Þjóðviljinn - 17.12.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 17.12.1982, Blaðsíða 15
Föstudagur 17. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 um, einn hverfi á braut með hvíta húfu og annar komi í hans stað, tekst Þorgerði ávallt að halda þeim eigindum eftir sem prýða kórinn best. „Öld hraðans" en engin undan- tekning; hún er í senn hressileg, hátíðleg og Ijúfleg. Ef ekki kæmi til sú skýring að heiti plötunnar er fengið úr limru Þorsteins Valdi- marssonar og kórinn syngur við lag' Páls P. Pálssonar, þætti mér nafn- giftin argasta öfugmæli. Það er nefnilega svo að fágaðar og hljóm- fagrar raddir Hamrahlíðarkórsins frelsa áheyrandann gersantlega undan öld hraðans, á meðan hann ferðast um í heimi íslenskra söng- laga. Petta mun vera önnur hljóm- plata sem kórinn gefur út, hin fyrri kom út árið 1978. En einnig má geta þess að Hamrahlíðarkórinn syngur ásamt Pólýfónkórnum og Kór Öldutúnsskóla, Mattheusar- passíu Bachs, undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, á nýlegri plötu. Þeir sem unna fögrum kórsöng, ættu ekki að sniðganga jafn vand- aða hljómplötu og „Öld hraðans." Nýlega er komin út plata með 13 lögum, sungnum af Hamrahlíðar- kórnum undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Allt eru það íslensk tónverk, görnul og ný. A fyrri hlið- inni má finna eldri söngva, þjóð- lög, auk nýrri sönglaga. Seinni plötuhliðin er helguð verkum sem sérstaklega hafa verið samin fyrir Hamrahlíðarkórinn og eru þau eftir yngri kynslóðir íslenskra tón- skálda. Plata þessi sem ber titilinn „Öld hraðans" er öll hin vandaðasta. Hljóðritunin sem gerð var í Ríkis- útvarpinu haustið 1981, er skýr og hljómmikil, þannig að hvergi heyrist kæfður ómur eða flatur. Umslagið er snyrtilegt, með mynd eftir Erró af landi, þjóð og menn- ingu í hnotskurn og sjálfum kórn- um í þjóðlegum búningi. í því er rakin ferill Hamrahlíðarkórsins, stuttur en litríkur, og það sem meira er um vert. þar eru textar söngvanna skráðir ásamt heimild- um um höfunda. Kór Menntaskólans við Hamra- lilíð var stofnaður ári eftir að kennsla hófst þar og hefur Þor- gerður Ingólfsdóttir stjórnað hon- um frá upphafi. Reyndar var hún stofnandi kórsins, og undir hand- leiðslu hennar hefur hann vaxið og dafnað og hlýtur nú að teljast nteð fremstu blönduðu kórum landsins. Þótt stöðug skipti séu á söngvur- Ljóðabók eftir Jóhann Kúld Ljóðstef baráttunnar heitir ljóðabók eftir Jóhann J.E.Kúld sem Letur gefur úr. Þetta er önnur ljóðabók höfundar sem hefur m.a. samið ævisögu sína, sjóferðabækur og ritað margt um sjávarútveg. Jóhann ljóðar hér á hafið og aðra aðila náttúrunnar, kveður um stuðlanna mátt, um söguleg efni, um íslendinga í Kanada og ýmis- legt það sem til halds má verða í lífsins ólgusjó. Jóhann J.E.Kúld Öld hraðans’ Gull & silfúr hf. hefur í 12 ár lagt áherslu á vandaða skartgripi — góða þjónustu og ábyrgð á allri vöru. í dag bjóðum við okkar ágætu við- skiptavinum glæsilegra úrval af demants- skartgripum en nokkru sinni áður ásamt hefðbundnum skartgripum úr gulli og silfri. Veitum sérfræðiaðstoð við val á demants- skartgripum og fullkomna viðgerðarþjónustu. Sendum í póstkröfu um allt land. & á§>ílfur f)/f LAUGAMiGI 35 - REYKJAMK - S. 20620 &A-LT í JÓLAMATJN^ Ö RAFLJOS í MIKLU ÚRVALI í RAFTÆKJADEILD STÆRRI MATVÖRUMARKAÐUR (Höfum fjölgað afgreiðslukössum) O JL-PORTIÐ • NYR INNGANGUR Fjöldi nýrra bílastæða í JL-portinu. Aldrei meira úrval af húsgögnum í húsgagnadeild Mó \V° Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála OPIÐ TIL KL. 18 ÍDAG H£Eij LuL“úuu 1 - uu - ^ _ u LH Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 /a a a A A A ' s

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.