Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 5. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Snjóruðningurinn kostar sitt:
200.000 króna dagur
sagði gatnamálastjórinn í Reykjavík
Ég gæti trúað að snjó-
ruðningurinn í gær hafi
kostað eitthvað um 200
þúsund krónur, helmingi
meira en á venjulegum
snjódegi, sagði Ingi U.
Magnússon, gatnamála-
stjóri í Reykjavík.
Þetta er langversti dagurinn,
enda skóf óvenju mikið. Þetta
hefur verið erfið tíð lengi, sagði
Ingi, og þó þíðukaflar hafi komið
á milli þá hefur snjórinn smám
saman hlaðist upp. Snjór-
uðningstæki komust ekki að fyrr
en upp úr hádeginu enda voru
bílar stopp um allan bæ, bæði
vegna þess að þeir voru illa búnir
og svo vegna blindunnar. Um
þrjú leytið höfðunt við náð
nokkrum tökum á þessu og
hreinsun á aðalgötum var lokið
og eftir það var farið að hreinsa í
íbúðagötum.
Reykjavíkurborg nýtir öll sín
tæki í slíkum hrinumog leigir auk
þess öll tæki sent hún nær í. Gisk-
aði Ingi á að í gær hefðu um 20
tæki verið í gangi en sagði að
borgin ætti nú erfiðara með að ná
í leigutæki en áður þar sem versl-
unareigendur væru búnir að
tryggja sér þau með föstum
samningum ef eitthvað snjóaði
að gagni.
Það var ekki sjólagið heldur veður í landi sem varð ti þess að Herjólfur sneri við í gærmorgun. Ljósm. - eik.
Herjólfur sneri við í gær:
Farþegar hefðu orðið
innlyksa í Þoriákshöfn
sagði framkvæmdastjórinn
Herjólfur sneri við í gær-
morgun þegar hann var nær
hálfnaður til Þorlákshafnar,
- ekki vegna sjógangs eða
veðurs á sjó heldur uppi á
landi.
Með Herjólfi voru milli 70 og 80
farþegar og sagði Ólafur Runólfs-
son framkvæmdastjóri útgerðar-
innar, að um níuleytið hefði verið
Ijóst að farþegar hefðu orðið inn-
lyksa í Þorlákshöfn ef lengra hefði
verið haldið. Þá hefðu engir komist
að skipinu annars staðar frá. Viö
vorum búnir að hafa samband við
lögreglu og vegaeftirlit í landi,
sagði Ólafur, og niðurstaðan varð
sú að við hefðum lítið upp á land að
sækja í þessu veðri.
Siglingin milli Eyja og Þorláks-
hafnar tekur venjulega um hálfan
fjórða tíma og fer Herjólfur dag-
lega frá Eyjum kl. 7.30. Ólafur
sagði að þessi farþegafjöldi, 70-80
manns væri ósköp venjulegur á
virkunt degi. _
Unglr Ustameiui á Kjarvalsstöðum
yngri. Sérstök dómnefnd fjallar um
innsend verk. og verður tekið á
móti verkunum á mánudaginn
kemur, 10. janúar frá kl. 10 - 18.
Greidd verða dagleigugjöld fyrir
þau verk sem valin verða á sýning-
una. Þá verður og veittur ferða-
styrkur, og velur dómnefnd úr hópi
þátttakenda þann sern styrkinn
hlýtur.
Dagana 5. - 20. febrúar n.k.
verður efnt til sýningar að Kjarv-
alsstöðum á verkum ungra mynd-
listarmanna.
Sýningin er haldin á vegum
stjórnar Kjarvalsstaða og er þátt-
taka miðuð við listamenn 30 ára og
Stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur leggur til:
Úrsögn úr Verðlags-
ráði sjávarútvegsins
í samþykkt sem stjórn og trún-
aðarmannaráð Sjóinannafélags
Reykjavíkur hafa gert í tilefni af
fiskverðsákvörðun á gamlaársdag
segir:
Fundurinn telur að í Ijósi síðustu
og ljótustu misbeitingar ríkistjórn-
arinnar í skjóli úreltra lagaákvæða,
sé óverjandi fyrir samtök sjó-
manna að eiga lengur aðild að
Verðlagsráði sjávarútvegsins, né
að þau ein allra launþegasamtaka
séu skyld að taka mið af reiknings-
legum rekstrarkostnaði útgerðar
og fiskvinnslu.
Fundurinn skorar á stjórn Sjó-
mannasambands íslands og vænt-
anlega formannaráðstefnu að beita
öllum tiltækum ráðunt svo náð
verði algerri samstöðu sjóntannas-
amtakanna um þessa afstöðu.
Utboð í milliveggi fyrir Rafmagnsveituna:
Vildu útiloka inn-
lenda smið
Borgarráð hafnaði nýlega eftir
langar umræður ósk stjórnar
veitustofnana um útboð á milli-
veggjum í hina nýju bækistöð
Rafmagnsveitu Reykjavíkur við
Suðurlandsbraut. Astæðan er sú
að með útboðinu hetði öll innlend
framleiðsla verið útilokuð. Verður
stjórn veitustofnana nú að láta gera
nýtt útboð sem miðast við að milli-
veggirnir séu framleiðanlegir hér á
landi.
Það var 5. nóvember s.l. að fjórir
fulltrúar í stjórn veitustofnana
samþykktu útboðslýsingu sem
miðaði að léttum, auðfæranlegum
veggjum, glerjuðum niður að
hurðarhæð með hljóðdeyringu scm
nemur 45 desibilum. í stjórn Inn-
kaupastofnunar Reykjavíkur var
upplýst, þegar úthoðslýsingin kom
þar fram, að engir innlendir veggir
uppfylltu þessi skilyrði, og sam-
þykkti stjórn Innkaupastofnunar
að vísa málinu til borgarráðs. Sig-
urjón l’étursson sagði í gær að eftir
alllangar umræður hefði borgar-
ráð einróma hafnað því að útiloka
innlenda hönnun við þessar inn-
réttingar og því hefði ósk stjórnar
veitustofnana verið hafnað. —ÁL
Nýr formaður Umferðarráðs
Dómsmálaráðherra h e f u r
skipað Valgarð Briem hæstaréttar-
lögmann formann Umferðarráðs
frá 1. janúar nk. að telja út núver-
andi skipunartímabil ráðsins, þ.e.
til 1. mars 1984. Jafnframt hefur
dómsmálaráðherra veitt Sigurjóni
Sigurðssyni lögreglustjóra að eigin
ósk lausn frá starfi formanns Um-
ferðarráðs frá sama tíma.
Bæklingur um
kerfið í Köben
Ráðgjafahópur íslensku félag-
anna í Kaupmannahöfn sem rekið
hefur tvö síðastliðin sumur félags-
ráðgjafaþjónustu í Jónshúsi, hefur
nýlega sent frá sér bækling sem
innihcldur gagnlegar upplýsingar
um Kaupmannahöfn og kerfið.
Höfundar eru þau Guðrún Ög-
mundsdóttir, félagsráðgjafanemi,
Holger Torp, sálfræðingur, Már
Magnússon sálfræðingur og Sig-
ríður Sigurðardóttir og Yngvi
Sveinsson félagsráðgjafar.
Markmið ráðgjafaþjónustunnar
og bæklingsins er að gefa sem best
svör við þeim spurningum sem upp
koma þegar dvalið er í Danmörku.
í bæklingnum er fjallað unt
skatta- og atvinnumál, atvinnu-
leysisbætur, barnabætur, ellilífeyri,
sjúkradagpeninga, læknisþjón-
ustu, lögfræðiaðstoð, húsnæðis-
mál, húsaleiguuppbót, dagheim-
ilismál, dönskunám og starfsemina
í Jónshúsi, og ýmislegt fleira.
Bæklinginn er hægt að nálgast í
Jónshúsi í Kaupmannahöfn auk
þess sem hann mun liggja frammi
hérlendis á skrifstofu ASÍ, Félags-
stofnun stúdenta, Félagsmála-
stofnun og Norræna húsinu.
-Ig-