Þjóðviljinn - 09.12.1982, Qupperneq 2
2 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. desember 1982
síðan
1200fletskur
um tíman
Fóroja Bjór hevur í ár framleitt
hálvaaðru millión flóskur av
sterkum 0li. Hetta er gjórt við
eini orku upp á 1200 flpskur um
tíman. Hesa tíð hevur brýggjaríið
goldið sjey milliónir krónur í
framleiðslugjaldi.
íögy^Bjór’
Tórshavn tlf. 13434
Leirvík tlf. 43038
Klaksvík tlf. 55454
Tvoroyri tlf. 71025
SÍCAN 1888
Tákn færeyska bjórsins,
sauðkindin, hvernig svo sem það
má nú vera.
Sunrnn-
póslurinn
ogFjölnir
Það var sitt af hverju sem gerð-
ist hér árið 1835 ekki síst á sviði
útgáfustarfseminnar. Má þar
nefna, að Sunnanpósturinn hóf
nú ferðir sínar. Var ritstjóri hans
Þórður Sveinbjörnsson, yfir-
dómari.
Síðan Klausturpósturinn
andaðist árið 1826 hafði ekkert
tímarit verið gefið út á íslandi.
Og frá því að Ármann á Alþingi
hætti útkomu hafði aðeins eitt
tímarit verið gefið út á íslensku,
Skírnir, tímarit Bókmenntafé-
lagsins, sem gefið var út í Kaup-
mannahöfn.
En fleira var í efni. Fjölnir
byrjaði að koma út undir ritstjórn
þeirra fjórmenninganna, Brynj-
ólfs Péturssonar, Jónasar fíall-
grímssonar, Konráðs Gíslasonar
og Tómasar Sæmundssonar.
Vakti hann mikia athygli þótt um
efnið greindi menn á.
- En hverfum nú frá andlegheit-
um og til hinna efnislegu þátta.
Þetta ár, 1835, veitti stjórnin frú
Guðrúnu Guðmundsdóttur Si-
vertsen í Reykjavík 400 ríkisdala
styrk úr Jarðabókarsjóðnum.
Var það áskilið, að Guðrún út-
vegaði þrjá prjónavefstóla, gerða
af járni, lærði vefnað og kenndi
hann síðan í Suðuramtinu.
Krieger stiptamtmaður hafði
nú endurreist Skólavörðuna eins
og fyrr hefur verið að vikið, og
lagt veg upp að henni. Þótti þá
ekki mega minna vera en að bær-
inn sæi um viðhald vörðunnar,
þótt að því kæmi raunar, að hún
færi forgörðum, eins og ýmislegt
annað í þessum bæ, sem eftirsjá
er að. Jafnframt var ákveðið, að
bærinn sæi um viðhald „Skóla-
vörðustígsins" og skyldi hver hús-
ráðandi leggja til hans eitt dags-
verk að vori og annað að hausti.
- mhg
Minningar-
sjóður Jóns
Þorsteinss.
í lok nóvembcr var á Akureyri
haldinn stol’nfundur minningar-
sjóðs Jóns Júlíusar Þorsteins-
sonar, kennara. Tilgangur
sjóðsins er að gefa út kennslugögn
Jóns fyrir hljóðlestrar-, tal- og
söngkennslu. Hér er um að ræða
hljóðstöðumyndir, íslensk mál-
hljóð og leiðbeiningar við
hljóðlestrarkennslu ásamt við-
bæti Árna Böðvarssonar, cand
mag. þ-e. hljóðasambönd og
skýringar.
Sjóðurinn veitir viðtöku minn-
ingargjöfum og öðrum gjöfum,
en stofnfé hans er 25 þúsund
krónur. Stofnendur eru skráðir
230 og eru þeir sem eftir eiga að
skila heimsendum gíróseðlum
vinsamlega minntir á að gera það
fyrir 15. janúar n.k.
Stjórn sjóðsins skipa: Erla
Kristjánsdóttir, tækniteiknari,
formaður, Guðmundur Víðir
Gunnlaugsson, yfirkennari,
varaformaður, Sigurður Flosa-
son, yfirkennari, gjaldkeri og
meðstjórnendur Vilberg Alex-
andersson, skólastjóri og Atli'
Guðlaugsson, skólastjóri
Gcetum
tungunnar
Heyrst hefur: Þetta mál skal kruf-
ið til mergjar.
Rétt væri: Þetta mál skal krufið.
Eða:... brotið til mergjar.
(Ath.: Bein eru brotin til þess að
ná úr þeint mergnum.).
Anna t.h. og Hildur höfðu í nógu að snúast við að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir Torgsöluna. -
Mynd - eik.
Skemmtilegur
heimilisiðnaður
'Þær sátu við eldhúsborðið scm
var hlaðið alls kyns varningi sem
og reyndar eldhúsið allt. Þetta
var afrakstur mánaðar vinnu vin-
kvennanna Önnu Björnsdóttur
og Hildar Bolladóttur. Þær ætla
með varninginn niður á Lækjar-
torg á föstudaginn og selja hann
þar á útimarkaðinum.
„Við erum aðallega að búa til
vörur sem eru nytsamlegar,
eitthvað sem fólk getur notað,
sagði Anna þegar við gengum
inní eldhúsið hjá henni í Vestur-
berginu í Breiðholti. Við höfum
frétt að þær vinkonur hefðu verið
önnum kafnar við heimilis-
iðnaðarstörf síðustu vikurnar, og
þótti því tilvalið að kynna okkur
starfsemina.
„Hildur er búin að sauma alls
kyns fatnað á börn, mussur kjóla
og fleira. Svo höfum við útbúið
brjóstsykur í skemmtilegum gler-
krukkum, smákökur og þessa
skemmtilegu jólakransa,“ segir
Anna og bendir okkur upp á einn
eldhúsvegginn. Við sáum mynd
af þessu í amerísku blaði og
hönnuðum þetta síðan sjálfar.
Jú þetta er búið að vera ofsa-
lega gaman, segja þær báðar.
„Við höfum verið að vinna í
þessu allan daginn og stundum
fram á nótt.“
Þær Anna og Hildur eru báðar
heimavinnandi húsmæður en
áður starfaði Anna sem kennari í
13 ár.
„Ég er bara nýbyrjuð í þessu“
segir hún, „en Hildur hefur alltaf
verið svo myndarleg í höndun-
um; ég læri þetta allt af henni.“
- Og svo ætlið þið að selja
afurðirnar á Útimarkaðinum?
„Jú, það er ætlunin. Við erum
búin að panta pláss í tjaldinu.
Þetta er í fyrsta skipti sem við
förum út í svona sölustarfsemi.
Vitum ekkert hvernig þetta geng-
ur en erum bjartsýnar."
- Hvernig datt ykkur í hug að
byrja á þessu?
„Það var eiginlega þannig að
við vorum að fara að útbúa jóla
gjafirnar, og sáum þá að við höf-
um nægan tíma til að gera
eitthvað annað skemmtilegt. Mér
hefur verið að detta í hug annað
slagiðsíðustu 2 ár að það værinú
skemmtilegt að gerast sölukona á
torginu. Þó það væri ekki annað
en að fylgjast með umferðinni og
virða fyrir sér fólkið. Svo við
slógum til og nú erum við að
verða klárar í slaginn.“
- Hvernig hefur ykkur gengið
að samræma þcnnan iðnað venju
legum heimilisstörfum?
„Það hefur gengið mjög vel,
höfum haft nægan tíma til að
sinna þeim störfum einnig. Það
sem er kannski stærsti kosturinn
við þetta er að geta unnið að
framleiðslustörfum heima hjá
sér. Geta fært vinnuna aftur inn á
heimilin eins og var hér áður
fyrr.“
- Ykkur finnst kannski að
fleiri gætu tekið sig til eins og þið
hafið nú gert?
„Já alveg tvímælalaust“ svara
þær báðar. „ Við viljum eindregið
hvetja konur sem eru heima við
að taka sér eitthvað svona fyrir
hendur.“
- Og ef vel gengur nú fyrir jól-
in, ætlið þið þá að halda áfram?
„Ef vel gengur þá er alls ekki
óhugsandi að við látum sjá okkur
nokkrum sinnum á ári á Torg-
inu“, sögðu þessar hressu vin-
konur að lokum.“ .
Okkur var hins vegar ekki til
setunnar boðið svo við tókum
okkur smákökur í nesti og
borðuðum á leiðinni heim. Þær
smökkuðust ntjög vel.
-•g-
Mótorsporti
Út er komið þriðja tölublað
tímaritsins Mótorsports á þessu
ári og er enn eitt væntanlegt fyrir
áramót.
Meðal efnis í þessu tölublaði
má nefna frásögn af ísafjarðar-
hátíð Sæfara og Hótel Hamrabæj-
jar, fréttir af ralli, kvartmílu, tor-
færu og sandspyrnu ásamt grein-
um um fornbíla og erlendar frétt-
ir. Af föstum liðum má nefna bíl
mánaðarins og viðgerðarþátt og
einnig er kynnt athyglisvert farar-
tæki sem tveir flugmenn frá ísa-
firði eiga. Er það tveggja manna
svifnökkvi. Mótorsport kostar Nýstárlegurtveggjamannasvifnökkvisemtveirísfirskirflugmenneiga
40 krónur í lausasölu. er kynntur í Mótorsporti.
Hrefnu-
veiðar
Undanfarin ár hafa tveir bátar
frá ísafirði stundað hrefnuveiðar
á sumrin. í surnar sem leið veiddu
þessir tveir bátar um 70 dýr en
það var sá kvóti sem leyfður var.
Þetta kemur fram í spjalli Vest-
firðings, blaðs Alþýðubandalags-
ins á Vestfjörðum við þá Guð-
mund Guðjónsson og Tryggva
Guðmundsson.
Vertíðin hefst í júníog stendur
fram í byrjun október.
Myndin hér að ofan sýnir hvar
hval er landað í Suðurtanga en
þaðan var honum síðan ekið til
Brjánslækjar.
Nýtt hefti
af