Þjóðviljinn - 20.01.1983, Page 1

Þjóðviljinn - 20.01.1983, Page 1
DJOÐVIUINN Upplausn í stjórnarherbúðum Reagans Sjá 9 janúar 1983 fímmtudagur 48. árgangur 14. tölublað Fargjöld með strætó lækka í dag: Lögbaim á leíftursókn Davíðs Davíð Oddsson, borgarstjóri,var í gær rekinn til baka með sína 50% hækkun á strætisvagnafargjöldum. Með úrskurði borgarfógeta var löbann lagt á hækkunina samkvæmt kröfu Verðlagsstofnunar, en borgarstjórinn hafði ekki einu sinni haft fyrir því að sækja um hækkun. Davíð Oddsson og borgarstjórnarmeirihluti íhaldsins hafa í verk sýnt hug sinn til þess lágtekjufólks sem aðallega notar strætisvagnana, og þeir hafa sýnt hvern- ig þeir telja vænlegast að berjast við verðbólguna. Með lögbanni hefur þessi leiftursókn hins vegar verið stöðvuð, a.m.k. um sinn. Fargjöld með SVR verða frá og með deginum í dag þau hin sömu og giltu fyrir 7. janúar s.l. en þá tók gildi hin umdeilda 50% hækkun. Fargjald fyrir fullorðna er nú aftur 8 krónur í stað 12 og barnafargjald 2 krón- ur í stað 3ja. Lögbann var lagt á hækkun- ina eftir kröfu Verðlagsstofn- unar í gærmorgun með úrskurði Ólafs Sigurgeirssonar, fógeta, gegn 10 miljón króna trygg- ingu, sem fjármálaráðuneytið hefur ábyrgst greiðslu á, tapi Verðlagsstofnun málinu fyrir dómi. Friðrik Ólafsson vann Hollendinginn Sheeren í 5. umferð á skákmótinu í Wijk Ann Zee í gær- kvöldi. Hann cr nú í 2.-3. sæti á mótinu með Ungverjanum Ribli. Leynileg skýrsla frá Pentagon upplýsir að Bandaríkin ætla sérað sigrajörðina íkjarnorkustríði utan úr geimnum. Hætt að selja afsláttarmiða! Ber vott um hefnigimi, segir Sigurjón Pétursson Borgarstjóri ákvað í gær að hætta sölu farmiöaspjalda SVR með afslætti, nema til aldraðra. Stóru kortiri verða ekki lengur til sölu, lítil kort með 10 farmiðum fullorðinna kosta 80 krónur og spjöld með 25 barnamiðum kosta 50 krónur. Þessi ákvörðun var ekki borin undir stjórn SVR, borgarráð eða borgarstjórn og lcitaði Þjóðviljinn álits Sigurjóns Péturssonar á henni. „Það er greinilegt, að núverandi stjórnvöld Reykjavíkur eiga erfitt með að ná samkomulagi við nokk- urn aðila, heldur er vaðið fram með hornin á undan og allt á að víkja“, sagði Sigurjón. „Þegar embættismannakerfi borgarinnar var breytt s.l. haust m.a. á þann veg að borgarlögmaður á nú ein- göngu að standa í málarekstri fyrir borgina, en öðrum aðila hefur ver- ið falið að semja lögfræðilegar á- lyktanir fyrir borgarstofnanir, þá sagði ég eitthvað á þá leið, að til þess að borgarlögmaður hefði fullt starf yröi borgin að lenda oftar í málaferlum en hún hefur gert til þessa. Eins og mál standa nú sýnist mér hins vegar full þörf fyrir mann í fullu starfi til að gegna málflutn- ingsstörfum fyrir borgina." „I borgarstjórn gagnrýndum við Alþýðubandalagsmenn mjög þá gífurlegu hækkun sem boðuð var í fjárhagsáætluninni. Nú virðist leika vafi á því að þessi hækkun hafi verið löglega sett og því hefur verið lagt lögbann við henni. Það verður að flokkast undir Sigurjón Pétursson hefnigirni þegar um slíkan ágreining er að r;eða, sem dómstól- ar eiga að skera úr um, að borgar- stjóri skuli einhliða hætta að selja alrnenn afsláttarfargjöld sem flestir reglulegir farþegar SVR hafa notið til þessa. Þetta var gert án þess að það sé borið undir stjórn SVR eða borgarráð og er að því leyti alveg í takt við önnur vinnubrögð borgar- stjóra", sagði Sigurjón. _ \\ Tillaga félagsmálaráðherra til ríkisstjómar: Skipuð verði stjórnar- nefnd umhverfismála Frumvarp svipaðs efnis komið í tímaþröng, segir Svavar Gestsson Bráðabirgðalögin í neðri deild: Umræðu frestað Gunnar Thoroddsen mælti fýrir bráðabirgðalögunum frá því í sum- ar við fyrstu umræðu í neðri deild í gær, en þangað var málið komið frá efri deild eftir skjóta afgrciðslu þar síðustu daga. Áður en forsætisráðherra mælti fyrir bráðabirgðalögunum urðu langar umræður utan dagskrár um þingsköp, m.a. vegna þess að óformlegt samkomulag hafði verið gert milli þingflokksformanna um að doka við þar til á mánudag með umræðuna um bráðabirgðalögin. Stjórnarandstöðuflokkarnir virð- ast eins og fyrri daginn ekki áfjáðir í að afgreiðsla bráðabirgðalaganna Siggeir Björnsson, varaþingmaður fyrir Eggert Haukdal: Þótt Eggert segi nei, þá segi ég já. Myndin var tekin á Alþingi í gær. (Ljósm. eik.) etgi sér stað. Lyktir urðu þær í gær að forsætisráðherra mælti fyrir bráðabirgðalögunum, en umræðu var síðan frestað til mánudags. -óg- Svavar Gestsson, félagsmálaráð- herra, hefur lagt fyrir ríkisstjórn- ina tillögu um að skipa stjórnar- nefnd um unihverfísmál. Skal nefn- din m.a. vinna að stefnumótun og samræmingu á sviði umhverfis- mála, vinna að lausn ágreiningsat- riða, sem upp kunna að koma, gera tillögur til ráðuneyta um samný- tingu þeirra starfskrafta sem að þessum málum vinna og vera ríkis- stjórn og alþingi til ráðuneytis um umhvcrfismál. Nefndina skipi 10 fulltrúar: sex frá þeim ráðuneytum, sem um- hverfismál í víðri merkingu nú heyra undir; heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneyti, landbúnaðarráðu- neyti, samgönguráðuneyti, iðnað- arráðuneyti, menntamálaráðu- neyti og félagsmálaráðuneyti, sem tilnefnir formann. Einnig skulu eiga sæti í nefndinni fulltrúar frá Náttúruverndarráði, Hollustu- vernd ríkisins, Landvernd og Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga.-A.I. Sjá 16

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.