Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.01.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur S. janúar 1983 Allt í hvass- viðrinu sem gekk yfir landið í gær Rétt uppúr kl. 8 í gærmorgun skall yfir sunnanvert landið hvassviðri, rétt eins og hendi væri veifað. Hinn mikli snjór, sem faiiið hafði dagana á undan, þyrlaðist upp og á ör- skömmum tíma urðu vegir og götur með öllu ófærar vegna skafrennings, auk þess sem kóf- ið var svo svart að ekki sá útúr augum. Á Suður- og Vestur- landi fór allt úr skorðum, skólum og ýmsum öðrum stofn- unum var lokað og margir komu seint til vinnu sinnar, jafnvel ekki fyrr en á hádegi, en þá birti til. Þetta mikla óveöur gekk svo áfram yfir landiö úr vestrinu og síð- degis í gær var svipað ástand á Noröurlandi og verið haföi hér syöra um morguninn. Aö sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings fór úr skorðum Kröpp lægð væntanleg uppað landlnu í dag Loks birti upp um síðir og snjóruðningur hófst af fullum krafti. var búist viö aö veörið gengi yfir Austurland í gærkveld en aö nokk- uö yrði þá farið aö draga úr vindi. Trausti sagði aö í dag væri von á mjög krappri lægö uppað landinu og gæti hún fært okkur hvasst veður og þá allnokkurn skafrenn- ing. Þó varla eins mikinn og í gær. þar sem lausamjöllin sem þá lá yfir væri nú fokin og hefði fest í sköflum. - Vegna þess hve veðrið skall snögglega yfir í gær, urðu margir að þola erfiðleika á höfuðborgarsvæð- inu, Suðurnesjum og á Suðurlandi. Fólk sem lagði af stað til vinnu sinna’r rétt fyrir kl. 8 fékk bylinn yfir sig og fékk lítið að gert. Festust bílar í sköflum um allt höfuðborg- arsvæðið þannig að langar raðir bíla mynduðust, til að mynda var samfelíd röð frá Miklubraut í Reykjavík og suður í Garðabæ, of- an úr Breiðholti og niður á Miklu- braut og víðar. Reykjanesbraut varð ófær, svo og vegurinn austur yfir fjall. Vegna þess hve margir litlir bíl- ar sátu fastir á götunum, gekk snjóruðningur verr en ella. Þó var orðið fært um allar helstu götur um eða uppúr hádeginu. - S.dór. Bílar sátu fastir um allar götur og töfðu þá sem betur voru búnir til aksturs í snjóþyngslunum (Ijósm. Atli). Algeng sjón í gær cftir að veðrinu slotaði - rcynt að ná bíl úr skafli (Ijósm. Atli). i'uu vi ima W uuuil. IIU Ultgui Ulguiuui Wlgtll MUl bíl Braga Ingibergssonar uppúr skafli í Hallarmúlanum í gær (Ijósm. Atli). „Svo festist maðursjálfur Rabbaö við tvo önnun- kafna sendiferöabílstjóra Það verður allt vitlaust að gera hjá okkur, þegar svona veður skellur yfir; draga bíla útaf bifreiðastæðum, og uppúr sköfium, koma bílum í gang og jafnvel annast venjulega fólks- fiutninga, þegar leigubílarnir komast ekki lengur ferða sinna, sögðu þeir Sigurður Olgeirsson og Bragi Ingibergsson, sendibíl- stjórar, þegar tíðindamenn Þjóðviljans hittu þá á förnum vegi í gær. Þeir sögðust hafa verið að allan morguninn. Það væri nú einu sinni svo að sendibílastöðvarnar héldu uppi þjónustu og þá þýddi ekkert að hverfa af braut, þótt veður og færð versnuðu. Þá fyrst væri þörf fyrir stærri og kraftmeiri bíla. Við hittum þá félaga í Hallar- múlanum, þar sem annar bíllinn varfasturí skafli, eftirað hafa aðstoðað smábíia, og hinn var- að draga hann upp. Svona er það, sögðu þeir félagar, maður hamast við að draga aðra upp og svo festist maður sjálfur. - S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.