Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 5. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurösspn
Skíðastökkið í Innsbruck í gær:
Tikkanen
stökk lengst
Ingemar Stenmark og Phil Mahre
dæmdir úr leik í svigkeppninni
í Parpan í Sviss í gær:
Steve Mahre
sigurvegari
Finninn Matti Tikkanen stökk
lengst allra á skíðastökkskeppninni
í Innsbruck í gær. í keppni af 90
metra palli flaug hann fyrst 105
metra og síðan 104 metra. Gerðu
þessi stökk alls 249,5 stig.
Segja má að næstu menn hafi
vart komist með tærnar þar sem
hann hafði hælana, því að Kanada-
maðurinn Horst Bulau átti besta
Connors
Bandaríski tennisleikarinn Jim-
my Connors er sýnilega fremsti
tcnnislcikari í hcimi í dag cf marka
má stöðuna í stigakeppninni í tenn-
is. Það sem vekur athygli, þegar listi
yfir 10 hæstu menn er athugaður,
er að Björn Borg er þar ekki að
fínna. Landi hans, Mats Wilander,
klífur hins vegar brattann með
miklum hraða og er kominn í 5.
stökkið af öðrum keppendum, 103
metra flaug hann. Efstu rnenn:
1. M.Tikkanen (Finnland) 249,5
stig.
2. J.Weissflog (A-Þýskaland) 243
stig.
3. H.Bulau (Kanada) 241,9 stig.
4. E.Vettori (Austurríki) 238,6
stig.
5. P.Kekkonen (Finnland) 236,4
stig.
bestur
sæti:
1. J.Connors (Bandaríkin) 3355
stig.
2. G.Vilas (Argentína) 2495 stig.
3. I.Lendl (Tékkóslóvakía) 2313
stig.
4. J.McEnroe (Bandaríkin) 2305
stig.
5. M.Wilander (Svíþjóð) 730 stig.
-hól.
Ingemar Stenmark var með best-
an tíma úr báðum ferðum saman-
lagt, en í Ijós kom að hann hafði
sleppt úr hliði og var dæmdur úr
leik.
Staðan:
Staðan í heimsbikarkcppninni á
skíðum eftir svigakeppnina í gær-
kvöld. er þessi:
1. P.Múller (Sviss) 80 stig.
2. P.Zurbrigger (Sviss) 78 stig.
3. H.Weirather (Austurríki) 74
stig.
4. F.Heinzer (Sviss) 72 stig.
5. F.Klammer (Austurríki) 60
stig.
ó.I.Stenmark (Svíþjóð) 53 stig.
Mahre-bræðurnir koma lítið við
sögu í baráttunni að þessu sinni,
hvað sem framtíðin ber í skauti sér.
Af 14 efstu mönnum kemst Steve
Mahre aðeins á lista og er hann í
9.-10. sæti með 45 stig. -hól.
Steve Mahre, sá Mahre-
bræðranna sem minna hefur látið á
sér kræla, sigraði í svigkcppninni í
Parpan í Sviss í gær. Kcppnin var
liður í hcimsbikarkeppninni.
Slæmar aðstæður settu svip sinn á
kcppnina og urðu til til að nokkrir
af hættulegustu keppcndum Steves
voru dæmdir úr leik - fyrir að
slcppa úr liliði. Tók dómuefndina
langan tíma að ákvarða lokaniður-
stöðuna, því fara þuril gaum-
gæfilega yfir vídeóspólur sem tekn-
ar voru. Þokumistur lá yfir
brautinni.
Phil Mahre, sigurvegarinn úr
síðustu heimsbikarkeppni, var
með besta tímann úr fyrri utnferð,
en í síðari umferð steig hann hliöar-
spor; annað skíðið þvældist vit-
lausu megin við eitt hliðið, og fyrir
vikið var hann dæmdur úr leik.
Ingemar Stenmark var að sönnu
meö bestan tímann úr umferðun-
um tveimur. en hann sleppti úr
hliði og var því dæmdur úr leik.
Stig Strand sem vann síðustu svig-
keppni sem haldin var á Italíu var
einnig dæmdur úr leik.
Tími Steves Mahre var 1:38,96
mín. og í 2. sæti varð Svisslend-
ingurinn .1. Luthy á 1:40,73 mín.
Þar sem svo ntargir kunnir
skíðákappar voru dæmdir úr leik
hafa þessi úrslit ekki teljandi áhrif
á keppnina um heimsbikarinn. Ste-
ve Mahre er nú í efsta sæti ásamt
Ingemar Stenmark og Stig Strand í
baráttunni um gullið í sviginu.
-hól.
Zico setur
Maradona
tíl hliðar
Suður-amerískir íþróttafrétta-
menn áttu ekki í vandræðum með
að velja knattspyrnumann ársins í
Suður-Ameríku frekar en kollegar
þeirra í Evrópu. Brasilíska undrið
Zico hlaut þennan titil annað árið í
röð og hafa argentísku knatt-
spyrnustjörnunni Diego Maradona
sennilega fundist það þung tíðindi,
ekki síst fyrir þær sakir að Zico
hreppti þennan titil einnig síðast.
Zico fékk 318 atkvæði en Mara-
dona 296 og varð í 2. sæti.
-hól.
Brasilíska knattspyrnuundrið
Zico. llann hreppti titilinn „Knatt-
spyrnumaður Suður-Ameríku“
annað árið í röð.
Brassarnir
leika við
V-Þjóðverja
í júní á þessu ári munu Brasilíu-
menn halda upp í landsleikjaferð til
Evrópu. Knattspyrnuáhuga-
menn uin allan heim bíða l'crðar
liðsins með óþreyju, því að þeir eru
ófáir sem telja að þrátt fyrir að ítal-
ir haldi hcimsnicistaratitlinum séu
Brasilíumenn engu að síður með
besta lið heims.
í ferð Brasilíumanna var fyrst
ráðgert að aðeins yrði leikið við
Maradona
Nú þykir sýnt að argentíski
knattspyrnusnillingurinn Diego
Maradona, sem margir telja besta
knattspyrnumann heims verður
alveg frá knattspyrnuiðkunum út
marsmánuð. Hann meiddist í leik
nýlega og ofan á meiðslin uppgötv-
aðist að kappinn var með lifrar-
sjúkdóm og mun hann ekki eiga
minnstan þátt í því að halda honuni
frá knattspyrnuvellinum.
Svía, Portúgáli og Svisslendinga,
en nú hefur einnig verið samið um
landsleik við V-Þjóðverja.
Meðfram landsleiknum við Svía
er nú verið að reyna að koma í
kring leik milli þessara sömu þjóða
skipuðum sömu leikmönnum er
léku úrslitaleikinn í HM '58. í þeim
leik léku snillingar á borð viö Pelé,
Vava, Djalama Santos og Nilton
Santos og Garincha. VS/hól.
frá út mars
Til að bæta upp það ástand sem
skapast hefur í herbúðum liðs
Barcelona við fjarveru Maradona,
hefur framkvæmdastjórnin boðist
til að borga 1/2 miljón bandaríkja-
dali til að fá brasilíska knattspyrnu-
mannin Gonzales leigðan í fimm
mánuði frá liði sínu Penarol frá Ur-
uguay. Penarol sigraði nýlega Ast-
on Villa í úrslitaleik um titilinn
„Besta félagslið heims“. VS/hól.
Frásögn bandarísku pressunnar
„Islenskt lið
kemur á óvart”
Eins og frain hefur komið í
fréttuni hélt íslenska unglinga-
landsliðið í körfuknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og
yngri til Bandaríkjanna rétt
fyrir jólin og lék þar þrjá leiki
við bandarísk háskólalið. Það
er engum blöðum um það að
fletta að Bandaríkjamenn eru
langfremstir allra þjóða á
sviðið körfuknattleiks og því
vekur frammistaða íslenska
liðsins nokkra athygli. Þess-
um þrem leikjum tapaði liðið
að vísu öllum en með litlum
mun: 70:73, 70:74 og 82:91.
Liðin sem við kepptum við eru
frá háskólum í Chicago, en
með leikjum stunduðu liðs-
menn æfíngar grimmt.
Heimsókn íslenska liðsins fór
ekki framhjá bandarísku press-
unni og í einu blaðanmL, The
Rockford Register Star, getur að
líta umsögn um nokkra íslensku
piltanna og spjall við Einar Bolla-
son þjálfara liðsins. Við grípum
hér niður á nokkrum stöðum í
umsögn blaðsins:
„....Valur Ingimundarson og
þeir Pálmar Sigurðsson,
harðskeyttur bakvörður, og hinn
sókndjarfi Axel Nikulásson eru
reyndustu menn íslenska liðsins
og þeir skoruðu obban af stigum
liðsins. Þetta tríó ásamt Jóni Gísl-
asyni hafa þegar verið valdir í ís-
lenska landsliðið í körfuknatt-
leik.
Þó eru þeir ekki nógu sterkir
líkamlega og e.t.v. ekki nógu sjó-
aöir andlega. Þannig reiddist Áx-
el Nikulásson ógurlega eftir við-
skipti sín við einn dómarann og
var kældur af þjálfaranum og lét
nokkur þung orð falla sem á am-
erísku slangi myndu sennilega
þýða: „Ég snerti hann aldrei".
Þessi er þó getið síðar í
greininni að íslensku leikmenn-
irnir hafa ekki alveg áttað sig á
dómurunum þar sem leyíð er
meiri harka í körfuboltanum á ís-
landi. Þá segir í greininni að sýni-
lega vanti liðið hávaxna leik-
menn.
„Eruni hér til að leika við
ofjarla okkar“
„Á íslandi er knattspyrnan í-
þrótt nr. eitt“, segir Einar Boll-
ason í viðtali við blaðið. „Æfingar
yfir sumartímann tilheyra ein-
faldlega ekki, æfingabúöir og
þess háttar á þeim tíma þekkjast
ckki. Stundum virðist ekki vera
nokkur leið að fá krakka til að
æfa körfuknattleik. Horfðu á
mig. Aldrei hef cg nú verið knatt-
spyrnumaöur". segir Einar í
viðtalinu.
Og blaðiö heldur áfram: „Ein-
ar Bollason lék 34 sinnum í ís-
lenska olympíuliðinu (lands-
liöinu - innskot). Síðan beitti
hann sér að því að miðla þekk-
ingu sinni og reynslu til að þjálfa
unglinga í körfuknattleik. -hól.
Valur Ingimundarson fyrirliði unglingalandsliðsins. Hér í baráttu við
Dough Kitzinger Fram. Um Val segir Einar í viðtalinu: „Okkar
reyndasti maður, með 27 landsleiki að baki! Á það til að vera full
villtur.“.