Þjóðviljinn - 13.01.1983, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. janúar 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Vesturlandi
Fyrri umferð forvals vegna röðunar á lista flokksins í komandi alþingis-
kosningum skal lokið eigi síðar en 16. janúar næstkomandi. Kjörgögn
hafa verið send formönnum flokksfélaganna í kjördæminu.
Stjórn kjördæmisráðs
Alþýðubandalagið Hafnarflrði
Opinn fundur um húsnæðismál
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til
opins fundar um húsnæðismál fimmtudag-
inn 20. janúar að Strandgötu 41, kl. 20.30.
Framsaga: Ólafur Jónsson stjórnarfor-
maður Húsnæðismálastofnunar. Almennar
umræður á eftir.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið Akranesi
Fyrri umferð forvals fer fram laugardag og sunnudag 15. og 16. janúar
næstkomandi. Allir félagsmenn AB á Akranesi eiga rétt á þátttöku í
forvalinu. Nánari upplýsingar varðandi forvalið verða sendar félags-
mönnum föstudaginn 14. janúar.
Upplýsingar um félagatal gefa þeir Ársæll Valdimarsson s. 1384 og
Guðjón Ólafsson s. 1894 á laugardag, en á sunnudag eru upplýsingar
gefnar í Rein s. 1630.
Kaffiveitingar verða í Rein á sunnudag kl. 15.
Félagar! Takið virkan þátt í forvalinu.
Drekkið síðdegiskaffi í Rein.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Borgarnesi -
nærsveitum
Félagsfundur. Forval.
Almennur félagsfundur fimmtudaginn 13. janúar næstkomandi í Hótel
Borgarnes kl. 20.30.
Fundarefni:
1) Tilnefning í fyrri hluta forvals.
2) Röðull.
3) Héraðsmálefni.
Skorað er á félagsmenn að fjölmenna og taka þátt í forvalinu.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi
eystra - Fyrri hluti forvals
Fyrri hluti forvals Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra fer
fram í þessari viku. Framkvæmd þess er í höndum uppstillingarnefndar-
manna á hverjum stað með aðstoðarmönnum sem félögin tilnefna.
Forvalið fer fram sem hér segir:
Ólafsfjörður: Að Aðalgötu 1, fimmtudag 13. jan. kl. 20-23.
Dalvik: Að Bergþórshvoli, laugardag 15. jan. kl. 13-17.
Akureyri: í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, föstudag 14. jan. kl. 17-19 og
laugardag 15. jan. kl. 14-18.
S-Þingeyjarsýsla: Þar verður kjörgögnum dreift um eða upp úr helginni 9.
jan. og þeim safnað saman fyrir 14. janúar.
Húsavík: í Snælandi, laugardag 15. jan. kl. 10-12 og 13-16.
Raufarhöfn: í Hnitbjörgum, sunnudaginn 9. jan. kl. 16-19.
Þórshöfn og nágrenni: Að Vesturvegi 5, þriðjudag 11. og miðvikudag 12.
janúar kl. 13-16.
Reykjavík Á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3, mánudag 10.
og fimmtudag 13. jan. kl. 9-17.
Forvalsreglur
Atkvæðisbærir eru fullgildir félagsmenn í Alþýðubandalaginu, sem eru
skuldlausir á forvalsdegi. Hægt er að öðlast þátttökurétt með því að ganga
í flokkinn í síðasta lagi á forvalsdag.
Á kjörseöil fyrri áfanga skal rita nöfn fjögurra manna, og fylgi heimilis-
fang eða sveitarfélag hverju nafni. Nöfnin eru óröðuð en rita skal nöfn úi
fleiri en einni flokksdeild. Kjörseðill er því aðeins gildur að þessum
reglum sé fyljú-
Atkvæði úr fyrri umferð verða talin á Akureyri 16. janúar hafi þau þá
borist alls staðar að. Fyrirhugað er að síðari umferð fari fram fyrstu
dagana í febrúar.
Uppstillingarnefnd
Uppstillingarnefnd skipa Sigríður Stefánsdóttir, Akureyri, Páll
Hlöðversson, Akureyri, Svanfríður Jónasdóttir, Dalvík, Björn Þór
Ólafsson, Olafsfirði, Sigurður R. Ragnarsson, Mývatnssveit, Örn Jó-
hannsson. Húsavík, Þorsteinn Hallsson, Raufarhöfn, Ragnar Sigfússon,
Þistilfirði.
Alþýðubandalagið í Reykjavík -
Greiðum félagsgjöldin fyrir forval
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur félagsmenn sem enn
skulda gjaldfallin félagsgjöld til þess að greiða þau fyrir forvalið 14.-16.
janúar. - Stjórn ABR.
Utankjörfundarkosningin
Unnt verður að kjósa utan kjörfundar á hverjum stað og ber þeim sem
þess óska að hafa samband við uppstillingarnefndarmann. Þá er einnig
hægt að kjósa hjá því félagi í kjördæminu, þar sem viðkomandi kann að
verða staddur á forvalsdegi þess, auk kosningarinnar í Reykjavík sem
getið er hér að ofan.
Alþýðubandalagið Akranesi
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akranesi verður í Rein laugardaginn 29.
janúar. Nú þegar getum við tilkynnt að Helgi Seljan og kona hans verða
gestir okkar.
Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin.
Klippt
F'ramhald af bls. 10.
kímnigáfa ÓG sé þar sparlegar
beitt en í fyrrgreindum dæmum.
Þegar hefur verið minnst á Helgu-
vík og Ólaf Jóhannesson í mismun-
andi samsetningum. Alfreð Þor-
steinsson er aðeins nefndur skran-
sali hersins, að vísu nokkuð oft.
ÓG þarf að finna nýtt viðurnefni
fyrir Alfreð til að halda athygli les-
enda.
Ein söguleg
leiðrétting
Nauðsynlegt er að leiðrétta eina
söguskýringu í pistlunum. Þar er
rætt um offors Ólafs Jóhannes-
sonar gegn Alþýðubandalaginu
alla tíð. (Þjv. 7 jan). Ólafur er viss-
ulega skapmikill og frekur
stjórnmálamaður og hann hefur
sýnt þennan eiginleika sinn flestum
eða öllum andstæðingum sínum og
samherjum í stjórnmálum ein-
hvern tíma. Vissulega er ástæða til
að gagnrýna Ólaf Jóhanneson fyrir
eitt og annað, t.d. frammistöðu
hans í Helguvíkurmálinu.
En oft hafa leiðir Ólafs Jóhann-
essonar og Alþýðubandalagsins
líka farið saman. Má þar t.d. minna
á vinstri stjórnina 1971-1974 og
þingrofið 1974. Hægri öflin munu
aldrei fyrirgefa Ólafi þingrofið, en
þá hindraði hann á lýðræðislegan
hátt framkvæmd refskákar sem
áttti að leiða til myndunar nýrrar
viðreisnarstjórnar. Hatrammar á-
rásir á Ólaf sem dómsmálaráð-
herra næstu árin voru ekki síst til-
komnar sem hefnd fyrir þingrofið
1974. Það tókst næstum því með
ósvífnum fjölmiðlaáróðri að fá
stóran hluta íslensku þjóðarinnar
til að halda að eiginlega væri dóms-
málaráðherrann aðalsökudólgur-
inn í Geirfinnsmálinu. Varla voru
til þær svívirðingar sem hann fékk
ekki að heyra á þeim tíma.
Mér hefur lengi fundist að fjöldi
vinstri manna skuldi Ólafi Jóhann-
essyni afsökun á því að hafa ekki
komið honum til aðstoðar í þeim
galdraofsóknum sem sum hægri
öflin stóðu þá fyrir gegn honum.
Ekki síst vegna þess að þær orsök-
uðu úrkynjun í stjórnmál-
aumræðu, sem að mati mínu hefur
skaðað vinstri öflin á íslandi mjög
mikið og gera það ennþá, eins og
dæmin sanna.
Lokaorð
Lokaorð mín eru þessi: Að sjálf-
sögðu eiga Alþýðubandalagsmenn
að gagnrýna Framsóknarflokkinn
fyrir allar hægri sveiflur hans. En
gerum það af viti og án persónu-
níðs. Við skulum gagnrýna sem
sósíalistar, en ekki eins og við séum
þátttakendur í lítilfjörlegu innan-
flokksstríði í Framsóknar-
flokknum. Við erum ekki
Framsóknarmenn, munum það.
9. janúar 1983
Gísli Gunnarsson
Steingrímur
Framhald af bls. 5
bestum árangri, svo að úrslitum
réði um félagsstofnun. Síðar, vegna
kaupa á öðrum togaranum, fékkst
svo hlutur bæjarins aukinn upp í 50
til 60% af hlutafénu. Hversu far-
sællega þetta upphaf að togar-
aútgerðinni gekk og framhaldið oft
snurðulaust og stundum gott, svo
að sköpum hefur ráðið um atvinnu
verkamanna og sjómanna bæjarins
og raunar stöðuga þróun atvinnu-
lífsins f bænurn, megum við þakka
Steingrími Aðalsteinssyni öðrum
fremur, og er það ekki of seint, þó
að hann sé orðinn áttræður.
Steingrímur fluttist til Reykja-
víkur 1950 og hefur í seinni tíð látið
fara lítið fyrir sér. Er hann áreiðan-
lega vel að því kominn að eiga að
einhverju leyti hægari daga þegar
hann fór að reskjast en þegar mest
var að gerast í kringum hann hér á
Akureyri.
Hann þurfti fyrr að fara að vinna
fyrir sér en flestir unglingar, sem ég
hef þekkt, eða frá 11 ára aldri, er
hann missti föður sinn frá þeim 6
systkinunum ungum. En hann
átti eftir duglega og afburða gæða-
konu að móður, sem mér er sagt að
hann hafi sótt margt til af sínum
eiginleikum. Guðmundur Eggerz
sýslumaður, sem var nágranni
hennar í Glerárþorpi í fjölda ára,
gat hennar fallega og með þakklæti
í æviminningum sínum.
Mér sýnist, að Steingrímur
Aðalsteinsson megi vel una sínum
hlut, sem af er umsvifamikilli starfs-
ævi, og óska ég honum og Sigríði
Þóroddsdóttur konu hans og þeirra
fólki til hamingju með afmæli hús-
bóndans og að þau megi eiga eftir
marga ævidaga og góða.
Tryggvi Helgason.
Hannibal
Framhald af 7. si&u.
un alþýðu enda stóran hluta starfs-
ævi sinnar kennari og skólastjóri,
samhliða sínum umfangsmiklu
félagsmálastörfum. Og hann var
raunar alltaf að kenna. Þeir, sem
félagsmálastörfum sinntu í hverju
verkalýðsfélagi, gátu sífellt til-
einkað sér nýja lærdóma, er frá
honum komu sem forustumanni
samtakanna. Hann átti stóran þátt
og frumkvæði að stofnun Lista-
safns alþýðu, félagsmálaskóla
M.F.A. og margskonar ákvörð-
unum Alþýðusambandsins, er
stefndu að því að gera forustumenn
félaga og trúnaðarmenn á vinnu-
stöðum færari í að gegna sínum
hlutverkum.
Hannibal var svipmikill stjórn-
málamaður. Harður í horn að taka,
þegar á þurfti að halda. Gekk
aldrei troðnar slóðir. Tók sjálf-
stæðar ákvarðanir og lét hvorki
flokka né foringja leggja fyrir sig
línurnar. Málstaður erfiðis-
fólksins, hins vinnandi manns, hef-
ir ávallt hjá honum setið í fyrir-
rúmi. Oft fannst mörgum hann
tefla djarft, voga miklu, en hann
tók óhræddur áhættu og hlaut jafn-
an sigur.
Hannibal er skemmtilegur
maður í viðkynningu, fróður og
víðlesinn, gamansamur og hnytt-
inn í tilsvörum á góðra vina
fundum.
Ég minnist með ánægju er þau
hjón Sólveig og Hannibal, komu til
Stokkseyrar fyrir nokkrum árum
og við heimsóttum húmoristann
Pál heitinn ísólfsson og hans ágætu
konu, Sigrúnu Eiríksdóttur, í
sumarbústað þeirra að ísólfsskála á
Stokkseyri. Þá var spjallað í léttum
dúr um lífið og tilveruna.
Ég tel mér mikinn ávinning að
hafa kynnst Hannibal Valdimars-
syni, notið leiðsagnar hans og
heilræða í áratugastarfi mínu í
verkalýðshreyfinginni.
Ég færi þeim heiðurshjónum,
Sólveigu og Hannibal, þakkir og
árnaðaróskir við þessi tímamót.
Megi þau heil heilsu njóta ánægju-
legs ævikvölds.
Björgvin Sigurðsson,
Stokkseyri.
STAÐA
FORSTJÓRA
Vinnuhælisins að
Litla-Hrauni
Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra Vinnu-
hælisins að Litla-Hrauni, sem auglýst var
laust til umsóknar 6. desember 1982 er fram-
lengdur til 31. janúar 1983.
Dóms og kirkjumálaráðuneytið,
12. janúar 1983.
1X2 1X2 1X2
19. leikvika - leikir 8. janúar 1983
Vinningsröð: 2x2 - 121 —
12 1 -x 1 1
1. vinningur: 12 réttir - kr. 21.465.-
2. vinningur: 11. réttir - kr. 433.-
3731 64142
5500 64749
5671 65308
6746 65690
6878 66104+
16270 66383
16654 67321
21795 68694
21950 69100+
23343 69131
24662 69216
60064 70191
60194+ 70993+
60195+ 70994+
61463 71453
63816 71468
63877+ 72318+
72545+
72549+
72562
72690
72862
73107+
73179
73575+
73589
73909+
74329+
74760
75875
76325+
77211+
79127
79527+
79731
80812
80854+
82119+
82554+
82957
83042+
83293
85694
86451
87256
87482
87692
87700
88209
88469+
88583+
88797 94843+ 99986+ 70202(2/11)
90520 95647 100007+ 72173(2/11)
90633 95950+ 1000023+ 74345(2/11)
91656 95954+ 100244 79029(2/11)
91710 95956+ 100250 81882(2/11)+
91711 96679+ 100308 88712(2/11)+
91714 97178 100855 90026(2/11)
91761 97455 100862+ 90837(2/11)
91802 97545+ 100868+ 95519(2/11)
92052 97547+ 100885+ 99413(2/11)
92062 98819+ 100886+ 100803(2/11)H
92412+ 99079 100889+ 18.vika:
92836+ 99226 100890+ 90036
92963 99360 100968+
93019+ 99471 + 4439(2/11)
93151 99476+ 61454(2/11)
93391 + 99980+ 63823(2/11)+
Kærufrestur er til 31. janúar kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra sela (+) verða að f ramvísa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang
til Getrauna fyrir lok kærufrests.
Gera má ráð fyrir verulegum töfum á greiðslu vinninga
fyrir númer, sem enn verða nafnlaus við lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðin - REYKJAVÍK
Getraunir — íþróttamiðstöðinni — Reykjavík
Móöir mín,
Kristín Lúðvíksdóttir,
Skagabraut 26, Akranesi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. janúar
kl. 10.30.
Sigrún Magnúsdóttir Holt.