Þjóðviljinn - 03.09.1982, Síða 16
PJOÐVUHNN
Föstudagur 3. september 1982
Aö»' tmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Uta.i pess tima er hægt að ná 1 blaöamenn og aöra starfsmenn blabsins i þessum slmum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga ki. 9-12 er hægt að ná 1 af greiðslu blaðsins 1 sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Einhliða aðgerðir íslands gegn Álhringnum koma vel til greina:
Grípum til eigin úrræða
sagði Hjörleifur og höfðaði til
fullveldisréttar íslendinga
— Viö munum grípa til okkar eigin úrræða sem
eru fólgin i okkar fullveldisrétti, sagði Ujörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra á blaðamannafundi i
gær er hann var spurður um framhaldið á viðskipt-
unum við Alusuisse ef hvorki gengi né ræki.
Á blaðamannaíundinum voru
kynntar niðurstööur staríshópa
sem sýna ótvirætt réttmæti þ( ss
að kiafist verði hærra raforku-
verðs og frekari skattlagningar á
Isal. Sagði Hjörleifur að auk
þessara niðurstaðna væru aðrar
væntanlegar i þessum mánuði um
lögfræðileg eíni, þjóðréttarleg og
fleira. Aö þeim þáttum rannsókna
á viðskiptum Alusuisse og is-
lenskra stjórnvalda vinna bæöi
erlendir og innlendir aöiljar.
1 máli Hjörleifs og annarra
á blaðamannaíundinum kom
skýrt fram að mörg fordæmi eru
fyrir einhliða ákvörðunum i
svona viðskiptum stjórnvalda viö
erlend fyrirtæki. Meðal annars er
það skylda yfirvalda aö nýta
náttúruauðlindir i þjóðarhag
samkvæmt ályktun Sameinuðu
þjóðanna.
— Paö eru gild rök iyrir þvi,
sagði Hjörleiíur að viö gripum tií
einhliða aðgerða. Vitnaöi hann til
landhelgismálsins og annarra
fordæma.
Alusuisse sleit viðræðum viö is-
lensk stjórnvöld sl. vor þar sem
krafan um endurskoðun raforku-
verðs var efst á blaði, og vildi
ekki hreyfa sig um spönn i átt til
sjónarmiða Islendinga. Ekkert
hefur verið ákveöið um næsta
skref i málinu, en ljóst er að
þegar lögfræðilegar álitsgerðir
hafa bæst við þessar um raforku-
verö og skaltlagningu er komið
nærri ákvöröun um það.
— ög
Afkoma betri en
bókhaldið segir
Hlutur rafmagns og
skatta fer lækkandi
Hlutur raforkuverðs og skatta
miðað við heimsmarkaðsverð á
áli hefur farið minnkandi, sagöi
Finnbogi Jónsson deildarstjóri i
iðnaðarráðuneytinu á blaða-
mannafundinum i gær. Þannig
var hlutur raforkuverðs og skatt-
lagningar rúm 11% þegar álverið
i Straumsvik tók til starfa en er
nú um 7%. í máli Finnboga kom
einnig fram að afkoma Isals hér á
landi væri allt önnur, en bókhald-
ið segði til um, það sýndu allar
rannsóknir.
ABspurður um það hvort
Alusuisse gæti rekstrarlega borið
hærra raforkuverð og skattlagn-
ingu, sagði Finnbogi að margt
benti til þess að starfsemi fyrir-
tækisins hér á landi væri mjög arð
bær. Fyrirtækið væri mjög vel
staðsett gagnvart mörkuðum,hér
væri langtum lægra raforkuverð
en við hliöstæðar álverksmiðjur,
lægri gjöld og fleira. Þessar stað-
reyndir væru kunnar i „álheimin-
um”. Taldi Finnbogi þvi fyrir-
tækið vel samkeppnishæft þó raf-
orkuverðið væri hækkaö upp i 15
til 20 mill einsog viö hliðstæðar
verksmiðjur erlendis en það er
núna 6 mill einsog kunnugt er.
-ög
Nýjar
vaxta-
tillögur
Seðlabankinn
lækkar
innlánsbind ingu
bankastofnana
Seðlabankinn hefur talið
óhjákvæmilegt vegna mikilla
lausaskulda bankastofnana að
lækka um sinn hina sérstöku
innlánsbindingu, sem þeim er
gert að greiða úr 5% i 2% frá og
með 10. þessa mánaðar. t frétt frá
bankastjórn segir að þetta sé ein-
göngu gert til þess að draga úr
skuldasöfnun við Seðlabankann
en gefi ekkert svigrúm til aukinna
útlána.
Eins og kunnugt er geröi Seöla-
bankinn tillögur til rikisstjórnar-
innar um aö bæta ávöxtun spari-
fjár og færa vexti á óverðtryggö-
um lánum og reikningum til sam-
ræmis við vaxandi verðbólgu.
Rikisstjórnin hefur enn ekki fall-
ist á tillögur Seðlabankans um
vaxtahækkun, sem hann telur
nauðsynlega til þess að koma
sæmilegum jöfnuði á lánsfjár-
markaðinn og i viðskiptum viö út-
lönd. Bankinn er nú með vaxtatil-
lögur sinar i endurskoðun og
munu nýjar tillögur væntanlega
lagðar fyrir rikisstjórnina siðar
i þessum mánuði.
Klifrað á Lœkjartorgi
Mikiö var um að vera við
Tjörnina i Reykjavík siðdcgis i
gær þegar Slysavarnafélagið
stóð fyrir björgunarsýningu til að
minna á landssöfnun lljálpar-
stofnunar kirkjunnar og
björgunarfélaganna sem hófst i
gær og stendur fram yfir helgi.
Markmið þessarar laudssöfn-
unar er að gera björgunarsveit-
um landsins kleift aö endurnýja
fjarskiptabúnað sinn til sam-
ræmis við reglur sem nýlega
Viðtækar athuganir liafa verið
gerðar að undanförnu á vegum
iðnaðarráðuneytisins á flestum
þáttuin viðskipta islenskra
stjórnvalda og Alusuisse vegna
isals i Straumsvik. Tveir starfs-
hópar sem starfað hafa, annars
vegar að athugun raforkuverðs
og hins vegar skattlagningar skil-
uðu nýverið áliti. Niðurstöður
þeirra hafa verið gefnar út i bók-
arforini og voru þær kynntar á
blaðamannafundi hjá iðnaðar-
ráöherra í gær.
I starfshópi ráðuneytisins um
raforkuverð áttu sæti: Gunnlaug-
ur Jónsson deildarstjóri hjá
gengu i gildi um fjarskipti.
1 dag kl. 16.00 veröa félagar úr
Hjálparsveit skáta i Reykjavik
með björgunarsýningu á
Lækjartorgi en þeir ætla að
klifra upp og niður hús tJtvegs-
bankans.
A morgun kl. 15.00 ætlar Flug-
björgunarsveitin að sýna fall-
híifarstökk yfir Laugardal og
minna með þvi móti á landssöfn-
unina til styrktar björgunarsveit-
unum. —lg.
Orkustofnun, Jóhann Már
Maríusson, yfirverkfræðingur hjá
Landsvirkjun, Kristján Jónsson
rafmagnsveitustjóri rikisins og
Finnbogi Jónsson deildarstjóri I
iðnaðarráðuneytinu sem jafn-
framt var formaður hópsins.
Starfshópurinn til athugunar
skattlagningar islenska Alfélags-
ins hf. var skipaður eftirtöldum
mönnum: Árna Kolbeinssyni
deildarstjóra, Halldóri V. Sig-
urðssyni rikisendurskoðanda og
Ragnari Árnasyni lektor, sem
gegndi formannsstörfum i hópn-
um.
—óg
Fast verð-
tryggt gjald
á
Alusuisse
Vænlegasta leiðin að
mati starfshóps
um skattamál Isals
Alusuisse gerði breytingar á
skattakerfinu að skiiyrði fyrir
endurskoðun á raforkuverði árið
1974. Sterkar likur benda til þess
að breytingarnar sem gerðar
voru á skattakerfinu við þessa
endurskoðun hafi reynst tslandi
óhagstæðar, segir i niðurstöðum
starfshóps um athugun á skatt-
lagningu ísals, sem birtar voru i
gær.
1 áliti starfshópsins segir að
helstu gallar núverandi skatta-
kerfis séu: skert verðtrygging
framleiðslugjaldsins, tengsl há-
marksframleiöslugjalds við
hagnað Isals, endurgreiðsla
skattinneignar og vextir af henni,
heimild til frádráttar varasjóðs-
tillags frá hagnaði.takmarkanir á
raunhæfu skattaeftirliti og ófull-
nægjandi. möguleikar til endur-
skoðunar skattreglna.
Segir i áliti hópsins að hag-
kvæmasta skattkerfið frá sjónar-
miði Islands væri trúlega fast ár-
legt verðtryggt gjald.
Ef núverandi skattkerfi væri
viö lýði áfram myndu eftirfarandi
breytingar vera umtalsverð
hagsbót: framleiðslugjald verði
verðtryggt að fullu, hámarks-
ákvæði framleiðslugjalds af-
numið, skattinneign felld niður.
— óg
Flugfreyjur
sömdu
og
vinnustöðv-
un aflýst
„Við erum nokkuð ánægð-
ar með þetta samkomuiag”
sagði Margrét Guðmunds-
dóttir formaður Flugfreyju-
félags tslands i viötali viö
blaðið i gærkvöldi, rétt eftir
að samkomulag hafði náðst
um kjarasamning Flugleiða
og Flugfreyjufélagsins.
Samningurinn gildir til 1.
scptember 1983 og er i öllum
meginatriðum eins og
rammasamningur ASt og
VSt
Deila um ráðningu i flug-
freyjustörf samkvæmt
starfsaldri hefur veriö leyst
með þessu samkomulagi, en
engin ný ákvæöi voru sett i
kjarasamning i þvi efni. Þá
náðist samkomulag um
ráðningu lausráðinna starf-
andi flugfreyja. Vinnustöðv-
un hefur nú verið aflýst, en
samkomulagið fer fyrir fé-
lagsfund á næstu dögum.
þs
Viðskiptin við Alusuisse:
Víðtækar
athuganlr