Þjóðviljinn - 07.01.1983, Síða 7

Þjóðviljinn - 07.01.1983, Síða 7
Föstudagur 7. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Forseta íslands afhent kefli friðarbaráttunnar A síðustu árum hefur sprottið fram heimshreyfing til baráttu fyrir friði og af- vopnun. Fjöldaaðgerðir um öll Norðurlönd sýna, að bar- áttan þar gegn vígbúnaðar- stefnu og kjarnorkuvopnum á meiri hljómgrunn nú en nokkru sinni fyrr. Krafan um að þessi heimshluti verði lýstur kjarnorkuvopnalaus er sameiningartákn nor- rænnar friðarbaráttu. Fjöldahreyfingar hafa boriö kröfuna uppi í Skandinavíu og í Finnlandi og Svíþjóð er hún opin- ber stefna stjórnvalda. Upphaflega var hið kjarnorkuvopnalausa svæði einungis skilgreint sem Finnland, Svíþjóð, Noregur og Danmörk, en fyrir tilhlutan íslenskra friðarsinna, herstöðvaandstæðinga og þess vísis að íslenskri friðarhreyfingu sem upp er risin, hefur nú tekist sam- komulag við skandinavísku friðar- hreyfingarnar um, að stefnt verði að því að öll Norðurlönd verði innan svæðisins. orkuvopnalaus Evrópa. Fulltrúar Samtaka herstöðva- andstæðinga gengu nú í ársbyrjun á fund forseta Islands Vigdísar Finn- bogadóttur. og afhentu henni kefl- ið. Því fylgja kveðjúr norrænu friðarhreyfinganna og hvatning til íslenskra friðarsinna að helga árið 1983 baráttu ívrir ofangreíndum markmiðum." (Fréttatilkynning frá Sha.) Kjarnorkuvopnalaus svaeði á Norðurlöndum og kjarnorku- vopnalaus Evrópa rist á keflið, sem þjóðhöfðingjar allra Norðurlanda hafa fengið frá friðarhreyfingum landa sinna. Friðarfundurinn mikli Einn mesti fjöldafundur sem haldinn hefur verið á Norðurlönd- um var Friðarfundurinn mikli t Gautaborg á síðastliðnu vori. Að honum stóðu hinar litskrúðugu skandinavísku friðarhreyfingar, sem samanstanda af kjarnorku- andstæðingum, kvennahreyfing- um, verkalýðsfélögum, kirkju- deildum o.fl. Á fundinum fengu fulltrúar allra þátttökuþjóða út- skorin friðarkefli sem afhendast skyldu þjóðhöfðingjum hvers lands. Keflin eru tákn baráttunnar og á þau eru kjörorð hennar rist, en þau eru: - Kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum - Kjarn- Vigdís Finnbogadóttir tekur við friðarkefiinu úr hendi Árna Hjartarsonar, formanns miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga. Ástríður Karlsdóttir í forgrunni. Bókun Alþýðubandalagsins við afgreiðslu fjárhagsáætlunar: öll einkenni hægri stjórnar „Við afgreiðslu þessarar fjár- hagsáætlunar, sem er fyrsta fjár- hagsáætlun Sjálfstæðisfiokksins eftir fjögurra ára meirihluta vinstri manna í borgarstjórn, koma mjög greinilega í Ijós einkenni hægri stjórnar og dæmigerð íhaldsúr- ræði“, segir í upphafl bókunar, sem borgarfulltrúar Alþýðuhandalags- ins lögðu fram í gærkvöldi þegar fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg- ar 1983 var afgreidd. Þar segir enn- fremur: Samdráttur í félagslegri uPpbyggingu „Þau meginatriði, scm þessi fjár- hagsáætlun leiðir í ljós, eru: 1. Mjög er dregið úr frantkvæmd- unt á sviði félagsmála og stefnt að samdrætti í byggingu dag- vistarheimila og stöðvun frek- ari byggingar leiguíbúða auk þess sem framlag borgarinnar til byggingar dalarheimila fyrir aldraða er nú aðeins um helm- ingur að raungildi þess sem það hefur verið á liðnum árum. Stórfelldar lántökur 2. Fjárhagsáætluninni er lokað með stórfelldum lántökum. Auk þess, sem gert er í áætlun- inni ráð t'yrir lántöku og/eða tekjuauka að upphæð kr. 57.3 Forsmekkur af því sem verður ef íhaldið nær völdum í alþingis kosningum í vor milljónir, er gert ráö fyrir fyrir- framlöku gatnagerðargjalda að upphæð kr. 53,7 milljónir, sem er í raun bein lántaka. Fjárvönt- un í áætluninni er því urn 111 milljónir króna. Rétt er að benda á að einn aðaltekjustofn þessarar áætlunar gatnagerð- argjöldin, byggir á lóöaút- hlutun á svæði sem ekki hefur verið skipulagt og ekki er í eigu borgarinnar og engir samningar hafa tekist urn. Aukin gjöld á þá sem minnst mega sín 3. Fasteignagjöld hafa veriö lækk- Niðurskurður á fé til byggingar dagheimila og annarra félagslegra framkvæmda. uö um sem nemur20 milljónum króna. Sú gjaldalækkun kemur fyrst og fremst stóreigna- mönnum til góöa. Jafnframt er með þessari áætlun gert ráð fyrir stórhækkun á þjónustu- gjöldum urn sem riemur tæpum 50 milljónum króna umfram al- mennar verðlagshækkanir. Þar rná nefna strætisvagnafargjöld, aðgang að sundstöðum, barna- leikvöllum og bókasöfnum, margföldun á stöðumælagjöld- um og aukna beina skattheimtu af Hitaveitu og Rafmagnsveitu. Þessar gjaldskrárhækkanir eru í raun bein skattlagning á allan almenning og leggjast þyngst á þá sem minnsta mega sín. Forsmekkur að leiftursókninni Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins flytja að þessu sinni fáar breytingatillögur viö gjalda- og eignabreytingaliði fjárhagsáætlun- ar og engar við tekjuliði hennar. Alls staðar í kringum okkur þar sem hægri (lokkar ráða hefur vax- andi kreppu verið mætt með niður- skurði á félagslegri þjónustu. Greinilcgt er að borgarstjórnar- meirihluti Sjálfstæðisflokksins ætlar að feta í þau fótspor og má hér sjá formsekk af þeirri leiltursókn gegn lífskjörum sem yrði, ef íhaldið kæmist til valda eftir næstu alþing- iskosningar.“ Við erum á leiðinni síðasta sýningarhelgi Nú um helgina lýkur sýningu á myndum norrænna unglinga í kjallara Norræna hússins, en þessi sýning hefur farið um allar helstu borgir Norðurlanda og hvarvetna vakið mikla athygli. í myndunum tjá unglingarnir skoðanir sínar á þeim málum sem þeint finnst mikilvægust í nútíð og framtíð. Á hreinskilinn hátt lýsa þeir álití sínu á mikilvægi friðar, náttúruverndar, jafnréttis og vin- áttu allra manna. Þeir lýsa ótta sínum viö aö mannkynið sé ef til vill á barmi glötunar, ótta viö kjarnorkustríð, mengun og eyðingu náttúru, ótta viö ein- ræði, ofbeldi, kúgun, fátækt, atvinnuleysi. Þeir lýsa vonum sín- um og draumum um betri fram- tíð. Ein af finnsku myndunum á sýningunni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.