Þjóðviljinn - 23.04.1983, Side 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23. - 24. apríl 1983
Askorendaeinvígin VIII. grein
Eugunio Torre
í þessari síöustu grein minni um
þátttakendurna átta í Áskorenda-
keppninni er staðnæmst við þann
skákmann sem e.t.v. hefur haft
hvað mest áhrif á þróun skáklistar-
innar , Filippseyinginn Torre.
Torre er fyrsti stórmeist-
ari Asíu, og þótt Filipps-
eyingum hafi tekist að bæta einum
öðrum við, Balinas, þá verður að
líta á Torre sem hinn sterka mann í
skáklistinni á Filippseyjum. Balin-
;as þessi hefur um langt skeið verið
einn af lakari stórmeisturunum og
hefur aldrei náð að standa undir
titli sínum. Indónesíumenn fengu
sinn titilhafa, mann að nafni Sura-
didja, sem að skákstyrkleika er á
borð við miðlungs FIDE-meistara.
Balinas og Suradidja fengu titil
sinn mestan part út á það að vera
Asíumenn og var vonast til að út-
nefning þeirra myndi orka sem
hvatning á aðra skákmenn álf-
unnar. Torre á hinn.bóginn fékk
sinn titil á algerlega löglegan hátt
og stendur svo sannarlega undir
nafni sem stórmeistari, enda væri
hann ekki kominn í hóp áskorend-
anna ef svo væri ekki.
Uppúr 1970 fór skáklistin að
taka verulegum stakkaskiptum á
Filippseyjum. Harðduglegur for-
seti filippínska skáksambandsins,
Florencio Campomanes, sem nú er
forseti alþjóðasambands skák-
manna dreif skáklistina til veg-
semdar með aðstoð hins illræmda
forseta landsins, Marcosar. Komið
var á daglegum skákþáttum í sjón-
varpi, og unglingar sem áður æfðu
karatespörk, hugleiddu nú hina ó-
rannsakanlegu vegi á reitunum 64.
Torre var aflið sem til þurfti.
Hann komst í að tefla á milli-
svæðamótinu í Leningrad 1973 þar
sem Anatoly Karpov sigraði ásamt
Viktor Kortsnoj, og þó að Torre
fagnaði ekki háu sæti, sýndi hann
skemmtileg tilþrif, lagði m.a. Mik-
hael Tal að velli. Olympíuskák-
mótið í Nizza kom nafni Torre á
allra varir. Hann vann skák eftir
skák og skipti þá litlu hvort and-
stæöingur hét Portisch eða Hort.
Filippínska sveitin komst í A-riðil
úrslita, og átti Torre þar stærstan
hlut að máli. Hann hlaut 15 vinn-
inga af 19 mögulegum í keppninni,
og var útnefndur stórmeistari á
Helgi
Ólafsson
skrifar
FlDE-þinginu það ár. Uppgangs-
tímar í skáklistinni á Filippseyjum,
í kjölfar góðrar frammistöðu filipp-
ínsku sveitarinnar og útnefningar
Torre voru miklir og gætu hæglega
minnt á þá skáköldu sem reis hér á
landi þegar Friðrik ' Ólafsson
tryggði sér stórmeistaratitil og sæti
meðal áskorendanna á milli-
svæðamótinu í Portoroz 1958.
Filippseyingar væntu mikils af
sínum manni, en honum tókst ekki
að standa við gefin fyrirheit og kom
sér brátt fyrir í röðurn miðlungs
stórmeistara. Inn á milli skaut hon-
um upp, s.s. á fjögurra manna mótr
inu í Manila 1976 þegar hann hlaut
41/2 vinning úr 6 skákum í keppni
við Karpov heimsmeistara,
Browne hinn bandaríska og Júgó-
slavann Ljubojevic. Torre tefldi
glimrandi vel og lagði þá þremenn-
inga alla að velli með 1 Vi vinning
gegn Vi. Árin sem í hönd fóru báru
hann af leið. íslendingar minnast
hans sem friðsamasta keppandans
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast viö handlækningadeild
til eins árs frá 15. júní n.k.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist á þar
til gerðum eyöublöðum til skrifstofu ríkisspítalanna
fyrir 11. maí n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar handlækningadeildar í
síma 29000.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast viö Barnaspítala
Hringsins í 6 mánuði frá 1. júlí n.k.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist á þar
til geröum eyðublöðum til skrifstofu ríkisspítalanna
fyrir 23. maí n.k.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Barnaspítala
Hringsins í síma 29000.
SJÚKRAÞJÁLFARI óskast við öldrunarlækninga-
deild bæði til afleysinga og til frambúðar.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari öldrunarlækninga-
deildar í síma 29000.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA
SKRIFSTOFUMAÐUR óskast til frambúðar í launa-
deild ríkisspítalanna.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun ásamt reynslu í
skrifstofustörfum æskileg.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 29000.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 24. apríl 1983.
á alþjóðlega skákmótinu í Reykja-
vík 1980, og jafnvel þó hann
tryggði sér sæti á millisvæðamótinu
í Toluca í Mexíkó á síðasta ári var
honum spáð sæti fyrir miðju. Á
þessu móti mætti hann vel undirbú-
inn til leiks og hreppti efsta sætið
ásamt Ungverjanum Lajos Port-
isch. Einhverjir reyndu að finna þá
skýringu á frammistöðu hans að
hann hefði verið heppinn, en því
var alls ekki til að dreifa. Þvert á
móti glopraði hann niður mörgum
vænlegum stöðum. Hann hlaut 8V2
vinning af 13 mögulegum, og Fil-
ippseyingar tóku sinn mann í sátt.
Nú berst Torre harðri baráttu vi
Ungverjann Zoltan Ribli og virðist
Ribli ætla að hafa betur.
Enginn hefur spáð Torre mikilli
velgengni í þessari keppni, en hann
mætir til leiks í þeirri fullvissu að
hann hafi allt að vinna, engu að
tapa.
Það er margt líkt með skákferii
Friðriks Ólafssonar og Torre. Þeir
hafa báðir vakið upp mikinn skáká-
huga og báðir hafa þeir unnið
marga af sterkustu skákmönnum
heims. Hér kemur eitt dæmi, skák
sem tefld var á millisvæðamótinu í
Leningrad 1973.
Hvítt: Mikhael Tal (Sovétr.)
Svart: Eugunio Torre (Filipps-
eyjum)
Enskur leikur.
1. Rf3 Rf6
2. c4 g6
3. Rc3 Bg7
4. g3 0-0
5. Bg2 c5
6. d4
(Skák þessi var tefld í 2. umferð
millisvæðamótsins. Fyrir mótið
hafði Tal átt hreint ótrúlegri vel-
gengni að fagna. Hann hafði unnið
fimm skákmót og ekki tapað skák í
einu einasta móti. Talið var fullvíst
að hann myndi krækja sér í sæti í
áskorendakeppninni og farið var
að tala um einvígi Tals og Fischers.
En margt fer öðru vísi en ætlað er)
6. ... cxd4
7. Rxd4 Rc6
8. 0-0 Rxd4
9. Dxd4 d6
10. Dd3
(Fischer lék 10. Bg5 í 8. einvígis-
skák sinni við Spasskí og vann.
Leikur Tals hefur ávallt verið tal-
inn sá öruggasti í stöðunni, enda
hafði leikur Fischers fyrst og fremst
sálfræðilegt inntak).
10. ... u6
11. Be3
(Hér einnig leikið 11. Bd2).
11. ... Rg4
12. Bd4 Re5
13. Ddl Hb8
(Að sjálfsögðu ekki 13. - Rxc4??
14. Bxg7 Kxg7 15. Dd4+ Re5 16.
f4 og hvítur vinnur mann).
14. Ilcl Be6
15. Rd5
(Betra var 15. b3)
15. ... b5!
16. cxb5 Bxd5!
17. Bxd5 axb5
18. Dd2
(18. f4 Rg4 19. Bf3 kom til greina,
því hvítur hefur örlítið betri stöðu
eftir 19. - Bxd4+ 20. Dxd4 Rf6 21.
Hc6 o.sfrv.)
18. ... e6
19. Bg2 Rc4
20. Dc3 Bxd4
21. Dxd4 d5
(Svartur hefur teflt byrjunina
markvisst og hefur náð að jafna
taflið. Pað verður Tal til falls í þess-
ari skák að hann hyggst að fá nieira
út úr stöðunni en efni standa til).
22. b3 Db6
23. llfd 1 Dxd4
24. Hxd4 Rd6
25. Hc6 Hfd8
26. e3
(Hvítur uggir ekki að sér og lendir í
Eugunio Torre. Árið 1974 varð
hann fyrsti stórmeistari Asíu, og
hefur framganga hans haft gífurleg
áhrif á þróun skáklistarinnar í
þessum hluta heimsins.
vandræðum. 26. Hdl var best og
staðan er u.þ.b. í jafnvægi).
26. ... Hbc8
27. Hb6?
(Fyrstu alvarlegu mistökin sem Tal
gerir. Hann er í raun kominn með
með því að leika 27. Hxc8 Hxc8 28.
Bfl er jafntefli ekki langt undan.
Torre notfærir sér nú þau færi s^m
bjóðast á sérlega skemmtilegan
hátt).
27. ... Hcl +
28. Bfl Re4!
29. Kg2 e5
30. Hb4 Hc2
T1 Kvq/1
(En ekki 32.- Hxf2+ 32. Kgl og
svartur verður að svara hótuninni
33. Hxe4).
32. bxa4 Hxf2+
33. Kgl Ha2
34. Hb8 Hxb8
35. Hxb8+ Kg7
36. Hb5 Rc3
37. Hc5 Rdl!
(Eirífaldasta lausnin. Svartur sér
framá unnið hróksendatafl).
38. Hxd5 Rxe3
39. Hxe5 Rxfl
40. Kxfl Hxh2
(Hér fór skákin í bið. Þó að staða
svarts sé unnin, eru tæknilegir erf-
iðleikar talsverðir).
41. He7 Ha2
42. He4 h5
43. Hh4 f6
44. Kgl Kf7
45. Kfl Ke6
46. He4+ Kf5
47. Hf4+ Ke5
48. Hh4 Hd2
49. Ilb4 g5
50. Hb3 Ha2
51. Hb4 Kf5
52. Kgl Kr6
53. Hc4 g4
(Meö hugmyndinni - f5, - Kg5 og-
h4. Við þessari áætlun á hvítur ekk-
ert svar.)
54. Hb4 f5
55. Hb8 h4!
56. gxh4 Hxa4
57. Kg2 Ha3
F8. Hg8+ Kf7
B9. Hg5 Kf6
60. Hg8 Hh3
61. Hh8 Ke5
62. h5 Kf6
63. h6 Kg3
64. Hg8+ Kxh6
65. Kf2
(Eða 65. Hh8+ Kg5 66. Hxh3
gxh3+ 67. Kxh3 Kf4! 68. Kg2 Ke3!
69. Kfl Kf3! og vinnur).
65. ... Ha3
66. Kg2 Kh5
67. Kf2 Kh4
- og hvítur gafst upp. Tal náði sér
aldrei á strik eftir þetta tap og varð
af sæti í áskorendakeppninni 1974.
Skrifstofustjóri
Kaupfélag Hvammsfjaröar óskar eftir aö
ráöa skrifstofustjóra, sem jafnframt gegnir
stööu fulltrúa kaupfélagsstjóra. Samvinnuskóla-
eöa hliðstæö menntun æskileg.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Umsóknir
er greini aldur, menntun og fyrri störf svo og
fjölskyldustærð, sendist kaupfélagsstjóra
eða starfsmannastjóra Sambandsins, er
veita nánari upplýsingar.
Kaupfélag Hvammsfjarðar
Búðardal
Starfskraftur óskast
á skrifstofu SHÍ nú þegar. Einnig vantar
starfskraft viö atvinnumiðlun námsmanna frá
og meö mánaðamótum.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Stúdent-
aráðs, Félalgsstofnun stúdenta viö Hring-
braut, sími 15959.
Umsóknir berist þangað fyrir kl. 17 þriðjudag-
inn 26. apríl.
IRI
ÚTBOÐ
jj||j W I DVU
Tilboö óskast í viöhald og viðgerðir á skólastólum fyrir
skóla borgarinnar vegna Fræösluskrifstofu Reykja-
víkur. 1
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík.
Tilboö verða oþnuð á sama stað miðvikudaginn 11.
maí 1983 kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800