Þjóðviljinn - 06.05.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.05.1983, Blaðsíða 11
Föstudagur 6. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA II Umsjón: ■ mJF m tittlH víðir Sigurðsson Maðurinn sem ætlar að breyta leikstíl Brassanna, Carlos Alberto Parr- eira. Breyttur leikstíll hjá brasilískum Brasilíumenn, sem unnu hug og hjörtu knattspyrnuunnenda um allan heim í síðustu heimsmeistar- akeppni fyrir stórskemmtilega leiki og voru taldir vera með besta lið keppninnar þrátt fyrir að hafa fall- ið út í milliriðli, ætla sér að breyta um stíl og leggja allt í sölurnar til að vinna heimsbikarinn árið 1986. Nýi þjálfarinn þeirra, Carlos Al- berto Barreira, sem kom Kuwait- búum í úrslitin á Spáni sl. sumar, ætlar að innleiða meiri hörku og baráttu í leik liðsins. „Mitt hlutverk er að koma Bras-^, ilíu á toppinn á nýjan leik og það tekst ekki með því að leika ein- göngu fíngerða og áferðarfallega knattspyrnu. Pað var reynt á Spáni og reyndist ekki nóg,“ segir Parr- eira. „Mínir menn þurfa að geta bar- ist, ég er ekki að segja að þeir eigi að leika gróft en þeir verða að geta sýnt af sér hörku til að stöðva sókn- arleik andstæðinganna. Ég lærði mikið af því að horfa á Hollendinga leika í heimsmeistarakeppninni í V.-Þýskalandi 1974. Þarkomu þeir fram með hluti sem aldrei áður höfðu einkennt hollenska knatt- spyrnu og útkoman varð silfur- verðlaunin. Um leið og einhver þeirra missti knöttinn, sameinaðist allt liðið í að ná honum á nýjan. leik. Þetta vil ég sjá til brasilíska landsliðsins.“ Menn geta verið sammála þjálf- aranum um hvað felldi Brasi- líumenn á Spáni sl. sumar. Ekki er víst að allir verði eins hrifnir af stefnubreytingu hans, en heima í Brasilíu er menn farið að lengja eftir heimsbikarnum sem vannst síðast í Mexíkó 1970. - VS Reykjavíkurmótið í knattspyrnu er komið á lokasprett en þar eiga hvorki Valsmenn né Armenningar, sem eiga fulltrúa á myndinni að of- an, möguleika á sigri. - Mynd: - eik. Hvort fær gjöfina, Víkingur eða Fram? Reykjavíkurmótið í meistara- Mótinu lýkur á þriöjudag en flokki karla í knattspyrnu hefur leikirnir sem eftir eru verða í þess- þróast upp í einvígi milli Víkings og ari röð: Fram, félaganna tveggja sem urðu Laugardagur kl. 15.30 KR-Fram 75 ára á dögunum. Þegar aðeins Sunnudagur kl. 14 Fylkir-Ármann fjórum leikjum er lokið er staðan Mánudagur kl. 19 Þróttur-Valur þessi: Þriðjudagur kl. 20. Fram-Víkingur Víkingur......5 5 0 0 10 1 11 Allir leikirnir fara fram a Mela- Fram......,...4 310 8:1 9 vellinum og allt stefnir í hreinan Va|ur.........5 3 0 2 8:4 7 úrslitaleik á þriðjudagskvöldið, Þrótt":.......f ? ] l ! millí núverandi Reykjavíkurmeist- Fy I k i r..].]]!5 1 0 4 4Æ 2 ara’ V,kinga, Og 2. deildarliðs Ármann..........5 0 14 1:10 1 Framara. Þr jú lið ber jast um 1. deildarsæti Eins og sagt var frá í blaðinu í gær, á hið fornfræga félag, New- castle United, nokkra möguleika á að komast uppí 1. deild ensku knattspyrnunnar eftir 5:0 útisigur á Barnsley í 2. deildinni í fyrrakvöld. Staða efstu liða er þessi: Q.P.R..........39 25 6 8 73:32 81 Wolves.........40 20 14 6 65:40 74 Leicester......40 19 9 12 70:43 66 Fulham.........40 19 9 12 62:46 66 Newcastle......40 17 12 11 71:50 63 Leicester, Fulham og Newcastle' berjast því um að fylgja QPR og Wolves upp og við skulum líta á hvaða leiki þessi lið eiga eftir. A morgun - 7. maí: Fulham-Carlisle Newcastle-Sheff. Wednesday Oldham-Leicester Lokaumferð - 14. maí: Derby County-Fulham Leicester-Burnley Wolves-Newcastle Newcastle á greinilega erfiðustu leikina eftir, Wolves er í öðru sæti en Sheff. Wed. íþvísjötta. Fulham mætir liðum úr neðri helmingi deildarinnar en Leicester á erfiðan útileik á morgun, í Oldham. Leicester stendur þó sennilega best að vígi, hefur leikið mjög vel undanfarnar vikur, og hlýtur að teljast líklegasta liðið af þessum þremur til að leika í 1. deild að ári. - VS Spánn og Ítalía á toppnum Spánn og Italía eru sem fyrr mestu knattspyrnuáhugaþjóðir Evrópu, ef marka má þann áhorfendafjölda sem sækir leiki bestu liðanna í þessum löndunr. Fyrir skömmu var birtur listi yfir þau tíu knattspyrnufélög í Evrópu sem besta mcðaltalsað- sókn háfa haft síðustu tólf mán- uðina, og lítur hann þannig út: Barcelona. Spani............102.114 Real Madrid, Spáni.......... 68.377 ASRoma, Ítalíu.............. 54.182 Napoli, Ítalíu.............. 52.504 AC Milano, Ítalíu........... 45.720 Manch. Utd, Englandi........ 44.916 Fiorentina, ítaliu.......... 41.445 Inter Milano, ítaliu........ 41.370 Juventus, Ítalíu............ 40.864 Atletico Madrid, Spáni...... 38.915 Talan hjá Barcelona er stór- fengleg en félagið hefur ávallt skorið sig nokkuð úr hvað á- horfendafjölda varðar. Það er þó vert að gefa AC Milano sér- stakan gaum, félagið er með fimmtu bestu aðsókn í Evrópu en leikur samt í 2. deild! Napoli, einu sæti ofar, hefur barist hatr- ammlega við fallið í allan vetur en ekki virðist það hafa komið að sök. - VS V íkingar gefa út bók Knattspyrnufélagið Víkingur hefur gefið út sögu félagsins í tilefni 75 ára afmælis þess sem var 21. apríl sl. Bókina skrifaði Agúst Ingi Jónsson blaðamaður og kom hún út á afmælisdaginn. Bókin er í skemmtilegu broti, prýdd fjölda mynda, og hlýtur að teljast góðeign fyrir alla tengda félaginu og aðra áhuga- menn. Rakin er saga félagsins og hinna ýmsu deilda frá stofn- un til þessa dags. Bókin er til sölu á almennum markaði hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18, Versluninni Sportval, Laugavegi 116 og Félagshcimili Víkinga við Hæðargarð í Reykjavík. Lokalelkir um helgina Síðustu leikirnir í Litlu bikar- keppninni, meistaraflokki karla, í knattspyrnu fara fram á morgun, laugardag. Úrslit í mótinu eru þeg- ar ráðin, Keflvíkingar hafa þegar tryggt sér sigur. Staðan er þessi: Keflavik...........4 4 0 0 12:2 8 Akranes...............3 2 0 1 6:2 4 Breiðablik............3 1 0 2 7:6 2 FH....................3 1 0 2 4:8 2 Haukar................3 0 0 3 2:13 0 Lokaleikirnir eru á milli Akra- ness og Breiðabliks, og Hafnar- fjarðarliðanna, Hauka og FH. íþróttamiðstöðin á Selfossi senn opnuð _ Starfrækt þriðja Eins og tvö undanfarin sumur verður rekin íþróttamiðstöð á Selfossi sumarið 1983 á vegum íþróttaráðs bæjarins. Hún hefur orðið til vegna mjög fullkominnar íþróttaaðstöðu sem byggst hefur upp á Sclfossi á liðnum árum. Mannvirki þau er um ræðir eru öll staðsett mjög nálægt hvert öðru og mynda eina heild þar sem auðvelt er um samgang. Með í- þróttaniiðstöðinni næst fram meiri nýting á íþróttamannvir- kjunum, svo og skólum sem hún hefur cinnig til afnota. íþróttamiðstöðin verður opn- uð 27. maf og starfar út ágúst. Hún er rekin af íþróttaráði og hefur aðgang að öllum íþrótta- mannvirkjum þar sem hópar fá afnot eftir samkomulagi, með til- liti til íþróttagreina og óska hvers hóps. Iþróttahóparnir gista í húsnæði Gagnfræðaskólans þar sem sett verða upp rúm í kennslustofum en þeir verða að hafa með sér sængurföt. Mötuneyti er rekið við íþrótt- amiðstöðina á vegum Hótel Sel- foss, í fullkominni mötuneytis- aðstöðu í Gagnfræðaskólanum þar sem er bjartur og rúmgóður veitingasalur. íþróttahóparnir fá til afnota sali fyrir kvöldvökur og stofur fyrir fundi og bóklega fræðslu ef einhver er. Þá verða skipulagðar skoðunarferðir um Selfoss og nágrenni eftir því sem óskað er, en ýmsir möguleikareru þar fyrir hendi: byggða- og listasöfn, stór fyrirtæki, búskapur í sveit, gönguferðir á Ingólfsfjall, ferðir í Þrastaskóg o.fl. Meðal þess sem íþróttamið- stöðin hefur staðið fyrir má nefna knattspyrnukeppni fyrir 6. aldur- sflokk þar sem leikin er svokölluð „mini-knattspyrna“. Þátttakend- ur hafa þá dvalið í um það bil sex daga í íþróttamiðstöðinni og geta nýtt sér aðstöðu hennar. Haldnar verða kvöldvökur og ýmislegt annað gert á milli leikja auk þess sem allir fá viðurkcnningarskjal og efstu liðin verðlaun. Miðstöð- sumarið in rekur einnig sumarbúðir fyrir krakka, 8-12 ára, víðs vegar að af landinu og er starfið í hefðbundn- urn sumarbúðastíl en fullkomin íþróttaaðstaða þó nýtt til fulln- ustu. ^ íþróttamiðstöðin hefur einnig séð um að halda sundnámskeið fyrir hópa utan af landi og útveg- að sundkennara fyrir þá. í teng- slunt við liana verður einnig rek- inn íþróttaskóli, einkum ætlaður Selfossbúum og nágranna- byggðum. Bókanir í íþróttamiðstöðina fara frarn á skrifstofu íþröttaráðs í Tryggvaskála í síma 99-1408 en einnig tekur umsjónarmaður hennar, Þórntundur Bergsson, við öllurn bókunum, og veitir all- ar frekari upplýsingar um íþrótt- amiðstöðina í sírna 91-17795 til 7. maí og 99-1970 eftir 15. maí. Það er von þeirra sem reka í- þróttamiðstöð á Selfossi að sem allra flestir láti sjá sig og panti dvöl í stöðinni. Pantanir þyrftu helst að berast fyrir 20.-24. maí en tekið verður við pöntunum seinna eftir því sem pláss reynist fyrir hendi. Nú þegar hefur verið dreift kynningarbæklingum til héraðssambanda og íþróttafélaga víðs vegar um landið. Þess má geta að landslið ís- lands, t. d. í körfuknattleik og handknattleik, hafa notfært sér aðstöðuna á Selfossi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.