Þjóðviljinn - 23.04.1983, Qupperneq 3
Hetgin 23. - 24. apríl 1983 ÞJÓÐVÍLJINN -'SÍÐA 3
HEIMILD TIL AÐ FJÖLGA
KJÖRDÖGUM í DREIFBÝLI
Öllu skiptir að Guðrún Helgadóttir nái kjördæmakosningu, annars kann
illa að fara
Gulltr y ggj um
Guðrúnu á þing
Það er útbreiddur misskilningur,
sem notaður hefur verið í áróðurs-
skyni af andstæðingum Alþýðu-
bandalagsins, að Guðrún Helga-
dóttir, 3. maður G-listans í Reykja-
vík, sé örugg um þingsæti þó að
Alþýðubandalagið fái aðeins tvo
menn kjörna í Reykjavík. For-
senda þess að Guðrún Helgadóttir
haldi sæti sínu á þingi er að hún nái
kjördæmakosningu, því að í upp-
bótarkerfinu getur allt skeð og
dreifing atkvæða er nú meiri vegna
fleiri lista. Alþýðubandalagið fékk
aðeins einn uppbótarmann í síð-
ustu alþingiskosningum og það
gæti allt eins orðið í Reykjanesi eða
annarsstaðar. Þeir Reykvíkingar
sem vilja efla hlut kvenna á Alþingi
og vilja styðja Guðrúnu Helgadótt-
ur til setu á þingi ættu að hugleiða
vel þessa stöðu, áður en gengið er
að kjörborðinu. G-listinn í Reykja-
vík berst fyrir því að halda fjórum
alþingismönnum, en dreifist at-
kvæði um of gæti svo slysalega farið
að Guðrún Helgadóttir félli af
áðurnefndum ástæðum. Látum
það ekki henda.
- ekh
Kvennalistinn og Framsókn:
Vísuðu friðar-
sinnum úr húsum
Herstöðvaandstæðingar hafa
dreift í hús fjórblöðungi þar sem
uplýst er um nýjustuhernaðará-
form risaveldanna og þá síauknu
hættu sem stafar af vígbúnaðar-
kapphlaupinu. Þá hafa þeir verið
ötulir við að dreifa blaðinu á hinum
ýmsu fundum, sem haldnir hafa
verið vegna kosningabaráttunnar
eða í tengslum við hana. Ekki er
vitað til annars en að þessum upp-
lýsingum hafi verið vel tekið.
Nema á tveimur fundum: fundi
Kvennalistans í Reykjavík, sem
haldinn var í Gerðubergi á sumar-
daginn fyrsta, og á fundi Fram-
sóknarflokksins, sem haldinn var í
Háskólabíói sama dag. Þar var
fólki vísað út af báðum stöðum -
þessi upplýsingamiðlun var talin
óæskileg.
ast
Crikkland - vagga vestrænnar
menningar, vettvangur fornra hetiu-
dáöa, - land sólar, hreinleika og
drifhvítrar strandar. Samvinnuferöir-
Landsýn efnir ein íslenskra ferða-
skrifstofa til skipulegra hópferöa til
þessarar notalegu sumarleyfis-
paradísar og býöur frábæra gististaði,
vandaöar skoöunarferöir og trausta
þjónustu á veröi sem allir ráöa viö.
Gististaöir okkar eru tveir; Hótel Margi
House og íbúðir í Whlte House, báöir
á voullagmenl-ströncltnnl og fyrsta
flokks hvaö aðbúnað og þjónustu
varöar.
Delfi og Aþena
eru að sjálfsögöu meðal áfangastaða í
fjölbreyttum skoðunarferðum. Við
heimsækjum einnig Argolis, Plaka-
hverfiö og hafnarbæinn Piraeus,
skellum okkur í stuttar feröir víös
vegar um nágrenniö og efnum til
grísaveislu úti í sveit, - en fyrst og
fremst njótum viö þess aö eyða
áhyggjulausu sumarleyfi í sól og
sumarvl við blátært Eyjahafiö.
Ferðin framiengd í Amsterdam
Nú getur þú framlengt Crikklandsferöina
meö aukavöld í Amsterdam. Pú greiðir
hótelkostnað í íslenskum peningum fyrir
brottför og við sjáum um aö panta hótelið.
Annar kostnaöur fylgir ekki framlengingunni!
verðið kemur á óvart samningar hagstæöir og
•xsaas(æss&T-~~
5!gSSKS:KS KSS'.',SS» 6»
White House, 3 i 2ja neru.iuu
- og enn lækkar verðið
Frá þessu verði á nefnilega eftir aö draga
aðildarfélagsafslátt sem aðildarfélagar og
fjölskyldur þeirra njóta til tll 1. maí og 2.500
kr. barnaafslátt aö ógleymdum 5%
staðgreiðsluafslættl sem þú tryggir þér
með því aö greiða ferðina að fullu a.m.k.
tveimur vikum fyrir brottför.
Þannig geta farþegar okkar fengið afslátt
sem nemurháttífjórðungi af verölistaverði
og munar sannarlega um minna!
Sjáumst í góðri Grikklandsferð!
Verð mlðað vlð flug oo gengl 5.1. '83..
Samvinnuferdir -Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Bráðabirgðalög sett í gær
Ekki útilokað að
kosningu ljúki í dag
í gærkvöldi voru gefin út bráða-
birgðalög um heimild til fjölgunar
kjördaga. Þar segir að alþingis-
kosningarnar skuli fara fram 23. og
24. apríl. Þó skal kosningu í þeim
kjördeildum sem eru takmarkaðar
við kaupstaði eða kauptún, vera
lokið á laugardegi.
Þá er í lögunum heimild til að
ljúka kosningu, loka kjördeildum,
hafi meir en 80% kjósenda kosið
og kjörstjórn á viðkomandi stað er
einróma samþykk ákvörðuninni.
Enn fremur er heimildaákvæði í
lögunum um að framlengja megi
kjörfundi eftir helgina.
Dómsmálaráðherra sagði í gær,
að veðurútlit væri svo ótryggt um
helgina að ekki hefði þótt hættandi
á annað en gefa út bráðabirgðalög.
Hins vegar taldi hann ekki útilokað
að tækist að ljúka kjörfundum í dag
laugardag einsog fyrirhugað hafði
verið. Ekki er hægt að hefja taln-
ingu fyrr en kosningu er alls staðar
lokið. Dómsmálaráðherra hvatti
kjósendur til að kjósa sem allra
fyrst í dag. Það skal ítrekað að í
Reykjavík og öðrum kaupstöðum
og kauptúnum þarsem veður haml-
ar ekki kjörsókn er kjördagur
aðeins einn - á laugardag.
-óg
Fyrsta brottför26. apríl