Þjóðviljinn - 17.12.1982, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 17.12.1982, Qupperneq 5
Föstudagur 17. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 „Þá ætla ég að segja” Ég get ekki annað en tekið vel umvöndunum sem ég fékk frá Silju Aðalsteinsdóttur í Þjóðviljanum í dag þar sem hún er gamall kennari minn og leiðbeinandi. Þó vil ég benda á nokkur atriði mér til rétt- lætingar og Silju til upplýsingar þar sem sumt virðist hafa farið framhjá henni. Hún segir t.d. að á mér hefði verið að heyra að varla kæmu nokkrar bækur út eftir íslenska höfunda. Ég vil benda á að ég kannaði barnabókamarkaðinn með tilliti til hlutfalls milli íslenskra bóka og þýddra og gaf upp prósent- uhlutfall þarna á milli og giskaði á að það væri 10% á móti 90% en það gera 10 íslenskar bækur á móti 90 erlendum ef Silja hefur ekki skilið hvað ég var að fara. Ein ný, íslensk barnabók frá stærsta for- laginu var aðeins dæmi sem ég nefndi um versnandi ástand í útgáf- umálum á þessu sviði og þykir mér miður að ég gat þess ekki skýrt og greinilega að önnur forlög standa sig betur. Rétt er það að barnabókamark- aðurinn var ekki kynntur, aðeins lesið úr tveimur nýjum bókum eftir nýja barnabókahöfunda, en Glugginn hefur ekki farið út í neina heildarúttekt á fullorðinsbókum og ætlaði sér það heldur ekki með Svar við grein Silju Aðal- steinsdóttur: — Fyrst allir aðrir þegja barnabækurnar. Engin lausn hefði verið að safna þeim í eina hrúgu á skjáinn og lítilsvert að mínum dómi að telja upp öll bókaforlög og gefa skýrslu um höfunda, gamla og nýja sem senda frá sér bækur í ár. Að minnsta kosti treysti ég mér ekki til þess að gera úttekt á barnabóka- framleiðslunni í ár á þeim 4 mín. sem mér ásamt Fríðu Haraldsdótt- ur voru ætlaðar. Auðvitað sjá allir sem lesið hafa grein Silju að hún hefði farið létt með að skipuleggja þær 10 mínútur sem Glugginn ætlaði barnabókum: Telja upp öll bókaforlögin, alla gamla höfunda, síðan ræða um höf- unda sem þekktir eru fyrir annað en barnabækur en gefa út barna- bækur í ár. Þá að lesa upp úr barna- bók, síðan tala um splunkunýja höf- unda, þá gat komið viðtal viö for- svarsmenn Bjöliunnar, þar næst geta um „endurútgáfu löngu horf- inna gimsteina" og síðast viðtal við „undirbúna unglinga". Ef til vill hef ég ekki farið út á réttar brautir en ég vil samt benda á að dagskrárgerð lýtur jafn mörgum lögmálum og einstaklingarnir sem að henni standa en ekki föstum formúlum. Að vísu er útfærsla Gluggans mér óviðkomandi og legg ég áherslu á að barnabókum var ætlaður alltof lítill tími í þessum þætti. Áreiðanlega er það ósk allra barnabókaunnenda að Glugginn gefi barnabókum meira rúm í þátt- um sínum í vetur og vonandi verð- ur Silja þá meðal „valinna“ viðmælenda þar svo hún geti notað uppskriftina sína. Ekki veitir af að gera barna- og unglingabókum betri skil í sjónvarpi en verið hefur. Reykjavík 14. desember. Hildur Hermóðsdóttir »> „Ef samanburður er gerður á láns- kjaravísitölu, kauptaxta og ráðstöf- unartekjum allt frá árinu 1970 er Ijóst, ef til lengri tíma er litið, að kauptaxtar launþega haldast í hendur við þróun lánskjaravísitölunnar“ Lán frá lífeyrissjóðum Vissulega er þáttur lífeyris- sjóðanna í fjármagnsmyndun hér á landi mikilvægur. Stærstu þættir svokallaðs kerfisbundins sparn- aðar eru á vegum lífeyris- sjóðanna. íslensku lífeyris- sjóðirnir byggja á sjóðsmyndandi lífeyriskerfi. Það merkir einfald- lega að lífeyrissjóðum er ætlað að taka við iðgjöldum frá sjóðfé- lögum og sjá um að ávaxta þá meðan starfsorka endist. Ef rétt er á málum haldið, á slíkur sparn- aður að auðvelda fjáröflun til nauðsynlegra framkvæmda hér á landi, t.d. til íbúðarbygginga. Ef raunávöxtun helst í sjóðsmynd- andi lífeyriskerfi, stuðlar það að stóraukinni fjármagnsmyndun í þjóðfélaginu, sem að lokum er traustasta undirstaða lífeyris- bóta. Lífeyrissjóðirnir hér á landi eiga sér býsna langa sögu og má rekja stofnun þeirra allt til ársins 1920. Þó lífeyrissjóðirnir hafi náð verulegri útbreiðslu fram að ár- inu 1970, var ekki um almenna þátttöku launþega að ræða í þeim. Veruleg straumhvörf urðu þó í lífeyrismálum þjóðarinnar í kjarasamningum ASÍ og vinnu- veitenda í maí 1969. í þeim samn- ingum var í fyrsta skipti kveðið á um, að stofnaðir skyldu almennir lífeyrissjóðir á félagsgrundvelli og skyldu greiðslur til þeirra hefj- ast í ársbyrjun 1970. Þetta ákvæði samninganna hafði það í för með sér, að öll aðildarfélög ASÍ, sem ekki höfðu þegar stofnað lífeyris- sjóði, gerðu það frá og með 1. janúar 1970. Því er óhætt að full- yrða, að frá og með árinu 1970, hafi komist á almenn aðild launþega að lífeyrissjóðum. Með lagasetningu um starfskjör launa- fólks og skyldutryggingu lífeyris- réttinda, frá árinu 1980, var öll- um starfandi mönnum gert skylt að gerast aðilar að lífeyrissjóðun- um þ.á.m. atvinnurekendum og þeim sem stunda sjálfstæða starf- semi. Sérstök ástæða er að vekja at- hygli á þessari forsögu lífeyris- sjóðanna, því það vill oft gleymast, að stofnun lífeyris- sjóðanna er sprottin upp úr frjáls- um kjarasamningum launþega- samtakanna og vinnuveitenda. Ekki er síst ástæða að árétta þessa staðreynd, þegar fjárfest- ingalánasjóðir hyggjast ásælast fjármagn sjóðanna, eins og gert hefur verið á undanförnum árum, þrátt fyrir hávær mótmæli lífeyrissjóðanna, sem vill semja um slíka ráðstöfun á fjármagni sínu. Neikvœð raunvöxtun Hlutverk lífeyrissjóðanna er fyrst og fremst að tryggja sjóðfé- lögum og eftirlifandi mökum þeirra viðunandi lífeyri. Að öðru leyti ber lífeyrissjóðum að ávaxta fjármagn sitt á fullnægjandi hátt. Állt fram á mitt ár 1979 var ávöxtun á eignum sjóðanna neikvæð. Með neikvæðri raunávöxtun rýrnuðu eignir sjóðanna gífur- lega. Verðbólgutap lífeyris- sjóðanna skilaði sér í verðbólgu- hagnaði lántakenda, sem að yfir- gnæfandi meirihluta voru ungt fólk í húsnæðisöflun. Með sama áframhaldi mátti fullyrða, að líf- eyrissjóðirnir hefðu á engan hátt getað staðið við lífeyrisskuld- bindingar sínar, þegar litið var nokkra áratugi fram í tímann. Þess vegna var því oft haldið fram á þessum árum, og það með réttu, að lántakendurnir, þ.e.a.s. unga fólkið, væru að taka lífeyri sinn út fyrirfram á kostnað þeirra sjóðfélaga, sem ekki notfærðu sér lánarétt sinn. Sem betur fer er sá tími liðinn að sjóðfélagar lífeyrissjóðanna þurfi að sæta því, að fjármagn þeirra rýrni á verðbólgutímum. Frá ogmeð 1. júní 1979 heimil- aði Seðlabanki íslands lífeyris- sjóðum að lána fjármagn sitt til sjóðfélaga í formi verðtryggðra lána, sem tengd voru lánskjara- vísitölu. Verðtryggð lífeyris- sjóðslán voru almennt tekin upp hjá sjóðunum á árunum 1979 og 1980. Með vaxandi verðtryggðum útlánum lífeyris- sjóða hefur eigið fé lífeyris- sjóðanna vaxið ört í hlutfalli við þjóðarframleiðslu og er áætlað að í árslok 1982 muni eigið fé líf- eyrissjóðanna nema 15% af þjóðarframleiðslu, miðað við 8% í ársbyrjun 1970, og er hlutfall þetta nú hærra en nokkru sinni fyrr. Lögbundin skuldabréfakaup Allt frá árinu 1978 hafa lífeyris- sjóðirnir verið skuldbundnir til þess með lögum að verja 40% af ráðstöfunarfé sínu til verðtryggðra skuldabréfakaupa af fjárfestingalánasjóðum og nú eru uppi hugmyndir um að hækka þetta hlutfall í 45% af ráðstöfun- arfé. Samband almennra lífeyris- sjóða hefur frá fyrstu tíð lýst fýllstu andstöðu sinni við að lögbinda meðferð á fjármagni lífeyris- sjóðanna. Það hefur ávallt verið skoðun launþegasamtakanna og lífeyrissjóðanna að ganga eigi til samninga um þessi verðbréfak- aup af fjárfestingalánasjóðunum. Meðaltalshámarkslán aðildar- sjóða SAL er nú um 100.000 kr. á sjóðfélagaog ljóst er að hér er um svo lága lánsfjárhæð að ræða, að frekari skyldu- kaup iífeyrissjóðanna muni lækka þetta hámarkslán enn meira. Þá ber ennfremur að geta þess, að lífeyrisgreiðslur SAL-sjóðanna aukast nú mun meira, en al- mennar verðlagshækkanir. Slík þróun minnkar sjálfsögðu möguleika lífeyrissjóðanna til að veita sjóðfélögum sínum viðun- andi lífeyrissjóðslán. Þó eigið fjármagn sjóðanna fari nú ört vaxandi, má ekki gleyma því að uppsöfnun á fjármagni sjóðanna er ekkert takmark í sjálfu sér. Með degi hverjum vaxa lífeyris- skuldbindingar sjóðanna og smám saman verður gengið á þetta fjármagn í formi verðtryggðra lífeyrisgreiðslna. Ljóst er, að til að halda uppi í nánustu framtíð viðunandi kerf- isbundnum sparnaði í lífeyris- sjóðunum þarf annað hvort að hækka iðgjöld eða minnka lífeyr- isskuldbindingarnar, nema hvort tveggja sé gert. I þeim umræðum, sem fram hafa farið í þjóðfélaginu um lög- þvinguð skyldukaup lífeyrissjóða á skuldabréfum fjárfestingalán- asjóða, vill oft gleymast að þessi lán þarf að sjálfsögðu að endur- greiða með vöxtum og fullum verðbótum. Svo framarlega sem árleg hækkun ráðstöfunarfjár lífeyris- sjóðanna er meiri en hækkun lánskjaravísitölunnar geta fjár- festingalánasjóðirnir selt verðtryggð skuldabréf til lífeyris- sjóðanna. Afborgunarbyrðin vex að vísu frá ári til árs, en umframhækkun ráðstöfunarfjár lífeyrissjóðanna bjargar fjárfestingalánasjóðun- um frá alvarlegum skakkaföllum. Hrafn Magnús- son skrifar Jafnskjótt og ráðstöfunarfé líf- eyrissjóðanna vex minna en hækkun lánskjaravísitölunnar, hrynur þetta kerfi eins og spila- borg. Það er því skammgóður vermir fyrir fjárfestingalána- sjóðina að byggja lánsgetu sína að verulegu íeyti á lögþvinguðu lánsfé frá lífeyrissjóðunum. Verðbréfakaup af íbúðarlánasjóðunum Eins og áður er getið, vilja forráðamenn lífeyrissjóða innan Sambands almennra lífeyris- sjóða, semja um þessi kaup við fjárfestingalánasjóðina. Al- mennu lífeyrissjóðirnir hafa aðal- lega keypt verðtryggð skuldabréf af Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna. Á árinu 1981 beindu lífeyrissjóðirn- ir 47% af skyldukaupum sínum til ofangreindra íbúðarlánasjóða. Þetta hlutfall var svipað á árinu 1976 en þess ber þó að geta að raungildi verðbréfakaupanna miðað við byggingarvísitölu rúm- lega tvöfaldaðist til byggingar- sjóðanna á árinu 1981 samanbor- ið við árið 1976. Óhætt er því að fullyrða, að lífeyrissjóðirnir hafa í auknum mæli beint fjármagni sínu til Húsnæðsstofnunar ríkis- ins. Þó verðbréfakaupin í ár af íbúðarlánasjóðunum verði von- andi svipuð að raungildi og í fyrra, en minni en lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir, er engin ástæða til að örvænta um minnkandi getu lífeyrissjóðanna til kaupa af fjárfestingalána - sjóðum á næstu árum.Hin gífur- lega aukning á eftirspurr lífeyris- sjóðslána frá sjóðfélögum í ár endurspeglar aðeins ástandið á lánsfjármarkaðinum. Svo virðist þó, að nokkuð hafi dregið úr þessari eftirspurn að undanförnu og verður að vona að lánsfjármarkaðurinn komist aftur í sæmilegt jafnvægi. Til að svo megi verða, hafa lífeyris- sjóðirnir í haust kynnt þær breytingar sem orðið hafa á láns- kjörunum á undanförnum árum. Tilgangur þessarar kynningar var að upplýsa lántakendur um verðtryggingu er hefur hin aukna lánsfjáreftirspurn komið í veg fyrir að lífeyrissjóðirnir geti veitt eins há lán og vera þyrfti til þeirra, sem eru að koma yfir sig þaki í fyrsta sinn. Því er oft haldið fram að stór hluti lífeyrissjóðslána fari í eyðslulán. Ég vísa þessari full- yrðingu algerlega á bug, enda hefur engin víðtæk könnum farið fram um þetta atriði. 1 fyrra var gerð tímabundin afmörkuð leyni- leg könnum hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna meðal lántak- enda, sem fengið höfðu lífeyris- sjóðslán. Niðurstaða könnunar- innar var á þá leið, að yfir 90% af lánsfjármagninu fór til íbúðar- bygginga, kaup á eldri húsnæði eða til viðhalds íbúðarhúsnæðis. Á meðan engin víðtæk könnun heíur farið fram ættu menn að varast að draga fljótfærnislegar ályktanir í þá veru að stór hluti lífeyrissjóðslána fari í eyðslulán, s.s. í bílakaup og utanlandsferðir. Þróun lánskjara- vísitölunnar Um þessar mundir er nokkuð rætt um misgengi lánskjaravísi- tölu og kauptaxtavísitölu. Ef samanburður er gerður á láns- kjaravísitölu, kauptaxta og ráðstöfunartekjum allt frá árinu 1970 er ljóst, ef til lengri tíma er litið, að kauptaxtar launþega haldast í hendur við þróun láns- kjaravísitölunnar. Ef sérstaklega er gerður samanburður frá 1. júní 1979 til októberloka í ár er misgengið miðað við afborgun á 6 mánaða fresti einungis 1,1% en 1,6% miðað við afborgun einu sinni á ári. Með þessar staðreyndir í huga vara ég sérstaklega við fljótfærn- islegum aðgerðum, að breyta nú grunni lánskjaravísitölunnar eða færa tímbundnar umframhækk- anir lánskjaravísitölunnar, sem sérstakan höfuðstólsviðauka og lengja þar með lánstímann. Auðvitað ber að fylgjast vel með þessari misvísun, ef hún er fyrir hendi, en ótímabærar aðgerðir í þessum efnum eru óþarfar. Að lokum skal eftirfarandi undirstrikað. Menn ættu að hug- leiða gildi þess fyrir þjóðfélagið að allir starfandi menn eiga nú aðild að lífeyrissjóðum. Gagn- vart hinum starfandi manni skiptir að vísu mestu máli, hvort lífeyrissjóðirnir séu þess megnug- ir að greiða verðtryggðan lífeyri í nánustu framtíð. Menn mega þó ekki vanmeta hlutverk lífeyris- sjóðanna í hinum kerfisbundna sparnaði í þjóðfélaginu. Ef menn hefðu ekki borið gæfu til að taka upp sjóðsmyndandi lífeyriskerfi er ljóst, að hinn þýðingarmikli þáttur kerfisbundins sparnaðar hefði nánast enginn orðið. Hlut- verk lífeyrisjóðanna í húsnæðis- lánakerfinu er því stærri en menn gera sér almennt grein fyrir. Hrafn Magnússon er fram- kvæmdastjóri SAL - sambands almcnnu lífeyrissjóðanna. Hann hefur áður skrifað greinar í Þjóð- viljann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.