Þjóðviljinn - 12.08.1983, Síða 14
14 SÍÐA - Í»JÓÐVILJINN Fö^tuddgur 12. ágdst 1983
IBLAÐALKI
Vinnum sem hagsmunafélag
Alltsem rafeindamadurinn þarf
ISRAS
sími 24310
Skúlagata 63
segir
Jónas
Bjarnason
Nafn FR kemurfljóttuppíhug-
anum, þegar taliö berst að CB-
talstöövum, oft manna á meðal
kallaðar FR-talstöðvar, en
notkun þeirra varfyrst heimiluð
hérlendis af Pósti og síma árið
1964. Uppúr 1968 komst fyrst
einhver hreyfing á notkun
stöðvanna og 22. febrúar 1970
er Farstöðvaklúbbur Reykja-
víkurstofnaður. Vöxturfélags-
ins hefursíðan verið mjög ör,
og má segja að það hafi þróast í
fjórum áföngum, í það félag
sem það er ídag. Fyrst var það
Farstöðvaklúbbur Reykjavíkur,
síðan Farstöðvaklúbbur Rvíkur
og nágrennis, þvínæst Félag
farstöðvaeigenda, og fjórða
skrefið varsvo Félag farstöðva-
eigenda á íslandi, sem er
landsfélag. Til að kynnast FR
aðeins betur heimsótti Þjv. Jón-
as Bjarnason, framkvæmda-
stjóra, í bækistöð landsstjórn-
arinnar í Síðumúla 2.
ITT/STC,
ELECTRONIC
SERVICES
Stærstu birgðir í heimi.
Meira en 40000 heiti.
Fljót afgreiðsla.
Ódýr þjónusta.
FR-13, Jónas Bjarnason, í
viðbragsstöðu við talstöðina í
aðalbækistöðvum FR í Síðu-
múia 2. (Mynd: -eik).
„Fclagið hefur þróast uppí það,
að í dag eru 23 FR-deildir starf-
andi, sem hver um sig hefur sjálf-
stæða stjórn, og félagatalan er
komin yfir 8 þúsund. Þar sem
deildir eru ekki starfandi, sökum
strjálbýlis, starfa umboðsmenn og
eru þeir í dag um-30 talsins. Fulltrú-
ar deildanna koma saman einu
sinni á ári til ársþings, þar sem
kjörnir eru tíu menn í landsstjórn,
sem fer með málefni félagsins á
milli þinga.“
- Hver hafa helstu baráttumál
félagsins verið í gegnum árin?
„Þegar félagið byrjaði voru eng-
ar reglur til um úthlutun rása, tíðni-
sviðið óskipulagt, og einungis
19. des. 1979 fékkst samþykki yfir-
valda til að fjölga uppí 40 rásir, á
27Mhz tíðnisviðinu, með óskertu
sendiafli. Áfangi þessi er merkur
að því leyti að með þessu varð ís-
land fyrsta landið í Evrópu til að
heimila þegnum sínum notkun 40
rása í almenningstíðnisviðinu. Við
þökkum þennan árangur því, að fé-
íagið hefur staðið ákaflega vel
saman sem heild, andstætt því sem
td. hefur verið á hinum Norður-
löndunum. í Danmörku eru starf-
andi yfir 100 smáklúbbar og hefur
þeim veist erfitt að vinna saman og
því ekki náð þeim árangri sem tek-
ist hefur hér heima. Endanlegan
árangur teljum við svo hafa náðst
3. feb. sl. með auglýsingu frá sam-
gönguráðuneytinu um skipulag
almenningstíðnisviðsins."
- Eruð þið með í alþjóðlegri sam-
vinnu?
„Já. Það var farið út í samvinnu
við Evrópusamtök farstöðva-
eigenda, sömuleiðis alheims-
samtök farstöðvaeigenda, og hefur
sá góði árangur sem við höfum
náð, hér heima, vakið mikla at-
hygli og verið notaður sem rök í
baráttu þessara samtaka."
- Hvernig hefur samvinnan verið
við stjórnvöld?
„FR öðlaðist fljótt þá viður-
kenningu hjá stjórnvöldum að fé-
lagið fékk leyfi til að nota eigið
kallnúmerakerfi. Það er sérstakt
að því leyti að fyrir utan okkur hef-
ur einungis FÍB slíkt leyfi. Þann 30.
des. 1981 var skrifað undir sam-
starfsskipulag við Almannavarnir
ríkisins og þar fyrir utan er félagið
víða um landið með daglega sam-
vinnu við bæði löggæslu og hjálpar-
sveitir. Sömuleiðis höfum við gott
samstarf við Öryrkjabandalag ís-
lands og njóta öryrkjar sérstakrar
fyrirgreiðslu í félaginu. Nain sam-
vinna er einnig við FÍB, td. um
verslunarmannahelgar og hófst
það starf strax árið 1979. Einnig
eigum við gott samstarf við Slysa-
varnafélagið og Landhelgisgæslu
og má í því sambandi nefna að öll
gæsluskipin eru með FR númer“.
- Hverjir eru helstu þættir í
starfsemi FR?
„Starfsemi félagsins er mikið til í
föstu formi. Flvað útgáfumál
varðar er árlega gefið út félagatal
sem jafnframt er handbók. Einnig
erum við með sérritið Rás 6, þar
sem fjalað er um málefni félagsins
og farstöðvaeigenda almennt. Að
auki er töluverð útgáfustarfsemi
innan einstakra deilda, í formi
fréttabréfa frá svæðunum. Annarri
fastri starfsemi er hagað eftir að-
stæðum í hverri deild, en stór hluti
starfseminnar eru námskeið ými-
skonar og kynnisferðir, og er þá
bæði um tæknileg og félagsleg atr-
iði að ræða.“
- Hvað með félagsstarfsemi „í
léltari dúr“?
„Á vegum landsfélagsins er
haldin árshátíð, sumarhátíð, og
gengist er fyrir ferðalögum. Þá er
mikil starfsemi úti í deildum og
halda margar þeirra sínar eigin árs-
hátíðir, ásamt smærri manna-
mótum.“
- Að lokum. Hvernig eru fram-
tíðarhorfurnar?
„Þegar er hafinn síðari hluti
framkvæmda á baráttumálum
félagsins, en það er niðurfelling op-
inberra gjalda af stöðvum, barátta
fyrir auknu úrvali á þessum tækjum
og breytingar á reglum hvað þau
varðar. Sömuleiðis fyrir opnun alls
27Mhz tíðnisviðsins fyrir einhliða-
bandsmótun (SSB) og auknu afli.
Þá er afstaða félagsins mjög einörð
gagnvart niðurfellingu á banni við
þessum stöðvum í tilkynninga-
skyldu fiskiskipa. Félagið mun
ennfremur leitast við að vinna sem
hagsmunafélag í tíðnisviðinu svo
sém hingað til hefur verið.“
-áþj
FR-1620, Kristinn Björnsson í
heimilt að nota 6 rása talstöðvar.
Fijótlega eftir stofnun fékk félagið
úthlutað rás til einkanota. Árið
stöðinni. (Mynd: -eik)
1975 var farið á fullu_ útí baráttu
fyrir fleiri rásum og fullkomnari
stöðvum og með reglugerðinni frá