Þjóðviljinn - 13.01.1983, Side 11
íþróttir
Fimmtudagur 13. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Umsjón:
VíðirSigurðsspn
„Brasilla
ræður ekki
við HM”
Brasilía er eitt hinna fjög- I
urra landa sem til greina kem- I
ur um að halda heimsmeistar- |
akeppnina í knattspyrnu ■
1986. Forseti alþjóðaknatt- I
spyrnusambandsins er brasil- 1
ískur, Joao Havelange, og •
menn gætu því ætlað að það !
væri þungt þegar lokaá- I
kvörðunin verður tekin. Það I
þarf ekki að vera, sé tekið mið ,
af síðustu ummælum for- ■
setans:
„Allir vita hvað Brasilía er |
mikil knattspyrnuþjóð og ■
áhuginn þar fyrir að halda I
keppnina er gífurlegur en I
hreinskilnislega sagt held ég I
að landið ráði ekki við slíka 1
knattspymuinnrás. Samgöngu- I
kerfið er alls ekki fullnægj I
andi og það er mikill skortur *
á hótelum fyrir allan þann .
fjölda sem landið myndi I
heimsækja“.
Þá vitum við það.
-VS I
Serginho
til Roma? I
Serginho, miðherjinn I
kraftalegi í brasilíska knatt- I
spyrnulandsliðinu, gæti verið
á leið til toppliðsins í ítölsku
knattspyrnunni, AS Roma.
Serginho hefur lent í deilum
við félag sitt í Brasilíu, Sao
Paulo, og er ákveðinn í að fara
til Evrópu. Hjá Roma er landi
hans, hinn snjalli Roberto
Falcao, svo og stjörnu-
leikmaðurinn ítalski Bruno
Conti. Serginho hefur fengið
að líða fyrir það að hann er
ekki dæmigerður brasilískur
miðherji, þ.e. liðugur og létt
leikandi, en hann er stór og
sterkur eins og margir bestu
miðherjar Evrópu hafa verið
og tekur mikla pressu af sam-
herjum sínum með fyrirferð
sinni og krafti.
-VS
Landsliðið í
borðtennis
utan
Landsliðið í borðtennis
heldur utan 13. janúar til þátt-
töku í Evrópukeppni landsliða
3. deild. Að þcssu sinni fer
keppnin fram á Gucrnsey.
Aðrar þjóðir en ísland og Gu-
emsey sem taka þátt í keppn-
inni í ár eru ÍVlalta og Jers-
ey. Keppt verður laugardag-
inn 15. og sunnudaginn 16.
Liðið sem kcppir að þessu
sinni er þannig skipað:
Stefán Konráðsson Víking 41
iandsleikur, Hilinar Konráðs-
son Víking 19 landsleikir og
Ragnhildur Sigurðardóttir
UMSB 16 landsleikir. Þjálfari
liðsins og fararstjóri er Björg-
vin Jóhanncsson.
Kennsla í
skíðagöngu
Skíðaráð Reykjavíkur og
Skíðafélag Reykjavíkur verða
með skíðagöngukennslu fyrir
almenning í dag frá kl. 18 til
19 og á morgun á sama tíma
Iog á laugardag og sunnudag
frá kl. 14 til 16 á Miklatúni.
Kennari er Ágúst Björnsson.
■ -hól I
Anders Dahl, sem hér sést senda þrumufleyg í átt að markinu, hefur varla verið mjög ánægður með
frammistöðu sinna manna, þó svo hann viti mæta vel að erfitt er að sýna e-ð gegn liði eins og ÍR.
Engin óvænt
úrslit í
bikamum
Nokkrum af þeim leikjum
sem lauk með jafntcfli í ensku
bikarkeppninni á laugardag-
inn var haldið áfram í gær-
kveldi. Úrslit þeirra urðu sem
hér segir:
Chelsea-Huddersfield 2:0
Man.City-Sunderland 2:0
Newcastle-Brighton 0:1
Stoke-Sheff. Utd. 3:2
Torquay-Oxford 2:1
í 3. deild í gærkvöldi vann
Orient Bradford 3:2 á útivelli
og í 3. deild gerðu Hartlepool
og Peterborough, markalaust
jafntefli í spennandi leik.
- hól.
IR-Ingar enn án stlgs
Þrátt fyrir að KR-vélin hefði ým-
ist aðeins verið í fyrsta gír eða hlut-
lausum, unnu þeir ÍR-inga létt í
Höllinni í gærkvöld. Hvort sem um
ferðaþreytu var að ræða hjá KR-
ingum eður ei, þá var þetta þcirra
lélegasti leikur í deildinni til þessa.
Ekki bætti úr skák að Alfreð gat
ekki leikið með vegna meiðsla.
Lokatölur 28:13 eftir að staðan í
hálflcik hafði verið 12:8.
Eins og þessar tölur gefa til
kynna, tók það KR-inga hálfan
leikinn að hrista ÍR-inga af sér.
Eins og svo oft áður, héldu ÍR-
ingar boltanum lengi lengi í sókn-
inni (áreiðanlega eina liðið senr
kemst upp með slíkt; e.t.v. vegna
samúðar dómara), og þegar KR-
ingar loks fengu boltann í hendurn-
ar, voru lætin svo mikil, að hann
lenti oftast í höndum andstæðing-
anna, eða utan leikvallar. Petta
lagaðist þó til muna í seinni hálf-
leik, enda var uppskera Vesturbæ-
inganna samkvæmt því.
Ekki er ástæða til að fara mörg-
um orðum um leik þennan. ÍR-
ingar eru einfaldlega svo miklu lé-
legri en önnur lið í 1. deildinni, að
vonlaust má telja að þeir fái eitt
einasta stig. Raunar eiga leikmenn
liðsins skilið hrós fyrir að gefast
hreinlega ekki upp.Barátta þeirra
er vonlaus.
KR-ingar eiga ekki hrós skilið
fyrir frammistöðu sína, og rnega
þeir tel j ast heppnir með að fá í R að
þessu sinni því með slíkum leik
hefðu þeir varla unnið nokkurt
annað 1. deildar lið. Þó má nefna
að Jens Einarsson varði af snilld í
seinni hálfleik.
Dómararnir voru ekki alveg
húmorslausir, og má nefna í því
sambandi að þeir dæmdu einu sinni
töf í leiknum og það á KR!.
B/húl
Léttur
Vonir Valsmanna um að komast
í 4-liða úrslitin í íslandsmótinu í
handknattleik urðu að engu í gær-
kveldi er þeir töpuðu fyrir FH í
Hafnarfirði með 23 mörkum gegn
28. FH-ingar á hinn bóginn gull-
tryggðu sér þátttökurétt í úrslita-
keppninni og er nú sýnt að FH, KR,
Víkingur og sennilega Stjarnan
halda áfram í úrslitin.
Leikur FH og Vals var í upphafi
jafn. Valsmenn tóku það til
bragðs, rétt eins og Víkingar á dög-
unum, að setja mann til höfuðs
Kristjáni Árasyni. Gunnar
Lúðvíksson fékk það erfiða hlut-
verk, en honum tókst ekki jafn vel
upp og Páli, því Kristján skoraði
alls 11 mörk. Þess' ber þó að geta að
Kristján var á allan hátt frískari nú
sigur
en í Víkingsleiknum og það gerði
gæfumuninn
Staðan í hléi var 15:12, sóknir
höfðu verið stuttar, vörn Vals léleg
sem þó fagnaði endurkomu Brynj-
ars Harðarsonar í þessum leik.
Þessum mun héldu FH-ingar út
allan leikinn og var forysta þeirra
aldrei í hættu enda liðið í einum
gæðaflokki fyrir ofan Val. Svo
virðist sem róttækra breytinga sé
þörf hjá Valsmönnum. Góðu árin
eru að baki.
Mörk FH: Kristján 11, Guðjón
6, Hans og Óttar 3 hvor, Guð-
mundur 2, Sveinn, Pálmi og Theó-
dór eitt mark hver.
Mörk Vals: Brynjar 11, Jón Pét-
ur og Steindór 3 hvor, Jakob,
Gunnar og Þorbjörn 2 hvor.
Ig/hól.
Kristján Arason skoraði 11 mörk fyrir lið sitt i gær,
Jóhannes Eðvaldsson spjarar sig vel í Skotlandi
Jóhannes í hópi
þeirra bestu
Jóhannes Eðvaldsson, fyrr-
um fyrirliði íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu, hefur
staðið sig með ágætum í skosku
úrvalsdeildinni í vetur með liði
sínu, Motherwell, og hefur ver-
ið jafnbesti leikmaður liðsins að
undanförnu.
Knattspyrnutímaritið Match
gefur leikmönnum einkunnir fyrir
hvern leik og tekur saman hverjir
hafa staðið sig best í hverjum mán-
uði. Eins og sjá má á meðfylgjandi
úrklippu sem sýnir efstu menn í
nóvember hefur Jóhannes verið
þriðji besti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar ásamt tveimur öðrum, fyrr-
um Valsmanninum Jim Bett og
Ralph Milne frá Dundee United.
Fremri talan sýnir leikjafjölda í
mánuðinum, sú síðari meðaleink-
unn fyrir þessa fjóra leiki. Ekki eru
þeir bresku kannski alveg nógu
góðir í stafsetningunni! _ VS
Jkn Mt (W«n>n)
Ralpk ftSaw® (DumímIM)
Qwy Murrwy (HHMmtafl)
4 7.TB
5 741
4 IJM
4 7M
4 741
4 744 /