrir
fcrð i skemmtitæki, og að lokum
varpar hann fram þeirri spuru-
ingu, hvað það muni kosta 5
mauna fjölskyldu að eyða þarna
einu kvöldi.
„Einum sem ekki lætur glepj-
ast” til upplýsingar, skal eftirfar-
andi tekið fram : Kaupstefnan hf.
Fjórðungsþing
Norðlendinga:
Fjallaði
um tvö
meginmál
Svo sem frá hefur verið skýrt
hér i blaðinu var Fjórðungsþing
Norðlendinga lialdið á Sauðár-
króki 26.—28. ágúst sl. Þingið
sóttu fulltrúar sveitarfélaga á
Norðurlandi og gestir, samtals
um 130 manns.
Tvö voru meginmál þingsins:
atvinnumál og verkaskipting
rikis og sveitarfélaga. Flutt voru
á þinginu sex erindi, um þessi
mál sérstaklega. Þá voru sam-
þykktar á þinginu 30 ályktanir um
hagsmunamál Norðlendinga, þar
á meðal timamótaáætlun um
breytta stööu landsbyggðarinnar.
Segir þar, að vegna yfirstandandi
endurskoðunar stjórnarskrár-
innar sé nauðsynlegt að mynda
samstöðu landshlutasamtakanna
til að fylgjast með þessu máli og
að kannaðar verði leiðir til að
draga úr röskun á stöðu dreif-
býlisins með stjórnarfarsað-
gerðum um valddreifingu og
dreifingu á þjónustustarfsemi
rikisins.
Samþykkt var ýtarleg ályktun
um atvinnuþróun á Norðurlandi.
Þar segir m.a. að röskun hafi
orðið i búsetu- og atvinnuþróun
fjórðungsins án þess þó að til
verulegra áfaila hafi komið i at-
vinnulifi hans. Lagði þingið þvi
m.a. áherslu á að atvinnurekstr-
inum verði tryggður starfsgrund-
völlur til arðabærs rekstrar og til
að tryggja viöunandi launakjör,
að orkuiðnaður verði einn af
undirstöðuatvinnuvegunum og að
þjónustustarfsemi á Norðurlandi
verði efld sérstaklega.
A þinginu var kosið i milli-
þinganefndir, fræðsluráð og
svæðisstjórnir, samtals um 100
manns. Nýr formaður Fjórðungs-
sambandsins var kosinn Þórður
Skúlason, sveitarstjóri á
Hvammstanga.
— mhg
þekkir engin dæmi um vörusýn-
ingar, þar sem ekki þarf að
greiða aðgangseyri, og hefur hún
þó upplýsingar um tugi sýninga
um viða veröld, sýningar sem
ýmist eru opnar öllum almenn-
ingi, eða eru þröngar fagsýn-
ingar.
Það að selt skuli inn á sýningu
er þvi varla álitamál — verðið
sjálft getur hins vegar verið álita-
mál —og þar sýnist auðvitaö sitt
hverjum.
Hvað aðgangseyri snertir þá er
rétt að vekja athygli á þvi að þeir
þrir þættir sem sýningin er ofin
úr — gæfu hver um sig tilefni til
að selt væri sérstaklega inn á
hvern þeirra þ.e.a.s. i fyrsta lagi
sýningin sjálf — i öðru lagi Tivo-
liið og I þriðja lagi skemmtikraft-
arnir — en þeim sleppir bréfrit-
ari algjörlega i sinni umfjöilun.
1 ljósi þessa alls verður að
skoða aðgangseyrinn 80 kr. fyrir
fullorðna, 25 krónur fyrir börn og
50 krónur íyrir ellilifeyrisþega.
Hvort þetta verð er hátt eða
lágt skal ekki dæmt um hér — en
aðeins minnst á útiskemmtanir
um nýafstaðna verslunarmanna-
helgi þar sem aðgangseyrir var
frá 100—500 kr fyrir manninn.
Um verð i Tivolitækin, er það
að segja að það er frá 10—30 kr.
fyrir manninn. Það kann að þykja
hátt þegar borið er saman við
Tivoli erlendis, en þá ber einnig
að hafa i huga að af hverjum 30
króna miða fara um það bil 10
krónur til rikisins i formi sölu- og
skemmtanaskatts — en það er
skattlagning sem Tivolirekstur á
Norðurlöndum er laus við.
Spurningunni um kostnað 5
manna fjölskyldu af heimsókn á
Heimilið'82 sem bréfritari varpar
fram, er erfitt að svara—þar
veldur algjörlega hver á
heldur — þó er hægt að íullyrða
að 5 manna fjölskylda getur átt
skemmtilegar stundir saman
fyrir lægri upphæð en 2 flöskur af
sterku áfengi kosta.
Með þökk fyrir birtingu.
Halldór Guðmundsson,
blaðafulltrúi sýningarinnar
Heimilið og fjölskyldan'82
Húsnæði óskast
Menntamálaráðuneytið óskar að taka á leigu húsnæði
fyrir eina af stofnunum sinum. 120—200 fermetra einbýiis-
hús i vesturhluta borgarinnar eða á Seltjarnarnesi kæmi
einna helst til greina.
Upplýsingar gefur Anna Hermannsdóttir deildarstjóri i
sima 20970 á skrifstofutima.
Menntamálaráðuneytið, 31. ágúst 1982
Síðsumar undir Jökli. Ljósm.: ráa