Þjóðviljinn - 13.01.1983, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 13. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Gömul mynd frá Súðavík: Afar snjóþungt hefur verið þar undanfarna daga, og muna elstu menn i plássinu
ekki annan eins snjó þar um slóðir.
Fréttapistill frá Súðavík
Snjófióð valda
allmiklu tjóni
6. áskriftartónleikar
Sinfóníunnar
Einleikur
á klarinett
Sjöttu áskriftartónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands verða í
Háskólabíói n.k. fimmtudag kl.
20.30. Þessir tónleikar voru áður
auglýstir 6. janúar, en þeim varð
að fresta vegna ófærðar.
Efnisskráin er eftirfarandi:
Molter: Klarinettkonsert. Páll P.
Pálsson: Klarinettukonsert.
Brahms: Sinfónía nr. 4.
Stjórnandi er Páll Pampichler
Pálsson og einleikari Sigurður Ing-
vi Snorrason, klarinett.
- ekh
Leiðrétting:
✓
Astæðulaus
óttí
Orðinu ekki var ofaukið í einni
setningu í ræðu Öddu Báru Sigfús-
dóttur við umræður um heilsu-
gæslu í borgarstjórn Reykjvíkur
sem birt var í blaðinu í gær.
Rétt hljóðar setningin þannig:
„Það sem almenningur óttast er
að menn verði að leita til heilsu-
gæslustöðvar og megi ekki vera
áfram hjá sínum gamla og góða
heimilislækni eftir að nýja kerfinu
hefur verið komið á. Sá ótti er
ástæðulaus, þar sem fólki verður
ekki gert að breyta einu né neinu
sem það ekki vill.“
Pá skal þess gtið, að ekki var um
að ræða 13 miljón kr. fjárveitingu
ríkis til borgarsjóðs eins og nefnt er
í greininni, heldur 12 miljónir.
Ingibjörg Björnsdóttir fréttarit-
ari Þjóðviljans á Súðavík sendi
okkur eftirfarandi pistil af veðri og
óvæntum uppátækjum náttúru-
aflanna þar vestra nú um nýliðin
áramót.
- Hér á Súðavík hefur verið
tíðindalítið það sem af er vetrar þar
til aðfararnótt fimmtudagsins 7.
janúar að brast á norðan stórhríð
sem endaði með snjóflóði og til-
finnanlegu tjóni tveggja fjár-
eigenda hér í plássinu.
Fyrra flóðið mun hafa komið um
kl. 7 að morgni. Ruddi það um
spenni frá Rafveitunni og tók fjár-
hús ásamt hlöðu með sér og fór
með það niður undir Túngötu, þar
sem það stansaði við tvö ystu húsin
við götuna. Vitnaðist fyrst um
flóðið þónokkru síðar þegar
eigandi innra hússins kom út um
morguninn og sá jeppa, sem hann
átti, á hliðinni við húsdyrnar hjá
sér. Stúlka í húsinu hafði vaknað
við einhverjar drunur, svo af þessu
samanlögðu gátu menn sér þess til
hvað hefði gerst. En þar sem ekki
sá út úr augum fyrir hríðarkófi var
ekkert hægt að gera fyrr en birti og
veðrinu slotaði. Þá var strax farið
að leita og fundust 10 kindur lif-
andi, 8 dauðar, en 11 er saknað.
Meðan verið var að leita skall
snjóflóð á öðru fjárhúsi, innar í
hlíðinni. Þar er enn verið að leita
og búið að grafa upp 15 kindur lif-
andi, 6 dauðar, og saknað er 14-15
kinda.
Elstu menn í plássinu muna ekki
svona mikinn snjó, og enginn veit
til þess að snjóflóð hafi komið á
þessum stöðum, en komið hafa
smáflóð hér innar í plássinu, alltaf
á sömu stöðum, en þó mjög sjaldan
valdið tjóni.
Fólk úr einu húsi innarlega í
plássinu flutti úr húsi sínu á
fimmtudag, en það hús stendur
mjög ofarlega í byggðinni.
Allt er með kyrrum kjörum i
framplássinu, og vonar maður að
þessi vandræði séu nú um garð
gengin.
Annars er fátt í fréttum héðan.
Næg atvinna og töluvert um
aðkomufólk að venju sem vinnur í
frystihúsinu.
Haldin var áramótagleði í Frosta
og jólaskemmtun fyrir börn á 2. í
nýári.
Helsta framkvæmd bæjarfélags-
ins á liðnu ári var endurnýjun vatns-
veitunnar, en það er mikið fyrir-
tæki, sem hófst s.l. haust. -I.B.- v
Rósberg G.
Snædal rit-
höfundur
er látínn
Rósberg G. Snædal rithöfundur
er látinn, aðeins 63 ára að aldri.
Rósberg var Húnvetningur,
fæddur að Kárahlíð í Laxárdal 8.
ágúst, 1919. Voru foreldrar hans
Guðni Sveinsson bóndi í Kárahlíð,
fluttist seinna til Skagastrandar, og
kona hans, Klemensína Klemens-
dóttir.
Rósberg G. Snædal lagði á margt
gjörva hönd um ævina. Hann
stundaði nám við Héraðsskólann í
Reykholti veturna 1939-1941 og
sótti síðar kennaranámskeið við
Háskólann. Til Akureyrar fluttist
hann 1941 og átti þar heimili árum
saman. Á Akureyri gegndi Rós-
berg fjölmörgum trúnaðarstörfum.
Hann var ritstjóri Verkamannsins,
sat í stjórn Verkamannafélags Ak-
ureyrar og Sjúkrasamlags Akur-
eyrar, formaður Húnvetningafé-
lagsins á Akureyri, svo að eitthvað
sé nefnt. Þess á milli stundaði hann
verkamannavinnu. Hann tók mik-
inn þátt í störfum Sósíalistaflokks-
ins og var í framboði við alþingis-
kosningar fyrir hann.
Síðari árin var Rósberg búsettur
í Skagafirði og stundaði þar
kennslu, til að byrja með á Skagan-
unt beggja megin sýslumarkanna,
en nokkur hin síðustu dvaldi hann
á Hólum í Hjaltadal og kenndi við
barnaskólann þar.
Rósberg G. Snædal var mikil-
virkur rithöfundur, jafnvígur á
bundið mál og óbundið, félags-
hyggjumaður mikill og fluggreind-
ur, eftirminnilegur öllum, sem af
honum höfðu einhver kynni.
-mhg
Rósberg G. Snædal
Fyrirspum:
Hvar er þetta
f élag tfl húsa?
Á 12. síðu Þjóðviljans í gær birt-
ist grcin frá Félagi rækjuvinnslu-
stöðva undir fyrirsögninni: „Vill-
andi samanburður á rækjuverðinu“.
Lcsandi Þjóðviljans hefur beðið
blaðið að koma á framfæri eftirfar-
andi spurningum í tilefni af birt-
ingu þessarar greinar:
1. Geta menn með því einu að
skreyta skrif sín með einhverju
félagsheiti skrifað alls kyns
óhróður um náungann í blöðin?
2. Hvenær var þetta Félag rækju-
vinnslustöðva stofnað?
3. Hverjir eru í stjórn þess félags?
4. Hvar er félagið til húsa?
5. Hver skrifar þessa grein?
6. Með hvaða rétti kemst greinar-
höfundur svo að orði, að Matt-
hías Garðarsson sé „titlaður
sjávarútvegsfræðingur" og
„sagður starfa á vegum norska
sjávarútvegsráðuneytisins í Bo-
dö í Noregi“?
7. Vill höfundur upplýsa hvaða á-
hrif það hefur á rækjuverð á ís-
landi annars vegar og í Noregi
hins vegar, að Matthías
Garðarsson er bróðir formanns
rækjuútgerðarmannafélagsins
á Bíldudal svo sem tekið er fram
í greininni?
Vegna þessara fyrirspurna tekur
Þjóðviljinn fram að, sá sem óskaði
birtingar á umræddri grein var
Ottar Yngvason og kvaðst hann
hafa samið greinina í samráði við
formann Félags rækjuvinnslu-
stöðva, sem hann sagði vera
Eyjólf Þorkelsson á Bíldudal.
Að öðru leyti vísast fyrirspurn-
unum til viðkomandi félags, en
tekið var fram í Þjóðviljanum í
gær, að blaðið harmar ódrengi-
legar aðdróttanir að Matthíasi
Garðarssyni, sem fram koma í
greininni.
Skákmótið í Gausdal:
Margeir í 3. sæti
Margeir Pétursson er nú í 3. sæti
á alþjóðlega skákmótinu sem stend-
ur yfir í Gausdal í Noregi. I gær
voru tefldar tvær umferðir á mót-
inu og var gengi íslensku kcppcnd-
anna heldur slakt. í 5. umferð sem
hófst snemma í gærmorgun gerðu
Guðmundur og Margeir jafntefli í
30 leikjum eftir æsispennandi skák,
Sævar tapaði fyrir Westerinen og
Karl Þorsteins gerði jafntefli við
Binham.
6. umferð var svo tefld seinni
part dags og þá gerði Guðmundur
jafntefli við Kudrin eftir mikla
hörkuskák þar sem Guðmundur
fórnaði tveim hrókum og manni en
varð að láta sér lynda skiptan hlut.
Margeir gerði jafntefli við Binham
og Sævar við Berg. Karl Þorsteins
tapaði svo fyrir Svíanum Wedberg.
Ögaard og Kudrin eru efstir á
mótinu með 4 vinninga og inn-
byrðis jafnteflislega biðskák.
Margeir Pétursson er í 3. sæti með
4 vinninga. _ hól.
Alþýðubandalagið lagði til að bamafargjöld SVR yrðu
miðuð við 12 ára aldur í stað 15 ára aldurs
Hefði sparað þessum
aldurshópi miljónir
en tillögunni var vísað frá segir
Guðrún Agústsdóttir borgarfulltrúi
„Fulltrúar Alþýðubandalagsins í
borgarstjórn fluttu um það tillögu
að barnafargjöld með Strætisvögn-
um Reykjavíkur yrðu miðuð við 12
ára aldur í stað 15 ára, en þeirri
tillögu var vísað frá. Samþykkt
þeirrar tillögu hefði þýtt miljóna
sparnað fyrir þennan aldurshóp á
þessu ári, en Davíð Oddsson borg-
arstjóri taldi þessa krakka betur
undir það búna að axla þær byrðar
heldur en borgarsjóð“, sagði Guð-
rún Ágústsdóttir borgarfulltrúi og
stjórnarmaður í SVR.
„Það hefur verið stefna borgaryf-
irvalda um margra ára skeið, líka
þegar íhaldið hefur verið við völd í
Reykjavík, að fargjöld stæðu undir
2/3 hluta kostnaðar við rekstur
SVR. Nú hefur hins vegar skipt um
og sú stefna mörkuð að fargjöld
Guðrún Ágústsdóttir borgarfull-
trúi: Leiftursóknin gegn lífskjörum
Reykvíkinga er hafln af fullum
þunga.
jafngildi 78% kostnaðar. Stefnan
er semsé sú að stórhækka alla þá
þjónustu sem venjulegt launafólk
er nauðbeygt til að kaupa. í þessu
tilviki bitnar hin stórfellda hækkun
fyrst og fremst á barnafjölskyldun-
um, og ef þessi stefna hefði verið
ljós fyrir síðustu kosningar er ekki
að efa að þær hefðu farið öðruvísi
en raun bar vitni,“ sagði Guðrún
ennfremur.
„Stjórn Strætisvagna Reykjavík-
ur hefur aldrei fjallað um þetta
mál, og hugmyndin um að bera
ekki 50% hækkun fargjalda undir
Verðlagsráð, eins og lög kveða þó
ótvírætt á um, er ekki frá stjórninni
komin. Ég mun hins vegar á næsta
fundi leggja fram tillögur í málinu
og bóka mótmæli gegn þessari stór-
felldu og ólögmætu hækkun far-
gjaldanna. Það verður með ein-
hverjum hætti að koma í veg fyrir
að þessi nýja leiftursókn íhaldsins í
Reykjavík dynji yfir af fullum
þunga“, sagði Guðrún Ágústs-
dóttir.
-v.