Þjóðviljinn - 17.12.1982, Side 11
um helgina
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 17. desember 1982
Á æflngu: F.v. Andrés Sigurvinsson aðstoðarleikstjóri, Bríet Héðinsdóttir
leikstjóri, Sigurjón Jóhannsson leiktjaldamálari, Jón Þórarinsson tón-
skáld og David Walters ljósameistari.
Jólaleikrit
Þjóðleikhússins:
Jómfrú
Ragnheiður
Æfingar í fullum
gangi
leikJist
Æfingar eru nú í fullum gangi á
jólaleikriti Þjóðleikhússins sem í ár
er Jómfrú Ragnheiður í nýrri leik-
gerð Bríetar Héðinsdóttur á Skál-
holti Guðmundar Kambans en hún
leikstýrir jafnframt verkinu.
Guðbjörg Thoroddsen leikur
Ragnheiði og kemur nú í fyrsta
sinn fram á fjölum
Þjóðleikhússins.
Með önnur helstu hlutverk fara
Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg
Kjeld, Hallmar. Sigurðsson, Helga
Backmann, Hjalti Rögnvaldsson,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir og
Árni Tryggvason.
Girðbjörg Thoroddsen leikur j
Ragnheiði og kemur nú fram ■
fyrsta skipti á fjölum Þjóðlcikhúss-
ins.
Sigurjón Jóhannsson gerir leik-
mynd, Jón Þórarinsson tónlist en
lýsingu annast David Walters.
Ándrés Sigurvinsson er aðstoðar-
leikstjóri.
- GFr
A morgun, laugardaginn 17. des., bætist ein íslensk kvikmynd í safn þeirra
sem fyrir eru en það er Stuðmannamyndin „Með allt á hreinu“ sem þá
verður frumsýnd. Á myndinni sjáum við Grýlurnar og Stuðmenn, sem
fara með stærstu hlutverkin, ásamt leikstjóranum, sem sést þarna bakatil,
Ágústi Guðmundssyni. Með allt á hreinu er jólamynd Háskólabíós í ár, og
er mynd fyrir aila fjölskylduna. Ljósm. - Atli -
Úr Töfraflautunni. Ljósm. - gel -
„ Töfraflautan ” um helgina
Síðustu -.ýningar á Töfraflautunni
fyrir jóli eru núna um helgina,
laugardag og sunnudag. Þá mun
Gilbert Levine leggja frá sér tón-
sprotann og halda heimleiðis og hef-
ur hann þar með lokið störfum fyrir
fslensku óperuna að þessu sinni.
Ekki er endanlega frágengið hver
við taki eftir jólin.
Hlé verður gert á sýningum ís-
lensku óperunnar á Litla sótaran-
um og Töfraflautunni yfir jólin.
Sýningar á Litla sótaranum verða
væntanlega teknar upp fljótlega
eftir áramótin. Fyrsta sýning eftir
áramótin verður svo sunnudaginn
2. janúar.
Háskólabíó:
„Rokk
gegn
vímu”
tónlist
í kvöld föstudaginn 17. desem-
ber, verðá haldnir tvennir hljóm-
leikar í Háskólabíói undir yfir-
skriftinni: ROKK GEGN VÍMU.
Þar verður heldur betur margt
um að vera: Um það bil þrjátíu
manna hópur okkar færasta fólks í
poppinu mun koma þar fram, bæði
sem ein heild, undir stjórn Sig-
urðar Karlssonar, og flytja m.a.
hljómsveitarverkið „Bakkus“
eftir Sigurð, og í minni hópum.
Bubbi Mortens og Egó verða og
þar í þrumu-stuði, og Kimiwasa
Rokk æft gegn vímu. Ljósm. - gel
hreyfílistarflokkurinn mun fremja
list sína.
Meðal þeirra sem þarna koma
fram, auk þeirra sem áður eru upp
taldir, eru: Pálmi Gunnarsson,
Eyþór Gunnarsson, Haraldur Þor-
steinsson, Tryggvi Húbner, Hjört-
ur Hauser, Kristinn Svavarsson,
Birgir Hrafnsson, Pétur Hjalte-
sted, Magnús Þór Sigmundsson,
Rimlarokkararo.fi. Kynnirverður
Þorgeir Ástvaldsson.
Hugmyndin að tónleikum þess-
um er frá listamönnunum sjálfum
kontin, með Sigurð Karlsson í
broddi fylkingar, en framkvæmda-
aðilar eru Hljómplötuútgáfan Ver-
an og Styrktarfélag Sogns. Allur
ágóði af hljðmleikum þessum mun
renna til hinnar nýju sjúkrastöðvar
SÁÁ, og hafa allir listamennirnir
gefið vinnu sína í þessu skyni. Verð
aðgöngumiða er kr. 150.00.
Eins og áður sagði verða tvennir
tónleikar. Þeir fyrri hefjast kl.
18.00 en þeir síðari kl. 23.00.
Rimlarokk
Rúnar Þór kynnir Rimlarokkið í
Óðali einn síns liðs á sunnudags-
kvöld. Hins vegar hefur hann safn-
að liði sem úr varð fjögurra manna
rimlarokkhljómsveit. Hún mun á
þriðjudag halda sínu fyrstu hljóm-
leika og verður það á Borginni.
Rimlarokkarar þessir munu rétt
kíkja við á Rokki gegn vímu í
kvöld.
3/4 hlutar hinna nýju Rimlarokkara: Rúnar Þór Pétursson, Ólafur Þórar-
insson og Helgi Kristjánsson.
Kvöld-
lokkur á
jólaföstu
Mánudaginn 20. desember
verða haldnir tónleikar í Laugar-
neskirkju kl. 20.30, undir heitinu
„Kvöldlokkur á jólaföstu“. Leikin
verður blásarakvintett eftir Beet-
hoven, Sweelinck og Mozart.
Tónleikarnir hefjast á sextett í
Es-dúr fyrir 2 klarínett, 2 horn og 2
fagott eftir Beethoven. Þá verða
leikin tilbrigði um sönglag frá 16.
öld fyrir blásarakvintett eftir hol-
lenska tónskáldið Sweelinck, sem
uppi var um aldamótin 1600. Að
lokum verður leikin serenaða í c-
moll K 388 eftir Mpzart.
Flytjendur eru: Á flautu Gern-
ard Wilkinson, óbó Daði Kolbeins-
son og Janet Wareing, horn Joseph
Ognibene og Jean P. Hamilton,
klarínett Einar Jóhannesson og
Óskar Ingólfssson, á fagott Haf-
steinn Guðmundsson og Björn
Árnason.
Vísnavinir:
Síðasta
vísna-
kvöld
ársins
Mánudaginn 20. desember halda
Vísnavinir síðasta vísnakvöld árs-
ins, en það verður að venju í Þjóð-
leikhúskjallaranum og verður
helgað jólahátíðinni. Verður í því
tilefni boðið upp á jólaglögg og
jólasveinninn kemur í heimsókn.
Meðal efnis, sem flutt verður að
þessu sinni er:
Kynning á nýútkominni plötu
með lögum Sigurðar Þórarins-
sonar, en Gunnar Guttormsson,
Árni Björnsson og fleiri, munu
annast flutning þess.
Kristín Ólafsdóttir flytur nokkur
lög.
Félagar úr Eddukórnum flytja
jólalög.
Meðlimur í félaginu Ljóð og
Saga flytja ýmis konar efni, sumt af
því tengt jólunum.
Vísnakvöldið hefst klukkan
20.30 en húsið opnar kl. 20.00.
Vonandi mæta sem flestir vísnavin-
ir í hátíðarskapi.
Djass í stúdentakjallara
Á sunnudagskvöldið er djass í Stúdentakjallaranum og hefst hann kl.
21.00. Þeir sem spila eru Eyþór Gunnarsson á píanó, Friðrik Karlsson á
gítar, Gunnlaugur Briem á trommur, Sigurður Flosason á saxófón og
Tómas R. Einarsson á bassa.
*
Islenska hljómsveitin og söngsveitin
Fílharmonía í Háskólabíói á sunnudag:
Jólatónleikar
Söngskólans
í kvöld
Jólatónleikar Söngskólans í
Reykjavík verða í Gamla bíói í
kvöld, föstudagskvöldið 17. des.,
kl. 20.00. Á efnisskránni eru atriði
úr óperunni Hans og Gréta eftir E.
Humperdinck og kaflar úr óratóri-
unni „Friður á Jörðu“ eftir Björg-
vin Guðmundsson.
Það er óperudeild skólans, undir
stjórn Þuríðar Pálsdóttur óperu-
söngkonu sem flytur sviðsett atriði
úr óperunni Hans og Grétu við
undirleik Jórunnar Viðar. Kennar-
adeild skólans, undir stjórn
Garðars Cortes skólastjóra hefur
hins vegar veg og vanda af flutning-
ióratóríunnar Friður á jörðu. Nem-
endur í kórstjórn hafa æft kórinn
og stjórna honum á tónleikunum
og syngja einnig einsöngshlutverk-
in. Undirleik annast Pavel Smid.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og
eru allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Jólatón-
leikar
Tónlistarskóla
Kópavogs
Fyrri jólatónleikar Tónlistar-
skóla Kópavogs verða í sal skólans
á morgun 18. desember kl. 14.oo.
Síðari tónleikarnir verða í Kópa-
vogskirkju á sunnudaginn 19. des-
ember kl. 16.00.
Neskirkja:
Jólasöngvar
fjölskyldunnar
Eins og venja er til í Neskirkju
síðasta sunnudag fyrir jól, mun
næstkomandi sunnudag verða fjöl-
breytt fjölskyldusamkoma í Ne-
skirkju kl. 14 í stað hefðbundinnar
guðsþjónustu. Rúna Gísladóttir
kennari mun fara með sögu, barn-
j akór Melaskóla syngur, Ingimar
j Erlendur Sigurðsson les ljóð úr ný-
ju bókinni sinni, kór aldraðra syng-
ur, organisti kirkjunnar leikur á
orgelið og auk þess verður al-
mennur söngur
Þá er ónefnt það sem telja má til
gleðilegra tíðinda að tekinn verður
! í notkun nýr flygill, sem sóknar-
nefnd og kvenfélag hafa fest kaup
á. Mun hinn ágæti listamaður Jón-
as lngimundarson leika á
hljóðfærið.
Árlegir jóla-
tónleikar
Tónskóla
Sigursveins
Árlegir jólatónleikar Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar verða
í sal Hamrahlíðarskólans á sunnu-
daginn 19. desember kl. 14.00. Þar
koma aðallega fram yngri nemend-
ur skólans bæði í einleik og sam-
spilshópum. Fram kemur blokk-
flautukór skipaður forskóla-
nemendum og flytur hann ásamt
hljómsveit tvö íslensk jólalög í út-
setningu stjórnandans Sigursveins
D. Kristinssonar. Flytendur þess-
ara laga verða hátt í 100 talsins.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og allir velkomnir.
Hátiðasöngvar
Á sunnudag kl. 21.15 halda ís-
lenska hljómsveitin og söngsveitin
Fílharmónía tónleika í Háskólabíó
sem bera yfirskriftina hátíðas-
öngvar.
Flutt verður kantata nr. 140 og
eru einsöngvarar Signý Sæmunds-
dóttir, John Speight og Sigurður
Björnsson. Þessu verki verður
sjónvarpað beint og er það nýjung
hér á landi. Þá mun Snorri Örn
Á sunnudagskvöld kl. 22.30
verður samvera í Háteigskirkju svo
sem undanfarin ár, sem nefnist
„jólasöngvar við kertaljós“. Sigur-
björn Einarsson biskup flytur
ræðu. Sungnir verða almennir
sálmar og tónverk flutt af organista
og kór Háteigskirkju, sem tengjast
aðventu og jólum. Þá mun kórinn,
einsöngvarar og hljómsveit flytja
kantötu no. 61 „Nú kemur
heiðinna hjálparráð", eftir
J.S.Bach. Einsöngvarar eru Sigrún
Litla listmuna-
stofan í Hveragerði
Sigurður M. Sólmundarson hefur
opnað sýningu á listmunum sem
hann hefur unnið að í Dynskógum
5 í Hveragerði. Á sýningunni eru
20 myndverk auk ýmissa smáhluta
úr tré, sem henta vel til jólagjafa.
Má þar nefna gestabækur með
skreyttum tréspjöldum og prjónas-
tokka. Skreytingu gestabókanna
geta kaupendur sjálfir ráðið, ef
þeir óska þess. Þá býður Sigurður
sýningargestum upp á kaffisopa og
er það eini staðurinn í Hveragerði
að Eden undanskildu sem veitir
aðkomufólki þessa þjónustu nú,
eftir að Kaffistofa Hallfríðar og
Hótel Hveragerði hafa hætt starf-
semi sinni. Allir sýningargripirnir
eru til sölu. Litla listmunastofan
verður opin um ófyrirsjáanlegan
tíma fimmtudaga til sunnudags.
Snorrason lútuleikari flytja hát-
íðatónlist frá endurreisnartímabi-
linu og flutt verður nýtt verk eftir
Askel Másson sem höfundur nefnir
Okto November.
Að lokurn verður flutt hátíðar-
módettan In Ecclesis eftir Gabrieli
en það er samið fyrir átta radda
tvöfaldan kór, málmblásturshljóð-
færi og orgel. Dagskránni lýkur svo
með nokkrum jólalögum sem tónl-
eikagestir geta tekið undir.
Gestsdóttir, Sigurður Bragason og
Árni Sighvatsson. Á fiðlur leika
Sigrún og Sigurlaug Eðvaldsdætur,
á lágfiðlur Guðrún Þórarinsdóttir
og Svava Bernharðsdóttir, á celló
Bryndís Gylfadóttir og á fagot
Kristín Mjöll Jakobsdóttir. Orgelc-
ontinuo leikur Elías Davíðsson.
Stjórnandi er organisti kirkjunnar
dr. Orthulf Prunner, og mun hann
frá kl. 22.00 leika á orgelið, sem nú
hefur verið flutt í hliðarskip kirkj-
unnar að norðan.
Það hefur verið siður í Háteig-
skirkju í allmörg ár að koma saman
á vígsludegi kirkjunnar, fjórða
sunnudag í aðventu, og hugleiða í
orði og hljómlist leyndardóm há-
tíðarinnar, sem að höndurn fer. Nú
eru sautján ár liðin frá því að Sigur-
björn biskup vígði kirkjuna 19.
desember 1965 og á þessu ári þrját-
íu ár frá stofnun safnaðarins.
Kirkjudagurinn hefst með fjöl-
skylduguðsþjónustu kl. 11.00, en
þá munu börn úr Æfinga- og til-
raunadeild Kennaraháskóla fs-
lands syngja og leika á blokkf-
lautur undir stjórn kennara sinna.
Jólabasar
Nemendur í 3. bekk Þroskaþjálfa-
skóla íslands munu gangast fyrir
jólabasar á útimarkaðnum á Lækj-
artogi næstkomandi laugardag 18.
desember. Basarinn hefst kl. 11.00
og stendur til kl. 17.00. Á boðstól-
um verður m.a. laufabrauð, smá-
kökur, ýmiss konar jólaföndur og
bækur.
Aliur ágóði rennur í ferðasjóð,
en 3. árs nemar ætla í námsferð til
Rússlands í apríl í vor. Ennfremur
bjóða nemendur upp á vandað jól-
asveinaprógramm á jólaskemm-
tanir og er takið á móti pöntunum í
síma 13851 og 52743.
Sýningu Snorra og
Einars að Ijúka
Nú um helgina lýkur í Háholti í
Hafnarfirði málverka. sýningu
þeirra Einars Einarssonar og
Snorra Daniels Halldórssonar.
Snorri er einn af stofnendum frí-
stundamálarafélags íslands, en
hann hefur sýnt all oft. Einar er
einnig frístundamálari, en hann
bjó lengi í Bandaríkjun'um, þar
sem hann málaði mikið.
-GFr
Há teigskirkja:
Jólasöngvar við kertaljós
Föstudagur 17. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA II
Fjórða
Þeys
Jón Viðar
_____Jónsson_
skrifar
Ekki alls fyrir löngu kom hljóm-
sveitin Þeyr heim úr velheppnaðri
hljömleikaferð um Norðurlönd,
Þýskaland og Holland. Hljóm-
sveitinni var vel tekið og fóru gagn-
rýnendur dagblaðanna mjög lof-
samlegum orðum um hana.
Þessi ferð er önnur hljómleika-
ferð hljómsveitarinnar um Norður-
lönd á þessu ári, en í sumar fóru
þeir kappar í stutta fsrð um Norð-
urlönd og í Kaupmannahöfn voru
hljóðrituð fjögur lög sem nú eru
komin út á plötunni The Fourth
Reich. Platan er tileinkuð Wilhelin
Reich og allri baráttu gegn fasisma
og öðrum lífsfjandsamlegum við-
horfum.
Furðu hljótt hefur verið um
hljómsveitina á þessu ári og engin
plata komið frá henni. Að vísu
kom út platan As above, en hún er
samansafn af fyrri plötum hljóm-
sveitarinnar og þar má heyra nýja
hljóðritun á laginu „Live Trans-
mission" sem heitir „Homo Ges-
talt“ á As above. Einnig er þar að
finna nýjar hljóðblandanir á þrem
lögum að mig minnir. Það má því
segja að tími sé kominn til að þeir
láti í sér heyra. Eins og minnst hef-
ur verið á hefur Fourth Reich að
geyma fjögur lög. Þetta eru lögin
„Public“, „Metanmorphosis“,
„Zen“ og „Blood”.
Tónlist Þeysara þróast stöðugt
og á þessari plötu ganga þeir skerfi
lengra en á Mjötviður mær. Tón-
listin er þyngri, kröftugri, „agress-
ivari“ og þeir leika sér meira að
'tónum en á fyrri plötum sínum.
Trommuleikur Sigtryggs og
bassaleikur Hilmars eru grunnur-
inn sem tónlistin er byggð á, þeir
tveir sjá um að keyra hana áfram.
Gítararnir eru notaðir á þennan
sérkennilega hátt sem einkennt
hefur stíl hljómsveitarinnar, það er
einhver ögrun sem býr í þeim.
Söngur Magnúsar er skýrari en á
fyrri plötum Þeysara og umfram
allt er hann sterkari.
Þeir eru allir fyrsta flokks hljóð-
færaleikarar og kannski erfitt að
benda á einn öðrum fremri. En ef
ég ætti að benda á einn fremstan
meðal jafningja þá mundi ég hik-
laust benda á Sigtrygg; trommu-
leikur hans er stórkostlegur.
Þrír textanna eru eftir Hilmar
Örn Hólmarsson og einn eftir
Magnús. Textarnir eru góðir og
það býr margt að baki þeirra, þó
þeir láti lítið yfir sér:
Times are hard
for a God
who always has
thrived on blood...
(Blood)
„Soundið" á plötunni er mjög
gott, enda ekki nema von þar sem
þeir drengir eru hálfgerð „sound
freek".
Ég er mjög ánægður með þessa
plötu, og uppfyllir hljómsveitin all-
ar þær vonir sem ég hef bundið við
hana. Þessi plata er með því allra
besta sem hljómsveitin hefur gert
og þá er „Live Transmission" talið
með. Og fyrir þá sem ekki vita það
nú þegar, þá er myndin framan á
albúminu af Wilhelm Reich.
- JVS
Stuðmenn koma fram á Satt-kvöldi í Broadway og þessi þokkafulla vera á
myndinni er enginn annar en Vajgeir Guðjónsson Stuðmaður í einu atriða
nýju Stuðmannamyndarinnar Með allt á hreinu. Veran þokkafulla var í
gær ranglega nefnd Egill Ólafsson og er hér með annar hvor aðili... eða
báðirybcðnir afsökunar.
Maraþon og
Díd
Lokadagskrá Maraþontónleik-
anna í Tónabæ á vegum SATT &
Tónabæjar verður sem hér segir:
17/12 Pungo og Daisy kl. 17 - 23
og Centaur kl. 23 - 05.
18/12 Carpini kl. 05 - 13, Sonus-
Futurae kl. 13 - 19, Baulandi bakt-
ería kl. 0-14 (í kjallaraj, og Engla-
bossar kl. 19 - 02.
19/12 Lego kl. 02 - 08, Vonbrigði
kl. 10 - 16, Upplyfting kl. 14 - 20
(jólatrésskemtun fyrir alla fjöl-
skylduna), Tidon kl. 14 - 20 (í kjall-
ara), Dron kl. 20 - 02.
20/12 Trúðurinn kl. 02 og reynir
við Islandsmet.
Heimsmetafagnaður verður
haldin á Broadway sunnud. 19.
des. kl. 19 - 01. Fram koma: Stuð-
menn, Ego, Sonus Futurae og
Þeyr. Magnús Kjartansson leikur
meðan á borðhaldi stendur. Sér-
stakur matseðill verður settur
saman í tilefni kvöldsins. Kynnir
verður Þorgeir Ástvaldsson.
Dagarnir 17-18 des. verða til-
einkaðir íslenskri dægurtónlist
(Did 82) og þá munu tónlistar-
menn og sölufólk á þeirra snærum
bjóða fólki miða í Byggingarhapp-
drætti SATT, en ætlunin er að fjár-
magna húsakaup félagsins með á-
góða af happdrættinu.
Hljómsveitin Þeyr mun að öllum
líkindum leika á Lsekjartorgi
laugard. 18. des. og verður sú upp-
ákoma í tengslum við sölu á happ-
drættismiðum í Byggingarhapp-
drætti Satt, en líkur eru á að fleiri
hljómsveitir og tónlistarmenn
komi fram á Lækjartorgi til að
vekja athygli á happdrættinu og
skemmta almenningi. í hljómplöt-
uverslunum og á veitingastöðum
verður lögð áhersla á sölu miða
þessa daga.
Dregið verður 23. des. en fjöldi
góðra vinninga er í boði, m.a. Re-
unault 9 82, Fíat Panda 82 ásamt
vandaðri Kenwood hljómtækja-
samstæðu o.fl.. Verðmæti miðað
við apríl 82 er 375.00 kr.
Úrslit Músiktilrauna 82 voru
hljóðrituð og tekin upp á mynd-
band á vegum Satt. Grettisgat sá
um hljóðupptökuna en ísntynd um
myndatöku. Þótti upptakan takast
mjög vel og fyrirhugar sjónvarpið
að fá þáttinn til sýningar við fyrsta
tækifæri.