Þjóðviljinn - 27.05.1983, Síða 3
Föstudagur 27. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3
Ályktun frá trúnaðarmannaráði SFR:
Efnahagsaðgerðirnar eru
aðför að afkomu launþega
Trúnaðarmannaráð Starfs-
mannafélags ríkisstofnana kom
saman til fundar í gær, eftir að
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar höfðu
lauslega verið kynntar. A fundin-
um var einróma samþykkt ályktun
sú sem hér fer á eftir og um leið var
hvatt til samstillingar launamanna
gegn óvæginni árás ríkisvaldsins á
afkomu heimilanna, eins og segir i
frétt frá SFR.
Trúnaðarmannaráð SFR skipa
222 aðalmenn og 180 varamenn en í
félaginu eru nú 4609 félagsmenn.
Alyktun ráðsins fer hér:
Tekjur launamanna
stórskertar
„Fundur trúnaðarmannaráðs
Starfsmannafélags ríkisstofnana
haldinn fimmtudaginn 26. maí
1983 mótmælir harðlega fyrirhug-
aðri aðför nýskipaðrar ríkisstjórn-
ar að afkomu launþeganna og
skorar á samtök þeirra að fylkja sér >
til varnar launakjörum, afkomu,
atvinnu og samningsrétti launa-
fólks.
Fundurinn bendir á, að aldrei
hefur jafn blygðunarlaust verið
skorin upp herör gegn samtökum
verkalýðshreyfingarinnar og sjálf-
stæðum samningsrétti, sem gert er
með þeirri ákvörðun að svipta
launþega viðræðu, umsagnar og
með ákvörunarrétti um afkomu
sína, sem gert er með einhliða ák-
vörðun stjórnvalda.
í málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar er ákveðinn stórfelldur
niðurskurður tekna launþega og
þær færðar atvinnurekstrinum til
ráðstöfunar án allra fyrirvara
ásamt yfirlýsingum um:
• Frjálst verðmyndunarkerfi.
• Vísitölukerfið afmunið svo
frjálst verðmyndunarkerfi njóti sín
til fulls án þess að launþegi fái
bætur.
• Kjarasamningar bannaðir.
• Laun lækka um 14% þann 1.6.
1983.
• Gengi íslensku krónunnar fellt
um 18-20% sem þýðir hliðstæða
hækkun á aðfluttri vöru.
• Afleiðingum vegna gengis-
breytingarinnar og annarra
ráðstafana samfara þeim sem skv.
samningum verkalýðshreyfingar-
innar ættu að fást bættar 1. sept.
verða aðeins bættar með 4%
kauphækkun 1. okt. n.k.
• Ríki og sveitarfélög fá frjálsar
hendur með hækkanir á allri þjón-
ustu, svo sem hita, rafmagni, síma,
strætisvagnafargjöldum o.fl. o.fl.
án þess að afleiðingar þessara
hækkana fáist næstu 2 árin.
• Fyrirheit um breyttar skatta-
reglur til'að stuðla að eigin fjár-
myndun fyrirtækja.
• Skiptahlutur sjómánna stór-
skertur.
Sárabætur
gegn skerðingu
Launþegum er á móti gefin fyrir-
heit um: ,
• 2% minni lækkun lægstu launa -
10% í stað 8% af 22% kjaraskerð-
ingu 1. júní.
• Tekjutrygging lífeyrisþega
hækki til samræmis við kjarabætur
þeirra lægst launuðu þ.e. um 2%.
• Skuldbreytingalán til þeirra sem
eru að sligast undir verðtryggðum
lánum og eru að byggja í fýrsta
sinn.
• Vextir lækki seinna og lánakjör
endurskoðuð.
• Boðið upp á lækkun tekjuskatts.
Afleiðingar af fyrirhugaðri aðför
mun ekki láta standa á sér á heimil-
um launþega vegna þessarar stór-
felldu kjararýrnunarstefnu.
Verkalýðshreyfingin verður að
samstilla afl sitt til átaka, ef ekki
fæst viðurkenndur meðalákvörð-
unarréttur hennar til að móta
stefnu er miðar að því að þjóðin
vinni sig með samkomulagi útúr
þeim vanda, sem við er að etia.
Án einlægt vilja er stefnir að
sameiginlegu átaki stjórnvalda, at-
vinnurekenda og launþega í stað
sundurlyndis, sundrungar og átaka
milli þessara aðila, uppsker þjóðin
eftir efninu, þá upplausn efnahags-
kreppu og atvinnuleysi annarra
þjóða, t.d. Englands, Danmerkur
og Póllands enda um margt líkt
með aðferðum stjórnvalda."
„Hér hefurðu Iykilinn að kassanum", gæti fráfarandi fjármálaráðherra,
I Ragnar Arnalds, verið að segja við eftirmann sinn Albert Guðmundsson
I fjármálaráðherra, en þeir skiptust á lyklavöldum í gær. Ljósm eik.
Stofnfundur
friðarhreyf-
ingar kvenna
í kvöld verður haldinn stofn-
fundur Friðarhreyfíngar íslenskra
kvenna, en eins og lesendum er
kunnugt hefur starfað hér friðar-
hópur kvenna frá því í ágúst á síð-
asta ári. Hópurinn kom sér saman
um ávarp, sem sent var öllum kven-
félögum á iandinu, svo og bréf þar
sem konur voru beðnar að hugleiða
friðar- og afvopnunarmál og hugs-
anlega friðarhreyfíngu. Og nú er
semsé stundin runnin upp.
Fundurinn verður haldinn í Nor-
ræna húsinu og hefst klukkan fimm
stundvíslega með því að hin kunna
sænska þingkona, Maj Britt Theor-
in, sem þekkt er á vettvangi SÞ,
flytur erindi um friðarbaráttu og
hlut kvenna í henni. Á eftir gefst
fundargestum kostur á að leggja
fyrir hana spurningar.
Eftir kvöldverð mun Margrét
Heinreksdóttir, fréttakona á sjón-
varpinu, flytja erindi um vígbún-
aðarkapphlaupið og stöðuna í
viðræðum stórveldanna. Síðan
munu þær Gerður Steinþórsdóttir,
Björg Einarsdóttir, Kristín Ást-
geirsdóttir og Margrét S. Björns-
dóttir greina frá tillögum friðar-
hóps kvenna um verkefni og skipu-
lag væntanlegrar friðarhreyfingar.
Fundurinn er opinn öllum kon-
um og eru allar þær, sem áhuga
hafa á friðarmálum og afvopnun í
heiminum, hvattar til að koma á
fundinn og leggja sitt lóð á vogar-
skálarnar, friðarbaráttunni til
framdráttar. ast
Málefnasamningurinn
s
„Arás á
lífskjörin“
sagði Svavar Gestsson
á fundi ABR í gær-
kvöldi
„Megininntakið í málefnasamn-
ingi þessarar ríkisstjórnar er að
skera niður og lækka kaupið -
ráðast gegn verkalýðshreyfing-
unni. Samningum skal rift með
lögum í tvö heil ár og allir gildandi
kjarasamningar sem eiga að renna
út í sumar skulu framlengdir til árs-
ins 1984“, sagði formaður Alþýðu-
bandaiagsins, Svavar Gestsson á
geysifjölmennum aðalfundi Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík f
gærkvöldi.
Á aðalfundinum var Arthúr
Morthens endurkjörinn formaður
félagsins en með honum í aðal-
stjórn voru kjörin þau Borghildur
Jósuadóttir, Erlingur Viggósson,
Guðbjörg Sigurðardóttir ög Helgi
Samúelsson. í aðalstjórn sitja Ingi-
björg Jónsdóttir, Einar Matthías-
son, Stefán Stefánsson, Óskar Ár-
mannsson og Snjólaug Ármanns-
dóttir.
Svavar Gestsson hvatti í ræðu
sinni til harðrar og samhentrar
stjórnarandstöðu gegn þeim ein-
hliða árásum á lífskjör launafólks
sem ríkisstjórn Sverris Hermanns-
sonar stæði nú fyrir.
-v.
„Eg hef
nóg aö
starfa”
sagði dr. Gunnar
Thoroddsen að
loknum ríkis
ráðsfundi í gær
„Hvað sjálfan mig áhrærir þarf
ég ekki að kviða verkefnaleysi
þótt mínum ráðherra- og þing-
mannsferli sé nú lokið. Ahuga-
málin eru mörg og margt þurft að
bíða í önn liðinna áratuga“, sagði
Gunnar Thoroddsen fráfarandi
forsætisráðherra að loknum síð-
asta ríkisráðsfundi á Bessastöð-
um í gær.
„Þessi ríkisstjórn hefur tekist á
við margan vandann og náð ákaf-
lega góðum árangri á ýmsum
sviðum. Sérstaklega vil ég þar
nefna að okkur hefur tekist að
bægja frá hinu geigvænlega
atvinnuleysi sem hrjáir ná-
grannaþjóðirnar. Og þótt við
höfum ekki haft fullt erindi sem
erfiði í baráttunni gegn verðbólg-
unni mega menn ekki gleyma því.
að efnahagsmál snúast í kringum
ýmislegt annað en verðbólgu. Þar
vil ég nefna góðan árangur í því
að ná niður viðskiptahallanum,
en góðar horfur eru á að Hann
nemi aðeins um 3—4% af þjóðar-
framleiðslu á þessu ári“.
Gunnar kvaðst aðspurður ekki
geta dæmt um þá ríkisstjórn sem
nú tæki við en hann óskaði henni
farsældar í erfiðu starfi.
Gunnar Thoroddsen fráfarandi forsætisráðherra og kona hans Vala Thoroddsen ganga til síðasta ríkisráðs-
fundar Gunnars á Bessastöðum í gær. Ljósm. eik.