Þjóðviljinn - 23.04.1983, Page 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23. - 24. apríl 1983
Skjöldur Eiríksson:
Falsspámenn boöa frelsi
Nýjar skoðanakannanir boða
stórsigur Sjálfstæðisflokksins í
væntanlegum Alþingiskosningum
23. apríl n.k. Ótrúlegt en satt. Og
hver er svo hinn sigurstranglegi
boðskapur leiðandi afla þessa
flokks? Jú, hann er þessi helstur:
Markaðslögmál mammonskunnar,
sem þeir kalla frelsi. Mammon,
drottinn „Leiftursóknarmanna" er
vel þekktur í Nýja testamentinu
(og raunar í allri mannkynssögu)
sem tákn hins illa. Kristur og hans
fylgjendur snerust af alefli gegn
honum bæði í orði og athöfn. Þrátt
fyrir þessa staðreynd þykjast
„Leiftursóknarmenn“ vilja efla
kristilegt siðgæði og hugarfar með-
al landsjns barna. Rangtúlkun hug-
mynda og hugtaka eru þessara
manna ær og kýr, enda þjónar slíkt
markaðri stefnu þeirra. Blekkinga-
iðja Morgunblaðsins og Svart-
hausa D V er það fóðurkál sem gef-
ið er á jötu langstærsta hluta
blaðalesenda á íslandi, með til-
heyrandi árangri, að því er virðist.
Hvar er nú öll menntunin og
andlegur þroski okkar þjóðar, ef
stór hluti hennar lætur blekkjast til
fylgis við trúarsöfnuð Mammons,
sem einblínir á ofsagróða fárra á
kostnað hinna mörgu? Er það
þetta sem að koma skal?
Skólakerfi okkar skal að þeirra
mati þjóna undir hagsmuni auð-
hyggjunnar. Óhagnýtt nám nefna
„Leiftursóknarmenn" þær náms-
brautir er efla vilja, andlegan
þroska, jafnrétti í mannlegum
Mcnnirnir sem að eigin sögn hafa
skiptum og samhjálp hinna betur
megandi við þá veiku og vanmátt-
ugu.
I utanríkismálum boða þessir
frelsispostular eilífa hersetu amer-
ísks hers, með tilheyrandi auknum
hernaðarframkvæmdum í þágu
aldrei svikið.
gereyðingarstefnu bandarískra
hernaðarbrjálæðinga. Að sjálf-
sögðu standa þeir fremstir í flokki,
sem talsmenn Kúrekans í Hvíta
húsinu, um nauðsyn meðaldrægra
gereyðingarvopna í Evrópu-
löndum Nató. Markmið Reagans
er nokkuð Ijóst. Gjöreyðing Evr-
ópu allrar ásamt með nokkru af
Asíu og Afríku, mundi tryggja
hinn „ameríska draum" um banda-
rísk heimsyfirráð, þar sem sam-
keppnislönd bandarísks stórkapí-
talisma yrðu útþurrkuð um langan
tíma. Nifteindasprengjan þjónar
ágætlega þessum áformum, þar
sem hún útþurrkaði allt mannlíf en
skildi hins vegar eftir mammonsk
verðmæti óskemmd. Kannski
„Leiftursóknarmenn" verði land-
nemar. í lífvana Evrópu austan
Monroelínunnar. Hver veit?
Nú er það mála sannast, að sitt-
hvað er draumur og veruleiki, og
sru draumar Bandaríkjaforseta
þar engin undantekning. Það gerð-
ist sem sé að Andropoff, hæst-
ráðandi til sjós og lands austan
Járntjalds, sendi til elskulegs kol-
lega vestan Tjaldsins kveðju guðs
og sína. Var efni hennar á þann
^eg, að skeytum leiguliða hans
aerradóms í Washington yrði svar-
ið beint til leigusala og því skeyti
nyndu fylgja nokkur stykki vetnis-
iprengja til valinna staða í „Guðs
:igin landi“. Við þetta bættist svo
rað að verkþrælar leiguliða voru
neð uppsteit út af skeytasöfnun
eiguliða í þágu leigusala.
Bandaríkjaforseti veit að sitt-
hvað er að senda vetnissprengju
eða að veita henni viðtöku. Fáir
Bandaríkjamenn vilja vera í mót-
tökunefnd þar sem helsprengjuna
ber að garði. Evrópubúum var ætl-
að að taka á móti þessum gesti, en
ekki guðseigin þjóð. Þaðvarlóðið.
Bandaríkjaforseti hefur nú fengið
nokkuð nýtt um að hugsa og von-
andi leiðir það til þess að hel-
sprengjuhugsjónir hætti að ten-
gjast veruleikanum.
Hringavaldið
En snúum okkur nú aftur að
stefnumörkun forustu Sjálfstæðis-
flokksins og tökum næst stefnuna í
atvinnu- og efnahagsmálum.
Virkja skal alla virkjanlega vatns-
orku, umfram eðlilegar neysluþ-
arfir nú í dag, í þágu erlendrar
mengunarstóriðju. (Framtfðin á
ekki að eiga þess kost að velja ög
hafna, bara borga brúsann). Fram-
leiðslugreinar þessara tegunda
málmiðju áls, járnblendis og kísil-
járns - eru í verulegum mæli
blóðgjafar vopnaiðnaðar sem
kunnugt er. Allar eru nefndar
greinar á vegum alþjóðlegra
auðhringa, sem bæði ráða markaði
og öflun hráefnis. Skiptir því engu
máli hvort við íslendingar erum
eignaraðilar að slíkum fyrirtækjum
eðaekki. í þvíefni lútum við forsjá
hrings eða hringja. Að vísu getum
við valið á milli þeirra, það er allt
og sumt. Um sjálfstæð íslensk fyrir-
tæki er ekki að ræða. Þau eru fyrir-
fram dauðadæmd í samkeppninni
við hringavaldið.
Við eigum m.ö.o. að mati
„Frjálshyggjumanna“ að láta er-
lenda auðhringa móta atvinnuþró-
un á fslandi um lartga framtíð sam-
fara þeirri andlegu auðn sem slíkir
vinnustaðir bjóða uppá. Við sjáum
áhrifavald það, sem ein erlend ál-
verksmiðja hefur haft á óhugnan-
lega stóran hóp pólitískra valdhafa
hér á landi. Þótt ég sé mjög and-
stæður stóriðjustefnu Hjörleifs
Guttormssonar þá breytir það
engu um það að í Ál-málinu svo-
nefnda hefur hann staðið sig svo
vel, að til stórsóma er. í því máli
hefur hann flett ofan af svikaferli
því, sem fylgir erlendum auðhring-
um, á svo myndarlegan hátt að vart
verður betur gert. Má segja að mál
var til komið, áður en afturhaldið
kom fram áformum sínum um 20
slíkar verksmiðjur, sem óskhyggja
þess hefur staðið til. Engan þarf því
að undra þótt „Leiftursóknarliðið“
og fylgifé þess í öðrum flokkum
hafi tryllst, þar sem flett var ofari af
þjónkun þess við hið alþjóðlega
auðvald. Þjónkun við erlent vald
svipti okkur sjálfstæði og sjálfsfor-
ræði í meira en 650 ár. Vonandi
lendum við ekki í þá martröð aftur
eftir aðeins 65 ára sjálfstæði.
„Sólargeislinn
frá Florida “
Fríverslun og frjálshyggja
„Leiftursóknarmanna“ með mark-
aðslögmálin að leiðarljósi mun
leiða íslenskan landbúnað og um
leið iðnað þann er hann skapar, á
höggstokkinn. íslenskur
samkeppnisiðnaður er óðum að
leggja upp laupana, en í þess stað
rísa hér upp umboðssalar erlends
iðnaðar á moldum þess innlenda.
„Sólargeislinn frá Flórida“ og Víg-
lundur Þorsteinsson voru og eru
leiðarljós þessarar þróunar.
Verslunarauðvaldið hefur rakað
saman fé, einkum síðan mynt-
breytingin fór fram. Er það ófögur
saga ef sögð væri öll. Innflutn-
ingsbrjálæðið samfara stórvirkjun-
um í þágu erlendra auðhringa hafa
leitt til ofsalegrar erlendrar skulda-
söfnunar. Það er ekki að furða þótt
talsmenn „Frjálshyggjunnar" berji
sér á brjóst líkt og Fariseinn forð-
um yfir erlendri skuldasöfnun, eða
hvað? Hverjir afl'a erlends gjald-
eyris? Eru það kannski lág-
launahópar þjóðfélagsins sem hafa
svo hátt kaup að efnahagsmálin
riða til falls að mati „Frjálshyggj-
unnar“?
Félagsmál
á bannlista
í blaðagrein sem þessari er
margt ótalið, sem þörf væri á að
minnast en er of langt mál í tak-
markaðri blaðagiein. Nefna má þó
nokkur þeirra mála sem „Leiftur-
sóknarmenn" munu um fjalla kom-
ist þeir til valda.
Félagsmál: Þau eru mörg hver á
bannlista „frjálshyggjunnar“. Þau
þjóna ekki undir markaðshyggj-
una. Þvert á móti.
Heilbrigðismál: Láta skal hina
sjúku borga sem mest.
Málefni aldraðra og öryrkja:
Það nefndust veisluhöld í munni
hægri aflanna, þegar Magnús
Kjartansson hækkaði hraksmánar-
laun þau sem marglofuð Viðreisn
hafði útdeilt öldruðum og öryrkj-
um. Fleira mætti upp telja en verð-
ur ekki gert að sinni.
Að lokum: Má ég kynna efstu
menn á B-lista og D-lista í Reykja-
vík, mennina, sem að eigin sögn
hafa aldrei svikið. Þ.e. þá Ólaf Jó-
hannesson sem reka vildi her úr
landi 1971 en hafa her í landi 1974
og síðan. Og Albert Guðmundsson
sem studdi stjórn Gunnars Thor-
oddsen 1980, lofaði að verja hana
vantrausti, en stóð að vantrausti á
hana 1982. Var einhver að hlæja!
Alþpðubankinnhf
Aðalfundur
Alþýöubankans h/f árið 1983, verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, laugardag-
inn 30. apríl 1983 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 18 gr. samþykkta bankans.
b) Samþykktir og reglugerð bankans.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa.
d) Tillaga bankaráðs um nýtt hlutafjárútboð.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæða-
seðlar verða afhentir í aðalbankanum,
Laugavegi 31, dagana 27., 28. og 29. apríl
n.k.
f.h. bankaráðs Alþýðubankans h/f
Benedikt Davíðsson form.
Þórunn Valdimarsdóttir, ritari
RENAULT
TRAFIC
Lipurogrúm-
góöur sendibíll
Framhjóladrifinn, rúmgóður og lipur sendi-
bíll. Sérstaklega hentugur fyrir fyrirtæki
til vöruútkeyrslu og sendiferða.
Vélastærð: 1397 cm bensín. 2068 cm dlesel.
Burðargeta: 800 kg eða 1000 kg.
RENAULT er reynslunni ríkari.
KRISTINN GUDNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633