Þjóðviljinn - 29.03.1983, Qupperneq 11
Þriðjudagur 29. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
' ■■«■■■■ ■;■■■ — ■■■ N ■■■■■
Auðveldur
Það fór eins og margan hafði
grunað að Harry Kasparov náði að
sigra ianda sinn Alexander Beljav-
skí í einvíginu þeirra sem lauk í
Moskvu um síðustu helgi. Lokanið-
urstaðan, 6:3, segir þó e.t.v. ekki
svo mikið um gang mála, því lengi
vel virtist tvísýnt um úrslit, einkum
þó þegar Beljavskí náði að jafna
metin í einvíginu með glaesilegum
sigri í 4. skák. Hvorugur þeirra er
hagvanur í einvígjum, og í fyrstu
skákunum var teflt af miklum
kröftum og allt lagt í sölurnar.
Frá byrjanatræðilegu sjónarmiði
stóð Kasparov greinilega mun
framar. Strax í 2. einvígisskák kom
hann andstæðingi sínum í opna
skjöldu og var kominn með yfir-
burðastöðu eftir um 20 leiki. Með
hvítu hélt hann öflugu frumkvæði í
öilum skákunum ef 6ta skák er
undanskilin. Beljavskí virtist bera
sig undarlega að í svari sínu við
drottningarpeðsbyrjunum Kaspar-
ovs. Þá hefði hann betur leikið
kóngspeði í 1. leik með hvítu, en
það hefur gefið honum góða raun í
seinni tíð. Vissulega er alltaf hægt
að vera gáfaður eftir á. en undir-
búningsvinna er afar mikilvæg í
einvígjum, og Kasparov stóð betur
að sinni heimavinnu en andstæð-
ingurinn. Hér í blaöinu hafa birst
nær allar skákir í þessu einvígi og
við klykkjum út með 9, einvígis-
skákinm, en t henni virtist Beljav-
skí alveg heillum horfinn. Fálm-
kenndar vinningstilraunir hans
reyndust haldlitlar og Kasparov
jók á yfirburði sína jafnt og þétt.
Áður en við hefjumst handa með
skákina skulum við líta á niðustöð-
ur einvígisins:
Kasparov:
'h I 'h 0 'h 'h I 1=6
Beljavskí:
'h 0 ‘h 1 0 'h 'h 0 0 =3
9. einvígisskák:
Hvltt: Harry Kasparov
Svart: Alexander BHjavskí
Benoni vörn
1. d4 Rf6
2. RI3
77/ afsökunar
Vegna mistaka í prentsmiðju
fór rangur texti inn með skák-
grein í síðasta sunnudagsblaði.
Greinin var tvískipt og vegna
þrengsla í blaðinu var brugðið á
það ráð að kippa annarri grein
af tveimur út. Svo illa vildi til að
greinunum tveimur var moðað
saman. Til þess að bæta um bet-
ur birtast báðar greinarnar nú
og ætti það að leiðrétta mistökin
að nokkru.
Helgi Ólafsson
skrifar um
(Kasparov vill forðast Benkö-
bragðið sem kemur upp eftir 2. c4
c5 3. d5 b5, en því beitir Beljavskí
þegar mikið liggur við. Gott dæmi
er að finna í síðustu umferð milli-
svæðamótsins í Movsku í haust
þegar hann sigraði Rúmenann
Gheorghiu í afar mikilvægri
skák.).
2. .. c5
3. d5 d6
(E.t.v. vonast svartur eftir 4. c4 b5
en með textaleiknum gefur hann
hvítum kost á að fara yfir í afbrigði
sem löngum hefur verið talið held-
ur óhagstætt svörtum.)
4. Rc3! g6
5. e4 Bg7
6. Bb5 Bd7
7. a4 9-0
(Hvítur svarar 7. - Bxb5 með 8.
axb5! A-línan opnast hvítum í
hag.)
8. 0-0 Ra6
9. Hel Rb4
10. h3 c6
(Beljavskí hugsaði sig í 39 mínútur
um þennan sjálfsagða leik. Svartur
leitast yið að opna taflið, en gallinn
er sá að sú opnun er hvítum síst á
móti skapi.)
Jón L. Árnason: hlaut 7 vinniuga af j 15 mögulegum
sigur
11. Bf4e5
Kasparovs
Harry Kasparov. Mætir sigurvegaranum úr einvígi Kortsnojs og Portisch.
12. Bg5 Bc8
13. Rd2 h6
14. Bh4 g5?!
(Þessar aðgerðir svarts á kóngs-
væng orka einungis sem á myllu-
hjól hvíts. En eitthvað varð Beljav-
skí að reyna. Jafntefli jafngilti
tapi.)
15. Bg3 g4?
(Reynandi var 15. -h5. Hvítur nær
nú yfirburðastöðu.)
16. hxg4 Rxg4
17. 13 Rf6
18. Bh4!
(Markvisst teflt. Hvítur gætir þess
að riddarinn fari ekki til h5 og
undirbýr jafnframt að ná tökum á
f5-reitnum.)
18. .. Kh8
19. Re2 Hg8
20. c3 Ra6
21. Rg3 Df8
22. Rdfl Rh7
23. Re3!
(Hvítur hefur alla þræði í hendi sér.
Aðgerðir svarts á kóngsvæng hafá
skilið eftir fjölmarga veikleika í ná-
munda við kónginn og f næstu
leikjum herjar hvítur á þá veik-
leika.)
23. .. Bf6
24. Bxfö+ Rxf6
25. Rgf5 Rh5
26. Kf2Rf4
27. g3 Rh3+
28. Ke2 BxfS
29. Rxf5
(Stöðumyndin segir skýra sögu.
Hvítur undirbýr að ryðjast með
hróka sína eftir h-iínunni og stefna
niðrá veikleikann á hó. Við því á
svartur enga vörn. Næsti leikur
hans kom eftir minna en mínútu
umhugsun sem í raun þýðir að
svartur er búinn að gefast upp.)
29. .. Hxg3
(Staðan er töpuð og hróksfórnin
breytirengu þar um. Beljavski hef-
ur e.t.v. gert sér vonir um að slá
ryki í augu andstæðingsins með
þessum leik enþað er aö sjálfsögðu
borin von ).
30. Rxg3 Dg7
31. Hgl Hg8
32. Dd2
- og hér lagði Beljavskí niður
vopnin. Staða hans er gjörsamlega
vonlaus.
Tal og Vaganian
efstir í Tallinn
Um líkt leyti og einvígi Kasparovs
og Beljavskí stóð, fór fram á höfuð-
borg Eistlands. Tallinn, hið árlega
minningarmót Paul Keres sem enn
þann dag í dag rís upp sem ein
mesta hetja þeirra Eistlendinga.
Keres var dáður bæði sem skák-
maður og einstaklingur, og þegar
hann lést á sviplegan hátt árið 1975
varð þjóðarsorg í Eistlandi. Keres
var þá nýbúinn að vinna sterkt
skákmót í Tallinn fyrir ofan Spas-
skí og Friðrik Ólafsson og var rétt
nýkominn frá móti f Kanada þegar
hann hné niður örendur á flugstöð í
Finnlandi.
Mótið í Tallinn í ár var að venju
vel skipað og berí hópi keppenda
fyrst að nefna tvo fyrrum
heimsmeistara, Tigran Petrosjan
og Mikhael Tal. íslendingar áttu
sinn fulltrúa á mótinu; Jón L. Árn-
ason tefldi og stóð sig vel, sérstak-
lega þó ef miðað er við að jafnan er
erfitt fyrir útlendinga að tefla í So-
vét. Hann hlaut 7 vinninga af 15
mögulegum og hafnaði í 10.-11.
sæti. Sigurvegarar urðu þeir Tal og
Vaganian. A meðfylgjandi töflu
geta menn greint úrslit. Tigran
Petrosjan var taplaus rétt eina
ferðina, en jafnteflin voru alltóf
mörg. I seinni tíð hefur hans eini
metnaður falist í því að tefla án taps
í mótum, tekst það oft en fagnar þó
sjaldan háu sæti.
Hér kemur ein af þrem vinnings-
skákum Jóns. Andstæðingur hans
er ungur og bráðefnilegur skák-
maður, Oll að nafni, en við hann
binda Sovétmenn miklar vonir.
Hann hafnaði í 7. sæti með 8 vinn-
inga og var lengi í fremstu röð:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart Oll (Sovétríkin)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6
6. Bg5 Bd7
7. Be2 Da5
8. Bxf6 gxf6
9. f4 e6
10. Rb3 Db6
11. Dd3 h5
(Til að fyrirbyggja möguleikann
12. Bh5 o.s.frv.)
12. 0-0-0 0-0-0
13. Kbl
(Byrjun hvíts lætur ekki mikið yfir
sér, en er þó ekki með öllu bitlaus.
Þannig getur þýstingur á e6-peðið
valdið svörtum verulegum vand-
ræðum.) 1S Dh3! h4
13. .. Kb8
14. Hhfl Be7
(Svartur bregst við á þann hátt sem
eðlilegastur hlýtur að teljast. Gall-
inn er sá að hvítur nær þegar í stað
yfirburðastöðu, svo eitthvað er
bogið við uppbyggingu svarta tafls-
ins. En hvar ber að leita skýring-
anna? Kannski gat svartur varið
13. og 14. leik sínum betur.)
16. Bg4
(Svartur á í raun ekkert svar við hótun
hvíts: 17. f5 o.s.frv.)
16. .. Hdg8
17. f5 Re5 19. exd7 Hhg8
18. fxe6 Hxg4 20. Rd5
(Þá má mikið vera ef hvíta staðan
er ekki þegar unnin. Jón fylgir
öflugu frumkvæði sínu eftir af
miklum krafti.)
20. .. Dd8 22. Rf5!
21. Re3! Hxc4
abcdefgh
(Óþægilegur leikur. Svartur má
alls ekki leika 22. - Dxd7 vegna 23.
Rc5! o.s.frv.)
22. .. He2 24. Rg3!
23. Rbd4 Hexg2
(Vinnur skiptamun. Úrvinnslan er
tæknilegt atriði eitt.)
24. .. Hxh2
25. Dxh2 hxg3
26. Dh3 f5
27. Dxf5 Hg5
28. Dh3 Rc4
29. Hgl Db6
30. Rb3 Re3
31. Hdel Rf5
32. Hgfl g2
33. Hgl
(G-peðið gerir ekki meiri usla.)
33. Dd8
34. Hxg2 Hxg2
35. Dxg2 Dxd7
(Loksins féll peðið, en það er dýru
verði keypt...)
36. Dh3!
- Svartur gafst up.