Þjóðviljinn - 29.06.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.06.1983, Blaðsíða 1
DJOÐVILMN í Burlington, 40 þúsund manna bæ í Bandaríkjunum er Ær -. ” sósíalisti borgarstjóri. sjá 7 ,júní 1983 miðvikudagur 142. tölublað 48. árgangur Hjörleifur Guttormsson um skattadeilur við Alusuisse: Gulrætur rúlluðu í þúsundatali niður Fellsmúlann í gærdag, þegar svo óheppilega vildi til að vörulyftari með stóran farm af gulrótum missti bretti af göfflunum fyrir framan bækistöðvar Grænmetisverslunarinnar. Þessar gulrætur hafa það fram yfir aðrar að það er búið að tvítaka þær upp með skömmu millibili. Mynd - eik. Ríkissaksóknari kærir útgefanda Spegilsins Kröflusvæðið: Jarðskjálítar siðustu daga „Það er ekki allt með kyrrum kjörum við Kröflu þó við eigum í vandræðum með að staðsetja upp- tökin sem eru einhversstaðar við Leirhjúk. Jarðskjálftar eru mun tíðari en verið hefur um margra mánaða skeið og hallamælar hafa sýnt nokkurð sig siðustu daga,“ sagði Eysteinn Tryggvason jarðfræðingur er Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær. Um helg- ina síðustu voru allmargir snarpir kippir á Kröflusvæðinu. Alllangt er um liðið síðan skjálftavaktin í Reynihlíð var lögð niður en starfsmenn Kröfluvir- kjunar fylgjast stöðugt með öllum breytingum sem verða á svæðinu. í virkjuninni eru allir nauðsynlegir mælar og jarðfræðingar fá upplýs- ingar um gang mála óðar og dregur til tíðinda. Eysteinn kvaðst ekki geta borið undanfara gosa á Kröflusvæðinu saman við hræringarnar nú, „en ég lýsi bjartsýni og vona að eitthvað skemmtilegt fari að gerast," sagði hann. - hól. Iniiheimta ber þessar 275 mUjónir króna Menntaskólinn á Egilsstöðum var sóttur heim af fréttariturum Þjóðviljans á Austurlandi. Engin lög voru brotin ✓ segir Ulfar Þormóðsson í gær gaf ríkissaksóknari út ákæru á hendur útgefanda tíma- ritsins Spegilsins vegna útgáfu á 2. tbl. þessa árgangs og síðar útgáfu á blaðinu „Samviska þjóðarinnar*4 fyrr í mánuðinum. Ákærða er gefið að sök að hafa opinberlega dregið dár að og smán- að trúarkenningar og guðsdýrkun hinnar evangelísku lútersku þjóðkirkju, birt á prenti, dreift og selt, sora- og klámfengið lesmál og myndir og brotið prentrétt. Saksóknari krefst að ákærði verði dæmdur til refsingar og sæti upptöku á blöðum, myndmótum og offsettfilmum áðurnefndra blaða. Úlfar Þormóðsson útgefandi Spegilsins sagði í samtali við Þjóð- viljann í gær að hann mótmælti öll- um þessum ákærum. Engin lög hefðu verið brotin. Hvorki útgefanda Spegilsins né lögmanni hans var birt ákæra ríkis- saksóknara áður en henni var dreift til fjölmiðla síðdegis í gær. _____________________________^jg- sjá 3 verði ákveðið að falla frá gerðardóminum „Ætlar ríkisstjórnin og iðnaðarr- áðherra að sætta sig við citthvað minna en að fá a.m.k. framleiðslu- kostnaðarverð fyrir raforkuna, sem þýðir þreföldun frá núverandi verði eða 20 mill (55 aura) fyrir kílówattstundina? - Því verður ekki trúað að óreyndu, því að þá væri verið að dæma íslenska raf- orkunotendur, bæði heimilin og innlendan atvinnurekstur til að greiða áframhaldandi styrk til ál - versins með hærra raforkuverði.44 Þannig kemst Hjörleifur Gutt- ormsson, fyrrverandi iðnaðarráð- herra meðal annars að orði í viðtali sem Þjóðviljinn tók við hann í ti- lefni fyrsta formlega viðræðufund- arins, sem fulltrúar núverandi ríkisstjórnar áttu með forstjórum Alusuissc á föstudaginn var. Hjörleifur minnir á, að þeir við- bótarskattar, sem lagðir voru á dótturfyrirtæki Alusuisse hér vegna dulins hagnaðar á liðnum árum nemi með vöxtum um 275 miljónum króna, og er það talsvert hærri upphæð en Alusuisse greiðir Landsvirkjun árlega fyrir kaup á raforku. í viðtalinu við Hjörleif kemur fram, að hann telur síður en svo ástæðu til þess að óttast niðurstöð- ur gerðardóms fyrir okkur fslend- inga varðandi gömlu skattadei- luna. Hjörleifur kveðst hins vegar líta svo á, að ef Alusuisse hætti ein- hliða við gerðardóminn, þá sé auðhringurinn þar með að viður- kenna þennan viðbótarskatt, og þá sé sjálfsagt að fjármálaráðuneytið innheimti hann hið fyrsta sam- kvæmt lögum. sjá 6

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.