Þjóðviljinn - 13.01.1983, Qupperneq 16
DIOÐVIUINN
Fimmtudagur 13. janúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285. Ijósmyndir 81257. AÖalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Merk kvik-
mynd kemur
í leitirnar
sem Loftur
Guðmundsson
tók á Alþingis-
hátíðinni 1930
Menn vissu að Loftur Guð-
mundsson tók kvikmynd af Alþing-
ishátíðinni 1930, en þrátt fyrir
eftirgrennslan fannst tilman ekki,
fyrr e'n á síðasta ári og þá fyrir
hreina tilviljun, sagði Erlendur
Sveinsson, forstöðumaður Kvik-
myndasafns íslands er Þjóðviljinn
ræddi við hann í gær, um þennan
merkilega fund fdmunnar. Hér er
um stór tíðindi að ræða vegna þess
að þetta er eina kvikmyndin sem
fagmaður tók af hátíðinni og sú
eina sem tekin var að því vitað er á
35 mm filmu.
Erlendur sagði að nokkrar smá-
myndir, teknar af áhugamönnum á
16 mm filmu, væru til, en þessi
mynd Lofts væri sú lang-
merkilegasta sem til væri. Sýning-
artími hennar er hálf klukkustund.
Filman fannst fyrir tilviljun í
pússi Sigríðar og Eiríks Bjarna-
sonar í Hveragerði, en þau hjón
ráku þar hótel og kvikmyndahús.
Auk þess ráku þau um árabil ferð-
akvikmyndahús. Munu þau á sín-
um tíma hafa fengið filmuna hjá
Lofti til að sýna í kvikmyndahúsi
sínu og eintakið svo orðið eftir hjá
þeim. Eftir lát Eiríks var Sigríður
að huga að ýmsum munum og rakst
þá á filmuna og afhenti hana Kvik-
myndasafni ríkisins.
Erlendur sagði að hér væri um
svo kallaða nitratfilmu að ræða, en
slíkar filmur voru eingöngu not-
aðar á þeim árum sem myndin var
tekin. Þær geymast afar illa og
sagði Erlendur að þetta eintak væri
raunar óhæft til sýninga, en hægt
væri erlendis að taka kópíu af
myndinni, sem síðan væri hægt að
varðveita og sýna að vild. Til þessa
hefur Kvikmyndasafnið ekki fjár-
magn, en málið þolið litla sem enga
bið, ef filman á ekki að eyði-
leggjast. -S.dor.
Erlendur Sveinsson í Kvikmyndasafninu í gær (Ljósm-eik-)
Kæia Þjóðviljans
Snemma í gærmorgun barst
ríkissaksóknara, Þórði Björnssyni,
svohljóðandi kæra:
11. janúar.
Til ríkissaksóknara.
Þjóðviljinn leyfir sér hér með að
kæra til embættis yðar dreifingu á
ofbeldismyndinni „Cannibal -
Holocaust“ á vegum fyrirtækisins
„ÍS-VIDEÓ“, sem er til húsa í
sjoppu einni að Engihjalla 8 í Kóp-
avogi. Blaðið fer þess á leit við
saksóknara að hann kanni hvort ís-
lensk lög nái yfir viðskipti með slík-
íslendingum fjölgaði
um 1.46% á síðasta ári, og
voru landsmenn alls 1.
desember s.I. 234.980, eða
3.372 fleiri en árið áður,
samkvæmt bráðabirgða-
tölum Hagstofunnar.
Þetta er mesta hlutfalls-
lega mannfjölgun síðan
1967, ef frá eru talin árin
1972 og 1974, en þá var
mikið um heimflutning ís-
lendinga frá útlöndum.
Tölur um fólksflutninga milli ís-
lands og útlanda á síðasta ári liggja
ekki fyrir, en svo virðist sem tala
aðfluttra til landsins umfram tölu
brottfluttra hafi verið með því
hæsta er gerst hefur, ef ekki hærri.
an varning, og grípi til viðeigandi
ráðstafana gegn þessum óhugnaði
ef kostur er.
Þjóðviljinn vísar til þess, að
mynd þessi hefur verið gerð upp-
tæk í myndbandaleigum í Noregi og
Svíþjóð af lögregluyfirvöldum
vegna þess að ástæða er til að ætla
að hún sýni m.a. raunverulegt
morðiog nauðgun.
Einar Karlsson ljósmyndari
Þjóðviljans fékk umrædda mynd á
leigu hjá „ÍS-VÍDEÓ“ um kl. 3
e.h. 11. janúar 1983, til eins sólar-
hrings. Blaðið biður saksóknara að
Ibúar á Siglu-
firði ekki færri
síðan 1929
Líkt og árið 1981, þá varð fjölg-
unin í fyrra meiri á höfuðborgar-
svæðinu en utan þess. í Reykjavík
varð mesta fólksfjölgunin síðan
1963, fjölgaði um 1.313 eða 1.55%.
Til samanburðar má geta þess að
síðustu 10 ár var meðalfjölgun íbúa
í Reykjavík 0.2%, en fólksfækkun
varð í borginni á árunum 1976 til
1978.
í öðrum sveitarfélögum á
landinu fjölgaði um 3.2% en þar
var meðalfjölgun síðustu tíu ára
3.1%. Á Suðurnesjum, Kjalarnesi
og í Kjós fjölgaði um 1.8%. Á
Vesturlandi var fjölgunin 1%, á
Vestfjörðum fækkaði hins vegar
vera svo vinsamlegan að skila
myndbandinu, sem hér fylgir með,
til réttra aðila fyrir tilsettan tíma,
sjái embættið ekki ástæðu til að
leggja hald á það.
Þjóðviljinn gerði Rannsóknar-
lögreglu ríkisins strax viðvart í gær
er blaðið varð þess áskynja að
„Cannibal Holocaust“ væri í dreif-
ingu á íslandi. Af hálfu hennar var
á það bent að réttast væri að snúa
sér beint til embættis saksóknara
íbúum um 0.6% ,en þar var síðast
fólksfækkun árið 1974. Á Norður-
landi vestra fjölgaði um 0.5% um
0.7% á Norðurlandi eystra, 0.9% á
Austurlandi ogO.7% á Suðurlandi.
í sveitarfélögum með yfir 1000
íbúa varð mest fjölgun í Mosfells-
hreppi 6.6% og í Garðabæ 6.1%. í
þremur sveitarfélögum fækkaði
íbúum á árinu. í Neskaupstað um
1.2% í Vestmannaeyjum um 1.9%
og á Siglufirði um 2.1%.
Að frátöldum árunum eftir eld-
gosið í Vestmannaeyjum hefur íbú-
um þar ekki fækkað jafn mikið síð-
an 1946, og á Siglufirði hafa íbúar
ekki verið færri síðan 1929.
fbúar Reykjavíkur voru 1. des.
s.l. 85.782. Næst flestir landsmenn
bjuggu í Kópavogi, 14.259, á Ak-
ureyri 13.748 og í Hafnarfirði
bjuggu 12.463.
-lg-
„Er ekki
farfnn að
kanna
málið enn”
sagði ríkis-
saksóknari í gær
Ríkissaksóknari,
Þórður Björnsson,
hafði skjót handtök
þegar hann hafði at-
hugað hina margum-
töluðu mynd „Canni-
bal Holocaust“ sem
Þjóðviljinn lét emb-
ætti hans í té í gær
ásamt kæru þeirri sem
birtist hér á öðrum
stað í blaðinu. Hann
sendi spóluna áfram til
Rannsóknarlögreglu
ríkisins sem nú fær það
verkefni að grennslast
fyrir um með hvaða
hætti spólan kom inní
landið, auk þess sem
hún mun kanna hvort
efni spólunnar stangist
á einhvern hátt á við
íslensk lög.
- hól.
Atviimu-
leysi 1,3%
í desember
I desembermánuði s.l. voru
1,3% atvinnufærra manna skráðir
atvinnulausir hér á landi. Atvinnu-
leysisdagar í mánuðinum voru
rúmlega 30.000 á öllu landinu, en
það samsvarar því að alls hafi 1412
einstaklingar verið atvinnulausir
að staðaldri. Þetta er nokkru meira
I atvinnuleysi en í sama mánuði í
fyrra.
Á árinu 1982 voru atvinnyleysis-
dagar alls um 200 þús. á landinu
öllu.
Sé litið sérstaklega á höfuðborg-
arsvæðið kemur í ljós, að þar voru
0,4% vinnufærra manna atvinnu-
lausir að jafnaði á árinu 1982.
Sums staðar úti á landi er þessi
tala töluvert hærri, t.d. á Norður-
landi vestra þar sem um 1,7% vinn-
ufærra manna voru að jafnaði
atvinnulausir á árinu 1982.
Til samanburðar má minna á, að
víða erlendis er atvinnuleysið um
10% af vinnufæru fólki.
Rækjuverð
hækkar
um 28%
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins ákvað á fundi sínum í gær
lágmarksverð á rækju frá 1. janúar
til 28. febrúar. Hækkunin nemur
að meðaltali 28,1% miðað við afla-
samsetningu í janúar til apríl 1982.
Verðið var ákveðið af oddamanni
og fulltrúum seljenda gegn at-
kvæðatölu kaupenda.
Hæsta verð á rækju verður kr.
13,44 kílóið, og eru þá 160 stykki
eða færri í kílóinu. Verðflokkarnir
eru alls átta og er lægsta verðið kr.
4,20 fyrir kílóið og er þá miðað við
351 stykki eða fleiri í kílóinu.
Verðlagningin gildir fyrir óskel-
fletta rækju í vinnsluhæfu ástandi.
ríkisins. Virðingarfyllst.
Fyrir hönd Þjóðviljans,
Einar Karl Haraldsson ritstjóri.
Islendingar voru 234.980 1. des. sl., fjölgaði um 1,46%
Mesta fjöLgun
frá því 1967