Þjóðviljinn - 08.09.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 08.09.1982, Qupperneq 16
r— Aöa' tmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utá.i þess tlma er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins f þessum stmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími stfo re iiSeln Miðvikudagur 8. september 1982 greiðslu blaðsins 1 sima 81663. Blaðaprent hefur slma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 * Framkvæmdastjórn VMSI: Ekki verði ráðistá lðskjör lág- launafólks „Menn þurfa aft ,,lesa” ntyndirnar minar”. Erró i Norræna húsinu mcð veggspjöld af ýmsum sýningum hans. Ljósm. -eik- • jy Erró opnar sýningu á laugardag „Framkvæmdastjórn Verka- mannasambands tslands mót- mælir harðlega þeirri visitölu- skerðingu er rikisstjórn fyrir- hugar samkvæmt nýsettum bráðabirgðalögum”, segir i ályktun sem samþykkt var i gær. „Afskipti rikisvaldsins af gerðum kjarasamningum er ætið vitaverð og eru i raun stórhættu- leg þvi þau minnka traust al- mennings á heiðariegum sam- skiptareglum og gerð kjarasamn- inga. — Dönsk freigáta skaut flug- skeyti af nýjustu gcrð, svokölluðu Harpoon flugskeyti á sumarbú- staðaland i Norður-Sjáiandi i fyrradag. Flugskeytið sem var 700 kg. að þyngd gjöreyðilagði tvo sumarbústaði, skemmdi 50 hús og rúður brotnuðu. Flugskeytið sem kostar átta miljónir danskra króna fór af stað vegna „tækni- legs óhapps” að sögn danskra hernaðaryfirvalda sem að öðru leyti hafa ekki viljað tjá sig um V erðlaunagetraun Þjóðviljans: Búið að draga! i gær var dregið úr réttu lausn- um verðlaunagetraunarinnar sem boðið var uppá i bás Þjóðvilj- ans á heitnilissýningunni. Guörún Ingadóttir, Selásbletti 8a,og Mar- grét Kristjánsdóttir, Háeyrar- vöilum 4, Eyrarbakka hrepptu plötuna „Hvaö tefur þig bróðir”. Ingimar H. Victorsson, Sigluvogi 3 og Arni Sólmundsson, Bröttu- kinn 30 fá Söngbók MFA. Kristinn Helgason, Sólheimum 25 og Þor- steinn Kristinsson, Álftamýri 42 fá plötu Bergþóru Árnadóttur „Bergmál”. Þessir vinningar verða sendir heim til vinnings- hafa. Aðalvinninginn, helgarferö til Amsterdam með Samvinnu- ferðum-Landsýn hreppti Gunnar Helgason, Glaðheimum 18. Bendir fundurinn á að laun verkafólks eru ekki orsök þess efnahagsvanda, sem nú blasir við heldur óráðsia, röng fjárfesting og margra ára óstjórn. Kaupmáttur launa verkafólks hefur farið rýrnandi á undan- förnum árum og mun verkafólk ekki þola enn frekari skerðingu. Þvi telur fundurinn nauðsynlegt við lausn efnahagsvandans að þeir betur settu verði sóttir til ábyrgðar i stað þess að ráðast á lifskjör láglaunafólks”. _e.k.h. málið. Danskir f jölmiðlar fjölluðu hins vegar um það i gær yfirleitt með mikilli hneykslan. Fólk varö felmtri slegið á víðáttumiklu svæði þegar sprengingin varð Danska freigátan var á leið á Nató-heræfingu i Eystrarsalti þegar flugskeytið fór af stað. Það þykir vera af mjög fullkominni gerð, með 100 kg. Trodyl-sprengi- efni. Flugskeytið flýgur rétt við yfirborð sjávar — og á að leita uppi óvinaskip (sbr. Falklands- eyjastriðið). Þetta flugskeyti ruglaðist hins vegar með fyrr- greindum afleiðingum. Mesta mildi þykir vera að ekki fór verr, þvi sprengingin á Sjælands Odde varð i hádeginu á mánudaginn i vondu veöri. Um helgina voru hundruð manns á þessu svæði og rétt hjá er þorpið Lumsaas — og þarf ekki að spyrja að afleiðing- unum ef flugskeytið hefði lent þar. Málið hefur að sjálfsögðu vakið mikla athygli I Danmörku, og hafa margir orðiö til þess aö gagnrýna danska herinn vegna þessa. Einnig vekur það sérstaka athygli hversu dýrt þetta flug- skeyti er. Bandariskur hernaðarráögjafi var væntanlegur til Danmerkur i gær til að rannsaka málið — en fiugskeytiö mun vera ættað frá Bandarikjunum.Flugskeyti þetta mun búa yfir nægilegum eyði- leggingarmætti til að granda stóru herskipi. Þykir einnig heppilegt að engin ferja var á ferð i námunda þegar flugskeytið fór af stað, þvi skeytið á að leita uppi næsta skip. — hg/óg „Þaö er allt öðru visi að sýna á tslandi en erlendis. Hér er fólk rólegra og það hugsar meira. Myndir minar eru kannski svo- litið „bókmenntalegar”, fólk þarf að „lesa” úr þeim. Og það gera íslendingar. Þeir eru eðli- legir og ékki hræddir við neitt. Oti eru allir svo uppgefnir”. Það er listmálarinn Erró sem segir svo frá löndum sinum, en á laugardaginn verður opnuð i Norræna húsinu sýning á 25 oliumálverkum eftir hann. Erró öðru nafni Guömundur Guð- mundsson, hefur búiö erlendis i áratugi og gert garðinn frægan en hann talar óaðfinnanlega is- lensku. „Samt tala ég ekki islensku nema svona einu sinni, tvisvar á ári. Ekki einu sinni við sjálfan mig”, segir hann. „Og þú ert ekkert aö koma hingaö alkominn?” „Nei, þaö er gott að búa i Paris þegar maður er málari. Ég ferðast mjög mikið og skoða þann vettvang sem ég nota i myndir minar. Núna hef ég hvað mestan áhuga á stjórn- málunum og ég vel mér atburði úr pólitikinni og mála — gjarnan seriur. At- burðir og átök gerast svo hratt aö þau gleymast jafnóöum. Ég ætla að mála Falklandseyja- striðið og Beirút. Eftir nokkur ár er það gleymt. Ég verð að búa erlendis, en ég kem hingað af og til og finn góða loftið. A morgun fer ég i réttir”. |,Ætlarðu kannski að mála rollusériu?” „Það er mjög góð hugmynd. Ég hef verið svo lengi með fugla og fiska”. „Heldurðu að þú getir breytt einhverju meö myndum þinum?” „Ég held það já, en ég veit það ekki. Ahrif úr myndum sog- ast inn i fólk. Ég held að eitt- hvað breytist”, sagöi Erró aö lokum. Sýning hans veröur opin til 26. september en þess má geta aö Hrafn Gunnlaugsson hefur haft veg og vanda af sýn- ingunni fyrir Erró. — þs Framkvæmdastjóra- fundi Sjómannasam- bandsins framhaldið í dag / A von á fundi með ráðherra segir Óskar Vigfússon „Við erum að safna að okkur gögnum og ætlum að skoða þetta mál aðeins nánar”, sagði óskar Vigfússon formaður Sjómanna- sambandsins að loknum fundi framkvæmdarstjórnar sam- bandsins i gær. A fundinum sem verður fram- haldið i dag er aðalumræðuefnið ákvörðun útgerðarmanna að leggja togaraflotanum frá og með föstudeginum. Óskar vildi ekkert segja um gang mála á fundi sjómanna i gær. Aðspurður um þátt sjó- manna i viðræðum útgerðar- manna og stjórnvalda sagðist Óskar hafa ástæðu til að ætla að sjávarútvegsráöherra kallaði fulltrúa sjómanna á sinn fund, en slikur fundur hefði enn ekki verið boðaður. -«g- Breytingar á stjórnkerfi borgarinnar Borgarstjóri lagði l'ram á fundi borgarráðs í gær tillögur um ítar- legar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar. Leiða þær til mikilla tilfærslna embættismanna milli starfa. Fjármála- og hagsýsludeild verði sameinaðar í eina deild sem beri nafnið Fjármála- og hagsýsludeild. Núverandi embætti borgarhag- fræðings og hagsýslustjóra lögð niður. Embætti vinnumálastjóra lagt niður og stofnað embætti starfsmannastjóra borgarinnar. Sú breyting verði á embætti borgarlögmanns að hann hafi með höndum öll málflutningsstörf á vegum borgarsjóðs og fyrirtækja borgarinnar auk annarra starfa. Jafnsettur borgarlögmanni starfi framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar. Hann annist m.a. lögfræðilegar álitsgerðir og umsagnir. Lóðanefnd verði lögð niður og verkefni hennar falin skrifstofu- stjóra borgarverkfræðings og full- trúa hans. Þessar umfangsmiklu breytingar á stjórnsýslu borgarinnar hafa í för með sér tilfærslur á embættis- mönnum milli starfa, eins og áður sagði. Jón G. Tómasson verður borgarritari, Magnús Óskarsson verður borgarlögmaður, Björn Friðfinnsson verður fram- kvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar, Eggert Jónsson verði framkvæmdastjóri fjármála- og hagsýsludeildar og beri hann embættisheitið borgar- hagfræðingur, Jón G. Kristjánsson verði ráðinn starfsmannastjóri borgarinnar og I íjörleifur B. Kvar- an verði skrifstofustjóri borgar- verkfræðings. Tillaga borgarstjóra var aðeins lögð fram á fundi borgarráðs í gær og bíður frekari umsagnar. Flugskeyti grandar sumarhúsum Kostaði átta miljónir d. krónur Frá freigátu á leið í Nató-heræfingu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.