Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 19
BLAÐAUKI Föstudagur 12. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 Úr öldinni okkar árið 1905 Sunnlenzkir bændur ríða hundruðum saman til Reykjavíkur Mótmæla ritsíma- samningnum einróma og ganga fylktu liði á fund ráðherra Sunnudaginn 1. ágúst tóku Reykvík- ingar eftir því, að óvenjulega margir bændur komu til bæjarins og voru sumir komnir langt að. Kvisaðist brátt, að bændur væru komnir til fundar, er boð- aður hafði verið með sendimönnum og bréfum af andstæðingum ritsíma- málsins, sem þá var efst á baugi. Pótti gestakoma þessi þegar miklum tíðind- um sæta og bjuggust menn við, að það mundi fyrirboði enn meiri viðburða. Landmenn fyrstir Pað var seint á sunnudag að allstór flokkur ntanna, flestir með tvo til reiðar, reið hvatlega ofan Laugaveginn og stefndi beina leið inn í portið hjá Jóni Þórðarsyni. Þar snöruðust komu- menn af baki og var þar kominn Eyjólf- ur í Hvammi á Landi við tólfta mann. Þeir höfðu lagt af stað snemma um morguninn og riðið heiman frá hálfhirt- um túnum. Fóru þeir í einum áfanga á 9 eða 10 stundum til Reykjavíkur. Síðar um kvöldið komu Holtamenn og Ashreppingar. Snemma morguns á ntánudag komu Rangvellingar og þann daginn og þriðjudagsnóttina komu Ár- nesingar, Borgfirðiúgar, Mýramenn, Nesjamenn, Kjósarmenn og Kjalne- singar. Var þá komið til Reykjavíkur hálft þriðja hundrað bænda úr fimm sýslum landsins, allt frá Markarfljóti vestur til Hítarár á Mýrum. Aðalfundurinn hefst Klukkan 11 á þriðjudagsmorgun hófst aðalfundurinn í Bárubúð. Fund- arstjóri var kjörinn Jens Pálsson, pró- fastur í Görðum, en skrifari Ágúst Jónsson, amtráðsmaður í Höskuldar- koti. Utanbæjarmenn höfðu einir at- kvæðisrétt á fundinum. Fjöldi Reykvík- inga sótti þó fundinn einnig sem áheyrendur. Framsögumaður í ritsímamálinu var Vigfús Guðmundsson, bóndi í Haga, en í landsréttindamálinu Jón Jónsson, kennari í Hafnarfirði. Stóðu umræður í hálfa aðra klukkustund, en þá voru bornar fram tillögur þær sem undirbúningsnefndin hafði samið. Voru þær samþykktar með öllum greiddum atkvæðum. Á lyktanir fundarins Tillögurnar voru svohljóðandi: a) Bændafundurinn í Reykjavík skorar alvarlega á alþingi að afstýra þeim stjórnarfarslega voða, sem sjálfs- stjórn hinnar íslensku þjóðar stend- ur af því, að forsætisráðherra Dana undirskrifi skipunarbréf Islandsráð- herrans. b) Bændafundurinn í Reykjavík skorar á alþingi mjög alvaríega að hafna algerlega ritsímasamningi þeim, er ráðherra íslands gerði s.l. haust við stóra norræna ritsímafélagið. Jafnframt skorar fundurinn á þing og stjórn að sinna tilboðum loft- skeytafélaga um loftskeytasamband milli fslands og útlanda og innan lands eða fresta málinu að öðrum kosti, því að skaðlausu, og láta rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Tillögur þessar voru samþykktar með samhljóða 230-240 atkv., og voru það allt bændur utan Reykjavíkur. Liðinu fyikt að stjórnarráðinu Áður en menn skildust var ákveðið að ganga á fund ráðherra klukkan þrjú. Hittust fundarmenn aftur við Bárubúð og skipuðu sér í fylkinguog varnefnd- in í broddi hennar. Gekk fylkingin síð- an af stað eftir Tjarnargötu, Kirkju- stræti, Pósthússtræti, Austurstræti og inn á Lækjartorg. Var fylkingin þá svo löng, að hinir síðustu voru á móts við búð Gunnars Einarssonar, er hinir fremstu voru komnir að Godthaab. Hafði sjaldan meira fjölmenni sést á götunum í einu. Var numið staðar neðan við stjórnarráðshúsið, nteðan nefndarmenn gengu á fund ráðherra. Dvaldist þeim inni hjá honum um stund, en múgurinn söng á meðan „Eld- gamla ísafold" og fleiri ættjarðarljóð. „Niður með stjórnina“ Þegar nefndarmenn komu aftur, sté séra Jens Pálsson fram og skýrði frá svörum ráðherra. Hafði hann lýst yfir, að hann gæti við hvorugri áskoruninni orðið. Við þessa fregn setti menn hljóða andartak, en síðan kallaði Þor- steinn l horarensen, bóndi á Móeiðar- hvoli, hátt og skýrt: Niður með þá stjórn, sem lítilsvirðir þjóðarviljann. Niður með ráðgjafann. Mannfjöldinn tók þegar undir. kall þetta, og kvað það við nokkrum sinnum. Að svo búnu var aftur snúið niður á Austurvöll. Þar flutli Jens Pálsson ræðu og skýrði ýtarlega frá svörum ráðherra. Uin undirskriftamálið hafði Itann sagt, að hann teldi íslendingum enga hættu stafa af því. þótt forsætisráðherra Dana skrifaði undir skipunarbréf íslands- ráðgjafa. Um ritsímamálið kvað hann það vera sannfæringu sína. að ritsími á sjó og landi væri tryggari og ódýrari en loft- skeyti. Hann kvaðst ekki sjá neina ástæðu til þingrofs og kosninga af þeim sökunt. Að ræðu prófasts lokinni hrópaði mannfjöldinn aftur „niður með stjórn- ina" sent fyrr og „niður með danska valdið". Lúðraflokkur tók síðan að leika og var sungið undir. Var oftast sungið vers það úr íslendingabrag, sem hefst á orðunum: „En þeir fólar, sem frelsi vort svíkja", því að það þótti eiga best við. Aö lokunt kvaddi Guðmundur Finn- bogason sér hljóðs. Þakkaði hann bændum skörungsskapinn að sýna, að þeir vildu ekki selja frumburðarrétt sinn eins og Esaú. Síðan tvístraðist flokkurinn. Nokkrir unglingar úr Reykjavík vildu þó hafa nteira gaman af og réðust inn í anddyri alþingishúss- ins og gerðu þar hávaða. Lögreglan tók þar á móti þeim og hurfu þeir þá þegar aftur. Samkoman fór annars prúðmannlega fram. Stjórn Þjóðræðisfélagsins hélt bænd- um skilnaðarhóf í Bárubúð um kvöldið og stóð það fram yfir miðnætti. Skcmmtu menn sér vel við ræður og söng. Morguninn eftir riðu bændur úr bænum og fylgdu bæjarmenn þeim fjöl- mennir á leið. (Úr Öldinni okkar, tímabilið 1901- 1930, sem Iðunn gaf út.) NYT0LVA FYRIRÞASEM HAFAVANIST IBMS/34 OGVHJA MEIRAAF ÞVÍGÓÐA! System/36 VÖXTUR ÁN VERKJA! IBM kynnir aukna mögulelka meö System/36 Nýja tölvan frá IBM, System/36, er hin fjórða I rööinni af almennum fyrirtækiatölvum, sem IBM hefur framleitt sérstaklega fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Hinar þrjár eru S/32, S/34 og S/38. Af þeim þrem sem fyrir eru má segja að IBM S/34 sé lang vinsælust, enda hefur hún uppfyllt flestar kröfur sem íslensk fyrirtæki hafa gert til tölvuvinnslu. Þeirsem notið hafa þjónustu IBM S/34 hafa þvi vanist góðu og vi|ja þvi vitanlega meira af slíku. IBM System/36 er því i reynd viðþót við S/34 með auknum möguleikum til stækkunar, fleiri skermum og prenturum, meiri afköstum og ýmsum nýjungum í hugþúnaði t.d. svokallað „Office system'. Þá er þaö gifurlegur kostur, að öll þjálfun starfsfólks við S/34 kemur nú að fullum notum við IBM System/36. Og fjöldi þaulreyndra notendaforrita er fyrir hendi. IBM System/36 tölvan er eins og að fá gamlan vin til aðstoöar, - reyndan og ráðagóöan með nýtisku starfsaðferöir í pokahorninu. Skaftahlíð 24 Simi 27700 105 Reykjavík ÍSLENSK ÞEKKING-ALÞJÓÐLEG TÆKNI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.