Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 17
m' XMionttnmu NtJUtfi Tíðnisvið 138-174 MHZ Sendiafl 25 W Rásir 1-80 ■^v •«* Föstudagur 12. ágúst 19^’ÞJÓjÖVÍLjíNN'- SÍÐÁ 17 þann sem óskaði eftir símtali. Mið- stöð gæti síðan hringt í viðkomandi bílnúmer sem óskað væri eftir, án þess að aðrir kæmust inná þá línu. Þá taldi Ólafur það mikið öryggis- atriði við bílasímann að hann hefði eitt allsherjar öryggisnúmer, og gæti miðstöð því kallað upp alla bílasímnotendur, ef eitthvað alvar- legt væri á seyði. Einstaka aðilar eru þó undanþegnir því að fara í gegnum miðstöð þegar bílasíminn er notaður, svo sem lögregla, vega- gerð og rafveita. Aðspurður, um reynslu annarra þjóða af bílasímum, sagði Ólafur að mest samstarf hefði átt sér stað við hin Norðurlöndin og sýndu niðurstöður kannana þaðan að um 5% bílaflotans væru útbúin með bílasímum. Þar bæri mest á fólki tengdu atvinnulífinu en hérlendis kvaðst hann eiga von á mjög blönd- uðum hóp notenda. Ætti hann von á að margir úti á landi fögnuðu þessari nýjung, td. héraðslæknar, dýralæknar, hópferðabílstjórar og aðrir þeir sem mikið þurfa að vera á ferðinni en samt þarf að vera hægt að ná í- ef mikið liggur við. Sagði hann að ef ntiðað væri við útlönd mætti búast við 5-800 tækj- um hér eftir nokkur ár en reynslan af svipuðum nýjungum hér á landi gæfi þó ástæðu til að ætla að þau yrðu útbreiddari. Sanit undirstrik- aði Ólafur, að lokum, að bíla- síminn yrði aldrei almennur á ís- landi, til þess væri hann of dýrt sport. -áþj Ólafur Indriðason, deildarverkfræðingur hjá Pósti og síma, í einni af bifreiðum stofnunarinnar sem búin er bílsíma. Það getur verið handhægt að hafa svona „apparat" þegar regnið streymir linnulaust úr háloftunum eins og verið hefur hér á höfuðborgarsvæðinu í sumar. A innfelldu mynd- inni sést hvernig tækið lítur út, en það er lítið og handhægt og auðvelt að koma því fyrir í bíl. Myndir: -eik. SonaY hfi Baldursgata 14 Keflavík sími 92-1775 Örbylgjutalstöðvar fyrir báta/skip 55 rásir í skipabandi Móttakari leitar rásirnar (njósnari) Sendiorka 25 W VOLTIHF. Vatnagöröum 10 Sími 85854 - 85855 Önnumst viðgerðir Rafvéla og Raftækja ásamt raflögnum til sjós og lands. HEILDSALA OG SMÁSALA Á RAFVÖRUM. ■ BLAÐAUKI i .... Bíla- sírií „Þaö veröur hægt aö fara aö notfæra sér þessa þjónustu meö haustinu", sagöi Ólafur Indriöason hjá Pósti og símaer Þjv. leitaöi upplýsinga hjá hon- um um nýjasta fyrirbærið í sím- amálum hérlendis, bílasímann svokallaða. Kvað Ólafur þessi tæki þegar vera komin í verslanir hérlendis og væri hægt að fá þau hjá innflytjend- um. Kostuðu þeir um 100 þús. krónur. Stofngjald bílasíma væri svipað og að fá venjulegan síma, eða uþb. 3500 kr. og síðan yrði árs- fjórðungsgjaldið um 6-700 kr. og samtalsgjald per mínútu 10 kr. fyrir þá fyrstu og síðan 6 kr. eftir það. Sagði Ólafur að varðandi notk- un bílasímans, þá skipti engu máli hvort hringt væri úr „venjulegum" síma í bíl, eða milli tveggja bíla, alltaf þyrfti að fara í gegnum mið- stöð. Yrði afgreiðslan staðsett í Reykjavík og fengi hún ákveðið símanúmer sem gilti fyrir allt landið, líkt og 02 hjá landssíman- um. Yrði framkvæmdin þannig að pöntun á símtali teldist sem eitt skref og síðan yrði hringt til baka í Almennur áhugi Bílasíminn viröist vekja áhuga hjá íslendingum og aö sögn innflytjenda er mikiö spurt um þessi tæki. Virðast margir vera að bíða eftir því aö bílasím- inn komist í gagnið áöur en þeir láta til skarar skríða. Þó mun eitthvaö vera um það nú þegar aö almenningur og stærri fyrir- tæki séu búin aö koma fyrir bíl- asíma í farartækjum sínum. Að sögn innflytjenda virðast fyrirspurnir dreifast nokkuð jafnt yfir landið, en mest ber á aðilum sem þurfa mikið að vera á ferðinni, vinnu sinnar vegna. Kostnaður við bílasímann er unt 100 þús. kr. og fer mjög lítið fyrir tækjunum og auðvelt er að setj a þau í bíla. Sæmi- legustu skilyrði eiga að vera fyrir bílasímann hvar sem er á landinu, þó munu vera dauðir blettir á Austurlandi, sunnan Egilsstaða, svo og á Vestfjörðum. Eitthvað standa þau þó til bóta fyrir vestan, því væntanleg er fjarskiptastöð í Flatey á Breiðafirði, sem bæta mun skilyrði á sunnanverðum Vest- fjörðum. -áþj

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.