Þjóðviljinn - 29.03.1983, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 29. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
8.00 Fréttir. Veðurfregnir. Morgunorð:
Gunnlaugur Garðarsson talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Þeir kalla
mig fitubollu“ eftir Kerstin Johansson
Jóhanna Harðardóttir les þýðingu sína
(6).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl.(útdr.). „Man ég það sem löngu
leið“ Ragnheiður Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.05 fslenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
11.30 Stöðugildi innan íslensku Þjóð-
kirkjunnar Umsjónarmaður: Önundur
Björnsson. Rætt við Hrein S. Hákonar-
son og Birgi Ásgeirsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. Veðurfregnir. Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa - Páll Þorsteinsson og
Þorgeir Ástvaldsson.
14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson lýkur
lestri á 2. hluta bókarinnar (32).
15.00 Miðdegistónleikar
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. Veðurfregnir.
16.20 Lagið mitt. Helga Þ. Stephensen
kynnir óskalög barna.
17.00 Spútnik. Sitthvað úr heimi vísind-
anna. Dr. Þór Jakobsson sér um
þáttinn.
17.20 Sjóndeiidarhringurinn Umsjón:
Ólafur Torfason (RÚVAK).
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir Tilkynningar
19.50 Barna og unglingaleikrit: „Með hetj-
um og forynjum í himinhvolfinu" eftir
Maj Samzelius - 2. þáttur. (Áður útv.
1979). Þýðandi: Ásthildur Egilson.
Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir.
20.30 Kvöldtónleikar „La Folia“, - til-
brigði eftir Arcangelo Corelli, Manuel
Ponce og Sergei Rachmaninoff. Flytj-
endur: Ida Haendel og Geoffrey Pars-
ons leika á fiðlu og píanó, László
Szendrey-Karper á gítar og Vladimir
Ashkenazy á píanó. - Kynnir: Knútur
R. Magnússon.
21.40 Útvarpssagan: „Márus á Valshamri
og meistari Jón“ eftir Guðmund G. Hag-
alín Höfundur les (11).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíusálma
(48),
22.40 Attu barn? 8. og síðasti þáttur um
uppeldismál í umsjá Andrésar Ragnars-
sonar.
23.20 Skíma. Þáttur um móðurmáls-
kennslu. Umsjón: Hjálmar Árnason.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV
Þri&judagur 29. mars 1983
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Dýrin í Fagraskógi. Barnamynd frá
Tékkóslóvakíu.
20.50 Endatafl. Fjórði þáttur. Bresk-
bandarískur framhaldsflokkur gerður
eftir njósnasögunni „Smiley’s People"
eftir John le Carré. Aðalhlutverk Álec
Guinness. Efni þriðja þáttar: Fyrrum
starfsmaður Smileys, Toby Esterhase,
vísar honum á félaga Ottos Leipzigs í
Hamborg, Kretzschmar nokkurn sem
þar rekur næturklúbb. Hjá öðrum göml-
um starfsmanni, Connie, fær Smiley að
vita að Kirov sé handbendi Karla og að
Karla eigi geðsjúka dóttur sem hann láti
sér mjög annt um. í Hamborg fær Smil-
ey staðfest að myndin af Kirov og
Leipzig hafi verið tekin í næturklúbbi
Kretzschmars. Ostrakova óttast nýtt til-
ræði og lokar sig inni í íbúð sinni. Þýð-
andi Jón O. Edwald.
21.40 Að Ijúka upp ritningunum. Annar
þáttur. Rætt verður við Þóri Kr. Þórðar-
son prófessor um Gamla testamentið,
kenningar þess og sagnfræðilegt gildi og
á hvern hátt það höfði til nútímamanna.
Umsjónarmaður séra Guðmundur Þor-
steinsson. Upptöku stjórnaði Maríanna
Friðjónsdóttir.
22.05 Falklandseyjavirkið. Bresk frétta-
mynd um viðbúnað Breta á Falklands-
eyjum og viðhorf eyjarskeggja. Þýðandi
Bjarni Gunnarsson.
22.35 Dagskrárlok
Ritstjóri á hrossleggjum
M.G. skrifar:
Einn af íhaldsritstjórum DV
- og ekki sá bjartleitasti -
skrifar kyndugan leiðara í
blað sitt sl. mánudag og nefnir
„Umboðslaun ráðherra”.
Þar er marga spekina að
finna. Meðal annars þá, að
Hjörleifur hafi haldið illa á
álmálinu af því að hann hafi
ætlað að beita því til fram-
dráttar flokki sínum í kosning-
unum. Enginn nema þá þessi
brúsaskeggur botnar í því
hvernig það mætti verða Ál-
þýðubandalaginu til álitsauka
að iðnaðarráðherra héldi illa
á málstað íslendinga í
viðræðum við álkóngana.
Ætli hitt sé ekki sönnu nær,
sem opinskár og áberandi
stjórnmálamaður lét blað sitt
hafa eftir sér, að koma yrði í
veg fyrir það með einhverju
móti, að iðnaðarráðherra
tækist að halda þannig á þess-
um samningamálum að hann
og flokkur hans hefði sóma af.
Þá var þó frekar tilvinnandi.
að semja af sér. Dagblaðsrit-
stjórinn hefur nú gerst spor-
göngumaður þessara háleitu
hugsjóna og má raunar sjálfur
best vita hvaða hlutverk hon-
um hæfir.
Ritstjórinn talar um að
iðnaðarráðherra sé „umboðs-
laus”. Hver hefur svipt hann
umboðinu? Kannski þessi
DV-ritstjóri? Svo mikið er
a.m.k. víst, að aðrir hafa ekki
gert það.
Það hefur frá upphafi legið
ljóst fyrir að unnt var að ná
samningum við álmenn, -
með einu skilyrði: því, að
leggjast hundflatur, eins og
ritstjórinn.
Þjóðin er ekki á nástrái
meðan hún á slíka „samninga-
menn”.
barnahorn
Krakkar úr Snælandsskóla í Kópavogi:
Teikna fyrir
Barnahornið
Nú ætlum við í Barnahorninu að brydda upp á nýbreytni og fá
krakka úr skólum til að sjá um Barnahornið nokkra daga í senn.
Krakkarnir úr 7 GE í Snælandsskóla í Kópavogi leggja okkur til
efni sem við birtum næstu daga í Barnahorninu. Síðar er ætlunin að
fá fleiri bekki úr öðrum skólum til að leggja okkur til efni.
Og hér kemur fyrsta sagan.
t
. !•
Við förum í bíltúr öll saman og við kaupum stundum ís.
Fjölskyldan mín
eftir Elísabetu
í-i
00
Ég og Gylfi erum góðir vinir og við förum stundum í
fótbolta.
Ég var úti að leika mér og svo var kallað á mig. Ég átti að
fara að borða.
11
Við horfum á sjónvarpið öll saman og svo förum við að
sofa.