Þjóðviljinn - 02.11.1982, Side 7
Þriðjudagur 2. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 1
Kosið til Bandaríkjaþings
Kosningas j óðir
ráða úrslitum
í dag fara fram kosningar í Bandaríkjunum. Kosið
verður um 435 sæti í fulltrúadeild þingsins og 33 sæti í
öldungadeildinni. Þá verður kosið um ríkisstjóra í 36
ríkjum Bandaríkjanna.
Helsta málefni kosningabaráttunnar er efnahag-
skreppan, atvinnuleysið og efnahagsstefna Reagan-
stjórnarinnar.
Um þessar mundir ganga rúm-
lega 11 milljónir Bandaríkjamanna
atvinnulausir. Það eru 10,1% vinn-
uaflsins, og hefur atvinnuleysi ekki
verið meira í 42 ár.
Um leið og fyrirtækjum er lokað
hlaðast upp auknar birgðir af óselj-
anlegum vörum og samdráttur hef-
ur orðið bæði í fjárfestingu og út-
flutningi. Orsakanna er m.a. að
leita í háum vöxtum og háu gengi
dollarans og takmörkun stjórn-
valda á peningamagni í umferð.
Sá árangur, sem Reagan-
stjórnin státar helst af í meðferð
efnahagsmála er baráttan við verð-
bólguna, en hún er um þessar
mundir 5,4%. Hávaxtastefnan hef-
ur verið helsta vopn Reagans gegn
verðbólgunni, og hafa vextir í
Bandaríkjunum að undanförnu
verið á bilinu 16 - 12%. Sérf-
ræðingar hafa haldið því fram, að
fyrir hvert prósentustig sem
Reagan-stjórnin hefur pressað
verðbólguna niður hafi um 1 mill-
jón Bandaríkjamanna misst
atvinnuna. Aðrir halda því fram,
að atvinnuleysið stafi að hluta til af
aukinni vélvæðingu og sjálfvirkni í
iðnaði.
Efnahagsspár fyrir 1983 að
óbreyttri stefnu eru ekki þess eðlis
að menn vænti afgerandi bata.
Þvert á móti er spáð að atvinnu-
leysið aukist upp í 11%, og þótt
embættismenn stjórnarinnar spái
nú að þjóðarframleiðsian muni
aukast um 3 - 4% á næsta ári, þá
eru aðrir sem draga þá spá mjög í
efa.
Þótt efnahagsástandið sé jafn
alvarlegt og ofangreindar tölur
benda til, þá eru línurnar á engan
hátt skýrar í bandarískum stjórm-
álum fyrir þessar kosningar og
stjórnarandstaða Demókrataflok-
ksins sundruð í fleiri fylkingar.
Astæðurnar eru sjáífsagt marg-
ar, en ein þeirra er hið mikla fjár-
magn, sem lagt er í sjálfan kosning-
aslaginn, þar sem frambjóðendur
verða í sjálfu sér háðari þeim sem
fjármagna kosningabaráttuna
heldur en nokkurn tímann kjós-
endum sínum.
Bandaríska tímaritið U.S News
& World Report hefur ályktað að
kosningabaráttan til þeirra emb-
ætta sem kosið er um muni hafa
kostað samanlagt um 800 miljónir
dollara eða 12,4 miljarða íslenskra
króna. Bandaríska tímaritið Time
segir að kosningabaráttan til þing-
sins hafi kostað að meðaltali 50
þúsund dollara á frambjóðanda ár-
ið 1974, en nú hafi upphæðin tífald-
ast og sé komin hátt í 500 þúsund
dollara.
Þetta fé er fengið frá svoköll-
uðum „Political Action Commiti-
es“, (PAC) sem gegna nú orðið allt
eins miklu hlutverki í bandarískum
stjórnmálum og sjálfir flokkarnir.
PAC-nefndunum er ýmist stýrt
af fyrirtækjum og virka þá sem hin-
ar pólitísku deildir fyrirtækjanna,
eða þá að þeim er stýrt af fag- og
stéttarfélögum. Það eru 350 PAC-
nefndir í Bandaríkjunum, sem
heyra undir slík fag- og stéttarfé-
lög, og samkvæmt lögunum geta
þessar nefndir hver og ein gefið
5000 dollara til ákveðins frambjó-
anda, og ekkert kemur í veg fyrir
að þær styðji allar sama frain-
bjóðandann með þeirri upphæð.
Þá eru einnig óháðar PAC-
nefndir er vinna að tilteknum hu-
gsjónamálum, t.d. fyrir kvenrétt-
indurn, á móti frjálsum fóstur-
eyðingum o.s.frv.
Vikuritið Time nefnir dæmi um
öldungadeildarframbjóðanda sem
hefur hlotið 750 þúsund dollara í
kosningasjóð frá 531 PAC-nefnd.
Þá hefur Phil Gramm fengið yfir
250 þúsund dollara frá PAC-
nefndum sem olíufélögin reka.
PAC-nefndirnar eru oft fulltrúar
þröngra hagsmuna afmarkaðra
hópa í þjóðfélaginu, og eins og gef-
ur að skilja eru það fjársterkustu
hóparnir sem geta keypt sér flesta
frambjóðendur, en það er einmitt
þetta, sem PAC-kerfið býður upp á
og gagnrýnendur hafa bent á.
Þótt almennt sé gert ráð fyrir
tapi Repúblikana og Reagan-
stjórnarinnar, þá er ekki reiknað
með að það verði eins mikið og
efnahagsaðstæður gætu gefið ti-
í kosningunum sem fram fara til
Bandaríkjaþings í dag munu kosn-
ingasjóðirnir vega þyngra á mctun-
um en 11 miljón atvinnuleysingjar.
lefni til. Talið er að þeir muni tapa
allt að 40 sætum í fulltrúadeildinni.
Af öldungadeildarsætunum 33
halda Demókratar 2/3, og vonast
Repúblikanar til þess að halda sín-
urn þriðjungi þar, og talið er að
þeirmuni tapa4-5 ríkisstjóraemb-
ættum.
Talið er að ósigur í kosningunum
muni leiða til baráttu innan flokks-
ins á milli harðlínumanna eins og
Reagans og þeirra sem fremur
kjósa að aka seglúm eftir vindi.
Meðal óvissuþátta, sem geta
ráðið úrslitum í kosningunum, er
aukin kosningaþátttaka blökkuf-
ólks og kvenna, en komið hefur í
ljós samkvæmt skoðanakönnunum
að bandarískar konur hneigjast nú
frekar til frjálslyndis en hreinnar
íhaldsstefnu Reagans.
-ólg./Time, DN, Inf.
Guðmundur G.
Þórarinsson
um Alusuisse-málið
Útiloka
ekki
einhliða
aðgerðir
Morgunblaðið og
Sjálfstæðismenn veita
álhringnum liðsinni
Framkoma Alusuisse-manna
hefur ekki borið vott um áhuga
þeirra á lausn deilna við íslend-
inga, sagði Guðmundur G. Þórar-
insson alþingismaður í umræðun-
um í neðri deild alþingis á fimmtu-
dag um Alusuissemálið. Að öllu
samanlögðu væri ekki nema eðli-
legt að leggja framleiðslugjald á
Isal í samræmi við niðurstöður
endurskoðenda.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði, að hann sem nefndarmaður í
viðræðunefndinni hefði fengið
nokkra reynslu í samskiptum við
Alusuisse-hringinn. Þeir hefðu
reynt að draga málið á langinn,
reynt að bíða með umbeðnar upp-
lýsingar. Þá sagði Guðmundur að
málflutningur Morgunblaðsins og
sumra Sjálfstæðismanna hefði ver-
ið með þeim hætti, að hlyti að hafa
vakið vonir meðal Alusuisse-
manna um að hagnast á sundur-
lyndi meðal íslendinga.
Nú væru niðurstöður komnar frá
endurskoðendum um skattamálin
og fleira. Ef framleiðslugjald yrði
einhliða lagt á ísal nú í samræmi við
niðuystöður endurskoðendanna
þýddi það 6,2 miljóna dala hækk-
un. Mestu skipti þó að hækkun á
raforkuverði til álversins fengist
samþykkt, sem gæti þýtt 150-200
miljóna króna hækkun árlega til ís-
lendinga.
Kvaðst Guðmundur ekki útiloka
einhliða aðgerðir af hálfu okkar Is-
lendinga til þess að knýja fram
hækkun raforkuverðsins, ef það
fengist ekki með samningum.
- óg.
Þingmenn Vesturlands með tillögu:
Endurreisn
Reykholts
þingsjá
Þingmenn Vesturlands, þeir Al-
exander Stefánsson, Davíð Aðal-
steinsson, Friðjón Þórðarson,
Skúli Alexandcrsson, Eiður
Guðnason og Jósef H. Þorgrímsson
hafa lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar, þarsem lagt er til að ríkis-
stjórninni verði falið að „láta
I undirbúa nú þcgar samræmdar
framkvæmdir við endurreisn og
uppbyggingu Rcykholtsstaðar í
Borgarfirði í samræmi við tillögu
stjórnskipaðrar nefndar“. Er einn-
ig lagt til að verulegt fjármagn
verði veitt til þessa verkefnis á fjár-
Iögum 1983.
Með þessari þingsályktunartil-
lögu fylgir ýtarleg greinargerð með
um 11 fylgiskjölum frá ýmsum
aðiljum sem um uppbyggingu
staðarins hafa fjallað. Þar er gerð
grein fyrir núverandi ástandi og
hugsanlegum og nauðsynlegum
framkvæmdum til uppbyggingar á
staðnum.
Pílagrimspeningar
í Snorralaug
Meðal fylgiskjala er fjörleg
greinargerð eftir núverandi skóla-
stjóra Héraðsskólans í Reykholti,
Eystein Ó. Jónasson. í eftirmála
greinargerðar sinnar kemst hann
svo að orði:
„Þess má geta, að það eru ekki
stoltir íslendingar sem sumar hvert
horfa upp á þau hundruð „pílag-
ríma“ sem leggja leið sína til
byggðar Snorra Sturlusonar og
ætla að skoða þennan fræga sögust-
að sem minnst er á í öllum er-
lendum landkynningarbæklingum.
Hvað sjá þeir? Norska styttu,
Snorralaug og innganginn að
Snorragöngunum sem liggja niður-
fallin undir leikfimibragga sem rífa
átti fyrir 46 árurn. Heldur er þetta
fátæklegt fyrir langt að komna „píl-
agríma", enda kemur þar eflaust
skýringin á þeint ósköpum að
henda alltaf peningum í Snorra-
laug.“
-óg.
Helgi Seljan og Guðrún Helgadóttir
Könnun á vél-
hjólaslysum
Helgi Seljan og Guðrún Ilclga-
dóttir hafa lagt fram tiliögu til þing-
sályktunar um könnun á vclhjólasl-
ysum.
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að gera ýtarlega könnun á
tíðni, orsökum og afleiðingum vél-
hjólaslysa í umferðinni. Könnunin
skal unnin á vegum
hcilbrigðisráðuneytis og dómsmál-
aráðuneytis. Skal áliti skilað í
skýrsluformi til næsta reglulegs
Alþingis ásamt meðfygjandi til-
lögum um fyrirbyggjandi
aðgerðir.“
Úrbœtur í umferðarmenn-
ingu
Með tillögunni fylgir svo-
hljóðandi greinargerð:
„í sumar hafa orðið nokkur
blaðaskirf um tíðni og orsakir
vélhjólaslysa og þá ekki síður alv-
arlegar afleiðingar þeirra. M.a.
hafa hinir virtustu læknar ritað um
málið og sýnt ljóslega fram á alvöru
þess.
Öll umferðarmál okkar og
óhöpp og slys þeim tengd eru raun-
ar verðugt athugunarefni, og
hvarvetna má sjá dæmi þess, að úr-
bóta er þörf í umferðarmenningu
okkar sem vart á þó það heiti
skilið. Mála sannast er auðvitað að
þar er það hugarfarsbreyting ein
sem haft gæti veruleg áhrif til góðs,
þar sem aðgát og tillitssemi sæti í
fyrirrúmi.
Vélhjólaslys eru e.t.v. aðeins
einn þáttur þessa alvörumáls. En
sé miðað við álit þeirra sem gerst
þekkja til afleiðinganna, þá er full
___ 1*»®«
Guðrún Helgi Seljan.
Helgadóttir
ástæða til að athuga þann þátt sér-
staklega. Enginn dómur skal á það
lagður, hvort vélhjólin séu meiri
slysavaldar en önnur farartæki eða
hvort tillitsleysið í umferðinni bitn-
ar harðar á ökumönnum þeirra en
öðrum.
En hitt er ljóst, að afleiðingar
þessara slysa eru almennt alvar-
Iegri en annarra, þó ekkert skuli
þar úr dregið. Ymsar spurningar
vakna um aldursmörk, næga kenn-
slu, öryggisbúnað allan og margt
fleira sem könnun af þessu tagi get-
ur leitt í ljós.
Og engin leið er að loka augun-
um fyrir þeirri vá, sem þarna er
fyrir hendi, né skella skollaeyrum
við því sem þeir segja um þessi mál
sem eru í náinni snertingu við
afleiðingarnar.
Flutningsmenn telja fulla nauð-
syn að hreyfa þessu máli á alþingi
og fá fram lágmarksaðgerðir a.m.
af hálfu opinberra aðila og munu
gera nánari grein fyrir málinu öllu,
áliti lækna og lögreglumanna í fra-
msögu fyrir málinu. En umræða er
til alls fyrst.“
Fyrirspum um kjötbirgðír
Hve miklar voru birgðir
kindakjöts hjá afurðasölufyr-
irtækjum 1. júní, 1. septemb-
er og 1. október og hvert var
verðmæti þeirra? Þannig spyr
Matthías Bjarnason landbún-
aðarráðherra í margliðaðri
fyrirspurn sem lögð hefur ver-
ið fram á alþingi. Matthías
spyr landbúnaðarráðherra
einnig að því, hvaða fyrirtæki
hafi komið hér við sögu, hve
mikil afurðalán hafi fengist út
á þessar afurðir og fleira.
-óg.