Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 3
Framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun Vörubílstjórar ugg andi um slnn hag Iðnaðarráðherra sent bréf um málið „Við hér fyrir austan crum ákaf- un hafa tekið. Af 25 miljón kr. lega óhressir ineð þá stefnu sem heimild hafa einungis fengist 2,5 framkvæmdir við Fljótsdalsvirkj- miljónir til framkvæmda inná heiði Mænuskaddaðir eftir umferðarslys: Aðeins einn notaði bílbelti „Ég get fullyrt að bílbelti hefðu forðað flestu þessu fólki frá því að hljóta svo mikinn skaða, en aðeins í einu tilfelli hafði bílbelti verið not- að - og þá rangt, þannig að það hjálpaði ekki“, sagði Sigríður Knútsdóttir, sem rannsakað hefur mænuskaða af völdum bifreiða- slysa hér á landi á árunum 1973- 1983. Hún lagði fram rannsókn sína á umferðarslysaþingínu, sem nýlega lauk í Reykjavík. Sigrún tók fyrir skýrslur um þá 63 sjúklinga með mænuskaða, sem komið höfðu til endurhæfingar og meðferðar á Grensásdeild Borgar- spítalans á þessu árabili. Ríflega helmingur þessa fólks hafði hlotið áverkann í umferðarslysi og þar af 80 prósent úti á þjóðvegum lands- ins. Meðalaldur hópsins var lágur, um 65 prósent voru undir 35 ára aldri, en flestir á aldrinum 15-22 ára. Meðaltíminn á sjúkrahúsi voru 10,3 mánuðir, en 2 dvöldu lengur en tvö og hálft ár. Eftir endurhaefinguna eru 46 af þessum 63 einstaklingum bundnir í hjóla- stól, nota hækjur, spelkur eða önn- ur hjálpartæki. ast Dregið í bílbeltahappdrættinu Á umferðarslysaþinginu í Reykjavík drógu fulltrúar allra Norðurlanda í bílbeltahappdrætt- inu. Vinningarnir og númerin fara hér á eftir: Tveir Atlas hjólbarðar 37416 Barnabílstóll frá Volvo 37417 Dvöl á Edduhóteli fyrir tvo í eina nótt 23060 Bílbelti í aftursæti 4828 Bílapakkar frá tryggingafélögun- um 21418, 26175, 28301 og 38406 Slökkvitæki ög Rauða krosspakkar 12673, 34535, 21040 og 36776. ast og ekki von á meiri pening að sögn þeirra sem sjá um framkvæmdir. Þá hafa ekki fengist neinir peningar tii vegaframkvæmda í byggð og því er hér um mikla breytingu á virkj- unarframkvæmdunum að ræða“, sagði Björn Pálsson vörubílstjóri á Egilsstöðum í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. „Þetta kemur ansi harkalega nið- ur á mönnum hérna", sagði Björn ennfremur, „því við höfum reynt að undirbúa okkur undir að geta sinnt þessum störfum sjálfir, en þurfa ekki að sækja vélakost útfyrir svæðið. Við teljum í sjálfu sér eðli- legt, að við tökum á okkur ein- hvern hluta niðurskurðar opin- berra framkvæmda í landinu, en þetta er full mikið af því góða! Sér- staklega þegar að því er gætt að Austfirðingar hafa ekki haft feitan gölt að flá, þegar um er að ræða fjárfestingar hins opinbera til vega- framkvæmda í fjórðungnum. Við höfum sent iðnaðarráðherra og þingmönnum Austurlands bréf um málið og lýsum þar ástandinu og biðjum um að staðið verði við fjár- festingar. Væntum við okkur góðs af iðnaðarráðherra og vil ég ekki vanreysta honum fyrr en málið hef- ur verið kannað til þrautar", sagði Björn, en haft er eftir iðnaðarráð- herra Sverri Hermannssyni í Tím- anum 30.-31. júlí sl. að stækkun Búrfellsvirkjunar sé brýn og „að taka verði inn flöskuhálsinn sem er að myndast við Sultartanga". Sagði Björn að samþykkt alþingis lægi fyrir því að Fljótsdalsvirkjun kæmi næst á eftir Blöndu og tryði hann því ekki að iðnaðarráðherra vildi taka þessar framkvæmdar frá kjós- endum sínum. -áþj Friðargangan 83: Oskilamunir óskast sóttir Friðargangan 83 heppnaðist fá- dærna vel eins og landsmenn vita, en þó eru einhverjir ögn fátækari á eftir að efnislegum gæðum. Sumir gleymdu úlpunni sinni í rútu, aðrir vettling og enn aðrir misstu eitthvað á göngunni. Á myndinni getur að líta óskilamuni ýmsa, sem starfsmenn göngunnar voru svo hugulsamir að halda til haga. Þeir sem kannast þarna við úlp- una sína, trefilinn sinn eða annað eða vita sig hafa tapað einhverju á göngunni eru beðnir að snúa sér til skrifstofu Samtaka herstöðvaand- stæðinga að Frakkastíg 14. Hún er opin á mánudögum rnilli 5 og 6 og á fimmtudögum milli 3 og 4. Utan þessa tíma má hafa samband við starfsmann samtakanna, Guð- mund Guðlaugsson í síma 79792 og spyrjast fyrir. ast Föstudagúr 12.' ágúst 1983 ÞlÓÍ)VILJINN - SÍÐA 3 Atómstöðin kvikmynduð Statísta vantar Unnið er af kappi við kvikmynd- un Atómstöðvarinnar, eftir skáld- sögu Halldórs Laxness, um þessar mundir og nk. sunnudag fara fram upptökur á mótmælafundinum mikla gegn byggingu „atomic stati- on“ á Islandi. Það er kvikmyndafé- lagið Óðinn sem stendur að gerð myndarinnar og að sögn forráða- manna þess vantar enn statista til þess að vera með í þessari stóru senu. Hér gefst kjörið tækifæri fyrir alla þá sem lengi hefur dreymt um að krjúpa að stalli Þalíu, og gerast leikarar, til að spreyta sig. Þátttaka tilkynnist til Óðinsmanna á Hverf- isgötu 56, 2. hæð á laugardag, milli kl. 14-17, eða í símum 23633 og 16444. Á myndinni sést Þorsteinn Jóns- son leikstjóri Atómstöðvarinnar í þungum þönkum. Bakvið vélina stendur Karl Óskarsson kvikmynd- atökumaður og í bakgrunni má sjá tvo aðstoðarmenn hans. -áþj/Mynd: Leifur. ítalskt herskip í Sundahöfn ítalska beitiskipið Caio Guilio kom til Reykjavíkur í morgun og mun vera hér í 4 daga. Skipið er búið eidflaugum og þyrlum auk þess sem eru um borð 150 sjó- liðsforingjaefni úr ítalska flotanum en herskipið er notað sem skóla- skip á sumrin. Eru þá jafnan heim- sóttar hafnir í Norður-Evrópu. Skipið verður til sýnis fyrir almenn- ing á sunnudag og mánudag frá kl. 15-17 þar í Sundahöfn. Þeir sem vilja kynnast sjóliðsfor- ingjaefnunum geta heilsað uppá þá í veitingahúsinu Broadway milli 20-22 í kvöld að því er segir í frétt frá vararæðismanni ítala. Sápa sett í Geysi Það er mikill áhugi á Geysi um Sápan gefur alltaf árangur en þessar rnundir og verður honum misjafnlega fljótt því að hverinn gefin sápa á laugardag klukkan 15, mikli hefur stríða lund og lætur sagði Kjartan Lárusson hjá Ferðá- ekki með öllu segja sér fyrir verk- skrifstofu ríkisins. um, sagði Kjartan ennfremur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.