Þjóðviljinn - 27.05.1983, Síða 16
wðmhnn
Föstudagur 27. maí 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag tll föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 816&3. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Beðið á
Bessa-
stöðum
Það eru fleiri en ráðherrar og al-
þingismenn sem standa í ströngu
þessa dagana. Ekki kæmust þeir þó
langt í viðræðum um stjórnarm-
yndanir ef ekki væru bílstjórarnir
til að aka þeim á milli staða. Þessa
mynd tók eik fyrir utan Bessastaði
af ráðherrabílstjórunum sem þar
biðu þess að aka húsbændum sín-
um á næsta viðkomustað.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ: lágtekjufólki er engan veg-
inn bættur sá skaði sem það
augljóslega á að verða fyrir.
Kristján Thorlacius formaður BSRB
Reiðarslag fyrir almenning
Þessar aðgerðir eru slíkt
reiðarslag fyrir almenning í
landinu að fólk kemst í algera
nauðvörn - og væntanleg við-
brögð samtaka launafólks
hljóta að miðast við það, sagði
Kristján Thorlacius formaður
Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
- Mér líst í einu orði sagt mjög
illa á þessar fyrirhuguðu
aðgerðir. Ég vil minna á það, að
ASÍ og BSRB sendu frá sér sam-
hljóða ályktun 10. maí sl., þar-
Launafólk
kemst í algjöra
nauðvörn!
sem varað var við þungu höggi 1.
júní gagnvart kjörum almenn-
ings. Það högg er nú komið í ljós.
- Við lítum á það sem mjög
alvarlegan hlut að 1. júní og
áfram skuli verðbætur á laun vera
skertar á meðan lánskjaravísital-
an verður óskert. 14% eru tekin
af launafólki 1. j úní og verðbætur
eru auk þess felldar niður 1. sept-
ember. Jafnframt þessum árásum
á samninga og kjör launafólks, er
boðuð gengislækkun. Sú gengisl-
ækkun mun Ieiða af sér verð-
hækkanir m.a. á opinberri þjón-
ustu. Þetta verður að engu bætt í
launum ef gengur eftir. Auk
skertra verðbóta og brots á samn-
ingum, kemur svo bann við
kjarasamningum.
- Ég vil minna á að ályktun
samtaka launafólks í landinu var
sérstaklega varað við hinu þunga
höggi 1. júní og að brugðið yrði á
það ráð að skerða kjörin með til-
heyrandi .samdrætti og jafnvel
atvinnuleysi. Því miður tel ég að
ástæða sé til að óttast atvinnu-
leysi í kjölfar þessara aðgerða.
-Okkar samtök hafa boðað til
fundar um þessi mál með stjórn
og samninganefnd í byrjun júní.
Þetta er um 70 manna samkoma -
og ég geri ráð fyrir að þar verði
viðbrögð og hugsanlegar
aðgerðir ákveðnar, sagði Krist-
ján Thorlacius formaður BSRB
að lokum.
-ög
Kristján Thorlacius. Mér Hst í
stuttu máli mjög illa á þessar
aðgerðir.
Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir
Launafólk
snúi
bökum
saman
- Þessar voðalegu aðgerðir'
verða máske til þess að launafólk
snýr bökum saman í stað þess að
etja kappi innbyrðis, sagði Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir formað-
ur Sóknar við blm. í gær er hún
var á leið á miðstjórnarfundinn
hjá ASÍ.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir: etj-
um ekki kappi innbyrðis.
Bénedikt Davíðsson formaður
Sambands byggingarmanna
Atti von á
því versta
En varla svona skelfingu
Vissulega átti maður von á hinu
versta ef þessi tveir afturhalds-
flokkar mynduðu saman ríkis-
stjórn, sagði Benedikt Davíðsson
formaður Sambands byggingar-
manna í viðtali við Þjóðviljann í
gær, - en samt átti maður varla
von á svona skelfilegum hug-
myndum.
- Mér lýst mjög þunglega á það
ef þessum málefnasamningi sem
ég hef séð. Þetta hlýtur að kalla á
viðbrögð af hálfu samtaka launa-
fólks. Eg geri ráð fyrir að stjórnir
sérsambandanna komi fljótlega
saman til að taka afstöðu um
gagnaðgerðir og mér finnst ekki
ólíklegt að meðal samtaka launa-
Benedikt Davíðsson formaður
Sambands byggingar manna
fólks verði sameiginleg funda-
höld fljótlega, sagði Benedikt
Davíðsson á leið á miðstjórnar-
fund hjá ASÍ í gær.
-óg
Forseti ASÍ um efnahagsáform ríkisstjórnarinnar
Harkaleg kjaraskerðing
„Það er ljóst að í þessum
aðgerðum felst mjög harkaleg
kjaraskerðing fyrir launafólk
og enda þótt við höfum ekki
séð nákvæmt yfirlit yfir þær
aðgerðir sem á að grípa til
virðist langt í frá að lágtekjuf-
ólki sé bættur sá skaði sem
það augljóslega verður fyrir“,
sagði Asmundur Stefánsson
forseti Alþýðusambands ís-
lands I samtali við Þjóðviljann
í gær.
„Miðað við þær upplýsingar
sem við höfum fengið virðist hin
nýja ríkisstjórn ætla að afnema
samningsréttinn fram í febrúar á
næsta ári. Eftir þann tíma hyggj-
ast stjórnvöld setja verka-
lýðssamtökunum afar þröngan
ramma við gerð samninga. Það er
greinilega stefnt á fjórðungi lak-
ari kaupmátt við næstu áramót en
hann var á sl. ári. Alþýðusam-
band íslands mótmælir þessum
aðgerðum harðlega á þessu stigi
en viðbrögðin í framhaldi af því
hljóta að fara eftir heildarmati á
stöðunni. Þau mál munum við
m.a. ræða á formannaráðstefnu
okkar, sem ákveðið var að boða
til 6. júní“, sagði Ásmundur Stef-
ánsson að lokum.