Þjóðviljinn - 06.01.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.01.1983, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Fimmtudaf>ur 6. janúar 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Ulan þcss tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaösins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285. ljósmvndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiöslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt oll kvöld. 81333 81348 * ** ***** * . ' » ':* . «1 .. <> I^K I>að skiptast á skin og skúrir hjá öndunum á Tjörninni í Reykjavík: Á sumrin hrjóta svo marsir hrauðmolar af borðum mannanna að þcir rotna í vatninu - nú hópa þær sig í rokinu og ekki er örðu að hafa. - (Ljósm. Atli). Kaupmannahafnarfarþegar Flugleiða: Fastir í Vogun- um í gærkvöldi Umferð á Stór-Reykjavíkursvæðinu gekk sæmilega Lítil þota rann út af brautinni Lítil tveggja hreyfla þota af gerðinni Lear-Jet 55 rann út af brautinni í lcndingu á Keflavíkur- flugvelli í gærdag. Ekki urðu telj- andi skemmdir á vélinni né meiðsl á mönnum. Mjög blint var og mikill hliðarvindur er vélinni var lent og rann hún út af brautinni vcgna þessara slæmu skilyrða. Að öðru leyti hafði allt gengið vel á Kefla- víkúrflugvelli er Þjóðviljinn hafði samband þangað í gærkvöldi. - ekh. Mikið særok í Keflavík Lögreglan lokaði R eykjanesbraut: Bolungavík: Snjóflóð í Óshlíðinni Hjá lögreglunni á Bolungarvík fengust þær upplýsingar að þar væri leiðindaveður síðdegis í gær en ekki ncin stórátök. Veður hefði lægt eftir hádegið en útlit væri fyrir ýfingar í nótt. Snjóflóð féll á Óshlíðarveginn í gær enda allmikil fannkoma verið undanfarna daga. Engin slys hafa orðið á mönnum að sögn lögregl- unnar á Bolungarvík enda þótt margir hefðu auðvitað lent í erfið- leikum vegna fannfergisins. - v. Vegir tepptir á Vesturlandi „Veðrið hefur verið afar slæmt hér framan af degi en er nú heldur að lagast hvert svo sem framhaldið verður", sagði Björn Þorbjörnsson hjá lögreglunni í Borgarnesi um kl. I8 í gær. „Annir hafa verið miklar hjá okkur í lögreglunni og aðalvandinn verið fólginn í því að menn hafa ekki séð úr augum vegna skafrenn- ings og ofankomu. Þá hefur öllu skólahaldi í Borgarnesi verið frest- að í gær og talsvert var um aö menn kæmust ekki úr vinnu", sagöi Björn ennfremur. í gærkvöldi voru nokkrar lang- ferðabifreiðar fastar í snjónum á Vesturlandi. Norðurleiðarrútan sat föst viö Akranesvegamótin lengi dags og þá voru nokkrar bif- reiðar fastar í Skipanesflóanum. „Þessir bílar eru allir með ýtur meö sér en vegna bylsins sér ekki úr augum þannig að menn geta sig hvergi lireyft fyrr en lægir", sagði Björn Þorbjörnsson hjá lögregl- unni í Borgarnesi. - v. „Við getum ekki stillt okkur um að brosa svolítið að Reykvíkingum hérna fyrir norðan“, sagði Jónas Egilsson á Ilúsavík er blaðið halði sanibnnd við liann í gær. „Ekki vegna þess að við trúum því ekki að það hatl dálítið snjóað hjá þcim síð- ustu daga aldrci þessu vant. lleldur kannski fremur af því að hér eruni við tilbúin að taka á móti veðrum og vindum'*. „Annars þarf enginn að kenna í brjóst um okkur. Hér hefur veriö Farþegar með fiugvél frá Kaup- mannahöfn lögðu af stað með rútu til Rcykjavíkur kl. 9 í gærkvöld þó góð tíð og lengst af verið alautt. Um hálífjögurleytið í dag gekk Itann upp með hríð og hvassvirði en það er allt gengið yfir í bráð. Hér er_ engin ófærð og engin snjógöng á götum eins og við erunt vanastir á þessum árstíma. Annars er baró- metið fallandi þessa stundina og aldrei að vita hvað það boðar. En fellur ekki allt unt þessar ntundir eins og gengið?" spurði Jónas að lokum og sendi santúðarkveðjur til Reykvíkinga og Sunnlendinga. - ekh. ast þegar fréttist á 12. tímanum í gær, stóð rútan föst í Vogunum og var verið að reyna að ntoka henni braut en talið var scnnilegt að reynt yrði að snúa henni við. Von var á annarri fiugvél frá Kanaríeyjum kl. 3 í nótt. Þá fréttist af Ijölmörg- um bílum sem sátu fastir á Vestur- landsvegi og höfðu verið allan dag- inn á ferðinni. Ekki væsti þó um fólkið sem í þcini var nema þá helst að það var matarlítið. Færðin í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði var sæmileg vel út- búnum og stórum bílum eftir kvöldmat í gærkvöld og var t.d. haldið áætlun á leiðunt Strætis- vagna en þó var ekki farið í Selás- inn. Fólk sem átti leið í Arbæjar- hverfið varð margt að skilja bíla sína eftir viö Höfðabakka og var síðan selflutt uppeftir nteð belta- og keðjubílum. Á Noröurlandi var komið aftak- aveður í gærkvöld og t.d. á Blönd- uósi var blindbylur. Svo mikið var hvassviðrið þar að rúður brotnuðu í gluggum. Á Sauðárkróki fékk Þjóðviljinn þær upplýsingar unt kk 11.30 í gærkvöld' að veður færi versnandi þar og væri orðið frekar slæmt. Þar var kontin hríð og skaf- renningur. en þó talið enn fært innan sveitar. - GFr „Það er bókstafiega kolvitlaust veður hérna á Isafirði, hríðarbylur og 9 - 12 vindstig“, sagði Kristján Friðþjófsson hjá lögreglunni á Isa- firði síðdegis í gær. „Vegir út úr bænum eru að tepp- ast vegna skafrennings og ofan- kontu auk þess sem snjóskriður hafa fallið, m.a. á veginn um Eyrarhlíð og Súðavíkurhlíð", sagði Kristján einnig. Undanfarna daga hefur snjóað „Þetta gekk alveg þolanlega hjá okkur í dag. Mikil læti í veðrinu en við voruni heppnir því hér hafa cngin slys orðið á mönnum, aðeins smáárekstrar“, sagði Pálmi Aðal- bergsson lögreglumaður í Keflavík í samtali í gærkvöldi. Lítinn snjó festi á aðalgötum í Keflavík og víðast á Suðurnesjum í gær, þar sem rokið stóð af sjó. Því fylgdi mikið saltrok sem batt niður allan lausasnjó. Um kl. 14.00 í gær lokaði Kefla- víkurlögreglan Reykjanesbraut vegna ófærðar. Síðdegis lagði snjóplógur upp frá Reykjavík en hann ætlaði að fylgja farþegunt sem von var á til Keflavíkurflug- vallar í gærkvöld, áleiðis suður og ryðja brautina. -lg- allnokkuð á ísafirði og þungfært verið um bæinn. „Við ísfirðingar eram hins vegar vanir þessu og varkárir þannig að allt hefur gengið stóráfallalaust fyrir sig hér. Skólar og vinnustaðir hafa almennt verið opnir enda bregða ntenn bara undir sig betri fætinum ef farar- tækin teppast í fannferginu", sagði Kristján Friðþjófsson hjá lög- reglunni á Isafirði. - v. að vegunnn væri talinn ófær. Síð- Jónas Egilsson á Húsavík: Brosum svolítið að Reykvíkingum Isafjörður: Koivitlaust veður sagði Kristján Friðþjófsson Þá verður þetta fullkomið segir Guðjón Halldórsson starfsmaður Tilkynningarskyldunnar „Öryggiskerfið verður orðið fullkomið þegar prófessorinn verður búin að fullgera þetta kerfi. Eg hef stóra trú á því að af þessu geti orðið, þótt ég sé orðinn fullorðinn“, sagði Guðjón Hall- dórson starfsmaður Tilkynning- arskyldunnar í samtali í gær. Guðjón sagði að eins og til- kynningarskyldukerfið væri í dag, þá væri það ekki nógu gott, þótt margt hefði lagast þau 11 ár sent hann hefur starfað aö þess- um málum. „Það eru allt of margir trassar, því miður, sem tilkynna ekki tim ferðir skipa sinna eins og fyrir er lagt, en stærsti hluti flotans hefur þessi mál í góðu lagi. Eins hafa móttökuskilyrði víða verið slæm t.d. við Breiðafjörð út af Snæfell- snesi en þau mál horfa nú til betri vegar." Vakt er á tilkynningarskyld- unni allan sólarhringinn en þar starfa 4 menn á vöktuni. Skipum er skylt að láta vita af ferðum sín- unt tvisvar á sólarhring, frá kl. 10 - 13.30 og frá kl. 20 - 22. „Okkar starf felst í því að taka á móti tilkynningum, skrá niður staðsetningu skipanna og síðast en ekki síst að leita uppi þau skip sent trassa að láta vita af sér. Það er því miður allt of ntikið um slíkt, og oft lendum við í erfiðri aðstöðu þegar taka verður á- kvörðun helst á stundinni unt hvernig bregðast eigi við þegar tilkynningar skila sér ekki". Að sögn Guðjóns stendur til að setja upp tölvubúnað hjá Til- kynningarskyldunni á þessu ári, en eins og er, eru allar upplýsing- ar um ferðir skipa handritaðar í spjaldskrá. „Þessi tölva ntun flýta mjög fyrir verkunt þegar leita þarf upp ákveðin skip, en þegar útbúnaður Þorgeirs Pálssonar liggur fyrir þá á þetta að vera orð- ið alfullkomið", sagði Guðjón Halldórsson. - lg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.