Þjóðviljinn - 05.01.1983, Side 16
DWÐVIUINN
Miðvikudagur 5. janúar 1983
GHAFlSKUR SKIAM
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
sínum: Ritstjórn 81382. 81482 og 81527. unibrot 81285. I jósmyndrr 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgrciðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 afgreiðslu 81663
Tölvustýrt tilkynningakerfi í undirbúningi hjá Verkfræðistofnun Háskólans
Fullkomið örygglseftiriit
með fiskiskipaflotanum
Alsjálfvirkt töivustýrt tilkynningakerfí fyrir íslenska
fískiskipaflotann, sem getur gefíð samstundis upplýs-
ingar um staðsetningu, stefnu og hraða hvers einasta
fískiskips á miðunum við landið, er nú í könnun og
undirbúningsvinnslu hjá Verkfræðistofnun Háskólans.
Það er Þorgeir Pálsson rafeinda-
verkfræðingur sem er frumkvöðull
þessarar hugmyndar og liefur
Alþingi þegar veitt á fjárlögum
þessa árs, 400 þús. krónur til könn-
unar og undirbúningsstarfa. Að
sögn Þorgeirs mun sú vinna taka
ailt að tvö ár, en tæknilega er ekk-
ert því til fyrirstöðu að slíkt sjálf-
virkt öryggis- og tilkynningakerfi
fyrir fiskiskipaflotann geti komist
á.
Sérstakt móttöku- og senditæki
byggt á loran-C staðsetningakerf-
inu yrði komið fyrir í hverju skipi
og boðin færu síðan í gegnum
strandarstöðvar til og frá móður-
tölvu í miðstöð tilkynningaskyld-
unnar í Reykjavík.
Á tölvuskermi er síðan hægt að
bregða upp yfirlitsmynd af miðun-
um þar, staðsetning allra fiskveiði-
skipanna kemur fram, auk þess
sem tölvan gerir samstundis
viðvart ef eitthvað fer úrskeiðis og
hættuástand skapast á miðunum.
Nánar er fjallað um þessa bylt-
ingakenndu tillögu um tilhögun til-
kynningaskyldunnar og rætt við
Þorgeir Pálsson rafeindaverkfræð-
ing í blaðinu í dag.
-lg-
Sjá 9.
Herjólfur:
46 þúsund
manns
milli lands
og Eyja
í fyrra
Herjólfur fór á árinu 1982 355
ferðir milli lands ug líyja og flutti í
þeim samtals 46.122 farþega og
10.180 bifreiðar.
Ólafur Runólfsson fram-
kvæmdastjóri I lerjólfs sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að farþega-
flutningarnir væru svipaöir og á ár-
inu 1981.cn vöruflutningar hefðu
aukist. Einkum hefðu þó bílaflutn-
ingarnir aukist því á árinu 1982
voru fluttir 700 fleiri bílar en á ár-
inu áður, þótt ferðirnar væru 5
færri en á því ári. - ÁI
Þótt snjórinn gerði mörgum gramt í geði í gær, þá leynir sér ekki að þessir ungu mcnn fagna snjókomunni og
láta sig engu skipta hvort bílar og önnur farartæki fullorðna fólksins komast lciðar sinnar eða ekki.
I
Ekki heyrt
starísfólks
segja framkvæmdastjóri Búlandstinds
og formaður verkalýðsfélagsins á staðnum
Ég hafði ekki heyrt um mál þetta fyrr en í útvarpinu í
gær, sagði Karl Emilsson formaður verkalýðsfélagsins
á D júpavogi er við hringdum í hann í gær og spurðum
hvort hann hefði orðið var við óánægju kandadísks
starfsfólks hjá vinnslustöðinni Búlandstindi, en frá því
var sagt í blaðinu í gær.
- Þetta kom algjörlega flatt upp
á okkur og ég held að enginn hafi
búist við þessu. Ég hafði samband
við trúnaðarmanninn á staðnum í
morgun, og hann hafði ekki orðið
var við nokkrar kvartanir.
Gunnlaugur lngólfsson fram-
kvæmdastjóri Búlandstinds sagði
að fólk á staðnum hefði rekið í rog-
astans við þessar fréttir í útvarpinu.
Hann sagði að þetta hefðu verið
duglegar stúlkur og hann hefði
ekki heyrt kvartanir hjá þeim
undan öðru en að félagsleg aðstaða
á staðnum væri þeim ófullnægj-
andi. Þeim var gefinn kostur á fríi í
byrjun desember, en þar sem to-
garinn kom inn á Þorláksmessu gát-
um við ekki gefið meira en um-
samið frí yfir jólin. Stúlkurnar á-
kváðu þá að fara fyrirvaralaust, sem
okkur mislíkaði óneitanlega, þar
sem þær voru ráðnar í 9 mánuði.
Ég ákvað því að halda eftir síðusta
vikukaupinu á meðan verið var að
gera upp reikninga þeirra, en það
var búið að afhenda kaupið í gær
þegar þetta mál kom upp.
Eg hef tekið saman hvert
meðalkaup þeirra hefur verið hér
yfir þennan tíma með bónus og
kaupauka, og það eru rúmir 5
Kanadadollarar á klst., sem er í
kvartanir
Frá Djúpavogi
samræmi við það sem þeim hafði
verið sagt í Kanada, þótt þar hefði
ekki verið um neitt loforð að ræða.
Við höfum lagt okkur fram um
að gera vel við þetta fólk og ég held
ég nregi segja að vart sé finnanleg
betri verbúð á landinu en hótelið
okkár hér. Gjaldið sent þær
greiddu fyrir húsnæðið var ekki
hugsað sem húsaleiga heldur sem
trygging fyrir húsmunum. Það hef-
ur ekki verið hækkað í samræmi við
dollara þótt við höfum upphaflega
tilkynnt það í dollurum, þar sem
þær skiklu ekki íslenskan gjald-
miðil.
Það væri óskandi að fjölmiðlar
sinntu meira aðbúnaði verkafólks
og sýndu þeim málum skilning, en
það verður ekki gert með upp-
hlaupunt eins og þessum. Það ríkir
alnrenn óánægja með þetta hér á
staðnum og þeir Kanadanrenn sem
hér eru á staðnum eru orðlausir yfir
þessu máli. Fyrirtækið Búlands-
tindur hefur átt í erfiðleikum og
hér hefur verið erfitt atvinnuástand
þar til á þessu ári, að fólk er nú
orðiö bjartsýnna meö bættum rek-
stri fyrirtækisins. Við þessar að-
stæður eru órökstuddar ásakanir
cngum til góðs.
- ólg.
Langþráð
fjárveiting
frá ríkinu komin:
Engin
breyting
á heilsu-
gœslu
í Reykjavík
Ekki verður tekið upp nýtt
kerfi heilsugæslu í Reykjvík á
þessu ári og engin trygging cr
fyrir því hvenær það verður.
Þrátt fyrir að ríkið hafi tryggt
Reykjavíkurborg 11,8 miljón-
ir króna á árinu, sem farið var
fram á nt.a. til þess að koma á
hcilsugæslustöðvum í borg-
inni, felldi Sjálfstæðisflokkur-
inn á mánudag tillögu frá
Öddu Báru Sigfúsdóttur um
að núincrakerfið yrði lagt nið-
ur frá 1. maí n.k. og þá yrði
tekið upp heilsugæslukerfi í
samræmi við lög frá 1978. í
fjárhagsáætlun borgarinnar,
sem afgreidd verður á morgun
er ekki gert ráð fyrir þessum
11,8 miljónum sent tekjum og
sagði Adda Bára Sigfúsdóttir í
gær að greinilegt væri að
borgarstjóri ætlaði sér að nota
þessa fjármuni utan fjárhags-
áætlunar til þcss að skalka og
valka með, að eigin vild.
Reykjavíkurborg hefur
margsinnis lýst vilja sínum til
þess að taka upp nýtt kerfi
heilsugælsu í borginni, nú stð-
ast í október s.I. Hins vegar
hefur strandað á fjármunum,
þar sem nýja kerfið er borg-
inni mun dýrara en það
gamla, en ríkinu mun ódýr-
ara. Hefur borgin því gert
kröfu til þess að ríkið kænti til
nróts við kostnaðarauka borg-
arinnar með fjárframlagi.
Með lögum um nrálefni aldr-
aðra, senr samþykkt voru á.
Alþingi fyrir jól, er borginni
tryggöar tæpar 12 miljónir
króna frá ríkinu á þessu ári,
sem er 35% af kostnaði við
heimilisþjónustu fyrir aldr-
aða. Eftir þessu fjárframlagi
hefur verið beðið, en þá gerist
það að Sjálfstæðisflokkurinn
neitar að framkvæma það sem
til stóð fyrir peningana og
reiknar ekki einu sinni með
þeim sern tekjum í fjárhagsá-
ætlun 1983.
- ÁI.
Sjá bls. 5