Þjóðviljinn - 20.01.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. janúar 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Neskaupsstað
- þorrablót
Hið árlega þorrablót Alþýðu-
bandalagsins í Neskaupsstað verð-
ur haldið í Egilsbúð laugardaginn
29. janúar og hefst kl. 20.00.
Heiðursgestur verður Stefán Jóns-
son alþingismaður. Blótsstjóri
verður Stefán Þorleifsson.
Að afloknu borðhaldi leikur
hljómsveit fyrir dansi. Miðasala
verður fimmtudaginn 27. janúar
frá kl. 18.00 - 21.00 að Egilsbraut
11.
Hver skuldlaus félagi á rétt á fjór-
um miðum.
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum
Forval 22. - 30. janúar
Síðari umferð forvals vegna skipunar framboðslista Alþýðubandalagsins
á Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum fer fram dagana 22. - 30.
janúar.
í síðari umferð forvalsins á að vclja í þrjú efstu sæti listans úr hópi þeirra
sjö einstaklinga, sem í kjöri eru. Kjósandi merkir með viðeigandi tölustaf
viðnöfn þeirraþriggja, sem hann vill aðskipi 1.,2. og3. sæti framboðslist-
ans. Sé merkt við fleiri eða færri en þrjá telst seðill ógildur.
Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjöröum sem taka vilja þátt í forvalinu
geta snúið sér til eftirtalinna kjörstjóra:
Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn, Nauteyrarhreppi N.-ÍS.
Ástþór Ágústsson, Múla Nauteyrarhreppi, N-ÍS.
Ari Sigurjónsson, Þúfum Reykjafjarðarhreppi, N.-ÍS.
Ingibjörg Björnsdóttir, Súðavík.
Þuríður Pétursdóttir, Túngötu 17, Isafirði.
Kristinn H. Gunnarsson, Vitastíg 21, Bolungarvík.
Sveinbjörn Jónsson, kennari Súgandafiröi.
Magnús Ingólfsson, Vífilsmýrum Önundarfirði.
Davíð H. Kristjánsson Aðalstræti 39, Þingeyri.
Halldór G. Jónsson, Lönghlíð 22, Bíldudal.
Lúðvíg Th. Helgason, Miðtúni 4, Tálknafirði.
Bolli Olafsson, Sigtúni 4, Patreksfirði.
Gisella Halldórsdóttir, Hríshóli, Reykhólasveit.
Sigmundur Sigurðsson, Steinadal, Fellshreppi, Strandasýslu .
Jón Olafsson, kennari, Hólmavík.
Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Strandasýslu.
Þeir Alþýöubandalagsmenn á Vestfjörðum sem dvelja í Reykjavík eða
grennd geta einnig snúið sér til skrifstofu Alþýöubandalagsins að Grettis-
götu 3, Reykjavík, og tekið þar þátt í forvalinu.
Alþýðubandalagið í Stykkishólmi
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í Stykkishólmi boðar til aðalfundar laugardaginn 22.
janúar kl. 16 í Verkalýðshúsinu.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Nýir félagar velkomnir!
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akranesi veröur í Rein laugardaginn 29.
janúar. Nú þegar getum við tilkynnt að Helgi Seljan og kona hans verða
gestir okkar.
Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið á Akureyri: Árshátíð
Árshátíð Alþýöubandalagsins á Akureyri veröur haldin í Alþýðuhús-
inu laugardaginn 22. janúar n.k. og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Húsið
verður opnað kl. 19.
Dagskrá:
Ávarp: Soffía Guðmundsdóttir, formaður ABA.
Ræða: Helgi Guðmundsson, bæjarfulltrúi.
Gítarleikur: Gunnar H. Jónsson, tónlistarkennari.
Gamanþáttur: leikararnir Bjarni Ingvarsson og Kjartan Bjargmundsson
flytja .
Utanflokksmaður fer með spé um Alþýðubandalagið og fleira.
Leynigestur verður á staðnum.
Erlingur Sigurðsson stjórnar fjöldasöng og Hljómsveit Steingríms Sig-
urðssonar leikur fyrir dansi.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Ragnheiðar í síma 22820 (eða
23397) eða Soffíu í síma 24270.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfírði
Opinn fundur um húsnæöismál
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til
opins fundar um húsnæðismál fimmtudag-
inn 20. ianúar að Strandgötu 41, kl. 20.30.
Framsaga: Ólafur Jónsson stjórnarfor-
maður Húsnæðismálastofnunar. Almennar
umræður á eftir.
Alþýðubandalagið
AB Seifossi og nágrenni
Félagsfundur verður haldinn 23. jan. kl. 15 að Kirkjuvegi 7, Selfossi.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Fréttir af starfi herstöðvaandstæðinga.
3. Stutt erindi um sósíalismann.
4. Önnur mál - umræður.
Þátttakendur í seinni umferð forvals AB á Suöurlandi eru sérstaklega
hvattir til að koma á fundinn.
Stefán Jónsson Stefán Þorleifsson
Bridgehátíð 1983
Bridgehátíð 1983
Dagana 29.-31. janúar halda
Bridgefélag Reykjavíkur, Flug-
leiðir og Bridgesamband íslands
bridgehátíð 1983. Hátíðin skiptist í
stórmót Bridgefélags Reykjavíkur,
sem er tvímenningur með þátttöku
44 para; og keppni um Flugleiða-
bikarinn, sem er opin sveita-
keppni.
Framkvæmdaaðilar mótsins
hafa boðið 3 erlendum sveitum á
hátíðina. Frá Ameríku og Kanada
koma: Alan Sontag, Kyle Larsen,
Georg Mittleman og Mark Mol-
son; frá Bretlandi koma: Tony
Sowter, Steve Lodge, Tony Forr-
ester og Raymond Brock og frá
Danmörku: Steen Möller, Lars
Blakset, Jens Auken og Stig Wer-
delin.
Alan Sontag kemur nú í annað
skipti á bridgehátíð en hann vann
stórmót B.R. í fyrra með Peter
Weichsel. Þótt Sontag sé aðeins
rúmlega þrítugur hefur hann unnið
öll stórmót í Ameríku oftar en einu
sinni og er talinn með bestu spilu-
rum heims. Hann er einnig vinsæll
bridgehöfundur og útfærsla hans á
Precisionkerfinu hefur náð mikilli
útbreiðslu. I þetta skipti mun Son-
tag spila við Kyle Larsen. Larsen er
í hópi bestu spilara Ameríku. Hans
fyrsti stórsigur var í Reisingermót-
inu 1968, þegar Larsen var aðeins
18 ára, og síðan hafa margir titlar
bæst við, meðal annars Spingold-
titillinn 1980 en þá spilaði Larsen í
sveit með Sontag.
Georg Mittleman er nýbakaður
heimsmeistari í blönduðum tví-
menningsflokki. Hann hefur tvis-
var orðið Kanadameistari, 1980 og
1981 og hann spilaði fyrir Kanada á
Ólympíumótinu 1980. Spilafélagi
hans á Bridgehátíð, Mark Molson
er minna þekktur þó hann sé í
fremstu röð í Kanada. I sumar
komst sveit hans þó í úrslitaleik
Spingoldmótsins í Ameríku, en
tapaði honum fyrir Dallasásunum
þarsem Alan Sontag er einn liðs-
manna.
Tony Sowter og Steve Lodge
mynda nú eitt besta bridgepar
Breta. Sowter er doktor í hagfræði
en fyrir 10 árum snéri hann sér al-
farið að bridge og er núna ritstjóri
Popular Bridge Monthly.
Lodge var hálfgert undrabarn í
bridge og hann vann aðal sveita-
keppni Breta The Gold Cup, innan
við tvítugt en þá voru þeir Sowter
sveitarfélagar. Síðan hefur hann
meðal annars unnið Evrópumót
yngri spilara 1978 og var í öðru sæti
í sama móti 1982. Sowter og Lodge
byrjuðu að spila saman 1980 og
komust strax í breska Evrópuliðið
sem varð í öðru sæti í Evrópumót-
inu 1981 og spilaði síöan í Heims-
meistaramótinu í Rye sama ár.
Lodge er mikill sagnkerfaspekúl-
ant og þeir Sowter spila skemmti-
legt kerfi sem er einskonar blanda
af Bláa laufinu og passkerfi.
Tony Forrestcr er einn harðasti
keppnisspilari Breta og það eru fá
mót á Bretlandseyjum sem hann
tekur ekki þátt í. ÍJann hefur oft
spilað í breskum landsliðum með
góðum árangri: hann var í liðinu
sem vann Evrópumót yngri spilara
1978 og síðan hefur hann spilað í
Ólympíumótinu 1979 og í Efna-
hagsbandalagsmótinu 1981 sem
Bretland vann. Hann hefur einnig
spilað fjölda leikja fyrir England í
Camrosemótinu, en það er keppni
milli Englands Skotlands, Wales
og N-írlands sem er haldin árlega.
Forrester byrjaði að spila við Ray-
mond Brock í byrjun síðasta árs og
þeir voru strax valdir í Camrose-
liðið fyrir 1982. Brock hefur verið í
eldlínunni í mörg ár þó honum hafi
ekki tekist að komast í allra
fremstu röð spilara á Bretlandi.
Forrester og Brock spila Acol-
sagnkerfið einsog það gerist nú-
tímalegast og það er hætt við að
gömlu bresku meistararnir myndu
lítið rata í þeim sagnvenjufrum-
skógi sem einkennirsagnkerfið nú.
Það þarf varla að kynna Steen
Möller og Stig Werdelin fyrir ís-
lendingum því þeir hafa oft sótt
okkur heim. Steen Möller spilaði
sinn fyrsta landsleik á Norðurlanda-
mótinu í Reykjavík 1966. Síðan
hefur hann spilað rúmlega 300
landsleiki og er nú landsleikjahæsti
íþróttamaður Dana. Þeir Werdelin
spiluðu lengi saman og urðu meðal
annars tvisvar í öðru sæti í Sunday
Times tvímenningnum sem var tal-
ið sterkasta tvímenningsmót heims
meðan það var og hét (það má geta
þess í framhjáhlaupi að Alan Son-
tag hefur unnið það mót tvisvar).
Þeir voru líka í danska liðinu sem
náði öðru sæti á Evrópumótinu
1979. Þeir hættu að spila sarnan
1980 en eru þó enn saman í sveit og
á síðasta ári vann sveitin þeirra
bæði Danmerkurmótið og Bikar-
keppnina aukþess sem Steen Möller
vann Danmerkurmótið í tvímenn-
ing með Peter Schaltz.
Möller og Werdelin fengu sér
báðir nýja spilafélaga í haust.
Möller spilar nú við Lars Blakset.
Blakset er ungur og efnilegur spil-
ari og hann hefur undanfarin ár
verið fastamaður í yngra liði Dana
með bróður sínum, Knut. Þeir
bræður unnu Danmerkurmótið í
tvímenning 1981 og í sumar spiluðu
þeir á Norðurlandamótinu í opnum
flokki, einsog reyndar Möller og
Werdelin.
Werdelin spilar við Jens Auken.
Auken spilaði á Evrópumótinu
1981 en auk þess hefur hann spilað
á Norðurlandamótum bæði í opn-
um og yngri flokki.
Danirnir spila allir það sem má
kalla Danmerkurstandard: eðlilegt
kerfi með Treldespurnarsögnum
og ótal öðrum sagnvenjum.
Að lokum má geta þess að kona
Steen Möller, Kirsten, tekureinnig
þátt í mótinu. Hún er einn af bestu
kvenspilurum Evrópu en danska
kvennalandsliðið er þar í fremstu
röð. Hún er meðal annars bæði
Evrópu- og Norðurlandameistari í
yngri flokki og auðvitað margfald-
ur Danmerkurmeistari í kvenna-
flokki.
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Sl. fimmtudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur, með þátt-
töku 16 para. Úrslit urðu:
Jóhannes Árnason -
Þórir Sigursteinss. 252
Ármann J. Lárusson -
Ragnar Björnsson 239
Þórir Sveinsson -
Guðmundur Pálsson 236
Á morgun hefst svo aðalsveita-
keppni félagsins. Spilaðir verða
2x16 spila leikir á kvöldi, allir v/
alla. Stjórn B.K. mun aðstoða
menn við myndun sveita, sé þess
óskað. Spilamennska hefst í síðasta
lagi kl. 20.00. Spilað er í Þinghól,
Kópavogi. Allir velkomnir.
Reykjavíkurmótið
Reykjavíkurmótinu í sveita-
keppni, undanrásum, verður fram-
haldið í kvöld í Domus. Spilaðar
verða 10. og 11. umferð af 17 um-
ferðum.
Mikil spenna ríkir nú í mótinu,
enda úrslit með óvenjulegra móti í
einstökum leikjum. 4 efstu
sveitirnar komast í úrslit Reykja-
víkurmótsins, en 11 efstu öðlast
rétt til þátttöku í ísl.-mótinu.
Lausar stöður deildarstjóra í
® heilbrigöis- og tryggingamálaráðu-
neytinu
Lausar eru til umsóknar stööur deildarstjóra í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
sem hér segir:
1. Staða deildarstjóra til þess að annast
málefni aldraðra, sbr. lög nr. 91/1982, um
málefni aldraðra. Krafist er menntunar og
starfsreynslu er nýtist við úrlausn verkefna
á þessu sviði.
2. Staða deildarstjóra lyfjamáladeildar
ráðuneytisins, skv. lögum nr. 76/1982 um
lyfjadreifingu. Krafist er lyfjafræðimennt-
unar og að umsækjandi uppfylli að öðru
leyti skilyrði laga til þess að öðlast lyfsölu-
leyfi, sbr. áðurtilvitnuð lög.
Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um
menntun og störf sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,
fyrir 16. febrúar 1983.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
19. janúar 1983.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsvist - þriggja kvöld keppni
Spilin verða.tekin upp að nýju þriðjudagskvöldið 25. janúar n.k. í Sóknar-
salnum, Freyjugötu 27 (gengið inn frá Njarðargötu) og byrjað kl. 20.
Gestur kvöldsins í kaffihléi verður Guðrún Helgadóttir alþingismaður og
segir fréttir úr pólitíkinni.
Efnt er til þriggja kvölda keppni, annan hvern þriðjudag,25. janúar, 8.
febrúar og 22. febrúar, og veitt heildarðverðlaun í lokin.
Þeir sem ekki komast öll kvöldin geta þó líka komið eitt og eitt skipti, hitt
félagana og keppt um sérstök verðlaun kvöldsins.
Fundur með
ungu stuðningsfólki
Fundur með ungu stuðningsfólki Alþýðubandalagsins (16-25 ára) verður
laugardaginn 22. janúar kl. 14.00 að Egilsbraut 11.
Umræður um Alþýðubandalagið.
Stjórnin.