Þjóðviljinn - 05.01.1983, Side 7
Miðvikudagur 5. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Björgunarsveitarmenn komu til hjálpar f gærmorgun búnir góðum farar-
tækjum í ófærðinni.
Fjórar jólakökur sögðu lítið handa 90 manns sem biðu í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli í óveðrinu í
gærmorgun, cn nóg var af kaffinu, sögðu þær Sigríður Jónsdóttir (l.t.v.), Anna Björgúlfsdóttir og Elín
Jónsdóttir (ljósm. Atli).
Að metta 90 manns
á fjórum jólakökum
Litiö inn íflugstöðina á Reykjavíkurflugvelli
Ófærðin er draumatími jeppadellumanna
(Ijósm. Atli).
Snjóbílar voru þeir einu sem komust ferða sinna þegar mest gekk á í
gærmorgun.
Fólk beið í hópum eftir strætisvögnunum, sem komu seint og um síðir eða
alls ekki, vegna þess að smábílar fastir á götunum töfðu eða heftu ferðir
þeirra.
Að sjálfsögðu var ekkert flogið
frá Reykjavík í gær. Flug fellur nið-
ur af minna tilefni cn veðrinu sem
yfir gekk í gærmorgun. Samt var
það svo að áður en veðurhamurinn
skall yfir átti að fljúga og voru
farþegarmættir í flugstöð áReykja-
víkurflugvelli kl. 7 í gærmorgun.
Þegar ófært var þaðan, átti að
flytja fólkið til Keflavíkurflugvall-
ar og fljúga þaðan. Langferðabíl-
arnir, sem sendir voru eftir fólkinu,
komust hinsvegar ekki á brott frá
flugstöðinni vegna veðursins og ó-
færðar og 90 manns sátu í hús-
inu þar til kl. 13.
í flugstöðinni er smá kaffitería og
við ræddum við þær Sigríði Jóns-
dóttur, Elínu Jónsdóttur og Onnu
Björgúlfsdóttur, sem þar starfa.
Þær sögðu að heldur fátt hefði ver-
ið hægt fyrir fólkið að gera, nema
hita kaffi. Meðiæti hefði lítið verið
tii svona snemma dags og ekki síst
fyrir þá sök að kvöldið áður beið
stór hópur fólks í fiugstöðinni eftir
fiugi. Meðlæti með kaffinu í gær-
morgun var því af skornum
skammti, kannski fjórar jólakökur
eða svo handa 90 manns, sem segir
heldur lítið.
Þær sögðu fólkið hafa tekið
biðinni meö hinni mestu ró en
dáðust mest að því hve börnin voru
góð og þolimnóð, því að fátt fer að
jafnaði verr í börn en bið.
Þegar veðrinu slotaði var þegar
hafist handa viö aö ryðja leiðina að
flugstöðinni og sem fyrr segir
komst fólkið leiðar sinnar uppúr
hádeginu.
- S.dór.
Smábílar loka götunum
Smábílar fastir á öllum götum stöðva strætisvagnana þegar þungfært
verður af snjó, sögðu þeir Hallgrímur Pétur (t.v.) og Gunnar Baldur
strætisvagnastjórar (Ijósm. Atli).
Þeir sögðu að ástandið í gær
sögðu
strœtisvagna-
stjórarnir
Gunnar Baldur
og Hallgrímur
Pétur
Laust uppúr hádeginu í gær má
segja að ferðir Strætisvagna
Reykjavíkur hali vcrið komnar í
samt lag eftir ómælda eriiðleika all-
an morguninn. Við litum inná bið-
stofu strætisvagnastjóranna við
Hlemmtorg og spurðumst frétta af
gangi mála um morguninn. Þeir
Gunnar Baldur, sem ekur leið 9, og
Hallgrímur Pétur, sem ekur leið 2,
urðu fyrir svörum og sögðu að það
væru búnir að vera mikilir erlið-
leikar um morguninn.
- Og alltaf er ástæðan sú sama
þegar þyngir færð vegna snjóa,
smábílar sem sitja fastir uni allar
götur og hamla stærri bílum að
komast áfram, sögðu þeir félagar.
Þeim bar saman um að þótt strætis-
vagnar væru kannski ekki bestu
bílar heims í snjó væru þetta svo
þungir drekar að þeir kæmust nokk
ferða sinna ef ekki kæmu til van-
búnir litlir bílar sem sætu fastir og
tefðu för þeirra.
hefði verið verst milli kl. 8 og 9 um
morguninn, þegar fólk var að
reyna að komast til vinnu sinnar og
áður en tilkynnt var í hljóðvarpinu
um að stætisvagnarir ættu í erfið-
leikum með að komast áfram. Fólk
beið þá í hópum við biðskýli vagn-
anna en eftir að tilkynnt var urn
erfiðleikana, hætti fólk við að
reyna að komast í bæinn, enda eins
gott því að um og uppúr kl. 9 voru
nær allar götur orðnar illfærar,
einkum í úthverfunum.
Þeir félagar tóku þessu öllu
saman með stóískri ró, sögðu enda
ekki um annað að ræða og að þetta
væri svo sem ekki í fyrsta sinn, sem
strætisvagnabílstjórar lentu í erfið-
ieikum vegna færðar. Við þessu
mætti alltaf búast yfir veturinn,
starfið væri bara svona.
- S.dór.