Þjóðviljinn - 02.11.1982, Qupperneq 1
UQBVIUINN
Varhann
hugsjónafangi eða
hryðjuverkamað-
ur? Sagt frá
Armando
Valiadares sem sat
22 ár í fangelsi á
Kúbu.
Sjá 8
nóvember 1982
þriðjudagur
247. tölublað
47. árgangur
2,5
milljón
undir-
skrifta
2'h ntiiljón manna á Norðurlönd-
um hefur undirritað áskorun um
að Norðurlöndin verði lýst kjarn-
orkuvopnalaus svæði. Yfirein mill-
jón manna hefur undirritað skjal
með slíkri áskorun í Finnlandi, 750
þúsund í Svíþjóð, 500 þúsund í
Noregi og 260 þúsund í Danmörku.
Það eru ýmis kvennasamtök á
Norðurlöndum sem staðið hafa
fyrir undirskriftasöfnuninni. -ekh.
Fundlr um
kjördæma-
Kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd
Erfiðleikar
í rekstr
B æ j arúigerðar
Hafnarí’j
Mikil óvissa
er nú uppi
f rekstri
BÚH og
verkakonur
við fyrirtækið
eru sár-
óánægðar.
„Bitnar alltaf
á kortunum”,
segir formaður
Framtiðarinnar
Sýningin á
Töfraflautunni er
eitt þeirra ágætu
verka sem kveða
niður marga þá
fyrirvara sem
utangarðsmenn
hafaumóperu-
Neskaupstaðabúar
héldu hátíðlega upp
á stórafmæli
stærstu
at vin nufy rirtækj a
bæjarinsá
dögunum, en 50 ár
eru nú liðin frá því
SÚN var stofnað.
Á laugardaginn komu formenn
stjórnmálaflokkanna, Geir Hall-
grímsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Steingrímur Hermanns-
son formaður Framsóknarflokks-
ins, Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins og Kjartan Jó-
hannsson formaður Alþýðuflokks-
ins, saman til fundar, þar sem
ræddar voru leiðir til sameiginlegr-
ar niðurstöðu í kjördæmamálinu
og jöfnun atkvæðisréttar. Næsti
fundur formannanna um málið
verður á morgun, miðvikudag.
Þorkell Helgason dósent við Há-
skólann hefur og tekið að sér að
gera ýmsa útreikninga fyrir for-
mennina. -ekh.
Tíu verkakonum
sagt upp í gær
Uppsagnir starfsfólks í Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar halda áfram og eftir vinnu
á föstudag var 10 verkakonum sagt upp
störfum með mánaðar fyrirvara. Áður
hafði 12 manns verið sagt upp með viku
fyrirvara og hefur hluti þess fólks nú
leitað atvinnuleysisbóta. Þá hafa stjórn-
endur Bæjarútgerðarinnar látið í veðri
vaka að kauptryggingu starfsfólks yrði
sagt upp.
Formenn Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar í Hafnarfirði og
Verkamannafélagsins Hlífar voru
boðaðir á fund forstjóra Bæjarút-
gerðarinnar í gærmorgun þar sem
m.a. var skýrt frá vanda fyrirtækis-
ins og að þess vegna yrði að segja
kauptryggingu starfsmanna upp.
Gripið hefur verið til þeirrar að-
gerðar nokkrum sinnum áður á
þessu ári og bitnar það mest á
hlutavinnufólki, einkum verka-
konunum.
Um hádegi í gærdag barst svo
tilkynning frá forráðamönnum
fyrirtækisins um að uppsögn
kauptryggingarinnar hefði verið
dregin til baka, í bili að minnsta
kosti. -v.
Sjá 20
Frá Ólympíuskákmótinu í Sviss:
Þrjár skáklr fóru í
bið gegn Skotum
Frá Helga Ólafssyni fréttamanni Þjóðvilj-
ans,í Sviss:
I 3. umferð Olympíu skákmóts-
ins, sem tefld var í gær, átti íslenska
sveitin í höggi við Skota. Þrjár
skákir fóru í bið, en Ingi R. Jó-
hannsson, sem tefldi á 4. borði,
gcrði jafntefli við Byron. Guð-
mundur telldi við McNab og var
Guðmundur með tapað tafl þegar
skákin fór í bið. Jón L. á betri stöðu
gegn Combie og Margeir á jafntefl-
islcga biðskák gegn Swanson.
í kvennaflokki tefldi íslenska
sveitin gegn Finnum og lauk aðeins
einni skák. Áslaug sigraði á 1.
borði, en Sigurlaug á tapaða
biðskák, og biðskák Guðlaugar
Einni lauk
með jafntefli
Kristinsdóttur er jafnteflisleg. I 1.
umferð tapaði íslenska kvenna-
sveitin fyrir Búlgörum 0:3 en sigr-
aði svo epypsku sveitina 3:0 í 2.
umferð.
í fyrstu umferð mótsins sigruðu
íslendingar Kýpurbúa 4:0. Á 1.
borði tefldi Guðmundur Sigurjóns-
son, 2. borði Jón .L. Árnason, á 3.
borði Helgi Ólafsson og á 4. borði
Margeir Pétursson.
I annarri umferð var svo teflt við
Albani og lauk viðureigninni 2:2.
Jón L. tefldi á 1. borði og gerði
jafntefli, sömuleiðis Helgi Olafs-
son á 2. borði, Margeir vann á 3.
borði, en Jóhann Hjartarson tap-
aði á 4. borði.
Islenska sveitin var í 15. til 23.
sæti eftir tvær fyrstu umferðirnar
með 6 vinninga, en Bandaríkja-
menn voru þá í efsta sæti með 8
vinninga, Sovétmenn, Englending-
ar, V-Þjóðverjar og Indónesíu-
menn með 7,5 vinninga.
-Hól/S.dór.