Þjóðviljinn - 20.01.1983, Side 5
Miðvikudagur 19. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Breiðavík í Rauðasandshreppi
Frá Keflavík
til Breiðuvíkur
- Hér hefur allt verið á kafi í fönn
síðan á milli jóla og nýárs, sagði
Arnheiður Guðnadóttir í Breiðu-
vík í Rauðasandshreppi, er blaðið
náði snöggvast tali af henni í fyrra-
kvöld. - Eru þeir sólarhringar fáir
síðan að ekki hafi eitthvað snjóað.
Fönn er því alveg óvenjulega
mikil og þó trúlega meiri inni í firð-
inum en hér úti í Víkunum. Á bíl-
um verður ekkert komist, en póst-
ur er fluttur á snjósleða til og frá
Patreksfirði. Barnaskólinn er inni í
Örlygshöfn og þangað flytjum við
krakkana á dráttarvél. Þar eru þau
svo eina viku í senn, eldri og yngri
börnin til skiptis.
Hjónin í Breiðuvík, Arnheiður
Guðnadóttir og Jónas Jónsson,
fluttu þangað sunnan úr Keflavík
fyrir sex árum. Pá sóttu þau um
vinnu við Breiðuvíkurheimilið og
fengu liana. Þegar svo starfsemin í
Breiðuvík var lögð niður, þá vildu
þau hjón mjög gjarnan dvelja
þarna áfram og keyptu jörðina nú í
sumar og stunda nú þar sinn bú-
skap.
Við spurðum Arnheiði hvort
þau hefðu áður þekkt til sveita-
starfa. Hún kvað nei við því. Að
vísu hefði Jónas bóndi sinn dvalið
eitthvað í sveit sem krakki en hún
aldrei fyrr en vestur kom.
Arnheiður sagði að bústofninn
væri hænsni, kálfar og nokkrar
kindur. Auk þess stundaði svo Jón-
as bílamálun og væri það oft ærið
verkefni.
Þeim Arnheiði og Jónasi líkar
vistin þar vestra mjög vel og hafa
engan hug á því að flytja sig aftur í
þéttbýlið, - en það væri náttúrlega
æskilegt að geta stækkað búið
eitthvað, sagði Arnheiður.
-mhg
Öllum mínum mörgu vinum heima og er-
lendis, sem sendu mér heillaóskir og gjafir á
80 ára afmæli mínu 31. desember þakka ég
hjartanlega.
Jóhann J.E. Kúld.
AUGLÝSING
um styrki og lán til þýðinga á erlendum
bókmenntum.
Á Alþingi 1981 voru samþykkt lög um þýöingarsjóð
nr. 35/1981. Samkvæmt þessum lögum og reglugerð
um þýðingarsjóð nr. 638/1982 er.hlutverk sjóðsins að
lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaðra
erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðslur skulu
útgefendur nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera
þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum
gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1983 nemur
750 þúsund krónum.
Stjórn þýðingarsjóðs skipa þrír menn, einn tilnefnd-
ur af Félagi íslenskra bókaútgefenda, einn af Rithöf-
undasambandi íslands og formaður af menntamála-
ráðherra án tilnefningar.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, og skulu umsóknir hafa
borist ráðuneytinu fyrir 18. febrúar 1983.
Reykjavík, 17. janúar 1983,
Stjórn þýðingarsjóðs.
Sigurður Pétursson,
prentari
Fæddur 30.1. 1955
Dáinn 1.1. 1983
Góður drengur og ljúfur er
liðinn. Skömm var hans æfi, en
huggun má það vera harrni gegn,
að fjölmargt fékk Sigurður að sjá
og reyna umfram margan átt-
ræðan.
Sigurður Pétursson var sonur
hjónanna Sigríðar Sveinsdóttur og
Péturs Sigurðssonar alþingis-
manns. Sendum við þeint og börn-
unt þeirra okkar dýpstu samúðar-
kveðjur vegna fráfalls elskulegs
sonar og bróður.
Nám í setningu stundaði Sigurð-
ur í Steindórsprenti og starfaði síð-
an í Blaðaprenti. Lágu þar leiðir
okkar saman og var Siggi Pé, eins
og hann var oftast kallaður, litrík-
ur, léttur og skemmtilegur starfsfé-
lagi með ríka tilfinningu fyrir sínu
stéttarfélagi, svo sem hann átti kyn
til.
Mikinn faglegan áhuga hafði
hann til að bera og hugðist öðlast
þekkingu og reynslu á því sviði og
varð það m.a. til þess að hann fór
fyrir rúmum tveimur árum til
Suður-Afríku og starfaði þar hjá
stærsta blaði í Afríku, The Star í
Jóhannesarborg. Paðan lagði hann
í hinstu för, er var nokkurra mán-
aða ferðalag urn lönd Suður-
Ameríku.
Nú berast ekki Iengur frásagnir í
bréfurn eða á snældum, þrungnar
leiftrandi lýsingarorðum, því að
góðu sambandi hélt Siggi við okkur
félaga, sem oft komum sarnan til að
njóta frásagna hans og fróðleiks,
og reyndum við að senda honurn
ýmsar fréttir héðan, þar sem margs
spurði Siggi og ekki síst um gang
mála í stéttarfélaginu og um þróun-
iná í íslensku prentverki.
Ládeyða í listalífi Jóhannesar-
borgar var helsti agnúi borgarlífsins
að mati Sigga, enda hafði hann orð
á því í bréfi, eftir aö hafa séð frá-
sagnir um síðustu listahátíð í
Reykjavík, að margt væri nú girni-
legt heima. Hann var afar opinn
fyrir hinum ólíkustu listgreinum og
fordómalaus.
Erfitt er að sætta sig við þá
staðreynd, að fá ei meir að njóta
samvista þessa víðförla vinar okk-
ar, en allir höfðum við liorft með
tilhlökkun til næstu samfunda.
Aðeins hljóður söknuöur - og
miklar þakkir fyrir ógleymanleg
kynni, sem ylja um ókominn tíma.
Fyrir hönd fyrrum vaktfélaga í
Blaðaprenti,
Hallgrímur Tryggvason.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
Guömundur Vigfússon
fyrrverandi borgarfulltrúi
Heiðargerði 6
verðurjarðsunginnfrá Dómkirkjunni í Reykjavíkföstudaginn
21. janúar kl. 3 e.h.
Marta Kristmundsdóttir
Sigurður Guðmundsson Sólveig Ásgeirsdóttir
Hrafnhildur Guðmundsdóttir Gylfi Sigurðsson
Kristrún Guðmundsdóttir Daníei Gunnarsson
Edda Sigrún Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Takið bömin með
Nú höfum við komið okkur upp
skemmtilegu leiksvæði með kaf-
báti og öllu tilheyrandi þar sem
börnin una sér vel meðan þeir
fullorðnu sinna sínum áhugamál-
um.
Opið: þriðjud.—
miðvikud. kl. 10—19,
fimmtud.-föstud.kl. 10—22
laugard. kl. 10—19.
HRMULI 15
3UPl/RlHNnSflfiBur
LHUGflRa^^OLL
jOg nú geturðu verslað
' út á kreditkortið þitt
v~
Verksmiðjuútsalan
Blossahúsinu — Ármúla 15.
Sími 86101.
^ ||n . ■ i
WI 1 i I 1 1 vi2|h 1 |
1 S i I || i 1 'm u