Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 5. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
RUV 6
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Gullí
mund. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Þytur“
eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur.
Hildur Hermóðsdóttir lýkur lestrinum.
10.30 Sjávarútvegur og siglingar. Urnsjón:
Guðmundur Hallvarðsson.
10.45 „Pannan góða“ Guðmundur L.
Friðfinnsson les úr óprentuðu handriti
sínu.
11.10 Létt tónlist.
11.45 Úr byggðunt. Umsjónarmaður:
Rafn Jónsson.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar í fullu fjöri Jón Gröndal
kynnir létta tónlist.
14.30 „Leyndarmálið í Engidal“ eftir Hug-
rúnu Höfundur les (8)
15.00 Miðdegistónleikar. íslensk tónlist.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Ógnir
töfrainannsins“ eftir Þóri S. Guðbergs-
son Höfundur lýkur lestrinum (4)
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandinn
Finnborg, Scheving, talar við börnin um
áramótin og veturinn. Ásgerður Ingi-
marsdóttir les fyrsta lestur af sögu sinni
um Tobbu tröllastelpu.
17.00 Bræðingur. Umsjón: Jóhanna
Harðardóttir.
17.55 Bræðingur Þáttur um málefni
blindra og sjónskertra í urnsjá Gísla og
Arnþórs Helgasona.
19.00 Kvöldfréttir. Daglegt mál Arni
Böðvarsson flytur þáttinn. Tónleikar.
20.00 Frá alþjóðlegri tónlistarkeppni
þýsku útvarpsstöðvanna.
21.40 Útvarpssagan: „Sonur himins og
jarðar“ eftir Kárc Holt Sigurður Gunn-
arsson byrjar lestur þýðingar sinnar (1)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 íþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar
23.00 Kammertónlist Leifur Þórarinsson
kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV
18.00 Söguhornið Umsjónarmaður
Guðbjörg Þórisdóttir.
18.10 Stikilsberja-Finnur og vinir hans
Finnur strýkur Framhaldsflokkur
gerður eftir sögunt Marks Twains. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.35 Áfangastaður Kalkútta Dönsk
fræðslumynd frá Indlandi. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir (Nordvision -
Danska sjónvarpið)
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Nýjasta tækni og vísindi Umsjónar-
maður Sigurður H. Richter
21.05 Dallas Bandarískur framhaldsflokkur
um Ewingfjölskylduna í Texas. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.50 Við vegíarendur. Umræðu- og upp-
lýsingaþáttur um umferðarmál. í þætt-
ínum verður m.a. fjallað um Norrænt
umferðaröryggisár 1983, ökukennslu,
bílbelti og tillitssemi í umferðinni. Um-
ræðum stýrir Maríanna Friðjónsdóttir.
Upptöku stjórnar Sigurður Grímsson
22.50 Dagskrárlok.
Blöö og
blaöamennska
Sneglu-Halli skrifar:
Blaðantennskan hefuróneitan-
lega breyst talsvert á síðari árum.
Að sumu leyti er sú breyting til
bóta, að öðru leyti ekki.
Blöðin hafa stækkað, sum svo
að rnanni finnst stundum að kom-
ið sé fram úr öllu hófi. Kannski er
hugsunin á bak við það sú, að
eitthvað eigi að vera þar fyrir
alla.
Morgunblaðið hefur þá sér-
stöðu, að vera lang stærst ís-
lenskra blaða. Til þess liggja ýms-
ar orsakir. Það mátti,lengi vel,
teljast cina íslenska dagblaðið.
Vísir var að sönnu eldri að árum,
en náði aldrei að vaxa upp úr ves-
aldómnum fyrr en rétt undir
andlátið. Þá gleypti Jónas Vísi og
varð ekki meira fyrir en að renna
út úr rauðvínsglasi. Og það, senr
meira var; hann sporðrenndi
Svarthöfða líka og sýnir það, að
karli er ekki klígjugjarnt. Margir
vildu kaupa dagblað og þá var
ekki urn annað að ræða en Morg-
unblaðið. Þetta veitti blaðinu
mikið forskot, sem það hefur not-
ið síðan. Blaðaútgáta er dýr. Pen-
ingamenn þurfa að eiga málgagn.
Danskir kaupmenn náðu í önd-
verðu tökum á Mbl.. Þegar þeir
söfnuðust til feðra sinna erfðu ís-
lenskir eignamenn blaðið og sú
fjárfesting hefur ávaxtað sig vel.
Ótakmarkað fjármagn er önnur
ástæðan fyrir velgengni MbL.
Styrmir og Matthís eru stundum
að bera sér það í munn að Mbi. sé
„frjálst og óháð“. Allir vita þó að
þeir eru bara fjósamenn á búinu.
Geir getur rekið þá út og sett þá á
guð og gaddinn ef hann telur þá
skorta stimamýkt í þjónustunni.
Dagblaðið þandist út eftir að
það át Vísi. Af honum er nú ekk-
ert eftir nema Vaffið í blað-
hausnum. Þessi blöð voru með
vissum hætti keppinautar. Bæði
voru rekin af samkeppnis-
mönnum. En samkeppnis-
mönnum hefur aldrei þótt sam-
keppni til nokkurs nýt nema þeir
geti grætt nóg á henni. Þess vegna
voru þessi tvö blöð gerð að einu
og samkeppnin útilokuð.
Því miður hefur Dagblaðið að
nokkru fallið í gryfju sorpblaða-
mennskúnnar, og náð þar góðum
árangri. Það veltir sér upp úr alls
kyns æsifregnum. Það skirrist
ekki við að gera sér sem mestan
mat úr slysafréttum og sýnir þar
oft ótrúlega ónærgætni og tillits-
leysi. Það flennir fyrirsagnir af
ómerkilegum atburðum út yfir
þverar síður og orðar þær með
það fyrir augum að þær veki for-
vitni vegfarenda þegar þær eru
hrópaðar upp á strætunr og gatna-
mótum. Oft kernur því á daginn,
þegar farið er að lesa „fréttina“,
að þarna er aðeins verið að leitast
við að selja nýju fötin keisarans.
Svona fréttamennska var óþekkt
áður og þetta finnst ntér afturför.
En kannski finnst sumum nauð-
synlegt að svona „skriflabúð" sé
til í hinurn íslenska blaðaheimi.
Hitt er til bóta að pólitísk skrif
eru nú yfirleitt orðin hófsamari
en áður var, meira um málefna-
legar rökræður, minna um per-
sónulegt hnútukast. Út af því vill
þó bregða og er fyrirbæri, sem
kallar sig Svarthöfða þar gleggsta
og ógeðugasta dæmið, rnann-
vesalingur, sent ekki stingur svo
niður penna, að hann ausi ekki úr
sér óþverranum í allar áttir, enda
svo komiö, að enginn vill lengur
óhreinka sig á því að virða hann
svars. Viðurkenna má svo, að
menn verði að fá að þjóna eðli
sínu þótt ófélegt sé og sjálfsagt
veita þessi skrif Svarthöfða ein-
hverja útrás. Á hinu mætti hann
átta sig, sjálfs sín vegna, að betra
væri fyrir hann að skola þessum
pistlum sínum niöur um klósettið
með öðrum hliðstæðum úrgangi í
stað þess að klína Dagblaðið út
með þeim, því það er misskiln-
ingur, að ekki geti séð á svörtu.
Læt ég þessu spjalli um blöðin
lokið í dag en kannski kemur
meira um þau seinna.
Það er leikur
að læra
Stafrófs-
og skriftar-
vísur
I gær var hérna í Barnahorninu
stafrófsteikniþraut. Nú er ekki víst að
allir kunni stafrófið alveg upp á tíu og
þess vegna ætlum við að birta gömlu
góðu stafrófsvísuna, sem allir eiga að
kunna því þá vefst stafrófið ekki fyrir
þeim lengur.
A) b, c, d, e, f, g,
eftir kemur h, í, k,
1, m, o einnig p,
ætla ég q þar standi hjá.
R,s, t, u, v, eru þar næst,
x, y, z, þ, æ, ö.
Allt stafrófið er svo læst
í erindin þessi lítil tvö.
Það eru til margar fallegar vísur um
skrift. Nú eru mörg ykkar að byrja að
læra að skrifa og þá borgar að vanda
sig, því lengi býr að fyrstu gerð. Við
skulum sjá hvaða heilræði þessar
skriftarvísur leggja okkur til.
Skriftin mín er stafastór,
stílað illa letur.
Hún er eins og kattaklór,
ég kann það ekki betur.
Nei, ekki viljum við að skriftin
okkar sé eins og kattaklór. Svo getur
farið ef við vöndum okkur ekki.
Sumir kenna hendinni um eins og
segir í þessari vísu.
Blekið lekur hókfcll á,
bítur lítið penni,
heldur veldur höndin bág,
henni ég um kenni.
Hvað getum við þá til ráða tekið?
Jú.það segja þessar heilræðavísur
okkur.
Skrifaðu bæði skýrt og rétt,
svo skötnum þyki á snilli,
orðin standa eiga þétt,
en þó bil á milli.
Þínum penna þú svo halt,
þrír að gómar stilli,
stafina hreina skrifa skalt
og skilja vel á milli.
Það er ekki amalegur húsbúnaðurinn í herberginu hennar Gunnhildar. Við
skrifborðið liggur skólataskan og opin bók á borðinu. Og hvað er lengst til
vinstri á myndinni, er það heimiliskötturinn? Hvað skyldi hann nú heita?