Þjóðviljinn - 27.08.1983, Page 5

Þjóðviljinn - 27.08.1983, Page 5
Helgin 27. — 28. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Listasafn alþýðu: Málverk, grafík og ljóð Sigurður Þóris, Ingibergs \og Péturs I dag, laugardag, kl. 14, opna Ingiberg Magnússon og Sigurður Þórir Sigurðsson, myndlistarsýn- ingu í Listasafni alþýðu,Grensás- vegi 16. í tengslum við opnun sýa- ingarinnar kemur út Ijóðabók eftir Pjetur Hafstein Lárusson, í djúpi daganna, myndskreytt með grafík- myndum Ingibergs sem eru á sýn- ingunni. Sýningin verður opin virka daga kl. 16-22 nema mánu- daga og kl. 14-22 um helgar. Henni lýkur sunnudaginn 11. september. Á sýningunni eru 62 verk, flest unnin á þessu ári. Sigurður Þórir sýnir 20 málverk og 14 teikningar og Ingiberg 25 grafíkmyndir úr ljóðabókinni og 3 teikningar. Að sögn þeirra félaga, Ingibergs og Pjeturs, leituðu þeir stuðnings ASÍ við útgáfu bókarinnar og var hann veittur með því að ASf kaupir hluta af upplaginu til að selja á sýn- ingunni, auk þess sem þeir aðstoðuðu við gerð prentsmiðju samninga. Skilyrði ASI var að graf- íkmyndirnar yrðu til sýnis í Lista- safninu og fengu þeir þá Sigurð Þóri í lið með sér. Þeir félagar kváðu bókina ekki verða dýrari en venju- legar ljóðabækur á markaðnum, þrátt fyrir myndskreytingarnar. Myndir Ingibergs bera sama heiti og ljóðin í bók Pjeturs. Þær eru mis mikið tengdar texta ljóðanna, frekar viðbót við þau. Pjetur Hafstein kvaðst yrkja um lífið og dauðann. Sem dæmi úr bókinni er hér ljóðið Raunsæi: Hrapað úr skýjaborgum lenti á rústum loftkastala og læt mig dreyma að dagdraumar rœtist í svefni. Pjetur hefur áður gefið út 10 ljóðakver. Ingiberg Magnússon stundaði nám við Myndlista- og jhandíðaskóla íslands í fimm ár og hefur sýnt nokkrum sinnum áður. Sigurður Þórir nam við MHÍ 1968- 70 og stundaði síðan nám í Kaup- mannahöfn í fjögur ár. Hann hefur einnig sýnt áður. _______EÞ^ Fyrirlestur um |V-íslendinga |i fyrra stríði James Edgar Rea prófessor I kanadískri sögu við Manitoba- háskóla I Winnipeg flytur opinber- an fyrirlestur í boði heimspcki- deildar Háskóla íslands á mánudag kl. 17.15 í stofu 422 í Árnagarði. Fyrirlesturinn fjallar um þátt- ;töku Vestur-íslendinga í fyrri heimstyrjöldinni og verður fluttur |á ensku. Allir velkomnir. ERT ÞÚ BÚIN(N) AÐ FA MIÐA? Listamennirnir þrír, f.v. Ingiberg Magnússon, Pjetur Hafstein Lárusson og Sigurður Þórir Sigurðsson. í baksýn sjást málverk Sigurðar. Ljósm. eik. Heimur dýranna og Salik Nýlega kom út hjá bókaútgáf- unni Bjöllunni bækurnar Heimur Dýranna eftir Chris Grey og Salik bækurnar (4 hefti) eftir Keld Hansen. Heimur Dýranna í þýðingu Ósk- ars Ingimarssonar segir frá dýra- tegundum í heiminum. Fjallað er um umhverfi, lifnaðarhætti og út- breiðsu dýra í öllum heimsálfum. f bókinni er fjöldi litmynda, korta og ítarleg efnisorðaskrá. Salikbækurnar í þýðingu Björns Þorsteinssonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur segir frá lifn- aðarháttum Eskimóa á Grænlandi fyrr á tímum. Salikbækurnar eru 4 og heita: Salik á«hérna heima, Salik og stóra skipið, Salik og hvalurinn og Salik og Arnaluk. SINGER GerS 7146 Elektrónisk • Fríarmur • Burðarhalda • Létt í meðförum (framleidd úr BurBarhalda Standur f. ketli Með sjálfvirka flytjaranum má sauma styrktan teygjusaum þ.e. þrefaldan. Þessi saumur heldur vel nýju teygjuefnunum og prjónuðum efnum. Við höfum hagnýtt okkur 130 ára reynslu við þróun þessarar vélar. Innbyggður lampi Stilling f. spennu á yfirþræði Ásmelltur áli) Elektronisk stýring Sjálfvirkur hnappagatasaumur Styrktir teygjusaumar Allur helsti nytjasaumur Einföld í notkun Spólan sett í ofanfrá Ásmelltur fótur Nýjustu gerðirnar eru SINGER FUTURA 2010 Elektronisk með minni fyrir 29 munstur, þræðara, stillanlegum blindsaumsfæti. afturábak Borð eða fríarmur Rofi eftir þörfum Stilling á saumbreidd. Elektroniskt fótstig Nálarstilling f. teygjusaum sporlengd SINGER 290 Automatic. Elektronisk með hraðastillingu, 18 munstur. Hentar sérstaklega vel til að bæta og gera við. Singer framleiðir vandaðar saumavél- ar við allra hæfi. Gerð 7184 Einföld saumavél með blindsaumi, fjölspora Zig-Zag og teygjanlegum saum, sjálfvirkum hnappagatasaum og fríarmi. Gerð 7110 Alhliða saumavél, styrktur teygjusaumur, blindsaumur f. falda, fjölspora Zig-Zag, sjálfvirkur hnappagatasaumur, nokkur munstur f. útsaum, friarmur. & RAFBÚÐ SAMBANDSINS Sinaer er alltaf spori Ármúla3 Reykjavík S.38900 framar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.