Þjóðviljinn - 16.02.1983, Síða 11
Miðvikudagur 16. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
íþrottir
Umsjón:
Viðir Sigurðsspn
Stefán Friðleifsson og félagar í ÍME
eru komnir í úrslit 2. deildar.
ÍMEí
úrslitín
ÍME, íþróttafélag Mennta-
skólans á Egilsstöðum, hefur tryggt
sér sæti í úrslitakeppni 2. deildar
karla í körfuknattleik, sem fer fram
í Keflavík um miðjan mars. Síðari
umferð Austfjarðariðils fór fram á
Reyðarfirði um helgina.
IME vann örugga sigra í báðum
sínum leikjum, rétt eins og í fyrri
umferðinni. Fyrst gegn Sindra frá
Hornafirði, 87-50, og síðan SE,
Samvirkjafélagi Eiðaþinghár, 91-
71. SE vann síðan Sindra 85-68.
ÍME hlaut samtals 8 stig, SE og
Sindri 2 stig hvort. Einn burðarása
liðs ÍME er hinn kunni hástökkv-
ari, Stefán Friðleifsson, sem nú
stundar nám við Menntaskólann á
Egilsstöðum.
Einn leikur fór fram í A-riðli
deildarinnar í fyrrakvöld. Esja og
Reynir frá Sandgerði mættust í
Hagaskólanum og hafði Esja góða
forystu í hálfleik, 38-24. Framan af
síðari hálfleik virtist hins vegar
Esjupiltunum gersamlega ókleift
að hitta í körfuna, þeim tókst það
ekki fyrr en eftir níu mínútur og þá
höfðu Sandgerðingar tekið foryst-
una. Þeir slepptu henni ekki og sig-
ruðu 64-54. Reynir og Breiðablik
berjast um sigur í riðlinum og mæt-
ast í Kársnesskóla í kvöld. -VS
Viðbót
í grein í blaðinu í gær um íslands-
mót stúlkna 14 ára og yngri í innan-
hússknattspyrnu féllu niður nokk-
ur nöfn af listanum yfir marka-
hæstu stúlkur mótsins. Þessar urðu
efstar:
Kristrún Heimisdottir. KR......9
Guðrún Ögmundsdóttir, FH..........4
Helga Sigurðardottir, FH..........3
Karólina Guðmundsdóttir, Vikingi..3
Þjóðhildur Þórðardóttir, Breiðabl.3
Ranghiidur Þorgerisd. Breiðabl.2
Berglind Guömundsdóttir, Haukum.2
Nína Friðriksdóttir, UMFK......2
Margrét Leifsdóttir, KR........2
Ásta Benediktsdóttir, ÍA..........2
Anna Jónasdóttir, ÍA..............2
Helga Björnsdóttir, Val...........2
Guðrún Snorradóttir, Hveragerði...2
Sigurborg Ólafsdóttir, Hveragerði.2
Ásta Baldursdóttir, FH.........2
Björg Hafsteinsdóttir, KFK.....2
Bikarkeppnin í körfuknattleik:
Góð rispa ÍBK
ín og UMFN
/
í
úr
lok-
leik
„Nú náum við að keyra á fullu
allan leikinn og það skóp sigur okk-
ar öðru fremur“, sögðu ánægðir
Keflvíkingar í gærkvöldi eftir að
þeir höfðu borið sigurorð af erki-
fjendunum, Njarðvíkingum, í bik-
arkeppninni í körfuknattleik.
Fjórði sigur ÍBK á íslandsmeistur-
unum í jafnmörgum leikjum í vetur
og stemmning hinna tæplega 900
áhorfenda í íþróttahúsinu í Kefla-
vík var gífurleg, enda leikurinn
skemmtilegur og lengst af spenn-
-andi. Úrslitin urðu 106-97, Kefla-
vík í hag eftir 57-52 í hálfleik.
Leikurinn var jafn framan af en
um miðjan fyrri hálfleik höfðu
Keflvíkingar náð 10 stiga forskoti,
34-24. Njarðvíkingar jöfnuðu
skömmu síðar, 42-42, en ÍBK náði
yfirhöndinni aftur fyrir hlé.
Njarðvíkingar hófu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og komust
yfir, 66-65'og 74-70 en IBK jafnaði
og leikurinn hélst í járnum þar til 5
mínútur voru eftir. Þá kom dærni-
gerð „Keflavíkurrispa", ÍBK
komst úr 87-85 í 102-87 og leikur-
inn var unninn.
Keflvíkingar léku á fullu nær all-
an tímann og sem heild lék liðið vel
en enginn átti þó betri dag en Þor-
steinn Bjarnason. Hann átti sann-
kallaðan stjörnuleik og skoraði
hverja körfuna annarri fallegri.
Brad Miley tók aragrúa af fráköst-
um en í körfuskotunum voru hon-
um mislagðar hendur. Axel Niku-
lásson var kominn með 3 villur eftir
5 mínútur og fékk þá fjórðu
skömmu síðar en lék samt ágætlega
þótt hann gæti að sjálfsögðu ekki
beitt sér sem skyldi. Jón Kr. Gísla-
son stóð sig virkilega vel og fer vax-
andi með hverjum leik. Þorsteinn
skoraði 35 stig, Jón 27, Axel 14,
Miley 13, Oskar Nikulásson 7,
Björn V. Skúlason 6 og Pétur Jóns-
son fjögur.
Njarðvíkingar áttu nokkuð jafn-
an leik að þessu sinni. Árni Lárus-
son var góður, einnig Sturla Ör-
lygsson og Bill Kottermann
skoraði mikið með fallegum lang-
skotum. Gunnar Þorvarðarson var
traustur að vanda en Valur Ingi-
mundarson var með daufara móti.
Jón Viðar Matthíasson lék með í
fyrsta skipti í langan tíma og stóð
sig vel. Kottermann skoraði 22
stig, Gunnar 18, Valur 14, Sturla
13, Árni 8, Jón Viðar 7, Ingimar
Jónsson 7, Júlíus Valgeirsson 6 og
Ástþór Ingason tvö.
Gunnar Bragi Guðmundsson og
Sigurður Valur Halldórsson
dæmdu leikinn og áttu ágætan dag.
- gsm
Landslið tvö vann örugglega
„Landslið nr. tvö“ varð sigur-
vegari á Adidashraðmótinu í hand-
knattleik sem lauk í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi. Þegar blaðið
fór í prentun var síðasta leiknum,
milli landsliða tvö og eitt, ekki lokið
en sýnt hvert stefndi, því landslið
tvö hafði yfirburðastöðu, 20-11.
Það lið sigraði alla sína leiki og
hlaut 8 stig, KR varð í öðru sæti
með fimm stig, Landslið eitt fékk
(jögur, Víkingar þrjú en Valsmenn
ekkert.
í gærkvöldi léku fyrst Víkingur
og Valur. Valur var yfir í hálfleik
10-9 en Víkingar náðu að sigra, 19-
18. Sigurður Gunnarsson skoraði
10 fyrir Víking en Jakob Sigurðs-
son 5 fyrir Val. Þá sigraði Landslið
tvö KR-inga 17-13 eftir 10-6 í hálf-
leik. Bjarni Guðmundsson skoraði
6 marka landsliðsins en Stefán
Halldórsson, Guðmundur Alberts-
son og Anders Dahl 3 hver fyrir
KR. Landslið eitt vann Val 25-21
(11-8). Steindór Gunnarsson og
Þorbergur Aðalsteinsson gerður 6
hvor fyrir landsliðið en Þorbjörn
Guðmundsson 6 fyrir Val. KR
vann Víking 16-15 og loks kom inn-
byrðis leikur landsliðanna sem
áður er frá greint.
- VS
Ennþá deilt um McFarland
Máli ensku knattspyrnu-
félaganna Derby County og Brad-
ford City er enn ekki lokið. I fyrra-
dag var Derby dæmt til að greiða
Bradford City 55,000 pund til við-
bótar tíu þúsundum þar áður fyrir
að lokka til sín framkvæmdastjóra
Bradford, Roy McFarland og
þjálfarann Mick Jones, fyrr í vetur.
Bradford City fór fram á 200.000
pund og mun áfrýja dómnum í von
um hærri greiðslu.
Bob Martin, formaður Bradford
sagði í gær að Derby hefði fengið
McFarland og Jones allt of ódýrt,
sum atriði sem Bradford lagði fram
hefðu ekki verið rædd í meðferð
málsins og félagið ætlaði sér að
nota sér rétt sinn til áfrýjunar.
Mike Watterson, formaður Der-
by, var ekki á sömu skoðun:
„Bradford City hefur komist ótrú-
lega vel frá þessu rnáli og greiðslu-
vandræði okkar eru talsverð þegar,
þó ekki komi meira til. Við hjá
Derby höfum fengið nóg af málefn-
um utan vallar undanfarna þrjá
mánuði og viljum nú einbeita okk-
ur óskipt að því að halda sæti okkar
í 2. deild; nú, og svo auðvitað að
því að sigra Manchester United í
bikarkeppninni á laugardaginn."
- VS
Pressuliðið mjög harðsnúið!
Það verður leikrcynt „pressulið“
sem mætir íslcnska karlalands-
liðinu í handknattleik á HSÍ-
Phil Mahre með
örugga forystu
Phil Mahre frá Bandaríkjunuin
hefur náð góðri forystu í heimsbik-
arkeppni karla á skíðum eftir mót
helgarinnar, þrátt fyrir að hann
næði hvergi sigri. Keppt var í svigi í
Frakklandi á föstudag og laugar-
dag og í stórsvigi í Vestur-
Þýskalandi á sunnudag.
í sviginu á föstudag sigraði Sví-
inn Ingemar Stenmark á 1:44,54
mínútum. Annar varð Paolo De
Chiesa frá Ítalíu og þriðji Phil Ma-
hre. Á laugardag tóku þrír aðrir
við; Bojan Krizaj frá Júgóslavíu
náði þá bestum tíma, Bengt Fjáll-
berg, Svíinn ungi, varð annar og
Christian Orlainsky frá Austurríki
þriðji. Phil Mahre varð þar fimmti
og Stenmark sjötti.
Stenmark náði síðan sigri í stór-
sviginu í fyrsta skipti í vetur, eftir
að hafa verið fimmti eftir fyrri ferð.
Max Julen, Sviss, varð annar og
Pirmin Zurbriggen frá Sviss þriðji.
Phil Mahre lenti í fjórða sætinu.
Mahre hefur nú 198 stig, Stenmark
167, Zurbriggen 161, Peter Lúsc-
her frá Sviss 160 og Andreas Wenz-
el frá Liechtenstein 140 stig.
Kvenfólkið keppti í stórsvigi í
Tékkóslóvakíu og þar sigraði Mar-
ia Rosa Quario frá Ítalíu en Erika
Hess frá Sviss varð í öðru sæti.
Hanny Wenzel frá Liechtenstein,
sem lenti í sjöunda sæti, hefur
áfram forystuna í stigakeppni
kvenna með 170 stig. Tyamara
McKinney frá Bandaríkjunum hef-
ur 162, Erika Hess 160 og Elisa-
beth Kirchler frá Austurríki 139
stig.
-VS
kvöldinu í Laugardalshöllinni ann-
að kvöld. Allir leikmcnn þess hafa
leikið með Islenska landsliðinu og
innanborðs verður leikjahæsti ís-
lendingur frá upphafi, Ólafur H.
Jónsson úr Þrótti. Hann á 138
landsleiki að baki. Einnig verður í
liðinu landsleikjahæsti Dani frá
upphafi, þjálfari KR-inga, hinn
snjalli Anders Dahl Nielsen.
Liðið verður þannig skipað:
Markverðir:
Jens Einarsson, KR
Ólafur Bendiktsson, Þrótti
Aðrir leikmenn:
Anders Dahl Nielsen, KR
Gunnar Gíslason, KR
Haukur Geirmundsson, KR
Hilmar Sigurgíslason, Víkingi
Ingimar Haraldsson, Haukum
Ólafur H. Jónsson, Þrótti
Páll Björgvinsson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Víkingi
Steinar Birgisson, Víkingi
Viggó Sigurðsson, Víkingi
Harðsnúið lið sem vafalítið veitir
landsliðinu verðuga keppni.
Leikur þessi verður rúsínan í pylsu-
enda kvöldsins en dagskráin hefst
kl. 20 með úrvalsleik í 3. flokki
karla. Þá taka skemmtikraftarnir
Magnús og Þorgeir við en síðan
kemur knattspyrnuleikur milli
íþróttafréttaritara og stjörnuliðs
Omars Ragnarssonar. Loks kemur
stóri leikurinn og þá gefst íslensk-
urn handknattleiksunnendum síð-
asta tækifærið til að sjá til landsliðs-
mannanna okkar áður en þeir
halda til Hollands í B-keppnina.
- VS
Paul Walsh, sóknarmaðurinn efni-
legi hjá Luton, er varamaður í
landsliðshóp Englendinga.
Fimm enn
til vara
Bobby Robson, landsliðseinvald-
ur Englendinga í knattspyrnu sem í
fyrradag valdi sjö nýliða ■ lands-
liðshópinn fyrir leikinn gegn Wales
í næstu viku, hefur tilnefnt fimm
leikmenn í viðbót til vara ef fleiri
lcikmenn forfallast. Lcikmcnn Ars-
enal og Manchester United verða
ekki mcð þar sem liðin leika i
dcildabikarnum sama kvöld og þá
gætu fleiri forfallast ef til auka-
leikja kemur í enska bikarnum eftir
helgina.
Fimmmenningarnir eru Joe
Corrigan, Manchester City, Russ-
ell Osman, Ipswich, Paul Walsh,
Luton, og Southamptonleikmenn-
irnir Steve Williams og Dave Arm-
strong. Þeir Corrigan, Osman og
Armstrong hafa áður leikið með
enska landsliðinu, en þeir Walsh
og Williams eru báðir taldir til
mögulegra lykilmanna í náinni
framtíð.
- VS
Liverpool
tapaði!
Burnley, eitt botnliða 2. deildar
ensku knattspyrnunnar, sigraði
Englandsmeistara Liverpool 1-0 á
heimavclli sínum Turf Moor, í
dcildabikarnum í gærkvöld. Það
dugði þó ekki til, Liverpool vann
fyrri leikinn 3-0 og leikur því til
úrslita, sennilega gegn Manchcster
United.
United vann frækilegan sigur á
Arsenal, 4-2, á Highbury, heima-
velli Arsenal í London í fyrri leik
liðanna í gærkvöldi. í 1. deild tap-
aði Notts County 1-2 fyrir Sout-
hampton og í 2. deild skildu Sheffi-
eld Wednsday og Blackburn jöfn,
0-0.
- VS
Þessar leika gegn
Englendingunum
Island og England leika tvo
kvennalandsleiki í handknattleik
hér á landi um næstu helgi. Sá fyrri
verður á Akranesi á föstudags-
kvöldið og hefst kl. 20.30 en sá síð-
ari í Laugardalshöllinni kl. Átján
stúlkur hafa verið valdar fyrir þessa
leiki og eru þær eftirtaldar: Mar-
kverðir: Jóhanna Pálsdóttir, Val,
og Jóhanna Guðjónsdóttir, Vík-
ingi. Aðrir leikmenn: Erna
Lúðvíksdóttir, Magnea Friðriks-
dóttir og Sigrún Bergmundsdóttir
úr Val, Guðríður Guðjónsdóttir,
Margrét Blöndal, Oddný Sig-
steinsdóttir og Sigrún Blomster-
berg, Fram, Asta B. Sveinsdóttir,
Erla Rafnsdóttir, Ingunn Bernót-
usdóttir og Katrín Fredriksen, IR,
Eva Baldursdóttir, Fylki, Björg
Gilsdóttir, Katrín Danivalsdóttir,
Kristín Pétursdóttir og Kristjana
Aradóttir, FH. Þjálfari stúlknanna
er Sigurbergur Sigsteinsson.
Með þessum leikjum, sem eru
fyrstu kvennalandsleikir hér á
landi í tvö ár, hefst undirbúningur
landsliðsins vegna forkeppni fyrir
B-heimsmeistarakeppni kvenna.
ísland dróst gegn Dönum og verð-
ur leikið heima og heiman, væntan-
lega í apríl. Eftir þessa leiki við
Englendinga verða valdar þær 12
stúlkur sem koma til með að leika
gegn Dönum.
- VS