Þjóðviljinn - 27.05.1983, Síða 9
Föstudagur 27. mal 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
„Ég er með 48 manns í vinnu á
vöktum allan sóiarhringinn nema á
laugardögum og part úr sunnudegi.
Bakaríið hefur stækkað gífurlega á
undanförnum árum og til marks
um það er, að við fluttum tiltölu-
lega nýlega í þúsund fermetra hús-
næði úr 300 fermetrum, og þetta
húsnæði er þegar orðið of Iítið.“
Svo fórust orð Ragnari Eðvaldssyni
bakarameistara og eiganda Ragn-
arsbakarís sem á velgengi sína í
mikilli samkeppni bakaríanna að
miklu leyti því að þakka að árið
1975 kom hann fram með „nýja“
brauðtegund, og í þess orðs fyllstu
merkingu má segja að neytendur
hafí bitið á agnið. Síðan hefur
fyrirtækið þanist út, veltan stór-
aukist frá ári til árs. Meðan menn
horfa til Suðurnesja og stærsta
þéttbýliskjarnans þar, Keflavíkur,
nokkuð vantrúaðir á svip ekki síst
þegar litið er til þess að óáran í
deild skomu brauðanna væri ekki
svo mikil sem raun ber vitni, þá
væri verðið á óskornum brauðum
mun hærra.“
Hvernig er starfskiptingin hjá
þér í bakaríinu?
„Af 48 starfsmönnum auk mín
eru hér 8 bakarar, 7 menn starfa
eingöngu við hreinsun í fyrirtæk-
inu, þá er ég með fólk í pökkun og í
hefðbundnum störfum tengdum
bakstrinum. Ég held að meira
mannahald í hreinsuninni þekkist
varla í bakaríum. Ástæðurnar fyrir
því að ég legg svo mikla áherslu á
þrifnaðinn má rekja til þess er ég
sótti framhaldsnám í Sviss, en
þrifnaður í bakaríum þar er
áreiðanlega sá mesti sem þekkist.“
Hverjar telur þú meginástæð-
urnar fyrir velgengni baka-
rfsins?
„1975 byrjaði ég að framleiða
Nýja pökkunarvélin í Ragnarsbakaríi. Hún hefur stóraukið afköstin.
Ragnar Eövaldsson bakarameistari í Keflavík
Notum 100 tonn af
hráefni á mánuði
Heilsubrauðin gerðu Ragnarsbakarí
að einu hinu stœrsta sinnar tegundar á landinu
útgerð er orðin hrikalegt vandamál
þar og hefur svo verið um alllangt
skeið, þá má finna bjartari hliðar á
hverju máli. Og Ragnarsbakarí er
eitt blómlegasta fyrirtæki sem risið
hefur upp á undanförnum árum.
Nú tala menn mikið um óhóflega
álagningu á brauð og kökur, t.d.
niðurskornu brauðin. Hver er þín
skoðun á því?
„Staðreyndin er sú að ef ekki
kæmi til verðmunurinn margum-
talaði á niðurskornu brauðunum
og hinum, þá hreinlega væri maður
löngu rúllaður yfir um, svo mikið
er víst. Ég sel að langmestu leyti
niðurskornu brauðin og tiltölulega
lítið af óskornum brauðum. Ég vil
líka benda á að ef markaðshlut-
Heilsubrauðin svokölluðu. Þá
komst ég inn á Reykjavíkurmark-
aðinn, en síðan þegar ég fjárfesti í
nýju pökkunarvélinni má segja að
öll framleiðslan hafi tekið risa-
stökk fram á við. Ég framleiði nú
um 60 tegundir af brauðum og kök-
um og allt rúllar þetta í gegnum
pökkunarvélina sem auk mikillar
afkastagetu skilar afurðunum í
loftþéttum plastumbúðum níð-
sterkum. Nú sel ég brauð út um allt
land, til Reykjavíkur fer gífurlegt
magn auk þess á Austfirði, Vest-
firði og á Akureyri. Þá má segja að
ég sé allsráðandi á markaðnum hér
á Suðurnesjum. Ég hygg að 55%
framléiðslu minnar fari út af Suð-
urnesjum en 45% á Suðurnesin.“
Er samkeppnin hörð?
„Já, samkeppnin er geysihörð,
en hún er heiðarleg að mínu mati. I
mörgum tilvikum er því þó þannig
farið að mjög erfitt getur rey.nst að
koma framleiðslu sinni í verslanir
þar sem önnur bakarí hafa haslað
sér völl. Ég tel mig þó ekki hafa
ástæðu til að kvarta. Viðskiptavinir
mínir eru nú um 300 talsins og á
hverjum degi streyma héðan bflar
hlaðnir brauði og kökum.“
Mikil veltuaukning?
Veltuaukninguna milli ára 1981
og 1982 taldi Ragnar vera um 80%
og einnig gat hann þess að á mán-
uði seldi hann framleiðslu fyrir sem
svarar 1,6 miljón og hráefni sem
hann notaði væri í kringum 100
Ragnar Eðvaldsson bakarameistari.
tonn á mánuði. 40% fram-
leiðslunnar eru kökur, 60% brauð.
Ragnar kvaðst í lok samtalsins við
blaða- og fréttamenn hafa lagt
mikla áherslu á vandaðar umbúðir,
„því vissulega selja umbúðirnar
framleiðsluna. Ég varð mikið var
við þegar umgjörðin tók að
breytast hjá mér, þá tók fólk fram-
leiðsluna fyrir erlendan varning.
Þetta hefur krafist mikillar skipu-
lagningar. Við erum með ná-
kvæmar upplýsingar á hverri
brauð- og kökutegund og tveir
starfsmenn eru í því að taka við
pöntunum og vinna við vörukynn-
ingu. Að auki hef ég verið með
umboðsmenn um land allt, sagði
Ragnar að lokum.
- hól.
Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum orðin fimm ára:
Fiskeldi og orkunýting
eru helstu framtíðarverkefni samtakanna
Samtök sveitarfélaga á Suður-
nesjum boðuðu í siðustu viku
blaðamenn á sinn fund þar sem
samtökin voru kynnt. Fór kynning-
in fram í Keflavík og þar voru
mættir allir framámenn í sveitarfé-
lögunum, þeir Leifur ísaksson
sveitarstjóri i Vogum og núverandi
formaður SSS, Eiríkur Alexand-
ersson framkvæmdastjóri SSS, Jón
Gunnar Stefánsson bæjarstjóri í
Grindavík, Aki Gránz forseti
bæjarstjórnar í Njarðvík, Steinþór
Júlíusson, bæjarstjóri í Keflavík,
Ellert Eiríksson sveitarstjóri
Gerðahrepps, Jón K. Ólafsson
sveitarstjóri Miðneshrepps, Þórar-
inn St. Sigurðsson sveitarstjóri
Hafnarhrepps og Jón Unndórsson
iðnráðgjafi Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum.
Á fundinum voru rædd tildrög
stofnunar SSS, markmið með
stofnunni, framtíðarverkefni og
helstu ávinningar.
Samtökin fimm ára
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum var stofnað sem formleg
landshlutasamtök 16. nóvember
1978. Þá þegar og samtökin voru
stofnuð var verkaskipting ákveðin
og er hún með þeim hætti að
sveitarstjórar í hverju sveitarfélaga
á Suðurnesjum gegna formennsku
eitt ár í senn. Enn sem komið er
hefur ekki náðst samkomulag um
að Vatnsleysustrandarhreppur og
Grindavík gangi í samtökin en róið
er að því öllum árum. Þó Samband
sveitarfélaga hafi formlega verið
stofnað 1978 þá spannar samstarf
þessara aðila allt til ársins 1946 en
þá sameinuðust sveitarfélögin um
byggingu sjúkrahúss Keflavíkurl-
æknishéraðs sem tekið var í notkun
1953. Síðan hafa fjölmörg sam-
eiginleg verkefni náðst í gegn. Má
þar nefna Stofnun Hitaveitu
Suðurnesja sem var undirbúin á ár-
unum 1972- 74. Aðild sveitarfélag-
anna er 60% en ríkisins 40%.
Brunavarnir Suðumesja voru
stofnaðar 1972, Iðnskóli Suðurn-
esja var stofnaður 1972 og upp úr
honum Fjölbrautaskóli Suður-
nesja, semvar setturá stofn árið
1975. Byggðasafn Suðurnesja var
sett á laggirnar 1975, Sorpeyðing-
arstöð Suðurnesja var tekin í notk-
un 1979, Öldrunarheimilið
Garðvangur í Garði og Hlévangur í
Keflavík, og þannig mætti lengi
telja.
Það kom fram í máli þeirra sem
stóðu fyrir fundinum í Keflavík að
nú er mjög lítið til fiskeldis í sjó og
eru uppi ráðagerðir í þeim efnum.
Miklar líkur eru taldar á að komið
verði á fót 10 miljón seiða stöð f
Vogum í samvinnu við bandaríska
aðila. Það er laxfiskur sem þarna á í
hlut og er meining að koma upp í
framhaldi af stofnun fiskeldis-
stöðvarinnar að koma flutningum á
ferskfiski á hagstæða markaði í
Bandaríkjunum. Skilyrði til haf-
beitar í sjó er mjög góð á Suður-
nesjum, Golfstraumurinn kemur
þar fyrst að landi, 4 metra munur
eru á flóði og fjöru og til staðar er
hreint loft og hreint vatn. í Noregi
þar sem menn hafa komist hvað
lengst í laxarækt er málum þannig
komið að firðir eru víða að fyllast
af skít.
Nýting gufunnar
í Svartsengi
Taldir eru miklir möguleikar á
því að 10 megawött getir fengist úr
Svartsengi án borana. Jón Unn-
dórsson var árið 1979 ráðinn
iðnráðgjafi hjá Sambandi sveitar-
félaga á Suðumesjum og hefur
hann það verkefni með höndum að
kanna hugsanleg orkusvæði á Suð-
umesjum. Hann hefur m.a. unnið
að hönnun sýningarsvæðis fyrir
sýningu sem Félag íslenskra iðnfyr-
irtækja stendur fyrir í lok ágúst og
byrjun september.
Grunntóninn í þeim áætlunum
sem uppi em og bollaleggingum
varðandi framtíðina er sá að nýjar
brautir séu farnar; Iðnfyrirtæicin
vaxi og ekki verði lögð jafn þung
áhersla á sjávarútveginn sem verið
hefur. Suðurnesjabúar sækja mik-
ið í vinnu upp á Keflavíkurvöll og
er talið að 75% af ölum vinnu-
færum mönnum í Keflavík svo
dæmi sé tekið vinni á Vellinum.
Að loknum kynningarfundinum
á þeim verkefnum sem bíða SSS
var haldið í tvö fyrirtæki í Keflavík
sem bæði hafa stefnt hátt og skilað
góðum árangri. Þessi fyrirtæki em
Ragnarsbakarí og Trésmíðastofa
Þorvaldar Ólafssonar.