Þjóðviljinn - 29.03.1983, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.03.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 29. mars 1983 ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friöriksson. Auglýsingastjóri: Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvaröardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsia: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. Nú ungafólkiö • Alþýðubandalagið mun því aðeins taka þátt í mynd- un ríkisstjórnar að loknum kosningum að samstarfs- aðilar séu reiðubúnir að hefjast strax handa um átak í húsnæðismálum sem tryggi langtímalán í samræmi við verðtryggingu og sérstakan byggingarsjóð fyrir fólk sem er að tryggja sér húsnæði í fyrsta sinn. Þetta kemur fram í þeim samstarfsgrundvelli sem flokkurinn hefur kynnt, og í yfirlýsingu sem Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins gefur í Þjóðviljanum í dag. • Hvað eftir annað hefur á síðustu misserum verið komið í veg fyrir að tillögur um skynsamleg skref í húsnæðismálunum, og fjáröflun, sem gerði þau kleif, næðu fram að ganga. í ríkisstjórn drógu Framsóknar- ménn lappirnar lengi vel og eftir að stjórnarfrumvarp var lagt fyrir þingið reyndist ekki áhugi á því þar að koma því í gegn. Frekar vildu menn vera með yfirboð í kosningaslagnum heldur en að taka ákveðið skref þeg- ar á nýloknu þingi. • Þessum loddaraleik verður að linna. Alþýðubanda- lagið hefur hrint af stað stórátaki fyrir láglaunafólk með sexföldun framlaga til verkamannabústaða á síðastliðnum fjórum árum. Vegna verðtryggingarinnar er það nú almennt fólkið sem er að tryggja sér húsnæði í fyrsta sinn sem er í svipaðri aðstöðu í húsnæðismálum og láglaunafólkið var fyrir fjórum árum. • Alþýðubandalagið mun gera það að skilyrði, ef það á að eiga aðild að ríkisstjórn eftir kosningar, að haldið verði áfram að sinna félagslega íbúðarkerfinu eins og gert hefur verið síðustu fjögur árin, og að næstu fimm ár starfi sérstakur sjóður ætlaður ungu fólki og þeim sem eru að tryggja sér húsnæði í fyrsta sinn. Til þess verður að koma aukið framlag lífeyrissjóða, tafarlaus lögbinding á þátttöku bankanna og sérstök tekjuöflun. • í samstarfsgrundvelli Alþýðubandalagsins eru einn- ig skilmálar um ný eignarform, kaup- og leigusamninga og hlutaeign líkt og tíðkast annarsstaðar á Norðurlönd- um. Þá þarf að koma leiguíbúðum og námsmannaí- búðum inn í húsnæðiskerfið, og tryggja með þeim hætti og með íbúðum fyrir aldraða og verkamannabústöðum að markmið verkalýðshreyfingarinnar um þriðjung íbúða á félagslegum grunni nái fram að ganga. • Þetta eru skilyrði og kröfur Alþýðubandalagsins um aðgerðir strax, í húsnæðismálum, án tafa, án undan- bragða. -ekh Frá orðum til orða • Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera vel við húsbyggj- endur og tryggja öllum eignir. Loforð hans um 80% lán til allra á löngum tíma myndu þýða skv. forsendum sem Geir Hallgrímsson gefur sér 2,5 milljarða króna inn í húsnæðislánakerfið. Leyndarmálið stóra hjá Sjálfstæð- isflokknum er hvernig ná á í þetta fé. Hætt er við að samningar við lífeyrissjóði og sparnaður í bönkum gæti orðið lengi að skila sér til þeirra sem eiga í húsnæðiserf- iðleikum. Ekki ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að hækka skatta og því verður ekki sótt fé í ríkissjóð nema með stórfelldum niðurskurði á útgjöldum, sem íhaldið vill ekki fyrir kosningar segja hvar á að koma niður, eða á hverjum á að bitna. Það eina sem er víst hjá Sjálfstæðis- flokknum, þó að hann segi það ekki berum orðum, er að tekjustofnum til verkamannabústaða verði svipt burt í einu vetfangi eftir kosningar, fái hann því ráðið. • Stefna Sjálfstæðisflokksins í húsnæðismátum er sú að mola niður félagslegar íbúðabyggingar og gefa ávís- anir á að markaðskerfið muni ef til vill skila húsbyggj- endum betri lánakjörum eftir ótiltekinn fjölda ára. Stefna Sjálfstæðisflokksins í húsnæðismálum er ekki frá orðum til athafna, heldur frá orðum til orða. klippt Forkastanlega að málum staðið Þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins Páll Pétursson sagði á framboðsfundi í kjördæmi sínu nú fyrir helgina, að forkast- anlega hefði verið að málum stað- ið við samningana við Alusuisse- hringinn allt frá öndverðu. Ekki hefðu samningarnir og endur- skoðunin 1975, sem þeir Steingrímur flokksformaður og Jóhannes Seðlabankastjóri stjórnuðu, bætt úr skák. Alusuisse rœður landsmálum Páll Pétursson hafði meir að segja. - Og ég þori að fullyrða að Alusuisse ræður því sem það vill ráða um stjórnun mála í þessu landi, hefur blaðamaður eftir Páli. á fundinum á Blönduósi. Talsmenn Alþýðubandalags- ins hafa oftsinnis bent á þetta at- riði. Nú síðast þegar álflokkarnir lögðu fram tillögu sína um skipan nýrrar álviðræðunefndar sam- kvæmt gamla laginu, því lagi sem svo falskt er sungið allt frá Tíma til Morgunblaðs. Hér hljótum við að staldra við. Þingflokksformaður þess flokks, sem ákaft hefur borið blak af eldri samningum og harðast gagnrýnt málafylgju iðnaðarráð- herra og Alþýðubandalagsins tekur nú af skarið og lýsir sig sam- mála Alþýðubandalaginu í veiga- mestu atriðum þessa þjóðfrelsis- máls. Hefðu ríkisútvarpið, hljópvarp og sjónvarp, verið að fylgjast með fréttum nú um helgina, hefðu þessar stofnanir að sjálf- sögðu rokið til og sagt frá þessum tíðindum. Eða eru það ekki stór- tíðindi þegar þingflokksformað- ur Framsóknarflokksins lýsir því yfir að erlendur auðhringur geti ráðið því sem hann vill ráða hér á landi? Nú er vitað að Framsóknarf- lokkurinn á miklu fylgi að fagna á fréttastofu útvarpsins - er það skýringin á því að ekki var sagt frá sögulegri yfirlýsingu Páls Pét- urssonar í fréttum nú um helgina? Nœsti álleiðari Tímans Þórarinn Þórarinsson er snill- ingur Framsóknarmanna og sennilega sá eini meðal þeirra sem áratugum saman getur barið í brestina þegar gliðnar í pólitísku undirstöðunni. Þetta hefur Þór- arni tekist með því að vera með hernum í dag, á móti honum á morgun, Nató er varnarbandalag lýðræðisins einn daginn en illa þokkað hernaðarbandalag hinn daginn. Af þessu tilefni var einu sinni sagt að í munni ritstjórans töluðu margar tungur. Hvaða tunga tal- ar eftir yfirlýsingu Páls Péturs- sonar? Stefna Páls eða Halldórs Nú er náttúrlega þannig með bændur, að þeim hefur blöskrað málflutningur Tímans í álmálinu - og landsbyggðin veit fáa ljótari bletti á Framsókn heldur þann, að Halldór Ásgrímsson varafor- maður flokksins hafi haft for- göngu um liðssafnað meðal ál- flokkanna á alþingi. Þórarinn og Tíminn hafa átt í vök að verjast í þessu máli. Framsóknarflokkur- inn er enda klofinn í málinu. Har- aldur Ólafsson frambjóðandi í Reykjavík skrifaði um daginn, að tillaga Halldórs og félaga hafi veikt samningsstöðú íslands í glímunni við Alusuisse. Sama dag skrifaði Þórarinn, að með til- lögunni hafi Framsóknarflokkur- inn verið að skapa þjóðarr einingu! Þórður á þing Páll á Höllustöðum á í harðri baráttu heima í kjördæmi við Ing- ólf þingskörung á Hvammstanga og við Alþýðubandalagið. Vind- ar blása þannig, ekki síst vegna álmálsins og raforkuverðs, að kjörorðið er Þórður á þing, en Þórður Skúlason skipar annað sæti á lista Alþýðubandalagsins í Norðurlandi vestra. Páll telur sig sjálfsagt hagnast á því að negla sig upp við Alþýðubandalagið í því stríði sem við eigum við Alusuisse-hringinn. En hvort það sé vel séð heima á bæjum Þórar- ins og Steingríms suður í Reykja- vík ellegar þá austur á fjörðum hjá Halldóri og Tómasi? Ál- flokkabandalagið er klofið út og suður. -óg Reagan og kjarnorkuvopnin firlýsingar Ronald stefnu á allt aðra skipan en þá slíkra eldflauga og gert á Morgunblaðið spyr Eins og við mátti búast hefur Morgunblaðsmönnum langað mikið til að fagna yfirlýsingum Reagans Bandaríkjaforseta um að nú sé mál komið til að vígbúast í geimnum. í leiðara blaðsins á sunnudag er því haldið fram að hér sé um heimssögulegan við- burð að ræða. En hrifningin er reyndar nokkuð málum blandin hjá leiðarahöfundi, viðbrögð við yfirlýsingum Reagans hafa verið víðast hvar neikvæðar, og blaðið vill kannski ekki að óþörfu steypa sér út í málsvarnarfen fyrir Reag- an sem erfitt væri að komast upp úr aftur. Því bregður leiðarahöfundur á það ráð, að halda öllu í spurnar- tóni. Kannski tekst Reagan að gera kjarnorkuvopn úrelt, segir þar, kannski tekst honum að friða friðarhreyfingarnar? (sem er reyndar mjög ólíklegt). Kann- ski er hann að efla trú manna á varnir á kjarnorkuöld, kannski vill hann þjarma svo að Rússum að þeir gefist upp og telji sig ekki hafa efni á því lengur að standa í vígbúnaðarkapphlaupinu? Nú eru þeir Morgunblaðsmenn ekki vanir að temja sér varfærni í staðhæfingum um leiðara og því er þessi margítrekaði spurnar- tónn nokkuð sérstæður. Hryllileg tilhugsun Samt sker Morgunblaðið sig eins og oft áður úr meðal borg- aralegra málgagna í þessu máli. Þegar Morgunblaðið setur upp undrunarsvip setja kollegarnir í næstu ríkjum upp gagnrýnissvip. Bresku blöðin eru til dæmis „full efasemda” að því er í fréttaskeyt- um segir. The Guardian segir til dæmis, að því er fréttir herma: „The Guardian ...sagði ugg- vænlegt til þess að vita að með áætlun sinni væri Reagan að leggja til framkvæmdir sem kost- uðu svimandi háar fjárupphæðir. Sovétmenn myndu auðvitað ekki láta sitt eftir liggja og koma sér upp samskonar búnaði. Allt bramboltið myndi aðeins leiða til enn stórkostlegri útgjalda til hernaðar í heiminum en fyrr. ■ „Þetta er hryllileg tilhugsun” sagði Guardian ennfremur...” -ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.