Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 7
Helgia 29.. - 30. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Fríðríks Ólafssonar
Kennsla hefst þriðjudaginn
15. febrúar næstkomandi í húsakynnum
skólans að Laugavegi 51. Á fyrstu starfsönn
verða þrenns konar námskeið:
Byrjendaflokkur
Framhaldsflokkur l
Framhaldsflokkur II
Hvert námskeið er 12 klst.,
tvær klst. í senn einu sinni í viku.
Þátttökugjald:
Fullorðnir kr. 720
Börn, unglingar (f. 1968 og síðar) kr. 600
Skráning:
Skráning stendur
yfir alla virka daga
milli kl. 17-19
í síma 25550.
Sérnámskeið:
Skákskólinn útvegar einnig leiðbeinendur
fyrir einkatíma, sérstök námskeið í fyrirtækjum *
eða námskeið úti á landi.
Skákskón Friöriks CHafssonar
Laugavegl 51 Sími: 25550.
Friörik Ólafsson, CuömundurSigurjónsson, Helgi Ólafsson,
Jón L. Árnason, Margeir Pétursson.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fjölskyldudeild óskar eftir fólki til að styðja
börn og unglinga, persónulega og félagslega
ca 10 - 30 tíma á mánuði, sbr. lög um vernd
barna og ungmenna gegn ákveðinni þóknun.
Fólk sem:
- hefur gott innsæi og áhuga á mannlegum
samskiptum,
- er hugmyndaríkt og hlýlegt í viðmóti, en
jafnframt ákveðið,
- hefur góðan tíma og tök á að skuldbinda
sig a.m.k. 'U ár,
getur sótt um, óháð menntun eða stöðu.
Unglingafulltrúi gefur allar nánari upplýsing-
ar í síma 25500, kl. 13-15 alla virka daga fyrir
7. feb. nk.
Afmælisball
Kvennaframboðið í Reykjavík held-
ur upp á 1 árs afmæli sitt í Félags-
stofnun stúdenta í kvöld kl. 20. Sest
verður að snæðingi, afmælisbarnið
ávarpað, Kvennaframboðskarla-
flokkurinn Losti leikur lystir sínar,
„hátíðaræða“ o.fl. og.fl.
Stiginn dans til kl. 03 eftir miðnætti.
Allir velunnarar Kvennaframboðs-
ins velkomnir.
Ráðstefna KRFÍ:
Að koma
aftur á
vinnu-
markaðinn
„Að koma aftur á vinnumark-
aðinn“ heitir ráðstefna, sem
Kvenréttindafélagið gengst fyrir nú
á laugardaginn að Kjarvalsstöð-
um. Hefst hún kl. hálftvö og er öll-
um opin.
Ráðstefnunni er ætlað að vekja
máls á og skilgreina hvort það sé
erfiðleikum bundið fyrir konur að
koma til baka á vinnumarkaðinn
eftir að hafa um skeið sinnt störfum
á öðrum vettvangi, þ.e. á
heimilum.
Dagskrá ráðstefnunnar verður
þessi:
Kl. 13.30:
Setning - sögulegur inngangur.
Esther Guðmundsdóttir, form.
KRFÍ.
Kl. 13.40: FYRRI HLUTI:
Félagslear aðstæður - félagslegar
afleiðingar. A) Dæmi af persónu-
legri reynslu Björg Sveinsdóttir,
Eygló Stefánsdóttir, Þórey Guð-
mundsdóttir. B) umfjöllun af fag-
legum vettvangi Nanna Sigurðar-
dóttir, félagsráðgjafi, Þuríður J.
Jónsdóttir.
Fyrirspurnir - Kaffihlé.
10. 15.10: SEINNIJHLUTI?
Úrbætur
A) Skipulag dagvistar- og skóla-
mála Bergur Felixson, frkvstj. Dag-
gvistarheimila Reykjavíkurborgar.
B) Skipulag á vinnumarkaðinum
Þórarinn Þórarinsson, lögfræðing-
ur VSÍ.
C) Valkostir í menntun Guðrún
Halldórsdóttir, skólastjóri Náms-
flokka Reykjavíkur, Örnólfur
Thorlacíus, rektor MH.
D) Aðrir kostir, s.s. upplýsingar og
vinnumiðlun Tryggvi Þór Aðal-
steinsson, frkvstj. MFA
Almennar umræður. Saman-
tekt: Björg Einarsdóttir.
Kl. 18.00: Ráðstefnuslit.
Ráðstefnan er öllum opin og
ráðstefnugjald er kr. 100. Fundar-
stjórar verða Magdalena Schram
og Þórunn Gestsdóttir.
Afmælis-
vaka
Kvenréttindafélag fslands held-
ur afmælisvöku að Kjarvalsstöðum
á sunnudaginn og hefst hún kl.
13.30.
Lesið verður úr nýjum bókum
eftir konur, þær Nínu Björk Arna-
dóttur, Álfrúnu Gunnarsdóttur og
Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur.
Hrafnhildur Schram segir frá rann-
sóknum sínum á listasögu kvenna
og les úr bók sinni um Nínu
Tryggvadóttur.
Tvær ungar stúlkur, Ásta Gísla-
dóttir og Elsa Waage syngja nokk-
ur lög og Sigurlaug Eðvaldsdóttir
leikur á fiðlu.
f anddyri verður sýndur vefn-
aður, handsmíðuð víóla og bækur
eftir konur..
Hrím spilar
og leikur
Hljómsveitin Hrím heldur vísn-
atónleika í Norræna húsinu á sunn-
udaginn kl. 17.00.
Á tónleikunum flytur hljóm-
sveitin aðallega frumsamin lög og
texta, en að auki mun hún leika
ýmis þjóðlög frá Noregi, írlandi og
Skotlandi.
Miðar verða seldir við inn-
ganginn.
Bækur til sölu.
Við erum þessa dagana að taka fram hluta úr
nokkrum prýðilegum bókasöfnum. Um er að
ræða bækur í héraðasögu, íslensk skáld-
verk, náttúrufræði, ættfræði og fleiri skyld
efni:
Nokkur dæmi: Um Njálu, doktorsritgerö Einars Ól.
Sveinssonar, Landnám í Skaftafellsþinqi, Bókaskrá
um bókasafn Gunnars Hall, Bókaskrá Ólaf Klose, ís-
lensk miöaldakvæði, útg. Jón Helgason prófessor,
Gengiö á reka eftir Kristján Eldjárn, Menn og menntir
eftir Pál Eggert 1-4, Fagrskinna, útg. Ungers, Leiöar-
vísir um oröasöfnun eftir Þórberg Þóröarson, Göngur
og réttir 1 -5, Bólstaöir og búendur í Stokkseyrarhreppi
eftirdr. Guöna Jónsson, íslenskir samtíöarmenn 1-2,
Austantórur 1-3, Manntal á íslandi 1816 1-6, Saga
Eyrarbakka, Skútustaöaætt, Reykjahlíöarætt, Is-
landske Folkesagn og Eventyr, Kh. 1877, skb., Skaft-
fellskar bjóösögur og sagnir Guömundar Hoffells,
Þjóðsögur Jóns Árnasonar 1-2, Þjóðsögur Ólafs Da-
víðssonar 1-2, 400 ára saga prentlistarinnar á íslandi
eftir Klemens landritara, Aldarfarsbók Páls lögmanns,
Búalögin (Sögufélagsútgáfan), Tímaritið Saga 1949-
1974 komplet í frumútg.; Alþingisbækur (slands, stök
bindi frá 1.-14., Deildir Alþingis eftir Bjarna Benedikts-
son, Lög og saga eftir Ólaf Lárusson, Æfisaga Gísla
Konráössonar, Æfisaga Jóns Indíafara, Kyssti mig
sól, fyrsta Ijóðabók Guðmundar Böövarssonar skálds
(og fyrsta útgáfubók Ragnars í Smára), Ljóðmæli Páls
Ölafssonar 1-2 (Aldamótaútgáfan), Glugginn snýr í
norður og Svartálfadans eftir Stefán Hörð Grímsson,
Andstæður eftir Svein frá Elivogum, Leikritasafn
Menningarsjóðs 1-20, María Magdalena og Flugur
eftir Jón Thoroddsen skáld (yngri), Far veröld þinn
veg eftir Jörgen Frantz Jacobsen, Sjómannalíf eftir
Kipling, Gösta Berlings saga eftir Lagerlöf, Enn grjót
eftir Jóhannes Kjarval, Blómin í ánni eftir Edita Morris,
í skugga Glæsibæjar, Dr. Jekyll og Mr. Hyde eftir
R.L.Stevenson, Egyptinn eftir Mika Waltari, Rit dr.
Bjarna Sæmundssonar, Fiskarnir, Fuglarnir og
Spendýrin, Árbækur Ferðafélagsins, frumprent flest
árin 1928-1940, Harmsaga æfi minnar og Mesta
hörmungatímabil æfi minnar eftir Jóhannes Birkiland,
íslensk fyndni 5. og 8. h eftl, Kaþólsk viðhorf eftir
Halldór Laxness, bók sem ekki kemur aftur út næstu
50 árin, Ársrit Kaupfélags Þingeyinga 1917-1929
(komplet), Rit Þorvaldar Thoroddsen, Lýsing íslands
1-4, frumútg. skb., Landfræöissaga Islands, 1-4,
ób.m.k., Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen 1-4, frum-
útg., Muggur eftir Paul Uttenreitter, Úr landsuöri eftir
víkur eftir Klemens Jónsson 1-2, ób.mk. og ótal aðrar
fátætar og merkar bækur, sem sárasjaldan eru á ferö-
inni.
Við kaupum og seljum allar íslenskar bækur,
yngri og eldri, flestar erlendar, ennfremur
heillegar tímaritaraðir, gamalt smáprent,
pólitísk plaköt, minni íslensk myndverk og
eldri íslenskan útskurð og gömul verkfæri.
Eigum erlendar pocket-bækur í þúsundatali
á ensku, dönsku, frönsku, þýsku o.fl. tung-
um. Hjá okkur er miðstöð pocketbóka-
viðskiptanna.
Gefum reglulega út bóksöluskrár um íslensk-
ar og erlendar bækur. Sú 20. er að koma út
þessa dagana. Sendum hana ókeypis til
þeirra sem óska utan Reykjavíkursvæðisins.
Sendum í póstkröfu hvert sem er.
Vinsamlega hringið, skrifið eða lítið inn.
Gamlar bækur og nýjar -
BÓKAVARÐAN
Hverfisgötu 52, Reykjavík, sími 29720