Þjóðviljinn - 07.01.1983, Side 1
UOWIUINN
Lækkun
aðstöðugjalda, hærri
endurkaupalán og
aðlögunargjaldá
innflutning er meðal
þess sem Hjörleifur
Guttormsson boðar til
aðstoðar iðnaðinum.
Sjá 8.
janúar 1983
föstudagur
48. árgangur
4. tölublað
Fyrstu skref Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
Skattahækkun á almenning
Er innflutningur að
kollsteypa íslenskum
húsgagnaiðnaði? A
annað þúsund manns
smíða húsgögn fyrir
íslcndinga erlendis.
Viðtöl við menn í
íslenskum
húsgagnaiðnaði.
Nú þessa dagana þegar
fannfergi hamlar
íslendingum að komast
yfir, er ekki úr vegi að
rifja upp árferðið fyrir
einni öld og gera
samanburð.
Friðar-
keflið
afhent
Fulltrúar Samtaka her-
stöðvaandstæðinga afhentu
forseta íslands, Vigdísi Finn-
bogadóttur, útskorið friðar-
kefli frá hinuni fjölmenna
fundi friðarhreyfinga í Gauta-
borg í fyrra.
Þjóöhöfðingjar allra þátttök-
uþjóða friðarfundarins hafa
fengið slíkt kefli með kveðjum
norrænu friðarhreyfinganna og
hvatningu til friðarsinna að
helga árið 1983 baráttu fyrir
markmiðum um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norður-
löndum - kjarnorkuvopnalausa
Evrópu.
Sjá fréttatilkynningu frá
Samtökum herstöðvaandstæð-
inga á bls. 7. - óg.
# Skattalækkun til stóreignamanna
# Niðurskurður á félagslegri þjónustu.
# Stöðvun á uppbyggingu
dagvistarheimila
# Framkvæmdir í þágu aldraðra
minnkaðarum helming.
# Hætt við byggingu leiguíbúða.
Skattahækkun á al-
menningi, skattalækkun
tii stóreignamanna, niður-
skurður á félagslegri þjón-
ustu, stöðvun á uppbygg-
ingu dagvistarheimila,
niðurskurður um helming
á framkvæmdum í þágu
aldraðra, eru nokkur
helstu stefnuatriðanna í
fyrstu fjárhagsáætlun
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sem samþykkt
var í borgarstjórn í gær.
Auk þess er hætt við upp-
byggingu leiguíbúða og
ber fjárhagsáætlunin öll
einkenni hægri stjórnar,
segir m.a. í bókun sem Al-
þýðubandalagið gerði í
gær.
„Hér má sjá forsmekk af þeirri
Davíð Oddsson borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins i Keykjavík ásamt sam-
hcrjum síniim þegar tjárhagsáætlun borgarinnar var afgreidd. Þar er gert
ráð fyrir stórfelldum skattaálögum á almcnning, en lækkun til hátekju-
manna.
leiftursókn gegn lífskjörunum sem
yrði ef íhaldið kæmist til valda eftir
næstu alþingiskosningarnar", segir
ennfrentur í bókuninni.
Minnihlutinn gagnrýndi harka-
lega á fundinum í gær það fráhvarf
frá félagslegri uppbyggingu sem
áætlunin markar ogflutti fjölmarg- •
ar breytingartillögur við hana.
Sjá 7.
Verð fyrír eitt kíló af rækjum til sjómanna:
Norðmenn greiða
238% hærra verð
Eins og skýrt hefur veirð frá í
Þjóðviljanum, hafa rækjusjó-
menn hér átt í stríði við
kaupendur rækju í haust, þar
sem sjómenn telja rækjuverðið
allt of lágt. Þegar borið er
santan verð á rækju til sjó-
manna hér á landi og í Noregi
skal engan undra þótt sjó-
mönnum þyki verðið sem rækj-
uvinnslurnar hér greiða fyrir of
lágt.
Matthías Garðarsson, sem vinn-
ur á vegum norska sjávarútvegs-
ráðuneytisins i Bodö í Noregi,
hafði samband viö Þjóðviljann og
sýndi fram á hve verðmunurinn á
rækju í Noregi ogá íslandi er hrika-
lega mikill, eða 238'fí>. Matthías er
frá Bíldudal og |x:kkir því vel til
allra rækjumála, ;iuk þess sem
hann er sjávarútvegshagfræðingur.
Frá afhendingu friðarkeflisins: Emil Bóasson, Atli Gíslason, Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands, Árni Hjartarson og Ástríður Karlsdóttir. Þjóðhöfðingjar landanna
sem áttu fulltrúa á friðarfundinum mikla hafa allir fengið afhent friðarkefli.
og þjóðirnar selja
rækjuna á
sama markaði
Matthías sagðist liafa orðið svo
hissa þegar hann frétti af því verði
sem greitt er fyrir rækjuna hér að
hann hafi farið út í að gera nákvæma
könnun á muninum hér á Islandi og
í Noregi og dæmið kom þannig út:
Norski báturinn:
Stærð 25 lesta - veiðiúthald 40
vikur - alli 20 tonn af rækju - afla-
verðmæti 385 þúsund kr. ísl. plús
53 þúsund króna styrkur eða sam-
tals 438 þúsund krónur - meðal-
verð á kíló 22 kr. ísl.
í
íslenski báturinn:
Stærð 18 lesta - veiðiúthald 24
vikur - afli 94 tonn - aflaverðmæti
612 þúsund kr. - meðalverð pr.
kíló 6.50 kr. ísl.
Matthías sagðist hatá fTotað
meðalgengi á norsku krónunni á
íslandi 1982 við samanburðinn.
Hann benti á, að Norðmenn og ís-
lendingar seldu rækjuna á sömu
mörkuðum og því spurði hann:
Hvert renna þær 15.50 kr. sem
munar á verði til sjómanna á Is-
landi og í Noregi?
- S.dór.