Þjóðviljinn - 23.04.1983, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 23.04.1983, Qupperneq 22
22 SÍÐA r ÞJÓDyiWI^N He^in ,23,. - 24. apríl 19>^3 um helgina Þórður Hall í kjallara Norræna hússins: Sýnir 40 olíu- málverk ogll teikningar Fyrir skömmu opnaði Þórður Hall myndlistarmaður sýningu í Þórður Hall myndlistarmaður við eitt verka sinna á sýnmgunni í kjallara Norræna hússins. Ljósm. Atli. kjallara Norræna hússins í Reykjavík. Þar sýnir hann 40 olí- umálverk og 11 teikningar. Sýn- ingin stendur til 1. maí n.k. og er opin alla daga frá kl. 14 - 22. All- góð aðsókn hefur verið að sýn- ingu Þórðar og hafa margar myndir selst. Samtvinnuð leik- sýning og jazz- tónleikar á Hótel Borg: Neðan- jarðar- lestin Á mánudaginn verður frum- flutt á Hótel Borg samtvinnuð leiksýning og jasstónleikar og standa Alþýðuleikhúsið og Tísk- uljónin (Quartetto di jazz) að sýningunni. Leikritið sem flutt verður heitir Neðanjarðarlestin og er það eftir Imamu Amiri Ba- raka en þýðinguna gerði Þorgeir Þorgeirsson. Lárus Ymir Óskars- son leikstýrir en leikendur eru tveir, þeir Sigurður Skúlason og Guðrún Gísladóttir. Lárus Ýmir sagði í viðtali við blaðamann Þjóðviljans að Ba- raka væri svartur Bandaríkja- maður sem hét áður en hann tók sér þetta nafn Leroy Jones. l lann er félagi í Svörtu hlébörðunum og fjallar um kynþáttamálið af mikilli hörku í þessu verki. Neðanjarðarlestin er eitt þekkt- Sigurður Skúlason og Guðrún Gísladóttir í hlutverkum sínum í Neðanjarðarlestinni. Ljósm.teik asta verk hans og það var flutt í ríkisútvarpinu fyrir 12 árum en Þorgeir hefur nú gert nýja þýð- ingu af því. Imamu Amiri Baraka er einnig þekktur sem Ijóðskáld og hefur skrifað mikið um jazz. Neðanjarðarlestin lýsir blíöum og stríðum fundi svertingja og hvítrar konu í lest í iðrum Néw York borgar. Hún er skvísa í karlastússi en hann er miðstéttar- svertingi sem er að reyna að verða Ijóðskáld. Auk þess að vera manneskjur eru þau fulltrú- ar t'yrir tvo þjóðfélagshópa: hvítra manna og Tom frænda- gerðina af svertingjum. Þetta er hressilegt verk og í íokin fer gam- anið að kárna. Jazzinn í verkinu verður leikinn fyrir, eftir og í sýningunni og geta sýningargestir fengið framreiddar veitingar. Jazzflokk- urinn Tískuljónin er sérstaklega stofnaður fyrir þessa sýningu og skipa hann Tómas R. Einarsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Þor- leifur Gíslason og Steingrímur Óli Sigurðsson. Leikmynd Neðanjarðarlestar- innar gerði Þór Elís Pálsson. - GFr. Islenska óperan Leikför um Norður- land Islenska óperan leggur af stað í leikför/söngför um Norðurland sunnudaginn 24. apríl með barn- aóperuna „Búum til óperu“ eða „Litla sótarann" eftir Benjamin Britten. Fyrsta sýning verður á Blöndu- ósi mánudaginn 25.04. kl. 14.00, síðan verður sýnt á Akureyri á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag kl. 15.00 ogkl. 18.00 alla dagana og loks í Hafralækjar- skóla á föstudag kl. 15.00 og kl. 18.00. Alls taka 30 manns þátt í för- inni, þar af 12 börn. Gerðuberg__________ Gítar- tónleikar Sunnudaginn 24. apríl kl. 17(X) halda Símon ívarsson og Arnald- ur Arnarsson gítarleikarar tón- .eika f menningarmiðstöðinni v/ Gerðuberg. Þeir félagar munu leika Vínarklassík eftir Haydn, tónlist eftir Albéniz, Ponce og fl. Mozart, Sor og suðurameríska Eins og áður sagði hefjast tón- leikarnir kl. 17IM) - sunnudaginn 24. apríl. Símon ívarsson og Arnaldur Arnarsson verða með gítartónleika í Menningarmiðstöðinni við Gerðurberg á morgun kl. 17.00 Myncfiist Gallerí Austurstrætl 8 Myndlistarmaöurinn Haukur Friöþjófs- son opnar sýningu á verkum sínum í Gallerí Lækjartorgi 8 um helgina og stendur hún í 2 vikur. Haukur hefur stundaö nám viö Myndlista- og handíöa- skóla Islands og hefur tekiö þátt í nokkr- um samsýningum. Nú sýnir hann 2o máluö myndverk. Háhóll í Hafnarfirði I dag, laugardag, opnar Ástríður Andersen málverkasýningu í sýningar- salnum Háhól, Dalshrauní 9B Hafnar- firöi. Á sýningunni eru 93 olíumyndir og acryl. Ástríður stundaöi myndlistarnám i Skandinavíu, aðallega Noregi, en þar bjó hún I fimm ár. Ástríður hefur áöur haldið tvær einkasýningar i Washington DC og samsýningu þar í borg. Bókasafn Isafjarðar Sýning Valgerðar Bergsdóttur sem opnaöi um síðustu helgi stendur yfir. Á sýningunni eru 16 verk sem unnin eru á þessu og síðasta ári. Fríkirkjuvegur 11 Sýning Ketils Larsen stendur yfir aö Fríkirkjuvegi 11. Þar sýnir Ketill 45 myndir ýmist málaðar í oliu eöa akryl- litum. Gallerí Lækjartorg Samsýning fjölda listamanna á vegum SATT stendur yfir i Galleríinu og endar 1. maí næstkomandi. Helmingur and- viröis seldra miöa rennur í húsbygging- arsjóð SATT. Hamraborg 12, Kópavogi Þór Magnússon sýnir olíumálverk og teikningar út aprilmánuö. Fyrsta sýning Þórs sem er V-íslendingur. Skálinn Hafnarfirði Sigrún Guöjónsdóttir og Sigurður Örn Brynjólfsson eru meö samsýningu í húsnæði Alþýðubandalagsins í Hafnar- firði. Skálanum, Strandgötu 1. Sigurður Örn sýnir teikningar, en Sigrún keramik- lágmyndir. Opiö veröur til 1. maí. I dag, 23. apríl er sýningin opin frá 10-22 og kaffiveitingar á staðnum. Tónlist Menningarmiðstöðin vlð Gerðuberg Á sunnudagskvöldiö halda þeir Símon ívarsson og Arnaldur Arnarson gítarl- eikarar tónleika í menningarmiöstöðinni við Gerðuberg. Hefjast tónleikarnir kl. 17. Þeir félagar munu leika Vínarklassík eftir Haydn, Mozart, Sor og suður- ameríska tónlist eftir Albéniz, Ponce og fleiri. Háskólabíó Tónlistarskólinn i Reykjavík og Sinfóníu- hljómsveit íslands halda tónleika í Há- skólabíói í dag, laugardag, og hefjast þeir kl. 15. Á efnisskránni eru þrír af þekktustu fiölukonsertum tónbókmennt- anna eftir Mendelsohn í e-moll, 2. fiölu- konsert Wienawski og Bruch- fiölukonsertinn. Einleikarar meö sinfóní- uhljómsveitinni verða Auður Haf- steinsdóttir, Gréta Guðnadóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir og eru þessir tónleikar hluti af einleikaraþrófi þeirra frá skólanum. Háskólabíó í dag kl. 15.00: Sinfóníu- tónleikar Tónlistarskólinn í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit íslands halda tónleika í Háskólabíói í dag, laugardaginn 23. apríl kl. 15. Á efnisskránni eru þrír af þekkt- ustu fiðlukonsertum tónbók- menntanna, fiðlukonsert Mend- elsohns í e-moll, 2. fiðlukonsert Wieniawski í d-moll og Bruch fiðlukonsertinn í g-moll. Einleikarar með sinfóníu- hljómsveitinni eru þrjár ungar stúlkur, Auður Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, en þær eru allar nemendur í Tónlistarskólanum í Loka- prófs- tónleikar í dag í dag, laugardag 23. apríl þreytir Kristinn H. Árnason gít- Hótel Borg Næsta mánudag þann 25. aprll verður tvinnað saman jazzhljómleikum og leiksýningu aö Hótel Borg. Þeir sem aö þessari sýningu standa eru Alþýðuleik- húsiö og Tískuljónin - Quartetto di jazz. Leikritiö sem flutt veröur heitir Neðanj- arðarlestin og er það eftir Imamu Amiri Baraka. Þýðinguna gerði Þorgeir Þorg- eirsson. Leikendur eru tveir, Guðrún Gísladóttir og Sigurður Skulason. Lýsir leikurinn fundi hvítrar konu og svertingja í New York. Jassflokkurinn Tískuljónin er skipaður þeim Tómasi Einarssyni, Sveinbirni I. Baldvins- syni, Þorleifi Gislasyni og Steingrími Óla Sigurðssyni. Naustið Á mánudagskvöldið næsta mun veiting- ahúsið Naustið í Reykjavik standa fyrir jasstónleikum. Þar koma fram kvartett Kristjáns Magnússonar, hljómsveitin b5 (Flot five) og jassgítarband tónlistar- skóla F(H. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00. Kvikmyndir Hótel Loftleiðir SÁK, samtök áhugamanna um kvik- myndagerð halda sina 5. kvikmyndahá- tíö aö Hótel Loftleiöum í dag, laugardag, og hefst hún kl. 14. Þetta er einskonar samkeppnishátíð þvi valdar verða bestu myndir hátíöarinnar. Hans Petersen hef- ur gefið verölaun. Veröa bestu myndirn- ar sýndar að Hótel Loftleiðum í dag, jafn- framt þvi sem verðlaun veröa afhent. MÍR-salurinn Á morgun, sunnudag, verður kvikmynd- inTrúnaðursemerfráárinu 1977sýnd i MlR-salnum, Lindargötu 48. Myndin er afurð finnskra og sovéskra kvikmynda- gerðarmanna. Leikstjóri er Viktor Tregú- bovitsj. Myndin greinir frá atburðum sem gerðust í lok ársins 1917, þ.e. þegar Okt- óberbyltingin var afstaöin og völdum höföu náð Lenin og samstarfsmenn hans. Áður en sýning myndarinnar hefst mun Mikhael Dedjurín flytja ávarp. Leiklist Þjóðleikhúsið Lína langsokkur verður sýnd tvisvar um þessa helgi. Kl. 12 á laugardag (ath. breyttan sýningartíma) og á sunnudag kl. 15, en það verður 45. sýning á þessu vinsæla leikriti sem um 24 þúsund manns hafa séð. Jómfrú Ragnheiöur eftir Guðmund Kamban, verður á sunnudagskvöld kl. 20, síðasta sýning. . Súkkulaði handa Silju eftir Nínu Ðjörk Árnadóttur sem gengið hefur á Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu verður sýnt á sunnudagskvöldið kl. 20.30. Grasmaðkur Birgis Sigurðssonar verð- ur sýndur í kvöld, laugardagskvöld kl. 20. Þetta er fimmta sýning á verkinu. Spennandi verk, nærgöngult, og grimmt sem gerist á heimili I Reykjavík okkar daga hjá „venjulegu" fólki. Leikfélag Reykjavikur I kvöld, laugardagskvöld, verður sýning á Skilnaði Kjartans Ragnarssonar. Sýn- ingum á leikritinu fer nú að fækka. Guðrún eftir Þórunni Sigurðardóttur verður sýnd á sunnudagskvöld kl. 20.30. Þetta er 11. sýning á verkinu. Greta Guðnadóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Auður Haf- steinsdóttir. Reykjavík. Þessir tónleikar eru hluti af einleikaraprófi þeirra frá skólanum núna í vor. Tónleikarnir í Háskólabíói á laugardaginn hefjast kl. 15. Að- gangur er ókeypis og öllum heim- ill. arleikari lokaprófstónleika sína frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Kristinn er Reykvíkingur, fæddur árið 1963. 10 ára gamall hóf hann gítarnám hjá Gunnari H. Jónssyni við Tón- skólann en kennari hans síðar varð Joseph Ka Cheung Fung. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Mundarra, Bach, Sor og Martin. Tónleikarnir verða að Kjar- valsstöðum og hefjast kl. 18, - allir eru velkomnir á tónleikana.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.