Þjóðviljinn - 20.01.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 20.01.1983, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 20. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV O 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir: Morgun- orð Sigurður Magnússon talar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Líf“ eftir Else Chappel Gunnvör Braga les þýðingu sína (11). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.30 Verslun og viðskipti Umsjón: Ingvi Hrafn Jónsson. 10.45 Ardegis í garðinum með Hafsteini Hafliðasyni. 11.00 Við Pollinn Ingimar Eydal velur og kynnir létta tónlist (RÚVAK). 11.40 Félagsmál og vinna Umsjón: Skúli Thoroddsen. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Fimmtudagssyrpa Ásta R. Jóhannsdóttir. 14.30 „Tunglskin í trjánum“, ferðaþættir frá Indlandi eftir Sigvalda Hjálmarsson Hjörtur Pálsson les (5) 15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir Carl Maria von Weber Gervase de Peyer og Cyril Preedy leika „Grand Duo Conc- ertante" í Es-dúr fyrir klar. og píanó / Benny Goodman og Sinfóníuhljóm- sveitin í Chicago leika Klarinettukons- ert nr. 1 í f-moll; Jean Martinon stj. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Útvarpssaga barnanna: „Aladdín og töfralampinn“ Ævintýri úr „Þúsund og einni nótt“ í þýðingu Steingríms Thor- steinssonar. Björg Árnadóttir les (5). 16.40 Tónhornið Stjórnandi: Guðrún Birna Hannesdóttir. 17.00 Djassþáttur Umsjónarmaður: Ger- ard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómas- dóttir. 17.45 Neytendamál Umsjónarmenn: Anna Bjarnason, Jóhannes Gunnarsson og Jón Ásgeir Sigurðsson. 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Fimmtudagsstúdíóið - Útvarp unga fólksins Stjórnandi: Helgi Már Barða- son. (RÚVAK). 20.30 Duggugrautur Stefán Jóhann Stef- ánsson velur og kynnir. 21.05 Samleikur á selló og píanó Erling Blöndal Bengtson og Árni Kristjánsson leika Sellósónötu í g-moll op. 65 eftir Frédéric Chopin. 21.30 Almenntspjall um þjóðfræði Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson sér um þáttinn. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Lcikrit: „Drakúla“eftir Bram Stokcr 1. þáttur, „Þeir dauðu ferðast hratt“ Leikgerð og leikstjórn: Jill Brook Árna- son. Leikendur: Benedikt Árnason, Saga Jónsdóttir, Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Sigurður Skúlason, Borgar Garðarsson og Kle- menz Jónsson. 23.05 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsvcitar íslands í Háskólabíói 13. þ.m; síðari hl. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Sinfónía nr. 4 í e-moll op. 98 eftir Johannes Brahms. - Kynnir: Jón Múli Árnason. Stöndum saman Dagsbrúnarverkamaður hringdi: Mér fínnst ekki sitja á Gísla Gunnarssyni að skrifa grcin eins og þá sem birtist í Þjóð- viljanum þann 13. þ.m. og á víst að vcra svar við ágætri grein Oskars Guðmunds- sonar. Eða hver stóö niðri í Austurstræti í kosninga- slagnum 1967 og var þar að selja sprengiblað ásamt Jóni Hannibalssyni? Það situr ekki á þessum mönnum að ávíta blaðainenn Þjóðviljans. Það er engin sósíalismi ef menn. sem starfa við blaðið og skrifa þar undir eigin nafni, ntega ekki segja það sem þeim býr i brjósti. Ég á svo ekki aðra ósk heitari nú á þessu nýbyrjaða ári en að allir sósíalistar standi saman sem einn maður í kom- andi kosningum. f rá lesendum Síðbúin áramótahugleiðing Magnús Jóhannsson frá Hafn- arnesi skrifar: Jæja, þá erum við búin að sprengja út árið, éta yfir okk- ur af allskyns kræsingum og höfum ckki haft annað upp úr því en magapínu, a.m.k. und- irritaður. Þetta nýliðna ár hefur að mörgu leyti verið merkilegt og að mörgu leyti sorglegt. Sjáv- arvali hefur verið minni en áður, en samt má kalla að góðæri hafi verið til lands og sjávar. En ríkiskassinn gjöktir samt galtómur. Krytur um kjör fólksins hafa einkennt þetta ár engu síður en önnur ár, utan hjá bóndanum, sem fær allt á silfurdiski án þess að beygja kné sín fyrir Heródesi eða Pílatusi. Við höfum misst okkar fyrrverandi forseta, Kristján Eldjárn, þann ágæta mann, og er hann syrgður af alþjóð. Bókaflóðið hefur gengiö yfir með pompi og pragt, og margt gott hefur þar rekið á fjörurnar. Annað einskis nýtt. INu setjast menningarvitar senn á rökstola til að vega og meta hverjir skuli hijóta listamanna- og starfslaun. Hætt er við að margir gangi þar að tómri jötu. Búið er að úthluta úr rithöfundasjóði og hlaut skáldkonan Nína Björk Árnadóttir styrkinn og er hún vel að honum komin. Nú þarf ekki lengur að vera að hnýta í Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli út af listamanna- launum og enginn nefndur Magnús hinn margdrepni. Listamannalaun, úthlutun eiga að vei a í höndum lista- manna sjálfra og engra ann- arra. Vel mæltist forseta vorum, Vigdísi Finnbogadóttur nú um áramótin, eins og von var og vísa; einnig mæltist forsæt- isráðherra sæmilega. Nú fara kosningar senn í hönd og eru stjórnmálaspek- úlantar strax farnir að þinga út um landsbyggðina; er víst ekki ráð nema í tíma sér tekiö, nema hvað. Daginn er strax farið að lengja og sól að liækka og bátar og togarar farnir að búa sig til vertíöar. Tíðarfar er samt rysjótt, útsynningur og suðaustanátt skipta með sér verkum og má búast við harðri sjósókn Myndaþraut Pennavinir Óska eftir pennavinum, strákum og stelpum á aldrinum 14-15 ára. Ég er sjálf 14. Áhugamál margvísleg. Svara öllum bréfum. Sigríður M. Valsdóttir Djúpavogi 22 233 Hafnir. Hvaö haldið þiö aö geti verið á þessari mynd? Ekki hef ég hugmynd um þaö. Ef þiö drag- ið línu á milli a-b og b-c og svo framvegis þá ætti málið að skýrast. Ríkharður Arnar hefur lík- legast litið við í Tívolí á síðasta sumri, eftir því sem myndin ber með sér. Allskyns hringekjur, og svo er líka einhver söluskáli þar sem menn geta unnið bangsaog aðrahluti íverðlaun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.