Þjóðviljinn - 03.09.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 03.09.1982, Blaðsíða 11
Föstudagur 3. september 1982 ÞJóÐVILJINN — 'stÐA lil Nú um helgina vcrður haldið í Kristalsal Hótcls Loftleiða í Reykjavík 56. íþróttaþing íþróttasambands íslands. Þar koma saman fulltrúar íþróttasamtakanna víðs vegar að af landinu. Alls eiga 154 fulltrúar frá 27 héraðsamböndum rétt til setu á þinginu og auk þess niunu margir gestir mæta. íþróttaþingið hefst kl. 10 á laugardag með setningar- ræðu Sveins Björnssonar, forseta ÍSÍog sigurvegurum í þeirri keppni aibent verðlaun. Þingið heldur síðan áfram á sunnudag og lýkur þá síðdegis. Á þessu 56. íþróttaþingi ÍSÍ verður tekinn fyrir mikill fjöldi mála er snerta íþróttastarfið í landinu og sérstaklega hina frjálsu íþrótta- hreyfingu, en þar er um að ræða stærstu félagasamtök í landinu / Asgeir skoraði tvö Asgeir Sigurvinsson átti stórleik með hinu nýja félagi sinu, Stutt- gart, i 1. deild vestur-þýsku knattspyrnunnar i fyrrakvöld. Stuttgart lék á útivelli gegn Nurnberg og sigraði 5—0 og skoraði Ásgeir tvö markanna. Stuttgarter i öðru sæti deildarinnar eftir þrjár umferðir meö 5 stig. Iþrótta- þinglSÍ íþróttir Umsjón: Víöir Sigurðsson Færeyjar og Sovét 1 fyrradag var dregið um hvaða lið skyldu mætast i fyrstu umferö Evrópumóta félagsliða i handknattieik, en þar taka þrjú islensk lið þátt. Islandsmeistarar Vikings ættu að vera öruggir með sæti i 2. um- ferð Evrópukeppni meistaraliða þar sem þeir leika gegn færeysku meisturunum Vestmanna. KR-ingar njóta nú góðs af góðri frammistöðu Þróttara i Evrópu- keppni bikarhafa i fyrra og sitja hjá i 1. umferð. FH-ingar voru ekki eins heppnir, þvi þeir drógust gegn sovéska liðinu Zaporolije. Þar verður um langt og kostnaðarsamt ferðalag aðræðaog möguleikarnir á að komast áfram hljóta að vera fremur takmarkaðir. Breiðablik — bikarmeistarar I knattspyrnu kvenna 1982 Mynd: —eik Breiðablik bikarmeistari Breiðablik varð i gærkvöldi bikarmeistari i kvennaflokki I knattspyrnu eftir æsispennandi úrslitaleik viö Val þar sem fram- lengingu og vitaspyrnukeppni þurfti til að fá úrslit. Breiðablik sótti öllu meira i leiknum, en Valsstúlkurnar börð- ust vel og gáfu ekkert eftir. A 18. min. siðari hálfleiks tók Rósa Valdimarsdóttir fyrirliöi Breiöa- bliks aukaspyrnu og sendi inn i vitateiginn þar sem Bryndis Ein- arsdóttir skallaði stórglæsilega i mark. Fjórum minútum fyrir leikslok komst svo Bryndis Vals- dóttir innfyrir vörn Breiöabliks, lék á markvöröinn og jafnaöi 1:1. Ekkert mark var skorað i framlengingu og gripa þurfti til vitaspyrnukeppni. Hana þurfti einnig aö framlengja og þaö var ekki fyrr en Dagný Halldórsdóttir skoraöi úr áttundu spyrnunni sem sigur Breiöabliks var tryggður. Blikastúlkurnar skoruðu úr 6 spyrnum gegn 5 og unnu þvi leik- inn7:6. —VS Undlrbúnlngur OL hafinn Olympiunefnd íslands hefur þegar hafið undirbúning fyrir þátt- töku islands i Ólýmpiuieikunum 1984. Sumarleikarnir fara fram i Los Angeles á Kyrrahafsströnd Bandarikjanna en vetrarleikarnir I Júgóslaviu og verða islenskir keppendur sendir á báöa staði. Gifurleg útgjöld fylgja þátttöku þessari ekki sist leikunum i Los Angeles. Ferðakostnaður er að sjálfsögðu mikill en ofan á hann bæt- ist mikill uppihaldskostnaður þar sem y firvöld i Los Angeles skipu- leggja leikana algerlega út frá gróðasjónarmiöi. Fjáröflunarstarf- semi ólympiunefndarinnar hefst af fullum krafti i haust. Opið hús í Þróttheimum Knattspyrnudeild Þróttar mun i vetur standa fyrir opnu húsi i Þróttheimum á laugardögum milli kl. 10 og 14. Starfsemin verður byggð upp i kringum getraunir, menn geta komið og „tippað” á leiki dagsins en einnig er aðstaða fyrir ýmis spil og leiktæki svo og trimm og jafnvel gufubað. Fyrsti dagurinn verður á morgun, laugardaginn 4. september. Knattspyrna um helgina: Úrslit gætu ráð- ist í 1. deildinni Senn dregur að lokum íslandsmótsins í knattspyrnu 1982. Um helg- ina verður leikin næst-síðasta umferðin í l.og 2.deild, næst-síðasta umferðin í úrslitakcppni 3.Deildar og úrslitaleikur 4. deildar. þá fer fram síðastl leikurinn i l.deild kvenna. Víkingar gætu tryggt sér íslandsmeistaratit- iiinn um helgina með sigri gegn KA á Akureyri svo framarlega sem ÍBV tapar stigi gegn ÍÁ á Akureyri og KR stigi gegn ÍBK í Keilavík- Leikir KA og Víkings, IBK og KR, svo og Ieikur Fram og ÍBÍ á Laugardalsvcllinum, hefj- ast kl. 14 á laugardag, en leikur ÍA og ÍBV kl.14.30. Á mánudagskvöldið kl. 18.30 leika svo Valur og Breiðablik á Laugardalsvellinum. í 2.deild cru þrír leikir á laugardag kl. 14. það eru Skallagrímur-Einherji, Völsungur- Fylkir og Þróttur N-FH. Á sunnudag leika Njarðvík-Revnir S kl. 14 og Þróttur R.-Þór A kl. 17. í úrslitakeppni 3.deildar mætast Selfoss-KS og Tindastóll-Víðir. Þá leika Ármann og Valur frá Reyðarfirði til úrslita uin sigurinn í 4. deild. Síðasti leikurinn í l.deild kvenna verður á sunnudag á Valsvellinum. Þar mætast Valur og Breiðablik. Jóhann Þorvaröarson og féla gar i Vikingi gætu tryggtsér * meistaratitilinn um helgina. # „Þær sænsku eru stór- ar og kröftugar” en við töpum engum leik fyrirfram og berjumst á fullu — segir Rósa Valdimarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins 1 knattspyrnu tslenska kvennalandsliðið i knattspyrnu tekur nú I fyrsta skipti þátt I Evrópukeppni landsliða, og lék á dögunum sinn fyrsta leik i þeirri keppni. Það var gegn Norðmönnum i Tönsberg og lauk þeim leik með jafntefli, 2—2 eins og kunnugt er. Sá árangur islensku stúlknanna kom mjög á óvart en norska liðið er taliö i hópi þeirra bestu i Evrópu. Auk tslands og Noregs leika Sviþjóö og Finnland i riölinum og tsland mætir Sviþjóð á Kópavogsvellinum á fimmtudaginn kemur. Það veröur fyrsti landsleikur i knattspyrnu kvenna sem fram fer hér á iandi. Þjóðviljinn ræddi i gær við Rósu Valdimarsdóttur, fyrirliöa Breiða- bliks og islenska landsliösins um islenska kvennalandsliðiö og þróun mála í knattspyrnu kvenna hér á landi. — Nú eruð þiö búnar aö leika tvo landsleiki, gegn Skotlandi og Noregi. Er komin einhver mynd á hvar við stöndum i samanburði við aörar Evrópuþjóöir? „Viö vitum að sjálfsögöu betur hvar við stöndum en þaö er litil reynsla komin á þetta ennþá. Um árangur skoska liösins vitum viö litiö en ef reiknaö er út frá af- rekum norska liösins stöndum viö vel aö vigi. Þær hafa ekki tapað i siöustu sjö landsleikjunum, meöal annars gert jafntefli viö Svia og burstaö Hollendinga og Frakka. Annars getur þetta allt breyst, úrslitin segja ekki alltaf allt”. — Var leikurinn i Noregi erf- iður? „Það er alltaf erfitt aö leika er- lendis og þessi leikur var ferlega erfiöur. Viö vorum skjálfandi af þreytu þegar viö komum út af vellinum”. — Hvaö vitið þiö um sænska liðið sem þið leikið gegn i næstu viku, annað en aö það vann Finna 6— 0 á dögunum? „Viö höfum skoöað leik þeirra gegn Hollandi i fyrra af mynd- segulbandi en Sviþjóð vann þar 7— 0 á heimavelli. Sænsku stúlkurnar eru mjög stórar og kröftugar en við komum til meö aö berjast á fullu á móti þeim eins og gegn Noregi. Ég vil engu spá um úrslitin, þau veröa bara aö koma i ljós en svo mikið er vist aö viö töpum ekki fyrirfram”. — Hvernig er undirbúningurinn fyrir leikinn? „Þaö er búiö aö æfa mikiö aö undanförnu, þaö er leikur i kvöld (sjá annars staöar á siöunni), æf- ing á laugardag og leikur i 1. deildinni á sunnudag. Siöan veröa einhverjar æfingar eftir helgina. Annars hefur oröiö talsverö breyting i sambandi við lands- liösmálkvenna. Mikiö hefur veriö lagt i undirbúning og hann hefur náð yfir langt timabil. Stelpurnar hafa lagt mikiö á sig, staðráönar I aö ná góöum árangri”. — Hvernig er staðið aö knatt- spyrnu kvenna á tslandi i dag? „Hjá minu félagi, Breiðabliki, hefur veriö starfaö vel og þaö fer vaxandi en ég veit ekki um önnur félög. Áhuginn er meiri, fólk veit meira um knattspyrnu kvenna en áöur, ekki sist þar sem fjölmiölar eru farnir aö segja betur frá henni. Viö erum helst óánægöar meö slaka frammistööu sjón- varps en þaö sýnir aldrei frá knattspyrnu kvenna. — Að lokum, Rósa hvernig list þér á framtiðina i knattspyrnu kvenna hér á landi? „Hún litur vel út, árangur landsliösins hingaö til er góður og ef haldiö er rétt á spilunum er Rósa Valdimarsdóttir, fyrirliði islenska landsliösins ekki ástæöa til annars en bjart- sýni. Unglingastarfiö er á réttri leiö, nú eru fimm eöa sex félög komin meö yngri flokk sem er eölileg og sjálfsögö þróun þvi ekki veröur um neina uppbyggingu aö ræöa ef þær yngri eru vanræktar. Þaö er veriö aö reyna aö koma af staö tslandsmóti fyrir yngri flokk og slikt er nauösynlegt þar sem stúlkurá aldrinum 14—16ára sem ekki komast i aöallið félaga sinna hefur tilfinnanlega skort verkefni og þær þvi oft hætt algerlega. Sem sagt, þetta er allt á uppleið og vonandi heldur sú þróun áfram”. Viö tökum undir þessi orö Rósu. Arangur landsliösins i fyrstu leikjunum lofar góöu og þaö er full ástæöa til aö hvetja fólk til að koma og fylgjast meö fyrsta kvennalandsleiknum hér á landi á fimmtudaginn gegn liði Svia sem er taliö eitt hiö allra sterkasta i Evrópu um þessar mundir. — VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.