Þjóðviljinn - 12.08.1983, Side 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1983
"-BLAÐAUKI
Allt stendur
og fellur...
Framhald af bls.- 9.
möguleikinn á sjónvarsmóttöku
gegnum gervihnött hérlendis.“
- Hver er flutningsgeta þessara
gerfihnatta?
„Hver svona hnöttur í Intelsat/
Eutelsat-kerfunum hefur flutnings-
getu sem samsvarar 24 myndrás-
um.eneinungistvær þeirra eru
nýttarþannig.Hinar eru notaðar til
að flytja símrásir og eru 500 símrás-
ir á hverri sjónvarpsrás, en það
gera 11 þúsund símrásir, sem hver
hnöttur flytur. Hægt er að gera
tíðnisviðið sterkara með því t.d. að
leigja tvær sjónvarpsrásir en senda
bara eina mynd. Þá skila sjón-
varpsmerkin sér betur og mynd-
gæðin verða betri, því dreifikerfin
skemma alltaf sjónvarpsmerkin
eitthvað, og eftir því sem móttak-
endur eru fleiri þarf sterkara
loftnet.“
Dreifikerfi
- Þú nefndir áðan sérstakt gervi-
hnattakerfi til dreifingar. Hvernig
standa þau mál?
„Það er enginn gervihnöttur á
lofti í dag sem eingöngu er ætlaður
til dreifingar. Kanadamenn og Ind-
verjar eru að þreifa sig áfram með
þetta, sömuleiðis Bandaríkja-
menn, en fyrstu hnettirnir sem lík-
lega komast upp til þessara nota
eru hinn margumræddi breski
gervihnöttur, ásamt þýskum og
frönskum hnöttum. Ef allar áætl-
anir standast ætti það að verða árið
1986.“
- Verður mögulcgt fyrir okkur
að nota þessa hnctti?
„Þessir hnettir koma til með að
dreifa yfir mjög takmarkað svæði.
Bæði vegna þess að aflið er dýrt uti
í geimnum, svo og til þess að trufla
ekki tíðnisvið annara landa, en ým-
is lönd vilja ekki láta senda sjón-
varpsefni yfir landssvæði. Þar kem-
ur til póiitík og margt annað. Af
þessum þrem ímöttum kemur sá
breski helst til greina, hvað varðar
dreifingu á sjónvarpsefni beint hér-
lendis og eru möguleikarnir til
móttöku mestir á norð-austan
verðu landinu. Annar möguleiki
fyrir okkur er svo Nordsat gervi-
hnötturinn ef hann verður að veru-
leika einhverntíma í framtíðinni."
- Hver er staðan í Nordsat mál-
inu?
„Það er verið að vinna í pappír-
um og gera áætlanir. Nú mun vera
Þrír áfangar í sögu fjarskipta á islandi. Efst gefur að líta gamla
Landsímahúsið, sem reist var í upphafi aldarinnar, til að þjóna
fjarskiptum þjóðarinnar. Á myndinni til hliðar eru símastúlkur við
skiptiborð af gömlu gerðinni - er myndin frá því kringum 1950, en
núna hefur sjálfvirknin tekið yfir þeirra starf, að mestu. Myndin hér
fyrir ofan er nýjust af nálinni, af jarðstöðinni Skyggni sem gerbreytt
hefur fjarskiptamálum hérlendis stðan hún kom til sögunnar.
(Mynd: -eik).
i
Fjölbylgjuviðtæki með 12 bylgjulengdum
og Digital tíðnimæli o.fl. o.fl. "
Mjög vandað tæki frá Japan
Vilberg og Þorsteinn,
ákveðið að senda upp Tele-X
gervihnöttinn, sem upphaflega var
hannaður af Svíum í samstarfi við
evrópsk samtök, og ætla Norð-
menn að vera með í þeim fram-
kvæmdum. Líklegt er talið að
Finnar taki einnig þátt í uppsend-
ingu Tele-X hnattarins og það er
verið að athuga hvort hægt sé að
breyta hönnun hans, þannig að
sendingar nái einnig til íslands, en í
upphafi var hnötturinn aðeins ætl-
aður fyrir Skandinavíu. Hann var í
upphafi hugsaður sem tilrauna-
hnöttur og hönnun hans miðast við
að Nordsat keypti hann, þegar sú
áætlun kæmist útí lífið, og Svíar
hafa reyndar lýst því yfir að notkun
Tele-X í Nordsatáætluninni sé skil-
yrði fyrir þátttöku af þeirra hálfu.“
„Það er venjulega talað um sjö
ár. Þeir eru drifnir af sólarorku og
hafa sólrafhlöður þær, sem hingað
til hafa verið notaðar, ekki enst
lengri tíma. Núna eru komnar nýj-
ar sem eiga að endast betur en þær
hafa ekki verið reyndar til þrautar.
Annað atriði eru takmarkanir á
eldsneyti sem notað er til að
„skjóta“ hnetti á rétta braut, en á
ferð sinni um geiminn rekur hann
smátt og smátt nær jörðinni og þarf
að leiðrétta stefnu hans annað
slagið. Eldsneytisbirgðir til þess
arna hafa einnig enst sjö ár. Þá má
geta þess að sendiafl dreifihnatta
þarf að vera mjög mikið, eða 200-
400 Wött, (það er aðeins 20 Wött í
flutningshnöttunum) og í reynd
hefur ekki verið til tækjabúnaður,
nMfi:
- Hvaða líkur eru á að Nordsat
verði að veruleika?
„Ég þori nú ekki að segja neitt
ákveðið um það. Það er unnið í
þessu máli af krafti og ef marka má
skýrslur sem kollegar mínir, sem
vinna við þetta, senda frá sér, er
allt útlit á því að Normenn og Svíar
ætli að keyra þetta í gegn, þannig
að Nordsat verði að veruleika. Það
sem mestu veldur þar um er að
þessar þjóðir sjá það í hendi sér, að
ef þær ætla að vera með í fjar-
skiptum í framtíðinni, þá verða þær
að leggja útí þann kostnað sem því
er samfara. Því tel ég meiri líkur á
því í dag, að Nordsat verði að veru-
leika, en áður og frændþjóðum
okkar á Norðurlöndum er umhug-
að um að við íslendingar verðum
með í þessu samstarfi, Það sem
einnig vekur athygli, er að í þeim
geisla sem dekka á ísland, er sömu-
leiðis gert ráð fyrir þátttöku Færey-
inga.“
- Hvað má lesa útúr því?
„Það virðist benda til að hinar
þjóðirnar trúi því að Danir verði
með, þegar Nordsat verður að
veruleika, líklega árið 1988, en þeir
drógu sig útúr samstarfinu fyrir 2
árum síðan.“
- Hvenær gæti Nordsat komist í
gagnið ef...?
„Það eru nú ansi mörg „ef“ í
þessu máli. Dragist ákvörðunar-
taka ekki mikið lengur úr þessu, og
það yrði ákveðið að hrinda Nord-
sat í framkvæmd, þá gæti fyrsti
hnötturinn líklega komist upp árið
1988 og sá næsti 1989. Það þýddi að
hægt yrði að sjá sjónvarp strax árið
1988 og jafnvel fyrr, ef Tele-X
sendir geisla til íslands, en þar yrði
þá um tilraunasendingar að ræða.“
- Hvað kostar nú svona lagað?
„Verðið liggur á bilinum 40-80
miljónir dollara fyrir hnött svo
þetta yrði einhversstaðar á bilinu
milli 80 og 160 miljónir dollara.
Verðið fer dálítið eftir stærð og
ekki síður því, hvort smíði hnatt-
anna yrði boðin út og lægsta tilboði
tekið, eða hvort sett yrðu ákveðin
ákvæði um að vissir hlutar þeirra
yrðu smíðaðir á Norðurlöndunum.
Ef hið síðarnefnda yrði uppá, og
þessar þjóðir sæu um t.d. 5%
smíðinnar, þá bendir allt til að það
bættist beint við kostnað. Þá er
eftir að bæta við kostnaði við að
koma gervihnetti á braut, en upp-
skot með eldflaug nemur um 40
miljónum dollara, en hægt mun að
minnka kostnað um helming ef
geymskutla er notuð.“
- Hvað „lifa“ svona gervihnettir
lengi?
til að nota við þessar tíðnir, fyrr en
nú. Sérstaklega hefur gengið illa að
búa til lampa sem þola svona mikið
afl. Eins og þetta er í dag, þá má
segja að líf hvers hnattar sé dýrt, en
framtíðarsýnin er sú að hægt verði
að taka gervihnetti niður til
viðgerðar og eldsneytisfyllingar
með geimskutlunni, og senda þá
síðan á braut á nýjan leik.“
Skyggnir
- Ef við víkjum aðeins að
jarðstöðinni Skyggni í lokin. Hvert
er hlutverk hennar í þessu sam-
hengi?
„Skyggnir er eingöngu byggður
til að taka á móti efni frá Intelsat-
gervihnettinum, en móttökustöðv-
ar af hans gerð getaaðeinsunn-
ið á einum hnetti í einu. Stóra loft-
netið á Skyggni er 32 m í þvermál
og fara rúmlega 2/3 af allri símaum-
ferð til og frá landinu í gegnum
jarðstöðina. Núna eru fluttar ca.
100 símrásir gegnum Skyggni og
vex flutningurinn hröðum skref-
um. Samanborið við sæsímastreng-
ina er þetta mikið magn, en þeir
geta flutt 24 rásir, hvor um sig.
Lætur nærri að um 80% símaum-
ferðar okkar íslendinga fari í gegn-
um jarðstöðina í dag og því er
nauðsynlegt að hafa eitthvert vara-
loftnet fyrir stóra skerminn.“
- Stendur til að reisa slíkt
loftnet?
„Reyndar var reist nýtt loftnet í
vor við stöðina sem er 13 m í þver-
mál og er það leigt Bandaríkja-
mönnum, til að taka á móti efni
fyrir kanann á Vellinum, en hann
hefur leigt sig inná Intelsat-kerfið.
Það er strax mikið öryggi að hafa
þetta litla net. Ef eitthvað kæmi
fyrir stóra netið, er hægt að fytja
símaumferðina yfir á það litla og
koma þannig í veg fyrir algert öng-
þveiti, sem ella myndi skapast.
Núna bíðum við spenntir eftir að
sjá, hvernig þetta nýja loftnet
stendur sig í íslenskri veðráttu, en
það á að þola meiri vind en það
gamla."
- Varla dugir okkur Islendingum
ein jarðstöð til langframa á þessum
miklum fjarskiptatímum?
„Það er náttúrulega ljóst að í
næstu framtíð verður að færa út
kvíarnar í þessum málum. Annað-
hvort er að byggja nýja jarðstöð,
t.d. í Eutelsat-kerfinu, eða leggja
stóran og öflugan sæstreng, því nú-
tíma þjóðfélag krefst þess að síma-
samgöngur og önnur fjarskipti séu í
lagi. Það stendur og fellur með
þeim!“ -áþj