Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 9
Miðyikudagur 5. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Þorgeir Pálsson rafeindaverkfræðingur þróar nýja hugmynd Helstu þættir sjálfvirks tilkynning- akerfis eru merktir með svörtum deplum á skýringarmyndina. Það eru staðsetningarkerfi (Loran-C), gagnaöflunarkerfi um borð í skipi (Loran-C móttakari, örtölvueining fyrir gagnavinnslu, og sendir á met- abylgju og/eða stuttbylgju, móttök- ustöðvar í landi, móttakari, gagnasöfnunar- og scndistöð), sím- alínutenging til miðstöðvar, og loks miðstöð með tölvuútbúnaði (Tölvu kerfi og grafískir skjáir). 0 Þorgeir Pálsson rafeindaverk- fræðingur JAN MAVEN HELSTU ÞÆTTIR SJÁLFVIRKS TILKYNNÍNGAKERFIS ejoe SASIDUH Þorgeir Pálsson rafeindaverk- fræðingur er frumkvöðull þessara hugmynda um endurskipulagningu og tæknivæðingu tilkynningaskyld- unnar en á fjárlögum fyrir þetta ár er 400 þús. krónum veitt til þessa verkefnis. „Þetta mál er rétt á byrjunars- tigi. Tæknilega er slíkt eftirlitskerfi framkvæmanlegt. Hins vegar þarf að vinna heilmikla tæknilega undirbúningsvinnu og kanna alla undirstöðu fyrir slíku kerfi. Sú vinna ætti að taka um tvö ár og að henni lokinni geta stjórnvöld síðan tekið ákvörðun um hvort heppilegt sé að taka slíkt kerfi upp, frá fjár- hagslegum og öryggislegum sjón- armiðum", sagði Þorgeir í samtali við Þjóðviljann. Móðurtölva í Reykjavík Sjálfvirka tilkynningakerfið er þannig hugsað, að gagnasöfnun- arkerfi sé um borð í hverju fiski- skipi. Notast sé við Loran-C mót- takara og staðsetningarkerfi og upp- lýsingar sendar til og frá skipun- um á metra- eða stuttbylgju til strandstöðva Pósts og síma og þaðan með símalínutengingu til móðurtölvu í Reykjavík. Á tölvu- skjám í höfuðstöðvum er síðan hægt að kalla fram allar uppiýsingar um feril einstakra skipa, staðsetningu á hverri stund, hraða og stefnu. Þá er hægt eins og áður sagði að senda flotanum og/eða einstökum skipurn viðvaranir og aðrar upp- lýsingar. ^ Þannig myndu upplýsingar uni staðsetningu fiotans birtast á tölvu- skjám í upplýsingamiðstöð. Ann- ars vegar öll miðin þar scm hvert fiskiskip hefur ákveðið tákn eftir stærð. Hins vegar upplýsingaskjár þar sem hægt er að kalla fram um- beðnar upplýsingar um hvert á- kveðið skip, staðsetningu þess, stefnu og hraða. Þar fyrir utan er ákveðið aðvörunarkerfi er eitthvað ber útaf. Sjálfvirkt tilkynningakerfi fyrir íslenska fiskiskipaflotann sem getur fylgst með einstökum skipum þannig að vart verði við ef hættuástand skapast, aflað og veitt nákvæmar upplýsingar um staðsetningu flotans hverju sinni, fundið nærstödd skip er slys ber að höndum á miðunum, sent viðvaranir til skipa á tilteknum svæðum og yfirhöfuð fylgst með öllum ferðum fiskiskipaflotans á miðunum umhverfis landið, er nú í athugun og úrvinnslu hjá Verkfræðistofnun Háskólans. Margvíslegir kostir Aö sögn Þorgeirs eru hclsiu kostir þessa sjálfvirka tilkynninga- kerfis þeir að upplýsingar berast sjálfvirkt frá hverju skipi á fárra mínútna fresti. Skammur tími þar til eftirgrennslan getur hafist ef eitthvaö kemur uppá. Senda má neyðartilkynningar á örskots tíma. Öll gögn eru send og móttekin án marinlegrar íhlutunar. Alag á starfsmenn strandstöðva minnk- ar og allar upplýsingar unt skips- feröir eru fyrir hendi í tölvumið- stöð. Aðspurður hvort þessi sjálfvirki búnaður gæti ekki á vissan hátt komið landhelgisgæslunni til góða þar sem hægt er að fylgjast með öllum ferðum fiskiskipaflotans, sagöi Þorgeir, aö búnaðurinn væri fyrst og fremst hugsaður sem ör- yggisbúnaður en ekki til löggæslu, þótt vissulega byði hann upp á slíka möguleika. - lg. > STS EA3Q1 SKIP TIMI EA301 14 40 1430 14 20 HRADI STADSETNING 6600 N 1210 W SJEFNA ATHUGAS Alsjálfvirkt kerfi gæti veitt nákvæmar upplýsingar um stadsetningu flotans hverju sinni GRAFISKUR SKJAR UPPLÝSINGASKJ'AR □□□□□□□□□□□□□ A AÐVORUNARL JÖS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.